Morgunblaðið - 29.12.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 29.12.1991, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1991 LÆKNISFRÆÐI/Hvað er óhœtt aó gefa? Böm með háan hita Oftar en ekki er meinlitlum sýkingum í koki og hálsi um að kenna þegar hiti blossar upp í börnum án þess að önnur einkenni en roði í slímhúðum geri vart við sig. Það eru ekki bakteríur sem valda slíkum, lasleika og því er tilgangslaust að gefa penisill- ín eða önnur eftir Þórarín sýklalyf. Guönasím Hitt er annað mál að einatt þykir ástæða til að láta þessa litlu sjúklinga taka lyf sem lækka hitann og draga úr beinverkjum og öðfum óþæg- indum sem fylgja hitapestum. Löngum voru gömul og marg- reynd lyf eins og fenacetín og aspirín (magnýl) sjálfsögð til þessara nota en svo komst upp •um fenacetínið, það skaddaði nýrun. Og þar kom að aspirín var líka bannfært sem barnalyf sökum tengsla sem talið er að geti verið milli þess og hins sjald- gæfa en lífshættulega barna- sjúkdóms sem kenndur er við ástralska meinafræðinginn Reye. Þá var eiginlega ekkert orðið eftir handa yngstu kynslóð- inni nema parasetamól (panódíl) sem nú um hríð hefur þótt ómiss- andi á flestum heimilum þar sem börn eru á pestaskeiðinu. En gamla sagan um Adam í Paradís endurtekur sig sí og æ - hann fær aldrei að vera þar til langframa. Parasetamól hefur ekki reynst jafn-sauðmeinlaust og ætlað var; sé það gefið í stór- um skömmtum eða langtímum saman getur það reynst lifrinni óhollt og því mundi ráðlegast að gæta hófs og helst ekki gefa þá skammta sem mælt er með oftar en fjórum sinnum á sólarhring með jöfnu millibili. Er annars nokkur þörf á að ausa meðulum í krakkaskinnin þótt þau fái háan hita í einn eða tvo daga? I rauninni ekki, nema hvað sjúklingnum og foreldrum hans líður sennilega betur og íjölskyldan öll fær meiri og betri svefn fyrir bragðið. Og enginn skyldi amast við því. Á hinn bóg- inn benda nýlegar og nokkuð víðtækar rannsóknir til þess að parasetamól breyti litlu um framgang veikinnar og sam- kvæmt þeim er líka hæpið að lyfið dragi að ráði úr vanlíðan barnanna. En lækkun hitans ein sér skiptir engu til eða frá; með- ferð á að beinast að sjúklingum, ekki hitamælum. Þá er eftir að minnast á atriði sem vissulega hefur þýðingu en það er ótti margra foreldra við hitakrampa. Breska læknablaðið Lancet fjallaði nú í vetrarbyrjun nokkuð um þessi mál og taldi að sá ótti væri að mestu ástæðu- laus. Hitakrampi stendur yfirleitt skamma stund, segir þar, og hverfurjafnskyndilega og hann kemur. Þau börn eru ekki mörg sem fá slíkan krampa og ennþá færri sem fá hann oftar en einu sinni. Enginn grunur hefur vakn- að um að slíkt krampakast hafi skaðleg áhríf á heilann. Höfundur Lancet-greinarinn- ar minnist á lyf sem kemur til álita í stað parasetamóls ef hita- lækkandi meðferð telst æskileg. Það er brúfen (íbúprófen) en áhrif þess eru svipuð og aspiríns og ekki er að svo komnu vitað um sérstakar hættur af notkun þess. Það fæst bæði í mixtúru- og töfluformi og því vel í pottinn búið handa smáum sem stórum. Sótthiti er dularfullt fyrir- brigði. Ef hann er andsvar líka- mans við áreiti sóttkveikjunnar, eins og lengi hefur verið haldið gæti hann þá ekki líka verið varnarráðstöfun? Ef svo er, ætt- um við nokkuð að vera að bæla hann niður