Morgunblaðið - 17.01.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992
7
Könnun á foreldrastarfi í grunnskólum:
Einsetinn skóli sam-
eiginlegt baráttumál
Nemendur fá ekki allar þær kennslustundir sem þeim ber
I KONNUN sem samhand foreldr-
afélaga í grunnskólum Reykjavík-
ur hefur gert á foreldrastarfi í
grunnskólum kemur fram að sam-
eiginlegt baráttumál félaganna er
cinsetinn skóli og samfelldur, og
lengdur skóladagur. 1 máli Unnar
Halldórsdóttur, formanns Sam-
foks, kom fram að hvergi í ná-
grannalöndum væri skóladagur-
inn eða skólaárið jafn stutt og hér
á landi. Samkvæmt grunnskóla-
lögum eiga yngri börnin rétt á 24
kennslustundum á viku, eldri nem-
endur 28 stundum á viku og ungl-
Miðsljórn ASI um
síldarviðskipti:
Miklir fram-
tíðarhags-
munir í húfi
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands
Islands samþykkti ályktun á
fundi á miðvikudag, þar sem
skorað er á ríkisstjórnina að gera
án tafar ráðstafanir til að hægt
verði að koma á viðskiptum með
saltsild við Rússneska lýðveldið.
I ályktuninni segir, að miðstjórn
ASÍ telji mikla framtíðarhagsmuni
í húfi og mjög áríðandi að hægt
verði að salta upp í hluta samnings-
ins á yfirstandandi síldarvertíð.
íngar allt að 37 kennslustundum.
Skólarnir fengju greitt samkvæmt
því en dæmi eru um að nemendur
fengju mun færri kennslustundir.
Sendir voru út fimni listar í hvert
félag og svöruðu 66, eða um 65%
grunnskóla í borginni.
Jólaföndur og laufabrauð
helsta verkefnið
Könnunin var gerð til að afla upp-
lýsinga um starfsemi foreldrafélaga
í grunnskólum Reykjavík og kanna
hvað þau teldu brýnast að Samfok
legði áherslu á. Spurt var um hver
væru helstu verkefni foreldrafélags-
ins. Samkvæmt könnuninni er um-
sjón með jólaföndri, þrýstingur á
yfirvöld varðandi húsnæði og búnað,
fræðslufundir fyrir foreldra, fjáröfl-
un til tækjakaupa, úrbætur á skóla-
lóð og umferðarmál helstu verkefnin
en ekki innra starf skólans. „Það
virðist sem félögin komi lítið nærri
á stundaskrárgerð eða vali á náms-
bókum,“ sagði Unnur. „Kennarareru
þar alls ráðandi og dæmi eru um að
nemendur hafi þurft að kaupa
kennslubók sem kostaði 2.500 krón-
ur vegna þess að kennaranum líkaði
ekki bókin frá Námsgagnastofnun.
í aðalnámskrá grunnskóla er tekið
fram einum 30 sinnum að foreldrar
og kennarar eigi með sér samstarf.
Sennilega vita fæstir foreldrar að
fulltrúi foreldrafélagsins hefur rétt
til að sitja kennararfundi."
Foreldrar tregir til starfa
Spurt var um helstu hindranir í
starfsemi foreldrafélaga og kemur
fram að tregða foreldra til stjórnar-
þátttöku og óvirkni þeirra stendur
starfinu mest fyrir þrifum. Þegar á
heildina er litið eru ekki margar
hindranir í starfsemi foreldrafélaga.
Nánast engar kvartanir eru vegna
fjárskorts, aðstöðuleysis, verkefna-
skorts og lítið ber á neikvæðri af-
stöðu skólastjórnenda. Fátt virðist
vera því til fyrirstöðu að félög af
þessu tagi nái að blómstra. „Vera
má að tregða fólks til að taka að sér
stjórnunarstörf stafi af ónógri félags-
legri reynslu," sagði Unnur. „Þetta
á sjálfsagt eftir að breytast, þar sem
ákveðið hefur verið að halda félags-
málanámskeið fyrir foreldra. Þá er
það athyglisvert að afstaða skóla-
stjórnenda er ekki hindrun að mati
félaganna enda hafa þau einbeitt sér
að föndri, laufabrauðsgerð og þrýst
á stjómvöld um viðhald og tækja-
kaup. Vonandi fellur það einnig í
góðann jarðveg að kalla foreldra til
samráðs um innri mál skólans.
