Morgunblaðið - 17.01.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992
Markús Öm Antonsson borgarstjórí á aðalfundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:
Of langt gengið í félagslegum
lausnum í húsnæðismálum
Baldur Guðlaugsson hrl. endurkjörinn formaður
MARKÚS örn Antonsson borgarstjóri gagnrýnir núverandi hús-
næðiskerfi og telur að í því sé of langt gengið í félagslegum lausn-
um. Hann kveður Iánafyrirgreiðslu við húsbyggjendur meingallaða
og henni sé miðstýrt í stórvöxnu opinberu úthlutunarkerfi sem
taki á sig miður æskilegar myndir. Með ólíkindum sé að íslenskt
bankakerfi skuli lítið sem ekkert tillit taka til einstaklinga varð-
andi umtalsverð og viðráðanleg langtímalán til húsnæðisbygginga
eða kaupa. Þetta kom fram í ræðu Markúsar Arnar á aðalfundi
Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á miðvikudagskvöld.
Á fundinum var Baldur Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður einróma
endurkjörinn formaður fulltrúaráðsins.
stofnana flokksins en innan þeirra
væri ávallt reynt að ná ásættanleg-
um og farsælum niðurstöðum fyrir
þjóðarheildina. „Þetta hafa sumir
kallað miðjumoð. Eg segi: Húrra
fyrir miðjumoðinu, ef það er stimp-
illinn, sem einhveijir vilja setja á
gróna hefð í Sjálfstæðisflokknum,
að leita málamiðlana og jafnvægis
í ræðu sinni sagði Markús Öm
að styrk Sjálfstæðisflokksins
mætti rekja til þess að hugmynda-
fræði hans ætti fyrst og fremst
rætur að rekja til íslensks raun-
veruleika en einstaklingshyggja og
frelsisþrá væru sterkasti strengur-
inn í eðli íslendinga. Vissulega
mættust ólíkir hagsmunir innan
til að tryggja í senn gróskumikinn
og ábatasaman atvinnurekstur í
landinu og almenna velferð borgar-
anna, hvar í stétt eða í þjóðfélags-
stiganum, sem þeir eru staddir,"
sagði Markús Örn.
Borgarstjóri sagði að hann vildi
ekkert frekar en að Reykjavíkur-
borg yrði, með lögum um verka-
skipan sveitarfélaga, tryggt full-
nægjandi svigrúm til að vera áfram
fordæmisskapandi um nýmæli í
öllum atriðum sem til heilla gætu
horft fyrir alla samfélagsþegna.
Því miður þyrfti borgin að gjalda
fyrir neikvæða umræðu sem mætti
meðal annars rekja til alþingis-
manna og væri slíkur málflutning-
ur til þess fallinn að vekja að þarf-
lausu upp gamla drauga og stofna
VEÐUR
IDAGkl. 12.00 , 7° , ~
Heimild: Veöurstoia íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 17. JANUAR
YFIRLIT: Yfir suðvestanverðu Grænlandshafi er lægðasvæði, sem
hreyfist norður en yfir Irlandi er 1.038 mb hæð.
SPÁ: Sunnanátt, kaldi eða stinningskaldi vestantil en heldur hæg-
ari austantil. Rigning eða súld um sunnan- og vestanvert landið
en að mestu þurrt norðaustanlands. Hlýtt í veðrí.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Sunnanátt, nokkuð
stíf um vestanvert landið en hægari austantil. Rigning eða súld
sunnanlands og vestan en þurrt að mestu norðaustantil. Hlýtt um
allt land.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
-j o Hftastig:
10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar • V * V Skúrir El
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / nz: Þokumóða
Hátfskýjað * / * 5 ? ? Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri +2 skýjað Reykjavík 3 alskýjað
Bergen vantar
Helsinki vantar
Kaupmannahöfn vatnar
Narssarssuaq 9 skýjað
Nuuk +1 skýjað
Ósló vantar
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn vantar
Algarve 14 heiðskírt
Amsterdam 4 þokumóða
Barcelona 8 heiðskírt
Berlín vantar
Chicago +22 skýjað
Feneyjar +1 þoka
Frankfurt vantar
Glasgow 8 skýjað
Hamborg vantar
London 5 mistur
Los Angeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 3 skýjað
Madríd 5 heiðskírt
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Montreal +27 léttskýjað
NewYork +2 alskýjað
Orlando 6 skýjað
París 5 alskýjað
Madeira 17 þokumóða
Róm 12 þokumóða
Vín vantar
Washíngton 44 úrkomaígrennd
Winnipeg +13 snjókoma
til sundrungar á grundvelli ímynd-
aðrar togstreitu dreifbýlis og þétt-
býlis. „Fólkið úti á landi hefur á
umliðnum áratugum ótvírætt notið
góðs af því, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur verið að beita sér fyrir
í Reykjavík. Sú viðmiðun sem af
því hefur verið höfð í öðrum byggð-
um landsins hefur með tímanum
skilað sér í miklum og varanlegum
ávinningi fyrir fólk um land allt.“
Markús Örn ræddi félagsmál og
taldi að í sumum efnum hefði þeg-
ar verið gengið of langt í svokölluð-
um félagslegum lausnum í þjóð-
félaginu og væru húsnæðismálin
dæmi um slíkt. Keppikefli sjálf-
stæðismanna væri sjálfseignar-
stefnan í húsnæðismálum en hins
vegar væri lánafyrirgreiðsla við
húsbyggjendur meingölluð. „Henni
er, eins og menn þekkja, að veru-
legum hluta miðstýrt í stórvöxnu
opinberu úthlutunarkerfi, sem tek-
ur á sig alls kyns miður æskilegar
myndir eftir því hvemig pólitískir
vindar blása. Það er með ólíkind-
um, að íslenskt bankakerfi skuli
nánast ekkert tillit taka til ein-
staklinga varðandi umtalsverð og
viðráðanleg langtímalán til hús-
næðisbygginga eða kaupa. Ekki
verður öðru trúað en að opnari og
fijálsari peningamarkaður komi í
auknum mæli til móts við þarfír
húsbyggjenda, sem ekki telja sig
eiga erindi inn í félagslegt kerfi
reglugerða, viðmiðunarnorma og
úthlutunarhyggju," sagði Markús
Örn.
fil
Sveinn S. Hannesson
Sveinn Hann-
esson ráðinn
framkvæmda-
stjóri FÍI
SVEINN S. Hannesson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda.
