Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
BRITTU ekki upp buxna-
skálmarnar ffyrr en þú
kemur ad ánni.
TYRKNESKUR MÁLSHÁTTUR
A ferð um Parísarborg
SMÁATRIÐIN þvælast oft fyrir þeim sem ferðast á eigin
vegum, séu þeir staðnum ókunnugir. Oft áttar ferðafólk
sig ekki fyrr en að ferð lokinni á því að það hefði getað
sparað sér tíma og fé með því að vita strax á fyrsta
degi hverra kosta er völ. Komast jafnvel aldrei að því.
Að loknum þessum spekiorðum er rétt að vinda sér í að
tina saman nokkra reynslumola ferðamanns í París, í von
um að slíkt smáræði geti orðið einhveijum að liði.
d Hvað ætli ég láti verða mitt fyrsta fyrir leiðirnar. í stórum
_ verk þegar ég er komin á hótelið
aí París og ætla út? Ég kaupi mér
tvö kort, annað til að ferðast um
SSMÍ borgina, hitt til þess að hringja. Á
SMí næsta götuhorni er oftast tóbaks-
búð. Þar er skynsamlegt að koma
við og kaupa sér símakort. Það
lk fæst í Tabac eða pósthúsi hverfis-
ins, ekki kaffíhúsinu. Ef maður ætlar
lítið að hringja dugar vísast lítið kort
fyrir 45 franka eða rétt innan við 500
kr, en kannski er skynsamlegra fyrir
símaglaða Islendinga að kaupa stærra
kortið á 85 franka. Eftir það verður
maður aldrei í vandræðum með að
hringja. Allaf er rándýrt að hringja á
hótelunum. Um alla borgina eru ágæt-
ir símaklefar, sem hægt er að hringja
í innanborgar, út á landsbyggðina eða
til annarra landa með því einu að stinga
plastkortinu í þar til gerða rauf. Síminn
sér svo sjálfur um að telja niður verðið
og skynsamlegt að fylgjast með tölunni
sem segir hve mikið er eftir af kort-
inu, svo samtal rofni ekki í miðju kafí.
Þetta er fljótt að koma ef hringt er til
útlanda. Svo má líka hringja til ís-
lands, biðja viðkomandi um að hringja
til baka og gefa honum upp símanúm-
erið sem stendur í klefanum. Þetta
sama gildir um aðra lánssíma, eins og
síma á veitingahúsum. Varla nokkurs
staðar finnur maður Iengur peninga-
síma, sem betur fer. Aldrei átti maður
rétta skiptimynt. Þetta er mjög hand-
hægt.
Þá er það hitt nauðsynlega kortið.
Appelsínugula kortið til að ferðast á
þægilegastan máta um stórborgina.
Auðvitað er hægt að taka leigubíla,
en fyrir utan það hve leigubílstjórar
geta Verið stirðir ef ferðamaðurinn tal-
ar ekki frönsku, þá situr maður vísast
í leigubílnum í umferðinni tímunum
saman meðan mælirinn gengur. Þótt
neðanjarðarbrautin í París sé sú elsta
í heimi, þá er hún jafnframt sú besta
og auðveldasta fyrir ókunnuga til að
rata um borgina. Aldrei er langt í neð-
anjarðarbrautarstöð, sem ber nafn. Þar
er greinilegt kort með mislitum línum
stöðvum nægir jafnvel að
ýta á hnapp til að fá á
korti leiðbeiningu um
auðveldustu leiðina.
Skynsamlegt er að spyija
þann sem maður ætlar
að hitta um nafnið á
næstu brautarstöð við
hann og þá er málið ein-
falt. Eins ef maður er
villtur í borginni þá má
með einu orði Metró láta
benda sér á næstu stöð
og rata auðveldlega með
lestinni heim til sín. Mið-
arnir eða ferðakortið sem keypt er á
brautarstöðinni gilda fyrir allar ferðir
með neðanjarðarlestum, nema ef mað-
ur ætlar í útbæina, tilsvarandi því að
fara frá Reykjavík í Kópavog, Hafnar-
fjörð eða Mosféllsbæ. Frakkar hafa í
staðinn fyrir að lengja alltaf brautina
lagt djúpbrautir, sem stansa á stórum
stöðvum inni í borginni. Þá þarf að
kaupa þar viðbótarmiða við kortið sitt.
