Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 23
,Wf Mtmzm fcfi fiMslA.ÍI JkM -í fMMft.AðMAf! (-.MAJfiV «.íiou MORGUNBIAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1991 o*. B 23 I' Andrés framan við skrifborðið heima gáskann á gamlaárskvöldi. Vildi gefa fólki 15 mínútna frí til hugleið- inga. Ekki vera með endurtekningu á fréttaefni sem fréttastofurnar voru sjálfar farnar að sinna í aukn- um mæli, heldur skapa einhvers konar hátíðar geðhrif. Vildi reyna að móta eitthvað hefðbundið í kringum áramótin. Við eigum svo fáar siðvenjur. Eg fékk mikla hvatningu, því að pistlarnir mínir fundu hljómgrunn í 17 ár. Eftir að ég hætti störfum, báðu vinir mínir mig um að gefa þá út. Og bókin TÖLUÐ ORÐ kom út hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs árið 1985.“ Þeim hjónunum, Andrési Björns- syni og Margréti, kemur saman um að skemmtilegt áramóta-andrúms- loft hafi ríkt á heimili þeirra, Hofs- vallagötu 62, eftir nýárshugleið- ingu Andrésar.„Það var ákaflega uppörvandi hvað margt fólk hringdi fram eftir nóttu til að þakka mér fyrir lesturinn. Mikið var líka hringt utan af landi. Og mér bárust bréf. Ég var aldrei skammaður neitt fyr- ir þetta,“ segir Andrés kímileitur. „A seinni árum hef ég orðið var við, að unglingar þess tíma sem nú eru fullorðið fólk, hlustaði líka. Vissulega var þetta andstæða við áramótaskaupið. En nú vill fólk lík- lega hafa dagskrána í stíl við kjöt- kveðjuhátíð. Hófstilling er íslend- ingum ekkert sérstaklega gefin.“ — Hvenær vannstu þetta? „Jólatíminn er erfiður fyrir allt fjölmiðlafólk. Ég var aldrei búinn að festa neitt á blað fyrir jól. Leiddi aðeins hugann að ýmsu. Ég kom heim til að halda aðfangadags- kvöldið hátíðlegt, en eftir það var ég önnum kafinn. Ég er morgun- svæfur, svo pistlarnir voru unnir að næturlagi. Finnst betra að ein- beita mér, þegar allt er komið í kyrrð og ró.“ — Hvað ertu að gera núna? „Ég les nú alltaf mikið. Hugsa kannski líka dálítið um ýmsa hluti. Og svolítið dunda ég við skriftir. Ég á marga uppáhaldshöfunda og sumar bækur les ég á hvetju ein- asta ári. Núna er ég að lesa sögu Forsyte-ættarinnar eftir John Galsworthy. Les þá bók mjög oft og hún segir mér alltaf eitthvað nýtt. — Hvernig líst þér á jólabókaút- gáfuna? „Mér virðist hún afar svipuð og verið hefur. Margt er gott. Annað ekki. Og sumt ætti að geymast og gleymast. Kafað svo langt niður í einkalíf og allskonar blaður. Ég gæti ekki hugsað mér að hafa slíkT ar bækur í bókaskápnum. Ég held, að það sé misskilningur ef menn halda að þeir verði ódauðlegir með útgáfu slíkra ritverka." A sama tínia er farið að gefa út merk fræðirit og skáldverk í ein- nota útgáfum. Þau verða ekki bund- in inn eins og gömlu bókamennirn- ir gerðu til að gleðja augu og huga. Þetta finnst mér leiðinlega öfugsnú- ið. Þó er það líklega einungis sér- viska mín, því ég sé líka mörg gild rök fyrir réttmæti slíkrar útgáfu- starfsemi." — Hvað með þróun íslenskra fjölmiðla? „Allar breytingar þar eru tengd- ar tækninni og sú þróun var hafin áður en ég hætti störfum. Fréttaöfl- ' r un sjónvarps, útvarps og miðlun frétta er orðin langt um hraðari og nærgengari en hún var í minni tíð. Þó að hún verði seint eða aldrei nógu skjótvirk fyrir suma menn. Hraðinn dregur sína dilka með sér. Tafs og flaustur er þegar orðið eins konar aðalsmerki alltof margra málflytjenda fyrir utan ambögur og þekkingarleysi á íslenskri tungu. Til allrar hamingju eru enn til frá- bærir-flytjendur með góðan máls- mekk í útvarpi og sjónvarpi sem eiga lof skilið. En þetta umræddæval neytenda milli stöðva er því miður oft meira í orði en á borði. Mér frnnst meira af erlendu efni í sjónvarpinu nú en áður. Alltaf þessi eilífa spurning um fjármagn. Ódýrara að kaupa pakka af erlendu efni en framleiða íslenskt. Mér finnst líka of mikið af síbylju, erfitt að staðnæmast við eina stöð. Gamla stöðin er þó alltaf best.