Morgunblaðið - 17.01.1992, Side 24

Morgunblaðið - 17.01.1992, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992 Skipaútgerð ríkisins: Ráðherra gagnrýnd- ur fyrir málsmeðferð Vísar ásökunum á bug OVÆNT komu málefni Skipaútgerðar ríkisins til umræðu í gær. Sum- ir þingmenn eru eindregið þeirrar skoðunar að Halldór Blöndal sam- gönguráðherra hafi leynt upplýsingum eða jafnvel sagt ósatt. Sam- gönguráðherra vísar þessu á bug. Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne) ræddi nokkuð málefni Skipaút- gerðar ríkisins í umræðu þeirri sem fram fór í gær um ráðstafanir í rík- isfjármálum á árinu 1992. Hann spurði m.a. samgönguráðherra hveiju það gegndi að hann hefði ekki sagt þingheimi við utandag- skrárumræðu deginum áður að samningaviðræður við Samskip hefðu verið í gangi og samkomulag nánast tekist. Hvort einhver maður úti í bæ hefði umboð til að selja eig- ur ríkisins? Hvort ráðherrann hefði ekki verið upplýstur um gang mála? Ef svo væri ekki hefði ráðherrann bersýnlega farið á bak við þingið. Svaraði skýrt Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði ógjörlegt að gera glögg- lega grein fyrir viðræðum í umræðu þar sem ráðherra væri einungis skammtaður tíminn tvisvar sinnum þijár mínútur. Kristinn H. Gunnars- son, sem ætti reyndar sæti í stjórnar- nefnd Ríkisskipa, hefði valið þá leið að biðja um slíka umræðu. Svör sín hefðu verið nákvæmlega í samræmi við fyrirspurnir Kristins ef hliðsjón væri tekin af þeim tímamörkum sem honum hefðu verið sett í utandag- skrárumræðunni. Hann hefði verið spurður um það hvort svo bæri að líta á að viðræður við undirbúnings- nefnd að stofnun hlutafélags væri lokið. Hann hefði svarað því á þann veg að þessi undirbúningsnefnd hefði bréflega 30. desember óskað eftir því að fá svigrúm til þess að glöggva sig frekar á stöðunni. í fréttatilkynn- ingu hefði skýrt verið tekið fram að stefnt væri að því að umræðu um þessi efni lyki innan hálfs mánaðar. Sér hefði verið heitið að hann myndi fá upplýsingar um hvaða tryggingar yrði hægt að veita ef ríkisstjórnin hygðist taka tilboði þessarar nefndar. Samgönguráðherra vísaði til þess að milii Ríkisskipa og Samskipa hefði tekist náið samstarf og samvinna. Hann vildi vísa á bug öllum dylgjum um það að hann hefði ráðið tímasetn- ingu og verið með í ráðum þegar Samskip buðu í strandferðaskipið Esju. „Auðvitað hlaut ég að halda að þessari undirbúningsnefnd hefði verið þetta kunnugt á undan mér. Ég frétti af þessu tilboði eftir að forstjóra Skipaútgerðar ríkisins hafði verið frá því sagt. Varaformaður undirbúningsnefndarinnar að nýju hlutafélagi er jafnframt varaforstjóri Skipaútgerðar ríkisins og hann hefur ekki síst haft með höndum það nána samstarf sem verið hefur milli Sam- skipa hf. og Skipaútgerðar ríkisins. Það var þess vegna með ólíkindum og alls ekki hægt að ætlast til þess að ég gerði mér grein fyrir því á þessari stundu að engar formlegar viðræður hefðu farið fram milli und- irbúningsnefndar að stofnun hlutafé- lags um strandferðir og Samskipa." í viðræðum við Samskip hefði komið í ljós að Samskip hefðu kosið að standa við sitt tilboð í Esju og segja upp þeim samningi sem þau hefðu