Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1991 ÆSKUMYNDIN . . . ER AF FRIÐRIKI ÞÓR FRIÐRIKSSYJVI KVIKMYNDAGERÐARMANNI MYNDASAFNIÐ ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Farsælt komandi ár Lunkinn veiðmaður Með fullt af skrýtnum hugdett- um sem áttu eftir að verða að veruleika. Friðrik Þór um sex ára aldurinn í Þingvaliaferð. mikið prúðmenni en undir niðri var hann grallari og grínisti." Að sögn Friðriks var nafni hans farsæll til verka, hann hafi unnið hægt en vel. „Hann hafði mikið gaman af því að leggja net í vatnið hérna skammt frá bænum og einn- ig að veiða á stöng. Friðrik Þór var ákaflega lunkinn veiðimaður þótt tilburðirnir væru ekkert endilega mjög veiðimannslegir þá veiddi hann allra manna mest. Þetta er eins enn þann dag í dag, hann dreg- ur laxa á lélega silungsstöng. Friðrik var bráðvel gefinn strák- ur og hann hugsaði svolítið öðruvísi en aðrir unglingar á hans aldri. Það eru þessar hugdettur hans sem manni eru minnisstæðar og margar þeirra eru að verða að veruleika núna. Maður trúði þessu ekki og það var bara hlegið að honum þeg- ar hann var að tala um að gera kvikmyndir.“ ÆSKUÁRIN eru Friðriki hugstæð um þess- ar mundir því hann er, ásamt Einari Má Guðmundssyni, að viða að sér efni í næstu mynd sína. Áðalpersóna þeirrar myndar tengist þeim tíma þegar Friðrik var að al- ast upp. Hann hefur því verið á ferð um bernskustöðvar að grafa upp það bitastæð- asta frá þessum tíma. Þeim tíma þegar fót- boltinn átti hug hans allan og þeim tima þegar hann og félagi hans sýndu æsilega skuggamynd um Rauðhettu og úlfinn í þurrkherbergi þéttsetnu af áhorfendum. Friðrik er sonur hjónanna Frið- riks V. Guðmundssonar, sem nú er látinn, og'Guðríðar Hjalt- ested. Hann fæddist 12. maí 1954 í Stórholtinu en þegar hann var níu ára fluttist hann í Vogana. Friðrik á tvo eldri bræður, Þórleif og Þóri, sem er hálfbróðir hans. Þrá Friðriks til þess að segja sögur á tjaldi kom snemma í Ijós en skuggamyndasýningin áður- nefnda, sem fór fram í þurrkher- bergi í Stórholtinu að viðstöddu fjöl- menni, endaði á óvæntan hátt. Þeir félagar, Friðrik og Birgir, sögðu sögurnar um leið og myndirnar voru sýndar beint á hurðina þar sem tjaldið var. Allt gekk vel en þegar komið var fast að hámarki sögunn- ar og úlfurinn í þann veginn að éta ömmuna opnast þá ekki dyrnar skyndilega og inn kemur Georg Bjarnason, Gídó, sem þá var að koma úr vinnu sinni hjá strætis- vögnunum. Spennan í salnum var slík við atburðinn að áhorfendur héldu að úlfurinn hefði stokkið beint út úr myndinni. Ofsahræðsla greip um sig og börnin áttu fótum sínum fjör að Iauna og tróðu sér út um glugga og dyr. Að sögn Friðriks brá þó Gídó einna mest þar sem hann átti engan veginn von á þess- um barnaskara. Fótboltinn átti þó hug Friðriks allan enda var ekki langt að fara á Framvöllinn og þar var hann iðu- lega eða allt þar til hann fór í sveit tíu ára gamall. „Mér leist ágætlega á það að fara í sveit, þótt ég væri svolítið súr fyrst yfir því að fara frá fótboltanum. Silungsveiðin tók fljótt við af fótboltanum og núna eru þetta dýrlegustu minningarnar og sennilega hefur sveitadvölin mótað mig hvað mest.“ Friðrik var í sveit norður í Skaga- firði hjá Friðriki Antonssyni bónda á Höfða á Höfðaströnd þar sem upphafsatriði myndarinnar „Börn náttúrunnar" gerist. Friðrik bóndi segir það hafa einkennt Friðrik Þór hvað hann hafi verið óskaplega ró- legur. „Hann var eins og fullorðinn maður í allri umgengni og strax Krakkarnir í Skjólunum lögðu nótt við dag til að safna í þessa brennu,, sem stóð á horni Ægisíðu og Faxaskjóls, en þar var um árabil mik- ið fjölmenni á gamlárskvöld. Þessi mynd er tekin laust eftir 1950. krakkarnir sjálfir í hinum ýmsum hverfum borgarinnar, söfnuðu í bál- kesti og kveiktu í á gamlárskvöld, því nú eru brennur aðeins á vegum borgarinnar á fáum útvöldum stöð- um. Ifér birtum við hins vegar mynd af brennu frá því skömmu eftir 1950, en hún var á horni Ægisíðu og Faxaskjóls, og var jafnan Ijölmenni og mikið fjör þegar kveikt var í henni skömmu fyrir miðnætti á gamlárskvöld. Annar góður siður sem haldist hefur á þess- um árstíma er jólatrésskemmtunin, þar sem börn og fullorðnir koma saman til að dansa í kringum jóla- tréð. Við birtum eina myna af slíkum fögnuði í Valsheimilinu árið 