Þann miða þarf að geyma til að kom-
ast út af endastöðinni.
Margir kjósa fremur að aka með
strætisvögnum um borgina. Þótt það
sé tafsamara er gaman að virða fyrir
sér mannlífið um leið. En svo hagan-
lega er þessu korhið fyrir að kaupi
maður kort, sem heita Carte Orange
eða Appelsínugulu kortin, þá gilda þau
jafnt í neðanjarðarbrautinni sem í
strætisvögnunum. Maður bara sýnir
þau vagnstjóranum, en verður að muna
eftir að stinga þeim ekki í klippivélina
í vögnunum eins og miðunum. Þá eyði-
leggjast þau. I vögnunum er þar sem
allir geta séð það merkt leið vagnsins
með götunöfnum og biðstöðvum og
auðvelt fyrir farþegana að fylgjast með
þegar áfangastaður þeirra nálgast.
Ætli maður ekki að vera nema
nokkra daga dugir vísast að kaupa sér
Orange-kortið sem dugar í eina viku.
Það kostar ef ég man rétt 56 franka.
Ætli maður að vera lengur þá borgar
sig að kaupa gult mánaðarkort. En
auðvitað má líka kaupa sér einfaldlega
10 miða blokk, sem er heldur dýrara.
Dýrast að kaupa einn og einn miða.
Kortunum fylgir metrómiði, sem skilar
sér og notast aftur og aftur, þar til
vikan eða mánuðurinn er liðinn. Slíkur
ferðamáti er hræódýr. Með korti er
hægt að þvælast fram og aftur ómælt
og nota jafnvel strætisvagnana til
skoðunarferða um borgina. En kortin
eru bundin við persónu og til að tryggja
það verður að vera í þeim mynd. Að
vísu eru sjálfmyndasalar á stærri
stöðvunum. En þeir eru ekki alltaf í
lagi og það kostar meira umstang.
Þessvegna hefi ég alltaf með mér
nokkrar litlar myndir að heiman. Enda
þarf víðar á ferðalögum mynd með
umsóknum. Smámyndir fylgja því allt-
af passanum mínum.
Hægt er að fá á neðanjarðarbrautar-
stöðvunum ókeypis lítil plastkort með
leiðum og stöðvum, en þurfí maður að
fínna marga staði borgar sig að að
fjárfesta hjá blaðasalanum í hand-
hægri götubók með götunöfnum,
næstu stöð við og tilvísun í hverfís-
kort. Og í leiðinni að kaupa hjá blaða-
salanum vikuritið með því sem er að
gerast þá vikuna í París. Það er raun-
ar það þriðja sem ég læt verða mitt
fyrsta verk að kaupa. Þá er maður til-
búinn til að leggja land undir fót. Og
það er býsna gaman að þvælast bara
svona um París, setjast á kaffíhús og
horfa á fólkið og umferðina. g
Elín Pálmadóttir
if f erðamað-
urinn talar
ekki ffrönsku,
þá situr maður
vísast í leigu-
bílnum ■ um-
ferðinni tím-
unum saman
meðan
mælirinn
gengur
Emirates í sókn
FLUGFÉLAG Dubai í Sameinuðu
arabisku furstadæmunum sem var
stofnað fyrir röskum sex árum
flutti í fyrsta sinn yfir milljón far-
þega á síðasta ári og var það um
28% aukning frá árinu 1989. Vöru-
flutningar þess jukust um 24%.
Þegar Emirates hóf starfssemi
sína bjuggust fæstir við að uppgang-
ur þess yrði jafn mikill og raunin
hefur orðið enda er það í samkeppni
m.a. við Gulf Air sem er í eigu ýmissa
Flóaríkja og hafði getið sér góðan
orðstír. Þjónusta Emirates hefur þótt
framúrskarandi og það hefur verið
kjörið „Besta flugfélag til Mið-
Þjónusta á öllum farþegarýmum
þykir til fyrirmyndar.