“ SÍMTALIÐ... ER VIÐ TRAUSTA JÓNSSON VEÐURFRÆÐING HVAR ERU ÞAU NÚ? TÖLVÐ ORÐ Andrésar Bjömssonar Áramót fyrir 40 árum. Jólaball í Vals- heimiJinu árið 1951. SAMA VEDRID? 11111 Veðurstofan góðan dag. — Góðan daginn, er Trausti Jónsson við? Hann er nú í símanum, en biddu aðeins. Halló. — Trausti, komdu sæll, þetta er á Morgunblaðinu, Kristín Maija Baldursdóttir. Blessuð. — Ég er náttúrulega að tefja þig, þú ert auðvitað að spá í veðr- ið? Nei, nei, nei, ég er ckkeit í því núna. — Maður er nú orðinn dálítið þreyttur á þessum umhleyping- um ykkar? Já. A þetta að vera svona áfram? Það er víst. — Ileyrðu, það er í sambandi við veðrið á næsta ári. Nú var það svo skrýtið á síðasta ári ... Já ... jæja. — Gott sumar, ég man ekki eftir öðru eins. En hafið þið nokk- uð pælt í veðr- inu á nýja árinu? Nei, nei, það er af og frá að gera það. — Er það? Öruggasta leiðin í því sam- bandi væri helst að spá í bolla. Það væri ekkert verra en það sem við hefðum fram að færa. — Sem sagt, það er ekkert hægt að spá um veður svona langt fram í Nei, það held ég ekki. — En nú bera menn oft saman veðurfar og ártöl og þykjast finna mynstur? Það er nú gjarnan þannig, að ef veður fer í ákveðinn farveg, þá helst það furðu lengi í honum. — Getur það þá verið svipað í nokkur ár? Það er nú yfirleitt ekki þannig, heldur kemur kannski svipað veð- > ur innan fárra ára. Til dæmis var árið 1987 nokkru hlýrra en árið sem er að líða. — Ég trúi þér ekki! Að vísu var sumarið ekki jafn- hlýtt, en það var fyrsta hlýja árið mjög lengi, alveg'síðan 1972. Þegar það kom var líklegt að innan nokkurra ára kæmi álíka ár, þau koma sjaldan eitt. Það lét nú kannski bíða eftir sér þar til núna. — Já, en það kemur þá ekki gott veður næsta ár? Það getur gert það, en þarf ekki að vera. En það er ekki ólík- legt að eitthvert næsta sumar verði gott. Stundum ætlar enginn endir að verða á góðum og vondum sumrum. — Einmitt. En finnur þú nokkuð á þér í sambandi við veðrið á næsta ári? Ekkert sem ég vil láta hafa eftir mér. — Nei, nei, þetta er viðkvæmt mál. Já þetta er við- kvæmt hjá okkur. — Ég veit það. Jæja en ég þakka þér fyrir spjallið og vona bara allt það besta. tímann? Trausti Jónsson Jú sömuleiðis. Flestir muna áramótahugleið- ingar Andrésar Björnssonar, fyrrverandi útvarps- og sjón- varpsstjóra. í sautján ár, frá Andrés að miðla hinu tal- aða orði 1968-1984, urðum við þess að- njótandi að hlusta á Andrés, frá því klukkuna vantaði 15 mínútur í 12 og þar til kirkjuklukkur hófu að hringja inn nýja árið. Hugleiðingar Andrésar gáfu gamlárskvöldi sérstakan há- tíðablæ sem nú er sárt saknað. Ispjalli mínu við Andrés komst hann svo að orði: „Maðurinn er alltaf að ganga í gegn um endalausar breyt- ingar. Spumingin er alltaf, þegar maður staldrar við, hvort sé betra, þetta sem okkur hlotnaðist eða hitt sem við misstum." Þessi orð eiga vel við þær gífur- legu breytingar sem orðið hafa í íslenskri fjölmiðlun, bæði á með- an Andrés stjórnaði út- varpi og sjónvarpi, en miklu fremur síðan hann hætti. — A hvað lagðir þú mesta áherslu í nýjárs- boðskap þínum, Andrés? „Ég hugsaði hann sem andstæðu við allan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.