Morgunblaðið - 27.09.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.09.1991, Blaðsíða 8
8 B I*-------- MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1991 Morgunblaðið/KGA „Það er ekki hægt að greina grenilúsina með berum augum, en nú er rétti tíminn til að úða fyrir henni,“ segir Pétur l\l. Óla- son. plöntunum. Öll beð þarf að hreinsa af illgresi fyrir veturinn. „Bæði munar miklu að þurfa ekki að byrja á því að hreinsa arfa strax á vorin og svo er gott að taka hann áður en hann sáir sér. Allt gras og arfa- plöntur lifa af veturinn og eru til- búnar að sá fræi að vori ef ekki hefur verið hreinsað í garðinum um haustið. En aðalatriðið er að reyta arfann jafnóðum allt sumar- ið, gæta þess að taka hann um leið og hann kemur upp úr mold- inni og myndar fræ. Með því að gera þetta svona er það lítil vinna þegar fram í sækir að hirða um beðin og það tekur kannski tvö ár að hreinsa garðinn alveg af arfa. Það er ekki gott að gera þetta í skorpuvinnu og taka beðin vand- lega kannski tvisvar yfir sumarið. Þá býður maður heim þeirri hættu að arfinn nái að sá sér hvað eftir annað og ekki ræðst við neitt. Ég mæli ekki með því að fólk noti illgr- esislyf nema það kynni sér sér- staklega vel hvernig á að fara með þau og tel ekki rétt að nota mikið af þeim tegundum sem hafa lang- varandi áhrif." Pétur leggur einnig áherslu á að fólk skilji vel við matjurtagarð- inn fyrir veturinn. „Það er ágætt að stinga hann upp og setja í hann lífrænan áburð að hausti. Hann skolast ekki burt yfir veturinn held- ur nýtist næsta sumar. Það er líka mjög gott að setja húsdýraáburð í beð, sérstaklega þar sem gróður- sett hefur verið í sumar og moldin er leirkennd eins og í mörgum nýjum hverfum, t.d. í Grafarvogi og Ártúnsholti. Þetta dregur úr frostlyftingu, en leirmold lyftist mikið í frosti.“ Haustlaukar „ Nú er rétti tíminn til að setja niður haustlauka hafi fólk hugsað sér það. Túlipanar, páskaliljur og krókusar eru meðal hinna fallegu vorboða sem þarf að huga að þessa dagana. Pétur segir að eftir svona gott sumar eigi ýmsir laukar frá því í fyrra góða möguleika á því að koma til næsta vor. „Þarna getur verið um að ræða t.d. ákveðnar tegundir af túlipönum og páskaliljum, sem og ýmsa smá- lauka. Það er því best að láta þá eiga sig nema ætlunin sé að færa þá eða rýmka um þá.‘‘ Varðandi hvernig best sé að bera sig að við að gróðursetja haustlauka segir hann: „Þumalputtaregla er að setja mold sem nemur tvöfaldri þykkt lauksins ofan á hann, en þetta getur verið breytilegt eftir tegundum og því rétt að afla sér upplýsinga í hverju tilfelli fyrir sig. Það er að sjálfsögðu smekksatriði hversu langt bil fólk vill hafa á milli til dæmis túlipana, en oft er miðað við að í þyrpingu séu það eins og 10 sm. Það er ekki verra að þekja svo yfir með mosa eða hrísi ef fólk hefur tök á, en það er ekki nauðsynlegt." Texti: Elísabet M. Jónasdóttir Arfann burt Það þarf að huga að fleiru en Þaó er að mörgu að hyggja í garðinum er hausta tekur. Ef vei ó að standa að verki þarf að skipuleggja haustvinn- una tímanlega svo ekki verði farið of seint af stað. Það þarf að skilja vel við fyrir veturinn svo ónægjulegt verði að byrja vorverkin. Við fengum Pétur N. Ólason í gróðrarstöð- inni Mörk til að segja okkur fró nokkrum lykilatriðum um garða og gróður þegar sól tek- ur að lækka á lofti. það sem sígrænar plöntur þarfn- ast, til dæmis í langvarandi frost- um. Gallinn við yfirbyggingu, sem er eins og indíánatjald í laginu, er sá að allt vatn rennur af og nýtist plöntunni ekki. Á hinum Norður- löndunum er mikið gert af því að skýla sígrænum plöntum með grenigreinum sem stungið er niður umhverfis