Morgunblaðið - 17.01.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992
Tryggja Þjóðveijar
GATT-samningana?
Genf. Reuter.
EFTIR meira en fimm ára þref eru sumar þátttökuþjóðirnar í GATT-
viðræðunum að missa þolinmæðina með þeim, sem standa helst í vegi
fyrir samkomulagi. Einhver harðasta ádrepan til þessa kom í gær frá
Jiirgen Möllemann, efnahagsráðherra Þýskalands, en þá húðskammaði
hann þá, sem þvældust fyrir samkomulagi á síðustu stundu. Blandað-
ist engum hugur um, að hann átti við Frakka fyrst og fremst.
„Þegar GATT-samningamir eru
svo að segja í höfn kemur í ljós, að
afstaða Evrópubandalagsríkjanna
einkennist af ruglingslegum og fár-
ánlegum mótsögnum," sagði Mölle-
mann í gær og sakaði ónefnd EB-
ríki um að finna stöðugt nýjar leiðir
til að hindra samkomulag.
Stjómarerindrekar segja, að Möll-
emann hafi verið að beina orðum
sínum til Frakka aðallega og hafí
hann verið að túlka sjónarmið þýsku
stjómarinnar sé alveg ljóst, að
Frökkum muni ekki haldast uppi að
eyðileggja GATT-samningana.
Helmut Kohl kanslari sagði í síðustu
viku, að hann væri ákveðinn í gera
GATT-samningana að veraleika.
Rússland:
GATT-viðræðurnar hafa staðið í
rúm fimm ár en þeim átti að ljúka
fyrir 13 mánuðum. Það er landbún-
aðarkaflinn, sem hefur staðið í mönn-
um, tillögur um veralega minni nið-
urgreiðslur og útflutningsbætur, og
hefur andstaðan verið mest innan
Evrópubandalagsins og einkum í
Frakklandi.
Nýr þjóð-
höfðingi
í Alsír
Reuter
Biðraðirnar í Rússlandi og öðrum ríkjum nýja samveldisins hafa ekkert styst þrátt fyrir að verðlagið
hafi verið gefið frjálst. Sumir spá því, að þessi tilraun fari út um þúfur á tveimur eða þremur mánuðum.
Jeltsín biður landsmenn að
styðja efnahagsumbæturnar
Rússneskur embættismaður segir gífurlega matvælaaðstoð nauðsynlega
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, skoraði í gær á landsmenn að styðja
efnahagsaðgerðir stjórnarinnar og hét um leið að bæla niður and-
stöðu skriffinna og glæpamanna við umbæturnar. Forseti úkraínska
herráðsins sagði í gær, að Úkraínumenn réðu nú öllum herdeildum
sovéthersins fyrrverandi á sínu landi og þar á meðal skammdrægum
kjarnorkuvopnunum.
Algeirsborg, París. Reuter.
MOHAMED Boudiaf, nýr þjóð-
höfðingi Alsír kom til Algeirs-
borgar í gær eftir að hafa verið
27 ár í útlegð í Marokkó en þang-
að flúði hann eftir að hafa verið
dæmdur til dauða árið 1964 af
þáverandi valdhöfum fyrir
stjórnmálastarfsemi. Leiðtogar
flokks alsískra heittrúarmanna
(FIS) segja stjórn landsins ólög-
lega og að áfram verði haldið á
þeirri braut sem muni leiða til
islamsks ríkis.
FIS vann stórsigur í fyrri umferð
alsírsku þingkosninganna en það
er markmið flokksins að gera Alsír
að íslömsku ríki líkt og Iran. Var
fastlega búist við að þeir myndu
einnig bera sigur úr býtum í síðari
umferð kosninganna sem fara átti
fram í gær.
Hin nýja stjóm Alsír, sem tók
við völdum eftir að Chadli Benjedid
forseti sagði af sér um síðustu
helgi, ákvað hins vegar að halda
ekki síðari umferðina. Við völdum
hefur nú tekið fimm manna ráð
undir forystu Boudiafs og sóru
þeir allir embættiseið sinn í gær.
„Við erum að koma á markaðs-
kerfi við ákaflega erfiðar aðstæður.
Sovétríkin eru hrunin, það er efna-
hagskreppa í landinu og andstaðan,
mafíusamtökin, era að reyna að ná
á sitt vald matvæladreifingunni,“
sagði Jeltsín á þingi og fullyrti, að
einokunarfyrirtækin þrýstu verðinu
upp úr öllu hófi. Kvaðst hann ætla
að draga þá til ábyrgðar, sem reyndu
að koma í veg fyrir einkavæðinguna.