1951. Þá er mynd frá flugeldadýrðinni yfir Reykjavík á miðnætti á gamlárs- kvöld, fyrir réttum 40 árum og þó ekki sé hún í lit má glöggt sjá að menn hafa kunnað að skjóta upp flugeldum þá, ekki síður en nú. Myndasafnið að þessu sinni er helgað áramótunum, þeim merku tímamótum þegar menn staldra við, horfa um öxl og fram á við. Áramótin eru hátíð hækkandi sólar og um aldir hafá menn gert sér dagamun um þetta leyti, í kringum vetrarsólhvörfin, og til eru heimildir úr heiðni um hátíðarhöld á þessum árstíma. Þjóðtrúin segir að álfar og tröll fari á kreik um áramót og um langt skeið hefur sá siður haldist að efna til álfabrennu um áramót og á þrettándanum. Ára- mótabrennurnar voru hér á árum áður einn skemmtilegasti þátturinn í áramótagleðinni, en með breyttum tíðaranda hefur „skaupið" og annað sjónvarpsefni, ásamt ýmsum öðrum siðum í heimahúsum tekið yfir, ef svo má segja, þótt margir vilji enn halda í þann gamla góða sið að fara til brennu um áramót. En það er af sem áður var, þegar SVEITIN MÍN... ARNARSTAPIÁ SNÆFELLSNESI Arnarstapi á Snæfellsnesi. „Þegar ég kom á Arnar- stapa um 1960 var sjórinn tandurhreinn svo hægt var að baða sig í honum og ég týndi stundum söl í fjörunni, nú er þetta ekki hægt lengpir venga mengunar," segir Soff- ía Þorkelsdóttir.„Sjómenn- irnir kasta of miklum úrgangi í sjóinn. Mér finnst fuglunum líka hafa fækkað þó þeir séu margir ennþá. Áður var fugl- amergðin slík að það sá varla til sólar þegar þeir tóku sig á loft. Á kvöldin var allt krökt af sel, t.d. í Sölvahamri. Þeir kölluðust á í kvöldkyrrðinni. Þegar ég heyrði til þeirra og sá augun í þeim þá skildi ég af hverju fólk hélt að þetta væru menn í álögum. Þegar ég kem í Stapann finnst mér ég ganga á heil- agri jörð. Ég vildi bara óska að mannlífið væri meira í takt við LjósmiBJ. Soffía Þor- kelsdóttir þann heilagleika. Eg sé 1 ekki dýrðlegri vetrarkvöld en á Stapa og ég hef hvergi séð fallegri norðurljós. Andstæður eru þama miklar. Stapafellið gnæfir eins og svartur skuggi á kvöldin með jökulinn skjannahvítan í baksýn. Tignarleg ró í ætt við guðdóminn, og þungar drunur í briminu, þegar þess gætir.“ Á Arnarstapa eru nokkur býli, smábátahöfn, fiskverkun- arhús og verslun. Fyrrum var meiri byggð á Arnarstapa en nú er. Þar var ein af höfnum einokunarverslunarinnar en kaupstaður þar var lagður niður 1821. ÞANNIG ... SKÝTUR FREYR EINARSSON UPP FLUGELDUM Morgunblaðið/KGA Gejur sér góðan tíma Nú þegar áramótin eru á næsta leiti er tilhlýðilegt að ræða enn einu sinni meðferð flugelda, svo að nýja árið gangi slysalaust í garð. Freyr Einars- son, hjá Landsbjörgu, var fús til að sýna lesendum hvernig réttast væri að bera sig að. Ef rétt er að farið eru flugeldar örugg vara en þeir geta verið hættulegir ef farið er með þá af kunnáttuleysi og þeir geta valdið miklum og sárum slysurn," segir Freyr. „Flest slysin verða þegar fólk er að skjóta upp flugeldum eftir að það hefur bragðað áfengi. Tívolíbomburnar svokölluðu voru t.d. bannaðar vegna slysa sem urðu þegar drukkið fólk handlék þær; ég veit ekki til þess að ódrukkið fólk hafi slasast af völd- um þeirra. Þá er alltaf einhver hætta á ferðum þegar flugeldar eru geymdir nálægt opnum eldi, eða þannig frá þeim gengið að óvitar eigi aðgang að þeim.“ Freyr segir mikilvægt að hafa í huga að flugeldar fari misfljótt upp og ef ekkert gciist fyrstu sek- úndurnar megi fólk ekki láta óþolinmæðina ná tökum á sér. Það geti verið stórhættulegt að beygja sig yfir flugeldinn, hvort heldur er til að athuga hvort slokknað hafi á kveiknum eða til að kveikja að nýju. Þá sé rétt að minna á að hafa vettlinga eða hanska á hönd- um, hörfa vel frá um leið og kveikt hefur verið á flugeldinum og að honum sé skotið af traustri undir- stöðu. „Það er góð regla að gefa sér tíma fyrir flugeldana, ekki að skjóta öllum upp í einu. Einnig að skjóta þeim upp góðan spöl frá þeim stað þar sem afgangurinn er geymdur. Ef þeim minnstu er skotið upp í byijun og þeim stærstu síðast er minni hætta á áverkum enda komast menn þá upp á lagið." — Hver er uppáhaldsflugeldur- inn þinn? „Tvímælalaust tívolítert- urnar svokölluðu. Það eru 12 tommu kökur sem úr spýtast kúlur sem ná vel upp fyrir húsþök. Það eru flugeldar sem vara nokkuð lengi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.