með tækjum sem duga til þess, en gera annars lít- ið eða ekkert gagn? Margir lækn- ar eru hættir að ráðleggja kalda bakstra, köld böð eða viftublást- ur sem eitt sinn þótti góður siður þegar börnin fengu hita. Sem betur fer munu foreldrar líka hættir við hinar öfgamar - að dúða hitaveik börn í þykkum og hlýjum fötum undir sæng, svo að ekki slái að þeim. Ætli það sé ekki best að leyfa náttúrunni að ráða þegar börnin fá hita- pest; það er hvort eð er ekki svo margt sem hún fær að vera í friði með nú á dögum. UMHVERFISIVIÁL / //, orðió örlagarík skil? Náttúran og vísindin I TILEFNIjóla og áramóta er ekki úr vegi að .... l'jalla örlílið um hin eilífu saniiindi sem birlasl okkur í nállúrulegu umhverfi — nállúrulögniál- in sem verða ekki umflúin, þóll mannkyni ætli seint að lærast það. ISÍú á dögum hafa vísindi og tækni skipað háan sess á flestum sviðum mannlífsins, jafnvel svo að skyggt hefur víða á manngildið. Vísindin færa vissulega svör við mörgum spurn- ingum, sem á vegi okkar verða. Þó svara þau aldrei spurningunni um hin hinstu rök né hinn algilda, djúpa sannleika. Þau svara heldur ekki spurningunni um hvers vegná og hvernig lífið spratt af frækorn- inu. Þau geta heldur ekki ein og sér skapað líf. En með aðstoð vísinda getum við varðveitt líf, eflt mátt alls þess sem gott er og uppbyggilegt í tilverunni, öðlast hlutdeild í lífssannleikanum ef boðskapur kristinnar trúar er hafður að leiðarljósi. I honum eru fólgin rn.eiri sannindi um manninn og lífið en nokkrar kenningar, heimspekistefnur eða formúlur hafa upp á að bjóða. Vegna athafna manna er lífi á jörðinni hætt komið ef ekki verður brugðið til betri vegar. Von okkar er í því fólgin að mönnum lærist að umgangast lífríkið af virðingu, ást og alúð, ganga ekki á hinar náttúrulegu auðlindir, varðveita og endurnýja það sem gildi hefur, bijóta ekki hin óumflýjanlegu náttúrulögmál. Vísindin hafa á síðari öldum vissulega komið mannkyni til góða á margan hátt. En vísindi hins ytra heims verða að taka mið af sköpunarverkinu, innri gerð þess og lögmálunum sem okkur er falið að lúta. Örlagarík skil hafa stund- um orðið á milli vísindalegra iðk- ana í þágu óskilgreindra afla og þekkingar á þeim takmörkunum sem jörðin hefur til skiptanna. Því verður að staldra við og hugsa á ný- Með vísindalegri úttekt var leitt í ljós í Brundtland-skýrslunni svo- kölluðu og allir kannast við, að ekki sé seinna vænna að maðurinn uggi að sér vegna hátternis síns gagnvart umhverfi sínu og náttúr- unni. Til þess að snúa þróuninni við er ljóst að ekki dugar minna til en samstaða allra jarðarbúa — að allir leggi'hönd á plóginn. Þessi skýrsla vakti heimsathygli. Áhrifa frá henni gætir víða og þau eru stöðugt að koma betur í ljós. Mikl- ar vonir eru nú bundnar við alþjóð- lega ráðstefnu sem haldin verður í Brasilíu á vori komanda. Þar verður fjallað um umhverfísmál í víðasta skilningi og reynt að finna leiðir til úrbóta. Við hljótum að vona að árangur náist — að ný og djúpstæðari áhersluatriði fari að skipa öndvegi í athöfnum manna. Vakning gagnvart umhverfis- málum hefur orðið hér á íslandi á síðari árum. Okkar vandi er ekki svo mikill á heimavelli að við fáum ekki við hann ráðið. En á mörgum sviðum verður okkur lítið ágengt nema í samfélagi þjóðanna. Og þar getum