Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 22. NOVEMBER 1991
C 11
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
MENGUN. Svarti reykurinn sem kemur frá dísilbílum
eru óbrunnar sótagnir sem eru taldar hættulegar vegna
þess að þær geti valdið krabbameini.
hækka frá þeim um 60 þúsund
krónur en reynslan sýnir að það
gerðist ekki, hvorki á Norðurlönd-
unum né í Þýskalandi. Sum umboð
hér eru komin með bíla með hvarfa-
kúta og við vitum ekki til að það
hafí breytt verðinu.
Hvað viðkemur viðhaldinu þá er
áskilið í reglunum að þeir endist í
að minnsta kosti 80 þúsund kíló-
metra, en hér á landi munu þeir
endast skemur vegna ryðs. Það má
því búast við einhverjum auka-
kostnaði þar og einnig verða bíla-
verkstæðin að kosta einhverju til,
bæði til að læra á þetta og einnig
þurfa þau að fá sér tæki til að
viðhalda þessu. Kostnaðurinn er
vafalaust miklu frekar fólginn í
viðhaldi en beinlínis í hærra
verði bílanna,” sagði Karl Ragn-
ars.
Hjá varhlutaverslunum nokkurra
bílaumboða fengust þær upplýs-
ingar að ekki væri enn vitað hversu
mikið pústkerfí myndu hækka í
verði þegar hvarfakútur væri kom-
inn á það en sumir töldu að það
yrði á bilinu 30 til 50 þúsund krón-
ur. Menn sem eiga bíla með hvarfa-
kút verða að passa sig á að nota
aðeins blýlaust bensín því annars
eyðileggjast kútarnir mjög fljótt.
GoodYear
í 60 ár
BANDARÍSKU hjólbarðarnir GoodYear hafa verið til sölu
hér á landi í 60 ár og af því tilefni afhenti fulltrúi fyrirtæk-
isins forráðamönnum Heklu hf., umboðsaðila dekkjanna,
viðurkenningaskjöld með þakklæti fyrir gott samstarf.
Það var Henry Johnson svæðis-
stjóri GoodYear á Norðurlöndum
sem afhenti Heklumönnum viður-
kenninguna með þeim orðum að
hann vonaðist eftir jafn góðu sam-
starfi við fyrirtækið í framtíðinni
sem hingað til. „Það er alltaf gott
að eiga samstarf við góð og traust
fyrirtæki eins og Hekiu. Það hefur
reyndar gengið á ýmsu þau sextíu
ár sem liðin eru síðan hjólbarðar
frá okkur voru fyrst seldir á íslandi
en við erum ánægðir með það sem
Heklumenn eru að gera hér,” sagði
Johnson við afhendinguna.
Hann sagði að þrír stærstu hjól-
Tuttugu og sjö
bif hjólaslys þaö
sem af er órinu
FYRSTU tíu mánuði ársins
voru skráð 27 umferðaró-
höpp þar sem biflijól komu
við sögu í umdæmi lögregl-
unnar í Reykjavík.
í þessum óhöppum meiddust eða
slösuðust 26 ökumenn bifhjóla,
einn farþegi í bifreið og einn gang-
andi vegfarandi og tveir af 26
ökumönnum létust.
Heildarfjöldi skráðra bifhjóla í
Reykjavík í fyi'ra voru 395 en
1.113 bifhjól voru skráð í landinu
öllu.
Flest óhöpp, átta talsins, urðu
vegna þess að ökumenn hjólanna
misstu vald á hjólinu og sjö sinnum
var bifreið ekið í veg fyrir bifhjól
á gatnamótum. Flestir ökumann-
anna sem slösuðust voru 19 ára
en sá yngsti var 14 ára og sá elsti
33 ára. Fimm ökumenn voru
réttindalausir. Flest óhöpp urðu í
mars, sex talsins og í október urðu
fimm óhöpp þar sem bifhjól kom
við sögu. Ekkert óhapp varð í jan-
úar.
1
5 6
| Ökumoiur missir stjóm ó hjólinu
| Bil ekið i veg fyrir hjól ó gatnamótum
Hjóli ekið út af eóa ó kyrron bil eóa hlut
] Bil ekið í veg fyrir hjólið
óhopp við framúrokstur Tegundir
| | Hjólinu ekið ó gangandi vegfamnda óhoppa
| 1 Árekstur tveggja hjóla
□ Hjóli ekið aftan ó bil
Skipting óhappa ó milli mónaða
0 2 — —
' □ □ !;■
Klukkan hvað
verða slysin?
oo
i
03 04 05 06
barðaframleiðendur heimsins réðu
um 60% markaðarins, Michelin,
Bridgestone og GoodYear, og
skiptu þau þessu nokkuð jafnt á
milli sín. Þrátt fyrir það hefur geng-
ið hálf erfiðlega hjá fyrirtækjunum
að ná endum saman en Johnsons
sagði að GoodYear væri réttum
megin við strikið þessa stundina.
Hann sagði að bandaríkjamarkaður
væri mikilvægasti markaðurinn og
í augnablikinu væri verð á hjólbörð-
um í lágmarki þar. Til að gefa hug-
mynd um umfang GoodYear þá er
velta fyrirtækisins á þessu ári um
600 milljarðar króna.
Sérstök dekk fyrir
IMorðurlöndin
Johnson sagði að GoodYear hefði
framleitt sérstök vetrardekk sem
endast ættu betur og veita meira
öryggi í vetrarakstri á Norðurlönd-
unum. Dekk þetta nefnast Uitra-
Grip 300 og eru fáanleg hér á landi.