Við umræður á rússneska þinginu
í gær var ekki mikið um beinar árás-
ir á stjórn Jeltsíns en margir lögðu
til, að reynt yrði að sníða mestu
agnúana af núverandi stefnu. Mík-
haíl Kíshelov, þingmaður frá Péturs-
borg, sagði hins vegar, að umbæt-
urnar, sem stjómin reyndi að koma
á, væra dæmdar til að mistakast á
tveimur eða þremur mánuðum. „Því
fyrr, sem við áttum okkur á því, því
líklegra er, að okkur takist að koma
í veg fyrir stórkostlegt slys,“ sagði
Kíshelov.
Um 2.000 stuðningsmenn óháðu
verkalýðssamtakanna í Rússlandi
söfnuðust saman í gær fyrir utan
þinghúsið í Moskvu til að mótmæla
verðhækkununum í landinu. Sögðust
leiðtogar samtakanna, sem hafa 60
milljónir manna innan sinna vé-
banda, að þeir væra að skipuleggja
allsheijarverkfall í landinu.
Georgíj Zhívítsa hershöfðingi og
yfírmaður úkraínska herráðsins
sagði í gær, að allir hermenn á úkra-
ínsku landi lytu nú Úkraínuforseta
og þægju sín laun frá Úkraínu-
stjórn. Þá væra skammdrægu kjarn-
orkuvopnin undir stjórn varnarmála-
ráðuneytisins en yrðu öll flutt burt
frá landinu á fyrra misseri þessa
árs. Zhívítsa kvaðst einnig líta svo
á, að allur Svartahafsflotinn til-
heyrði úkraínska hernum. Kemur sú
yfirlýsing mjög á óvart því að um
síðustu helgi samþykktu Rússar og
Úkraínumenn, að sá hluti flotans,
sem borið gæti kjarnorkuvopn,
skyldi lúta sameiginlegri herstjórn
en hinn hlutinn falla undir Úkraínu.
Alexander Zhítnikov, varafor-
maður rússnesku neyðarhjálpar-
nefndarinnar, sagði í gær, að ættu
efnahagsumbæturnar að takast yrði
að koma til gífurleg hjálp frá Vestur-
löndum. Án milljóna tonna af mat-
vælum frá vestrænum ríkjum kæ-
must Rússar ekki í gegnum vetur-
inn. Erlendir stjómarerindrekar í
Moskvu segja um þetta, að líklega
sé það samningabragð hjá Zhítnikov
að nefna milljónir tonna enda ógjörn-
ingur að verða við því. Bandaríkja-
stjórn hefur boðað fulltrúa annarra
vestrænna ríkja til ráðstefnu í Was-
hington í þessum mánuði til að sam-
ræma aðstoðina við samveldisríkin.
Greenpeace:
Reynt að
stöðva hval-
veiðar Japana
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun,
fréttaritara Morgunbladsins.
JAPANIR hafa hafið hvalveiðar
á suðurheimsskautssvæðinu og
berjast Grænfriðungar nú fyrir
því að þær verði stöðvaðar. Eru
nokkrir Grænfriðungar staddir á
sömu slóðum og skipið Nisshin
Maru er að veiðum og reyna að
sigla gúmmíbátum sínuin milli
skipsins og hvalanna.
Finn Larsen, sjávarlíffræðingur
hjá grænlensku hafrannsóknar-
stofnuninni, sagði í samtali við Ritz-
au-fréttastofuna að þessar veiðar
ógnuðu á engan hátt hvalastofnin-
um á suðurheimsskautssvæðinu.
Hann samanstæði af um 750 þús-
und hvölum og áformuðu Japanir
einungis að veiða um 300 hvali eða
0,4% stofnsins.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld banna sílikon til ígræðslu í bijóst:
Rannsóknír ófullnægjandi og
horft framhjá hættum í 30 ár
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
MATVÆLA- og heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur
farið fram á að læknar hætti að nota efnið silíkon til ígræðslu í
brjóst kvenna. Komið hefur í ljós að einn helsti framleiðandi sil-
íkon-poka, sem notaðir eru til ígræðslu, hefur sennilega ekki
gert nægar tilraunir til að fá fullvissu um að óhætt væri að nota
þá. Einnig er talið að framleiðandinn, Dow Corning-fyrirtækið,
hafi vísvitandi látið hjá líða að kanna aðra kosti, sem ýmislegt
bendir til að öruggara sé að nota.