Stundaskrá barnanna er oft eins og
samin fyrir kennarana en ekki sniðin
að þörfum nemenda. Þá eru dæmi
þess að nemendur fái ekki þann
fjölda kennslustunda sem þeim ber
og skólarnir frá greitt fyrir.“
Áhugi á úrbótum
en ekki á innra starfi
Spurt var hvaða verkefnum for-
eldrafélögin ættu að sinna. Enn á
ný kemur fram að félögin eru áhuga-
söm um úrbætur í skólamálum en
treg til þátttöku í innra starfi, setu
á kennarafundum, skólanámskrár-
gerð og að fylgjast með kennslu.
Morgunblaðið/Emilía
Unnur Halldórsdóttir, formaður Samfoks, Aðalbjörg Þorvarðardóttir
stjórnarmaður ásamt syni sínum, Aðalsteini, og Margrét L. Péturs-
dóttir, starfsmaður Foreldrasamtakanna.
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla
frá 1989 og grunnskólalögum eiga
foreldrar að taka aukinn þátt í skóla-
starfi. Samkvæmt grunnskólalögum
frá 1991 er skylt að stofna skólaráð,
við hvern skóla, sem skal vera skóla-
stjórn til ráðgjafar. „Sennilega eru
væntingar ráðuneytisins og borgar-
yfirvalda um innra starf foreldra í
skólum miklar en ekki að sama skapi
hjá skólunum," sagði Unnur.
20% af heildarkostnaði
fer í sérkennslu
Leitað var álits á sameiginlegum
baráttumálum foreldrafélaganna og
kom þar fram mikill áhugi á úrbótum
í skólamálum og þróun skólastarfs á
öllum sviðum. Efst á blaði er einset-
inn skóli og samfelldur skóladagur.
„Allir stjórnmálaflokkar hafa tekið
upp þetta baráttumál en það er eins
og þar við sitji. Ekkert verður úr
framkvæmdum," sagði Unnur. „Það
væri vissulega ánægjulegt ef um-
ræða um gæðastjórnun kæmist í
gang í skólunum svipað og í heil-
brigðisþjónustunni. Hingað til hefur
kjarabarátta kennara, sem við vissu-
lega styðjum, hljómað hæst enda eru
þeir of lágt launaðir, en það má ekki
fara svo að öll orkan fari í hana.
Ég get nefnt sem dæmi að skólarnir
hafa ekki náð að taka á þessum
blönduðu bekkjum. Það eru ekki til
kennslugögn og menntun kennara
nýtist ekki alltaf sem skyldi í fjöl-
mennum bekkjum. Margir hveijir
breyta í engu sinni kennsluaðferð og
ef ekki tekst að ná athygli nemenda
er bent á sérkennslu, sem er dýr og
er nú um 20% af heildarkostnaði við
grunnskólana."
Loks var spurt um hvaða leiðir
Samfok gæti farið til að ná markmið-
um sínum. Flestir töldu að leggja
bæri fram tillögur í skólamálaráði
og fræðsluráði Reykjavíkurborgar.
Samfok á þar áheyrnarfulltrúa með
málfrelsi og tillögurétt og sömuleiðis
fulltrúa í stjórn Námsgagnastofnun-
ar. Sagði Unnur það mikilvægt að
foreldrar nýttu sér þessa fulltrúa til
að hafa áhrif á gang mála enda hefði
tillögum þeirra þar verið vel tekið
og á þá hlustað.
ö\,NhemA
Skilafrestur í teiknf-
og slagoröasamkeppni
grunnskólanema
rennur út 25. janúar
Vec
verð/(
ker
vem/,
sveí,.,.'"'" e«a i
9efst til art Þar c dVa/ar a
ÍaFnöldrUni k'Vnn^t bUsk Qni ^kifi
°9 bre0JS>nnn,
aUfl j
5por<vö„,;, ‘u °°0 krZl-akan<l'
Þáttti
tv'knz
9?tUr
s,a9orö oq? Veröa veittZ 9 hestbak
re9ða
ser,
aeri
rned
. S,nnbhit
skola í Qlnnig ífar
^dba J' ^i'd og fá '*.iranilag
9ÓdanárJJ°kn^h\J?rskóiar
aran9Ur.
verö/,
Ker
'1Un fyrir
. 'nnararMl
Ahöfudb hush>i
:ó: ^'n T::utan :Z3 H"6sur
^urboi. *sta t
3mfe9/eda
Viö þökkum nemendum þátttökuna og minnum á aö öllum tillögum,
bæöi í teiknisamkeppninni og slagoröasamkeppninni, á aö skila til kennara.
MJÓLKURDAGSNEFND
AUKhf k698-6