Morgunblaðið - 14.01.1992, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMA N N A
' WÆM WÆ W /v MWW ÆUg& « adidas ...annað ekki
n
1992 ■ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR BLAD D
KEILA
íslandsmet
íliðakeppni
Arsæll Björgvinsson og Björn
Sigurðsson settu á sunnudag-
inn íslandsmet í liðakeppni tveggja
manna í keilu. Þeir fengu 484 stig
í einum Ieik, Ársæll 216 og Björn
268, og bættu met Ásgríms Einars-
sonar og Kristins Guðmundsssonar
um 11 pinna.
Björn er enginn nýgræðingur á
metalistanum því hann á einnig
íslandsmetin í þriggja og sex leikja
seríum. Ársæll og Björn spila báðir
með Mánaskini Sigga frænda í
deildarkeppninni.
KNATTSPYRNA
Evrópukeppni
landsliða:
Samveldi
sjálfstæðra
lýðvelda
tekur sæti
Sovétríkja
ALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið, FIFA, ákvað í samvinnu
við Knattspyrnusamband Evr-
ópu, UEFA, í gær að Samveldi
sjálfstæðra lýðvelda tæki sæti
Sovétríkjanna í úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða, sem
verður í Svíþjóð eftir fimm
mánuði.
Fram kom hjá FIFA að litið væri
svo á að hið nýja samveldi
hefði tekið stöðu fyrrum Sovétríkja
þar til annað kæmi á daginn. Því
yrði Samveldi sjálfstæðra ríkja í
hattinum á föstudaginn kemur,
þegar dregið verður í riðla Evrópu-
keppninnar, en enn hefur ekki verið
ákveðið hvaðá fána eigi að flagga
á leikjum liðsins. Allir leikmenn,
sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum,
verða löglegir með liði samveldisins.
Knattspymusamband Júgóslavíu er
innan FIFA og engin breyting hefur
átt sér stað, þrátt fyrir ástandið í
Júgóslavíu. Því er gert ráð fyrir
þátttöku Júgóslavíu í lokakeppn-
inni.
ísland er í riðli með þessum þjóð-
um í undankeppni heimsmeistara-
keppninar.
FIFA og UEFA áskildu sér rétt
til að endurskoða ákvörðunina, ef
aðstæður breyttust hjá viðkomandi
þjóðum.
Akureyringar efstirá íslandsmótinu
Morgunblaðið/Bjarni
ISHOKKI / ISLANDSMOTIÐ
Skautafélag Akureyrar er í efsta sæti á Íslandsmótinu í íshokkí, eftir
leiki helgarinnar. Akureyringar léku tvívegis sunnan heiða — töpuðu fyrst
á föstudagskvöld, 5:7, fyrir Skautafélagi Reykjavíkur en unnu síðan stór-
sigur á Isknattleiksfélaginu Biminum á laugardag, 14:1. Myndin er úr
þeim leik — andstæðingar mæna niður á svellið, eftir að sá svart-hvíti i
miðjunni framkvæmir dómarakast. SA og SR hafa nú bæði fjögur stig
eftir þijá leiki en markatala norðanmanna er hagstæðari. Bjöminn hefur
tapað báðum leikjum sínum til þessa.
■ Úrslit, staðan og markaskorarar / B7
Sannfærður.um að
við vinnum ísland
- í B-keppninni í mars, segir þjálfari norska landsliðsins
HANDKNATTLEIKUR
NORSKA landsliðið í handknattleik, sem leikur i' sama riðli
og íslendingar f B-keppninni í Austurríki, náði góðum árangri
á Lottó-mótinu sem lauk i Noregi á laugardaginn. Noregur
hafnaði í 2. sæti á eftir Rúmeníu.
Norðmenn unnu meðal annars
Frakka nokkuð ömgglega
26:24 á laugardag og liðið hafði
fyrr I vikunni gert
Frá jafntefli við Rúme-
Erlingi níu. Þau úrslit
Jóhannssyni voru ósanngjörn
því norska liðið var
mun betra.
Gunnar Pettersen, þjálfari
norska liðsins sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann væri
þokkalega ánægður með árangur
liðsins, en engu að síður sagðist
hann vera sannfærður um að liðið
ætti meira inni.
-Hverjir eru möguieikar
norska liðsins í B-keppninni?
„Ég er sannfærður um að við
náum að vera eitt þeirra fjögurra
liða sem komast áfram í A-keppn-
ina. Engu að síður þá veit ég að
íslendingar verða erfiðir, en ég
er þó viss um að við náum að sigra
ísiand í B-keppninni í mars.“
Árangur norska liðsins að und-
anförnu ber þess vitni að þeir
verða ekki auðveld bráð fyrir ís-
lenska liðið í B-keppninni. Að áliti
handknattleikssérfræðinga hefur
norska liðið ekki verið eins sterkt
í fjölda ára.
■ Mótið / B4
Þorbergur
fylgist með
Dönum
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik, fer
til Svíþjóðar i dag til að fylgjast
með leikjum í heimsbikarkeppninni,
World Cup. Hann kemur til með
að sjá alla innbyrðis leiki hjá Dön-
um, Rúmenum, Svíum og Spánveij-
um og ætlar að kortleggja Danina,
líklega mótheija íslands í milliriðli
b-keppninnar í Austurríki í mars.
Þorbergur hefur fengið leiki Nor-
egs í Lottó-mótinu, sem lauk um
helgina, á myndbandi, en Norð-
menn eru í sama riðli og íslending-
ar í b-keppninni.
HANDKNATTLEIKUR: STORSIGRAR HJA FH OG VIKINGI11. DEILD KARLA / B40GB5