í ljós hefur komið að silíkon kom á markaðinn á sjöunda ára-
lekur úr pokunum og getur kom-
ist í blóðrásina og þar með út um
allan iíkamann. Onæmiskerfi lík-
amans getur brugðist harkalega
við silíkoni þannig að fram kemur
bólguvaldandi sjálfsofnæmi. í des-
ember á síðasta ári var Dow Corn-
ing-fyrirtækið dæmt til að greiða
kalifornískri konu með sjálfs-
ónæmissýki 7,3 milljónir dollara
í skaðabætur. Kviðdómurinn
komst að þeirri niðurstöðu að það
hefði verið sviksamlegt að greina
ekki frá þeim hættum, sem stafað
gætu af ígræðslu silíkons í bijóst.
Annar galli við silíkon er sá að
efnið skyggir á röntgenmyndir og
torveldar því krabbameinsskoðun.
Þetta getur haft þær afleiðingar
að bijóstakrabbamein fínnist ekki
fyrr en það er lengra á veg kom-
ið en ella. Allt frá því að silíkon
tugnum hafa hvað eftir annað
komið fram efasemdir um að ör-
uggt væri að nota efnið til
ígræðslu, þótt ekki hafi þær farið
hátt. Einnig voru bornar brigður
á það að nægar tilraunir hefðu
verið gerðar með efnið til að hefja
mætti ígræðslu í menn.
Árið 1975 breytti Dow Corning
samsetningu pokans til að ná aft-
ur undir sig markaðnum eftir að
önnur tegund hafði veitt harða
samkeppni. Tilraunir vora gerðar
á kanínum og í Ijós komu bólgur,
sem ekki var vitað hvort rekja
mætti til aðgerðarinnar eða sil-
íkonsins. En áður en niðurstöður
tilraunanna voru Ijósar hafði nýi
silíkon-pokinn þegar verið grædd-
ur í átta konur.
Dow Corning gerði einnig til-
raunir með hunda til að kanna
langvarandi áhrif. Þær tilraunir
stóðu aðeins í tvö ár. Venja er
að slíkar tilraunir standi í sjö ár
og samsvari það heilli mannsævi.
Fyrirtækinu bárust kvartanir
frá læknum vegna þessara bólgu-
einkenna, en lítið sem ekkert var
aðhafst. Innan fyrirtækisins var
skipst á minnisblöðum og athuga-
semdum um að eitthvað þyrfti að
gera vegna þeirrar gagnrýni, sem
fram hefði komið.
Fyrirtækið hefur einnig hafnað
tilmælum um að kanna kosti þess
að nota annað efni en silíkon.
Bæði hafa komið fram hugmyndir
um að fylla pokana með saltlausn
og jarðhnetuolíu. Síðari kosturinn
er talinn betri. Hægt er að gegn-
umlýsa jarðhnetuolíu og hún leys-
ist upp í líkamanum í stað þess
að safnast fyrir eins og silíkon.
Gagnrýnendur segja að ráðamenn
Dow Corning hafi ekki viljað
rannsaka þessa kosti vegna þess
kostnaðar, sem því myndi fylgja,
auk þess sem rannsóknir á nýju
efni gætu gefið viðskiptavinum
tilefni til að ætla að silíkon-pok-
arnir væru ekki jafn öruggir og
af væri látið.
Á siðasta ári fyrirskipaði Mat-
væla- og heilbrigðisstofnunin
Dow Coming að leggja fram allar
niðurstöður þeirra rannsókna,
sem fullyrðingar fyrirtækisins um
ágæti silíkon-pokanna væru reist-
ar á. Þessi gögn voru afhent og
þóttu ekki fullnægjandi.
Því hefur verið haldið fram að
þetta sé mesta misferli í heilbrigð-
ismálum í áraraðir og farið hefur
verið fram á opinbera rannsókn á
því hvort athæfi fyrirtækisins sé
refsivert.
Talsmenn Dow Corning halda
því fram að fullnægjandi rann-
sóknir hafi verið gerðar og hægt
sé að færa sönnur á það. Ekki
megi fella sleggjudóma af lestri
nokkurra orðsendinga milli
manna í fyrirtækinu um tilraunir
og rannsóknir.
Talið er að silíkon-pokar hafi
verið græddir í bijóst milli einnar
og tveggja milljóna kvenna í
Bandaríkjunum. Tvær af hveijum
tíu slíkum aðgerðum eru gerðar
eftir krabbameinsaðgerðir. Aðrar
slíkar aðgerðir era eingöngu gerð-
ar í fegrunarskyni.