haft við Skipaútgerð ríkisins en ekki láta hann ganga til hugsan- legs nýs félags um strandsiglingar. Ráðherrann sagði það vera deginum ljósara hvernig þetta mál væri vaxið. Meðan umræður og þingflokksfundir hefðu staðið yfir deginum áður, hefðu formaður stjómarnefndar Rík- isskipa, fyrir sína hönd, og fulltrúar Samskipa rætt hvort samningar tæk- just um Esju. Þegar fundi hefði lok- ið á Alþingi hefðu þeir samningar verið það langt komnir, að einungis hefðu verið eftir tæknileg atriði. Það væri fáránlegt hjá Steingrími J. Sigf- ússyni að dylgja um það að hann hefði einhveiju ieynt deginum áður. Hann hefði þvert á móti gert ræki- lega grein fyrir því að viðræður væru milli Samskipa og stjórnarfor- manns Ríkisskipa um sölu á Esju. Hann hefði síðast haft tal af samn- inganefndarmönnum undir hádegi, þá hefði ekki verið komin endanleg niðurstaða í það mál, heldur héldu viðræður áfram. En ráðherra vænti þess að það orðalag sem hann hefði viðhaft deginum áður hefði gefið þingmönnum fyllilega til kynna að hann hefði vænst þess að samningar tækjust um Esjuna. Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) sagði að í umræðunum í gær hefði samgönguráðherra verið spurður einfaldra spurninga, sem hann hefði ekki svarað. Rétt eftir að þingfundi lauk hefðu þingmenn heyrt það í fréttum að verið væri að ganga frá samningum við Samskip. Ráðherr- ann hefði sagt ósatt og það ætti ekki að líðast. Halldór Blöndal samgönguráð- herra vísaði þessu á bug. Hann sagði að hann hefði gert þingmönnum grein fyrir því hvernig mál stæðu. Núverandi samgönguráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra, Steingrímur J. Sigfússon (Ab-Ne), skiptust á orðaskeytum einkum um rekstur Skipaútgerðai' ríkisins og stefnu og afskipti fyrri ríkisstjómar af hennar málum. „Ofboðið" Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) sagði þessa umræðu heldur dapur- lega og gæti hann naumast tekið þátt í umræðu með samgönguráð- herra, sér væri ofboðið. Það kom fram að tæpast hefði stjómarnefnd Ríkisskipa verið upplýst um málið. í nefndinni ættu sæti Kristinn H. Gunnarsson, „Geir Gunnarsson, sá ágætismaður, sem ég hef rætt við og veitt ekkert um hvað ráðherra hefur verið að bauka, og svo er það sá sem ekki má nefna, Benedikt Jó- hannesson, en hann hefur verið í samstarfi við ráðherrann svo ég veit. En ég held að fæst orð séu best á þessu stigi. Alþingi tekur þetta mál til afgreiðslu." Halldóri Blöndal samgönguráð- herra kom á óvart að Geir Gunnars- syni hefði ekki verið kunnugt um hvað „verið væri að bauka“. Eyjólf- ur Konráð Jónsson (S-Rv) sagðist hafa orð Geirs fyrir því. Halldór Blöndal sagðist hafa átt fund með stjómarnefnd og formaður hennar hefði átt tal við Geir Gunnarsson utan fundar. Ráðherra kvaðst myndu hafa samband við Geir Gunnarsson og inna hann eftir því hvort hann teldi sig hafa verið leyndan upplýs- íngum. Fieiri þingmenn létu skoðun sína og vanþóknun á háttsemi samgöngu- ráðherra í ljós. Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-Rn) sagði ljóst að ráðherrann hefði leynt upplýsingum og talað gegn betri vitund. Þetta væri staða sem forseti Alþingis gæti ekki látið afskiptalausa. Það væri grandvallaratriði að ráðherrar segðu satt og rétt frá. Ólafur Ragnar beindi þeim tilmælum til Salome Þorkels- dóttur, forseta Alþingis, að hún fyndi tíma fyrir helgina fyrir þingið að ræða þetta mál betur. Fleiri þing- menn tóku undir þessa ósk. Þingfor- seti kvaðst myndu leita leiða til þess að þingmenn ræddu þetta undir öðr- um formerkjum heldur en gæslu þingskapa. Það mátti ráða og leiða að því líkur að forseta væri hugleik- ið að þingmenn ræddu um þær ráð- stafanir í ríkisfjármálum sem væru á dagskrá. Þingmenn létu loks að hennar vilja. Um sexleytið síðdegis í gær greindi Kristinn H. Gunnarsson (Ab-Vf) þingheimi frá því að svo snemma sem kl. 17. hafi verið sagt í fréttum á útvarpsstöðinni Bylgjunni m.a.: „Ómar Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samskipa, segir að öll meginatriði séu nú í höfn varðandi kaup Samskipa á Esju, einu skipa Ríkisskipa. Umræður um að Samskip taki við öðram þáttum í rekstri Ríkis- skipa eru á byijunarstigi." Þingmað- urinn taldi rétt að þetta kæmi fram áður en hann hæfi ræðu sína um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1992. Samgönguráðherra mun flytja þinginu skýrslu um þetta mál á mánudaginn. Breytt frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum: Obreytt afstaða þingmanna BREYTINGARTILLÖGUR við frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármál- um á árinu 1992, „bandorminn" svonefnda, voru ræddar á 68. fundi Alþingis í gær. Afgreiðslu þessa frumvarps var frestað fram yfir ára- mót og síðan hafa breytingartillögur komið fram og breytingartillög- urnar tekið breytingum. Annarri umræðu um þetta frumvarp varð loks framhaldið í gær. Afstaða manna sýnist þó óbreytt. Rannveig Guðmundsdóttir varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar mælti með því að frumvarpið yrði samþykkt með breytingartillögum nefndar- innar. Steingrímur J. Sigfússon (Ab-Nv) talsmaður minnihluta leggst gegn því að frumvarpið; „lagatæknilegur sóðaskapur", verði samþykkt. Meirihluti meðmæltur Varaformaður efnahags- og við- skiptanefndar Rannveig Guð- mundsdóttir (A-Rn) mælti fyrir áliti og breytingartillögum meirihluta. Efnahags- og viðskiptanefnd hefði tekið málið aftur til meðferðar eftir að henni hefði borist bréf frá forsæt- isráðherra 7. janúar, þar sem þess hefði verið farið á leit að nokkrar breytingar yrðu gerðar á frumvarp- inu. Rannveig sagði að öðrum fag- nefndum þingsins hefðu verið sendar til umsagnar þær breytingartilllögur sem vörðuðu þeirra málaflokka. Talsmaður rakti síðan væntanlega endanlegar breytingartillögur, m.a. er lagt er til að grunnlífeyrir skerð- ist hjá þeim ellilífeyrisþegum sem hafa tekjur umfram 65.847 kr. á mánuði. Skerðingarhlutfall verður 25% Lífeyrir verður að fullu skertur þegar tekjur eru umfram 114.339 kr. á mánuði. Með þessari breytingu lækkar grannlífeyrir hjá 11,9% ellilíf- eyrisþega en hlutfall þeirra sem missa lífeyrinn er 4,7%. Einnig er lagt til að heimild til frestunar á töku lífeyrisaldurs verði afnuminn en í núgildandi lögum er þess kostur að fresta töku lífeyris og hljóta ellilífeyr- isþegar við það nokkra hækkun grunnlífeyris. Afnám heimildarinnar er nauðsynleg