Morgunblaðið - 27.09.1991, Blaðsíða 5
' MoSÍÍÍMIjíÖÍÐ' Pöy-riírDAÓ{M‘27VÍÖ91
1 8
B 5
l
Morgunbl aðið/Bj arni
æðingur hreinsar húð viðskiptavin-
ð húðinni alveg frá unglingsárum.
Hvað á að gera?
En hvernig eiga karlmenn þá
að hirða húðina?
„Þeir verða í fyrsta lagi að fá
leiðbeiningar um hvaða húðgerð
þeir háfa,“ svarar Þórdís Björns-
dóttir. „Þeir geta fengið faglega
leiðbeiningu hjá snyrstistofum og
snyrtivöruverslunum. Feit húð
lýsir sér þannig, að húðin glansar
og gjarnan eru bólur og fílapensl-
ar í andlitinu. Þurr og viðkvæm
húð er aftur á móti með þurrku-
bletti, jafnvel flögnuð og oft glitt-
ir í háræðarnar. Flestir Islending-
ar — hvort sem um er að ræða
karla eða konur — eru með bland-
aða húð, svokallaða T-húð, því
hún er feit í kringym nef, höku
og enni en þurr annars staðar.
Þegar búið er að skilgreina
húðina er rétt að fara að huga
að andlitsvatni og rakakremi.
Karlmenn setja ilminn af kremun-
um oft á tíðum fyrir sig, en benda
má á að nú eru komnar á markað-
inn snyrtivörur sem sérstaklega
eru ætlaðar karlmönnum.
Eftir rakstur á morgnana er
bómullarhnoðra með andlitsvatni
strokið yfir húðina áður en raka-
kremið er borið á. Andlitsvatnið
hreinsar betur en vatn og það
lokar svitaholunum þannig að
óhreinindi eiga ekki eins greiðan
aðgang að húðinni. Ef menn eru
með þurra og viðkvæma húð er
til dæmis betra að nota rakspíra
í kremformi heldur en venjulegan
rakspíra því hann þurrkar og get-
ur ert húðina enn meir. Og hjá
þeim sem eru með feita húð
hreinsar andlitsvatnið
óæskilega fitu.“
Þórdís bendir á að fæstir karl-
menn láti uppi að þeir hafi áhyggj-
ur af því að verða hrukkóttir en
fyrir þá sem vilji sporna við hrukk-
um sé til augnkrem og uppbyggj-
andi andlitskrem. Þó ættu menn
undir 25 ára aldri ekki að nota
slík krem. Rakakrem geti þeir hins
vegar farið að nota frá unglings-
árunum. Þá telur hún mikilvægt
að þeir sem stunda Ijós noti raka-
krem, en þá sé mjög gott að
hreinsa húðina fyrst með andlits-
vatni áður en kremið er borið á.
Húðhreinsun á snyrtistofum
kostar á bilinu 1700-2300 kr.
Þórdís segir að ungt fólk á aldrin-
um 12-20 ára þurfi ef til vill að
koma einu sinni í mánuði og láta
hreinsa húðina. Sé það aftur á
móti með mjög slæma húð geti
verið nauðsynlegt að koma einu
sinni í viku í 2-3 skipti.
„Ef húðin er mjög slæm," seg-
ir Þórdís, „getur verið um húð-
sjúkdóma að ræða, sem hvorki
snyrtifræðingar né snyrtivörur
ráða við. í þeim tilvikum vísum
við viðskiptavinunum eindregið
til húðsjúkdómalæknis."
Tíkurnar Saga,
Limra, Þula og
Stemma ásamt
eiganda sfnum,
Guðrfði Valgeirs-
dóttur sem rekur
hundagæslu-
heimilið á Arnar-
stöðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HUNDALÍF
Á HÓTELI
Guðrfður fer út
að ganga með
hundana á hverj-
um degi þegar
veður leyfir. Hér
viðrar hún St.
Bernharðs-tíkina
Jósefínu Bóna-
parte, sem var
gesturá hunda-
hótelinu.
Hundaeigandi kemur með nýjan gest á hótelið,
og þær Þula og Stemma taka á móti honum.
Þegar hundaeigendur fara í frí
getur verið vandkvæðum bundið
að koma hundinum í gæslu. Það
er áreiðanlega erfiðara að fá
hundapíu en barnapíu, og þvf
hafa bæði einkaaðilar og félaga-
samtök tekið saman höndum og
opnað gæsluheimili fyrir hunda
meðan eigendurnir fara í frí.
^^Arnarstöðum í Flóa eiga
Hundaræktarfélag íslands
og Hundavinafélag íslands hús-
næði þar sem rekið er hunda-
gæsluheimili. Reksturinn er í hönd-
um Guðríðar Valgeirsdóttur og fjöl-
skyldu hennar. Heimilið hefur verið
rekið í átta ár og að sögn Guðríðar
er langmest að gera á surmrin.
„Það er mikilvægt að tala við
hundana sfna og sína þeim
blíðu,“ segir Guðríður og bætir
við: „Samt má ekki gleyma að
vera húsbóndi og sjálfum sér
samkvæmur f samskiptum við
dýrin.“
« FRAWCAISE
Vision ’92 heitir nýja línan í hártískunni frá
Haute Coiffure Francaise. Hárið er fremur stutt
í vetur, þó mismunandi stutt eins og sést á
meðfylgjandi myndum. í vikunni kynntu meðlimir
Haute Coiffure á íslandi línuna fyrir blaðamönnum
Daglegs lífs. í samtökunum eru af íslands hálfu:
Bára Kemp, Lovísa Jónsdóttir, Hanna Kristín
Guðmundsdóttir, Elsa Haraldsdóttir, Svava Har-
aldsdóttir og Dúddi.
Hárgreiðslumeistararnir segja að lína þessi hæfi
öllum aldri og að hægt sé að útfæra hana á
margvíslegan hátt. Vision '92 byggist upp á mjúku
permanenti og stórum, mjúkum lokkum. Hárið á
einnig að vera gljáandi og til þess að fá þá eigin-
leika fram á að nota froðu, vax og hárlakk. Það
sem er einnig mikilvægt við nýju línuna er að
nota krullujárn. Litir í hári eru mjög eðlilegir, þó
með tónbrigðum. Þá er lögð áhersla á að konur
eigi að vera kvenlegar. Á sýningunni var einnig
sýnt það nýjasta í hártísku herra og þar var
áherslan lögð á að þeir séu herralegir. Sem sagt
skýrar línur milli karla og kvenmanna.
VENUS