Reglugerðir væru stöðugt að verða
strangari varðandi nagla í dekkjum
á Norðurlöndum og sagði Johnson
að því hefði GoodYear svarað með
léttari nöglum, allir neglar frá fyrir-
tækinu væru 1 gramm en gömlu
naglarnir hefðu verið 2 grömm.
Johnson sagði of algengt að
menn keyptu dýra bíla og allt til-
Morgunblaðið/RAX
heyrandi þeim Viðurkenning
en þegar kæmi Sigfús sigfússon
að dekkjunum forstjóri Heklu
ætluðu menn feitur vi5 viðUr-
að spara og Uenningarskild-
keyptu em- inum úr hendi
iverja ijo - jfenry johnson
barða, bara ef , ., *
GoodVear.
in eru einu
tengslin sem
bíllinn hefur
við jörðina og það er furðulegt að
spara eihveijar krónur þegar menn
kaupa dekk,” sagði hann.
Bflacjeymsluhúsin eni þægileg en húlf fóm
ÖKUMENN kvarta stöðugt yfir
því hversu erfitt er að finna bíla-
stæði í miðborginni. Samt sem
áður standa bílageymsluhúsin
hálf tóm á meðan ökumenn
hringsóla í miðbænum í leit að
lausu bílastæði. Það er ódýrara
að leggja í bílageymsluhúsunum
en við stöðumæla. Hvers vegna
Ieggja menn þá ekki þar?
Margir halda því fram að
fólk veigri sér við að leggja í
3 bílageymsluhúsunum vegna
þess að það kunni það hreinlega
gjekki. Til að bæta úr því verður
v^^rakið hér á eftir hvernig best
JSer að bera sig að við það.
Þegar komið er að bíla-
geymsluhúsinu skal ekið að hliðinu
sem lokar leiðinni. Bílstjóra megin,
vinstra megin við bílinn, er þá kassi
þar sem á er takki sem ökumaðurinn
ýtir á og fær miða sem hann tekur
með sér inn í geymsluna. Síðan legg-
ur viðkomandi bílnum í laust stæði
og rekur erindi sitt í miðbænum eða
hvar sem er. Þægilegra er að hafa
miðann með sér.
Þegar bíllinn er sóttur byija menn
á að fara með miðann sem þeir fengu
í sérstaka sjálfvirka vél og er hún
oftast einhvers staðar í námunda við
innganginn í bílageymsluhúsið. Mið-
inn er settur í þar til gerða rauf og
kemur þá upphæðinn sem mönnum
ber að greiða á sérstakan skjá. Nú
verða menn að hafa haldbært fé í
klinki því vélin tekur ekki seðla.
Ef viðkomandi á að greiða 180
krónur og borgar með fjórum 50
köllum fær hann 20 krónur til baka.
Takið miðann aftur úr vélinni og
notið hann þegar komið er að útidyr-
unum, þá er hliðið lokað en opnast
þegar miðinn er settur í þar til gerða
rauf á kassanum sem er bílstjóra-
megin við bílinn. Miðann fá menn
ekki til baka aftur og ef viðkomandi
þarf að fá kvittun fyrir gjaldinu þá
er það hægt með því að ýta á þar
til gerðan hnapp um leið og uppsett
gjald er greitt.
Nú er ekkert eftir annað en aka
út úr bílageymslunni. Það þarf vart
að fjölyrða um hversu miklu þægi-
legra er að leggja í bílageymsluhús-
um borgarinnar en við stöðumæla,
sérstakiega að vetri til. Ekki þarf
að skafa af bílnum, heldur sest
maður upp í hann heitan auk þess
sem það kostar 20 krónum minna
en að leggja við stöðumæli. ■
23
Toyota
framleiðir
færri bíla
en í fyrra
FRAMLEIÐSLA Toyota
dróst saraan um 1% í sept-
ember miðað við sama mánuð
í fyrra. Þetta er annar mán-
uðurinn í röð þar sem fram-
leiðslan dregst saman miðað
við sömu mánuði í fyrra.
Toyota framieiddi 331.009
bíla í september og þar af voru
258.311 fólksbílar og hafði
framleiðslan dregist saman um
2,6% frá því í september í fyrra.
Fyrirtækið framleiddi 72.698
vörubíla og aðra stærri bíla og
hafði aukið framleiðsluna um
4,9% miðað við sama mánuð í
fyrra. Rúmlega hundrað þús-
und fólksbílar voru fluttir úr
landi af Toyotagerð og var það
5,7% aukning og annar mánuð-
urinn í röð þar sem útflutningur
eykst miðað við sama tíma í
fyrra.
Fyrstu níu mánuði ársins
hefur Toyota framleitt rúmlega
þtjár milljónir bíla og alls hefur
framleiðslan dregist saman um
3,1% frá fyrra ári. Toyota fram-
leiðir einnig bíla á erlendri
grund og í september voru
42.283 bílar framleiddir annars
staðar en í Japan og er það
rúmum 20% færri bílar en í
september í fyrra.
í fréttatilkynningu frá Toy-
ota kemur fram að Toyota er
mest seldi bíllinn í Japan þrátt
fyrir samdrátt. Fyrirtækið ræð-
ur um 31% markaðarins en
fyrstu níu mánuðina dróst salan
saman um 5,1%. Samdráttur
var hjá flestum japönskum
framleiðendum. Mitsubishi jók
þó söluna í Japan um 6,7%,
Suzuki um 5,3% og Daihatsu
0,9% en hjá öðrum dróst salan
saman. ■