til þess að ekki sé hægt að skjóta sér undan þeirri skerðingu sem leiðir af tekjutengingu lífeyris. Vegna lokaafgreiðslu fjárlaga fyr- ir þetta ár er lagt til að hlutur sveitar- félaga vegna kostnaðar við löggæslu á árinu 1992 lækki nokkuð, sveitar- félög með 300 íbúa eða fleiri greiði 2.370 kr. á íbúa, sveitarfélög með færri en 300 íbúa greiði 1.420 kr. á hvem íbúa. Auk þess er lagt til að 100 milljóna króna aukaframlagi í Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem ákveðið var á fjárlögum þessa árs, verði einvörðungu varíð til jöfnunar- framlaga. Gerð er tillaga um að ráðherra verði heimilt að tilnefna tilsjónar- menn ríkisstofnana ef sýnt þykir að rekstur þeirra fari fram úr þeim fjár- veitingum sem fjárlög kvæðu á um. Afskipti tilsjónarmanna vörðuðu hinn fjármálalega þátt rekstursins, þ.á m. umfang starfsmannahalds en ekki mat á umsækjendum í stöður. Að endingu lagði varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið yrði samþykkt með þeim breytingartillögum sem gerðar væra. Minnihluti mótfallinn Talsmaður minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar var Steingrím- ur J. Sigfússon (Ab-Ne). Hann sagði efnahags- og viðskiptanefndina hafa unniö nær sleitulaust að þessu fram- varpi síðan þingið kom saman að nýju 6. janúar. Degi síðar hefði bor- ist bréf frá forsætisráðherra með fjöl- mörgum breytingartillögum. Hann átaldi handahófskennd vinnubrögð, sagði að meirihluti nefndarinnar hefði orðið að gera harða atlögu til að lagfæra frumvarpið og breytinga- tillögurnar bæði efnislega og tækni- Iega. En þótt tekist hefði að forðast einhveija fingurbijóta þótti Stein- grími frumvarpið í heild hið versta mál. „Skemmdarverk á hinu íslenska velferðarkerfi. Lagatæknilegur sóða- skapur.“ Hann átaldi málafylgju rík- isstjórnarinnar í þessu máli. „Einstök vinnubrögð. Allar hefðbundnar sam- skiptareglur brotnar.“ Talsmaður minnihlutans sagði að talsmenn minnihluta í öðrum fag- nefndum myndu gera grein fyrir ítar- legri athugasemdum við þá mála- flokka sem þeirra nefndir snertu. En ræðumaður hjó þó að „bandorm- inunt“ svonefnda; framvarpinu um efnahagsráðstafnir á þessu ári. M.a. sagði hann um grunnskólakafla frumvarpsins að þar væri verið að smygla inn faglegum og pólitískum ákvörðunum sem enga þýðingu hefðu um hag ríkissjóðs. Tekjutengda skerðingin á ellilíf- eyri var meingölluð. Hann benti á það að forystumenn aldraðra mætu það svo að hér væri um áunnin rétt- indi að ræða sem væri siðlaust ef ekki ólöglegt að skerða. Steingrímur vildi benda á það að hér væri hár jaðarskattur ef skerðingin á grunnl- ífeyrinum væri tekin með í reikning- inn. Kannski ætti að forða því að ellilífeyrisþegar freistuðust til þess að drýgja tekjur sínar sem oft væru ekki ýkja háar? Vísaði hann til töflu og talnaútreikninga sem fylgja prentuðu minnihlutaáliti. Þar kemur fram að með tilliti til skerðingar á grannlífeyri er jaðarskattur á viðbót- artekjurnar 55% Hér væri kannski kominn hátekjuskatturinn sem ríkis- stjómin hefði hingað til hafnað? „Sérstakt hátekjuskattþrep — á lág- tekjufólk." Steingrímur sagði sjó- menn á nýjan leik verða fyrir atlög- um ríkisstjórnarinnar, því þeir