við líka lagt okkar skerf af mörkum. Eitt ástkærasta skáld íslensku þjóðarinnar, Jónas Hallgrímsson, var jafnframt vísindamaður af, guðs náð. Umhyggja hans og ást á íslenskri náttúru, jafnt því stóra og mikilfenglega sem hinu smáa og veika, birtist bæði í vísinda- störfum hans og skáldskap. Stund- um fléttaðist hvort tveggja saman ásamt einlægri trúarhyggju eins og í ljóði sem hann orti til vinar og annars vísindamanns að honum látnum. Eitt erindið hljóðar svo og ætti að vera okkur hvatning og leiðarljós: Vísindin efla alla dáð orkuna styrkja, viljann hvessa, vonina glæða, hugann hressa. Farsældum vefja lýð og láð. Tífaldar þakkir því ber færa þeim sem að guðdómseldinn skæra vakið og glætt og verndað fá viskunnar helga ffalli á. eftir Huldu Valtýsdóttur SÁI*RRTIUEÐI/Hvað gerir þ œr svona heillandi? ÞJÓÐSÖGUR FYKROGNÚ íslenskar þjóðsögur hafa ávallt verið eftirlætis lesefni mitt. Aftur og aftur get ég gripið til þessara gönilu sagna og notið þeirra. Hygg ég að margir kunni svip- aða sögu að segja. Hvað er það við þessar gömlu sögur sem er svo heillandi? Sögur af huldufólki, tröllum, draugum, útilegumönnum. Faldar byggðir lengst uppi í öræfum, þar sem byggð var reisuiegri en annars staðar, sauðir vænni, karlmenn stærri og sterkari og konur fallegri. Huldufólkshí- býli í klettum og hólum, stórkost- leg húsakynni, þar sem gnægð var matar- og góðra vína, kon- ur ástheitar og sýslumenn og prestar á hveiju strái. Og huldufólkið bjó yfír dulúðugum töframætti, hvort sem það var fátækt eða ríkt. Ægilegar draugasögur og sögur af góðum og vondum tröllum. Sögur af kóngum og drottning- um, kóngssonum og kóngsdætr- um, vondum stjúpmæðrum, karlssonum og karlsdætrum. Mikil dramtísk ævintýri voru þetta sem ætíð enduðu vel. Sá góði og réttláti, fátæki, kjark- mikli, úrræðagóði og heiðvirði fór alltaf með sigur af hólmi, en grimmileg hefnd beið hinna. Margt fagurt hefur verið sagt um þjóðsögurnar: „Skáldskapur alþýðunnar“, „sprottnar úr þjóð- ardjúpinu" o.fl. En það sem heill- ar mig mest er hversu vel þær endurspegla hugarheim þessarar fátæku og einangruðu þjóðar, tjá drauma hennar, ótta, vonir og þrár. Draumarnir voru um ríki- dæmi, velsæld í mat og drykk, hamingju í ástum, völd sem beitt var af viti og manngæsku. Óttinn var við allar þær forynjur og afturgöngur sem bjuggu í myr- krinu, birtust í skúmaskotum, komu upp úr sjó og vötnum, riðu húsum og grönduðu búpeningi. Þjóðsögurnar sýna einnig mörk þessa hugarheims. Kóngsríkið var ætíð sem reisulegur bónda- bær og kóngurinn roskinn og virðulegur höldur. Ríkidæmið var hjarðir nauta og sauða og gnægð matar. Þjóðsögurnar eru þannig sálarspegill íslensku þjóð- arinnar á síðustu öld. Líklegast verða þjóðsögur allt- af til, þó að svo hafi orðið fyrir rás atvika að mestum hluta ís- lenskra sagna hafi verið safnað og þær skráðar á sinni hlut síð- ustu aldar. Því má spyrja hveijar séu þjóðsögur nútíma íslands eða jafngildi þeirra. Hvernig tjáir og endurspeglar nútíma íslendingur drauma sína, ótta, vonir og þrár? Eg hef verið að leita að þessu í huganum en ekki fundið nein viðhlítandi svör. Víst er að tján- ingarmátinn hefur breyst mjög verulega, svo að erfitt kann að vera að finna samnefnara. eftir Sigurjón Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.