Sveinn er 41 árs, fæddur á Seyð-
isfírði. Hann lauk kandidatsprófi frá
viðskiptadeild Háskólans 1974 og
starfaði hjá Seðlabanka íslands síð-
asta námsárið og í eitt ár eftir að
námi lauk. Hann starfaði síðan hjá
Landssambandi iðnaðarmanna í 5 ár.
1980 til 1986 var hann forstöðumað-
ur hagdeildar og síðar lánasviðs Iðn-
aðarbanka íslands hf., en var þá
ráðinn framkvæmdastjóri eign-
arleigufélagsins Lýsingar hf. og hef-
ur gegnt því starfí síðan. Sveinn mun
hefja störf hjá FÍI um miðjan mars,
en hann tekur við af Ólafí Davíðs-
syni sem ráðinn hefur verið ráðuneyt-
isstjóri forsætisráðuneytisins.
Sveinn er kvæntur Aslaugu Sig-
urðardóttur hjúkrunarfræðingi og
eiga þau fjórar dætur.
Leyfi til reksturs flugskóla veitt til 3ja mán.:
Flugráð vill að leyfí
sé veitt til eins árs
FLUGRÁÐ telur að ekki sé nóg að veita einungis þriggja mánaða
leyfi til reksturs flugskóla og hefur beint þeim tilmælum til Flugmál-
astjórnar að leyfi til reksturs flugskóla gildi út þetta ár. Pétur Ein-
arsson flugmálastjóri segir að þrír af fjórum flugskólum hafi fengið
endurnýjað leyfi til loka mars og það sé ekki fyrirsjáanlegt annað
en að þeir fái framlengingu áfram.
Deilur urðu um fyrirkomulag aði flugkennsluna skilaði af sér til-
flugkennslu í haust og var nefnd
skipuð til að gera tillögur um fyrir-
komulag hennar í framtíðinni.
Nefndin á að skija tillögum sínum
í marsmánuði. Öll leyfi til flug-
kennslu á íslandi féllu úr gildi um
áramót og voru aðeins endumýjuð
til þriggja mánaða.
Leifur Magnússon, formaður
Flugráðs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að allir flugráðsmenn
hefðu verið sammála um að það
væri alltof knöpp tímasetning, þar
sem flugskólar væru fyrirtæki sem
þyrftu að skipuleggja starf sitt til
lengri tíma en þriggja mánaða.
Flugráð hefði því samþykkt tillögu
að þessi leyfi yrðu framlengd til
áramóta. Þó nefnd sem endurskoð-
lögum í mars þá ætti eftir að fjalla
um þær í hlutaðeigandi ráðuneytum
og stofnunum og það væri óvíst
hvenær þær yrðu endanlega tilbún-
ar. Þetta skammtímaleyfí væri
gagnslaust og eins og málin stæðu
nú gætu flugnemar varla gert neinn
samning við flugskóla um sitt nám.
Pétur Einarsson flugmálastjóri
sagði að atvinnuflugkennsla væri í
endurskoðun á vegum samgöngu-
ráðuneytis. Þrír flugskólar af fjór-
um hafí fengið endurnýjað leyfí til
flugreksturs og það sé ekki fyrirsjá-
anlegt annað en þeir fái áfram
framlengingu. Það sé ekkert annað
á bak við þetta en að veita leyfin
í áföngum. Leyfí fjórða flugskólans
sé til skoðunar hjá þeim ennþá.
Athugasemd blaðamanns
í PRESSUNNI í gær er eftirfarandi
haft eftir Charles Cobb, sem var
sendiherra Bandaríkjanna á íslandi
þar til nú fyrir skömmu: „Ég hef
heyrt af þessum misskilningi og það
er rétt hjá Steingrími, að hann
dvaldi aldrei á heimili mínu ... Þessi
villa slæddist inn í viðtalið, en ég
sagði Agnesi Bragadóttur blaða-
manni, þegar ég las viðtalið yfír,
að þetta væri rangt. Ég sagði henni,
að ég hefði boðið Steingrími, en
hann hefði afþakkað. Þetta hefur
ekki komist nógu vel til skila og
af því er þessi misskilningur sprott-
inn.“
Af þessu gefna tilefni vil ég taka
eftirfarandi fram: Þegar ég sendi
Cobb viðtalið til yfirlestrar stóð í
því, haft eftir Cobb, að Steingrímur
Hermannsson hefði dvalið á heimili
hans í Flórída í eina viku og þeir
Þorsteinn Pálsson og Steingrímur
Hermannsson hefðu hvor um sig
dvalið eina viku í skíðaskála hans
í Colorado. Daginn eftir hafði Cobb
samband við mig, þakkaði mér fyr-
ir viðtalið, en sagðist þurfa að gera
eina litla leiðréttingu. Steingrímur
hefði aldrei dvalið í skíðaskála hans
í Colorado, aðeins Þorsteinn Páls-
son. Þetta leiðrétti ég, að beiðni
sendiherrans, en um fleiri leiðrétt-
ingar bað hann ekki.
Agnes Bragadóttir