hefðu rétt til að hefja töku lífeyris við 60 ára aldur. Nú væra þessi réttindi í reynd afnumin. Hann vildi benda á það að önnur lífeyrirréttindi sjó- manna væra mjög mismunandi og í mörgum tilvikum bágborin. Kostuleg þótti ræðumanni ein til- lagan. Forsætisráðherra hefði með bréfí sínu 7. janúar lagt til að heim- ilt yrði að skipa opinberum stofnum „fjárhaldsmenn“ skipan þessara manna skyldi vera í valdi ráðherra og ekki tilgreint við hvaða skilyrði þessari heimild skyldi beitt. Meiri- hlutinn í fjárhags- og viðskiptanefnd hefði reynt að lagfæra„þennan en- demis bastarð". Nú skyldi heimilt að skipa „tilsjónarmenn" ef sýnt væri að stofnun færi fram úr heimildum fjárlaga. Eftir stæði að þessum til- sjónarmönnum væra ætluð mikil völd. Þessar aðfarir og málatilbúnað- ur væri með ólíkindum og ótrúlegt að hann bætti andrúmsloftið á opin- beram stofnunum. Hér væri verið að búa til „svipu, hnútasvipu" sem ætti að láta ríða um bak ríkisstarfs- manna. Halldór Blöndal samgönguráð- herra var krafinn svara við nokkrum spurningum og svaraði ráðherra með ræðu sem og hlutust af henni ands- vör og umræða um gæslu þingskapa. Að loknu þessu millispili tók Kristín Astgeirsdóttir (KV-Rv) til máls og beindi fjölmörgum spurningum til forsætisráðherra, fjármálaráðherra og menntamálaráðherra, m.a. um hvernig ráðstafanir í frumvarpinu samrýmdust stefnu ríkisstjórnarinn- ar í Hvítbókinni. Gagnrýndi hún vinnubrögð við gerð frumvarpsins. „Hér er blandað saman óskildum málum í gríðarlega löngum lagabálki og er verið að koma hér í gegn mál- um sem koma ráðstöfunum í ríkisfj- ármálum ekkert við, heldur er verið að breyta grandvallarlögum eins og um grunnskóla til að koma ýmsum stefnumálum Sjálfstæðisflokksins í gegn,“ sagði hún. Þingmaðurinn gagnrýndi sérstaklega ráðstafanir um niðurskurð í grannskólum, skerð- ingu ellilífeyris, álögur á sveitarfélög og tillögur um sérstaka tilsjónar- menn í ríkisstofnunum. Sagði hún að í frumvarpinu fælust margfaldar árásir á velferðarkerfið, verið væri að velta gjöldum yfir á almenning og auka álögur á sveitarfélög. Sagði hún þessa samdráttarstefnu ganga þvert á alla viðurkennda hagfræði á samdráttartímum sem myndi setja af stað keðjuverkun með ófyrirséðum afleiðingum. Jóhannes Geir Sigurgeirsson sagði ríkisstjórnina með þessu frum- varpi enn ráðast á garðinn þar sem hann væri lægstur en á sama tíma bæri lítið á viðleitni til að skatt- leggja stóreignamenn og íjármagns- tekjur. Sjómenn yrðu fyrir barðinu á ríkisstjórninni, enn væri ráðist á þeirra kjör. Sjómannaafslátturinn hefði verið skertur og nú væra þeirra kjör eða „félagsmálapakki" aftur skertur. Kristinn H. Gunnarsson sagðist lengi hafa beðið eftir að taka til máls um þetta mál, hann hefði beðið um orðið 18. desember, síðan hefði frumvarpið stórlega breyst. En ekki mátti skilja hans orðræðu þann- ig að honum þætti framvarpið boða gott og urðu aðstandendur þess að þola nokkurt ámæli, t.d. Sjálfstæðis- flokkurinn sem hefði — a.m.k. í orði — sagst hollur kirkju, kristni og góð- um siðum. Frumvarpið bæri því ekki vitni; ráðist væri gegn samhjálp og velferð landsins barna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.