plönturnar. Það gefur mjög góða raun, en hér á landi höfum við ekki alltaf jafn góðan aðgang að greni og íbúar þar,“ segir Pétur. Grenilús Pétur segir að eins og veðráttan hafi verið seinni hluta sumars megi jafnvel búast við mikilli grenil- ús í haust. „Til að koma í veg fyrir skemmdir af völdum hennar er mikilvægt að úða plönturnar til vonar og vara núna, það gerir þeim ekkert nema gott. Ánnaðhvort er að úða sjálfur og þá er gott að nota Permesect eða panta úðun hjá fagmönnum. Grenilúsin hreiðr- ar um sig við nálarnar og sést ekki berum augum en afleiðingar eru augljósar: nálarnar verða gular og detta af. Þetta jafnar sig, en það getur tekið tvö til þrjú ár fyrir tréð að verða þakið nálum að nýju." Viðkvæmar fjölærar jurtir þarf að þekja með mosa, laufi eða hrfsi. Klippingar Veðurfarið í sumar hefur verið sérlega hagstætt fyrir vöxt trjá- plantna og að sögn Péturs spyr fólk mikið um klippingar núna. „Það er greinilegt á þeim fyrir- spurnum sem við fáum að nokkuð er um að fólk hafi plantað trjám allt of þétt. Þau hafa allt í einu tekið mikinn vaxtarkipp og þá vill fólk fá að vita hvernig á að klippa. En þegar tré hafa verið gróðursett of þétt saman er klipping bara skammtímalausn. Þá verður að grisja og færa plöntur til og það er best að gera á vorin. Hins veg- ar er gott að klippa limgerði núna og tegundir sem blómstra seint. Eftir svona mikið vaxtarsumar eins og í ár er gott að létta á limgerði með því að taka af því áður en haustvindarnir fara að næða af krafti. Einnig er ágætt að klippa tegundir eins og loðvíði og grá- víði, svo eitthvað sé nefnt. Þá er gott að grisja runna, eins og rifs- og sólberjarunna, eftir að lauf hafa fallið með því að taka gamlar grein- ar innan úr.‘‘ Sjálfur segist Pétur ekki vera mikið fyrir að klippa plöntur nema þess þurfi, eins og til dæmis í lim- gerði. „Mér finnst skemmtilegast ef plönturnar fá að njóta sín eins og þær eru, eðlilegt form þeirra má ekki fara forgörðum við klipp- ingu. Það þarf einnig að gæta vel að því að það er mjög mismunandi eftir tegundum iivenær runnar mynda blómknúppa. Það má ekki klippa eftir að þeir hafa myndast því þá blómgast runnarnir að sjálf- sögðu ekki. Varðandi klippingar á haustin þarf að gæta sérstaklega að því að ýmsar tegundir kvista, eins og til dæmis þirkikvistur, sem og sírena og dúnyllir, mynda blóm- knúppa á haustin. Þessar tegundir er því best að klippa um leið og þær eru búnar að blómstra. Aðrir kvistir, eins og japanskvistur og dvergakvistur, mynda blómknúppa á vorin og því má klippa þessar tegundir alveg niður við jörð á haustin ef fólk vill. En fólk á ekki að klippa nema það beri skynbragð á það sem það er að gera.“ „Það þarf að huga að mörgu á haustin. Viðkvæmar fjölærar plöntur, eins og t.d. kínaglóð, þarf að þekja með mosa, laufi eða hrísi, einhverju lífrænu sem náttúran notar sjálf. Svo eru aðrar og enn viðkvæmari fjölærar jurtir sem best er að setja undir glerplötu. Það eru plöntur sem þola illa vætu eins og fjallablaðka og einstaka hnoðrar, svo sem spaðahnoðri. Svo er oftast best að leggja mosa eða eitthvað að rótarhálsinum á mjög viðkvæmum rósum," segir Pétur. Sígrænu plönturnar þarf að vernda fyrir sól og þurrum, köldum vindum. „Það er náttúrulega erfitt að sjá fyrir hvernig viðrar í vetur, en viðkvæmar sígrænar plöntur getur verið nauðsynlegt að byggja yfir. Margir hafa byggt eins konar indíánatjald yfir þessar plöntur, en ég tel betra að hafa yfirbygginguna kassalaga. Vatnið safnast þá fyrir á efsta hlutanum og lekur svo nið- ur á plöntuna, en það er einmitt (Jegutstu konuv heims velja HAUSTVERKIN í GARÐINUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.