Austurlanda” af Air Cargo Int. í
Bretlandi og lesendur þýska ferða-
blaðsins Reise und Preise völdu Y-
farrýmið hið besta á langleiðum.
Emirates verður kynnt nánar í
ferðablaði síðar svo og hugmyndir
að ferðatilhögun og dvöl í Dubai.
260 krtna mimr á ammliánlit
f Fríhöfn ig Flirieitaiál
ÞAÐ getur verið hagnaður af því að gera verðsamanburð á þeim vör-
um sem fást bæði í Fríhöfninni og í flugvélum Flugleiða eða annarra
flugfélaga, sem flogið er með. Blaðamaður Ferðablaðsins veitti því að
minnsta kosti athygli þegar hann átti leið til útlanda um daginn, að
sömu vörurnar kostuðu mismunandi mikið á þessum tveimur stöðum.
Mesti munurinn var á Dior masc- 49,50 dollara í Fríhöfninni, en 49
ara, sem kostaði 17,50 dollara í Frí- dollara í flugvélinni og 75 ml Ego-
höfninni en 13 dollara í Flugleiðavél- iste — Chanel rakspíri kostaði í flug-
inni, Boucheron Eau de Toilette 50 vélinni 24 dollara, en 125 ml glas
ml. úðaglas fýrir kvenménn kostáði köstar 27 dollara í Fríhöfninni. ■
Verðlækkun á hótelherberpjum í
Bandaríkjunum vegna offramboðs
SLÆMUR efnahagur í mörgum löndum ásamt áhrifum frá Flóastríð-
inu hafa haft alvarleg áhrif á hótelrekstur í mörgum löndum og hef-
ur hótelnýting víða lækkað um nokkur prósentustig. í New York
hefur hótelnýting minnkað í 57% úr 73%. Vegna samdráttar í ferðalög-
um hefur orðið offramboð á hótelherbergjum einkum í Bandaríkjunum
og hefur það orðið til að verð hefur lækkað og atls kyns tilboð bjóð-
ast. Það sem er hvað fréttnæmast er að dýru hótelin í Bandarikjunum
eru nú einnig með pakkatilboð.
Mandarin Oriental í San Francisco
hóf að bjóða frá 15. nóvember og
fram til 5. janúar herbergi á 160
dollara í stað 180. Annað hótel Tri-
ton sem er glænýtt hóf frá 1. nóv-
ember og til 1. apríl að bjóða þeim
sem gista tvær nætur að fá það fyr-
ir verð einnar eða fyrir 125 dollara.
Frá 18. nóvember og til 31. mars
býður Four Seasons í Toronto her-
bergi á 130 dollara sem er fjörutíu
dollara lækkun. Þá hafa hótel á
Hawaii aldrei þessu vant farið að
þjóða alls kyns kostakjör en þess
ber að geta að afsláttarverð er sjald-
an auglýst á Hawaii þar sem menn
vilja ekki viðurkenna þessi vandamál
heldur borgar sig að hringja beint í
hótelin og lætur árangur ekki á sér
standa. Uppselt er nú á flest ef ekki
öll hótel á Hawaii yfír jólin.
Frá 14. désember til T2. janúár
býður Hyatt-hótelkeðjan í Banda-
ríkjunum afslætti á sínu verði eink-
um á dýrari herbergjum. í New
York er nú hægt að fá herbergi á
Helmsley-hótelunum fyrir 114 doll-
ara á nóttu frá 13. desember til 6.
janúar.
í Washington DC hefur Ramada
Renaissance-hótelið ákveðið að
bjóða helgarpakka með kvöldverði,
skoðunarferð í glæsivagni fyrir að-
eins 89 dollara.
Á meðan hótelnýting er léleg eru
enn meiri möguleikar að geta nýtt
sér sértilboð eins og vikið hefur ver-
ið að hér og þess má líka geta að
þau eru lengur í gildi en gefið er
upp. Það er þess vegna sjálfsagt að
kanna málið vel og nýta sér það sem
kostur er að fá.
■
Þórður Jóhannsson