Morgunblaðið - 17.01.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 17.01.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992 mmm 'cg veit þ&ð tri hí/y^átiinQ. Ég er ajfarc^ i kringum* hncttinsL." Mundu: Ég átti ekki því láni að fagna að njóta minnar eigin tilsagnar, eins og þú! Með morgunkaffínu Alsjáandi greinum vér varla vá Þessi pistill minn fjallar um eitt og annað. Má raunar segja, að vað- ið sé úr einu í annað og kveikjan er kannske smáklausa í Daglaðinu frá 4. nóvember sl. Þar er greint frá því að kjöti hafi verið slátrað. Nákvæmlega hljóðar svo: „Kjötið var geymt í frystigámi, skammt þar frá sem kjötinu var slátrað.“ Ég vil þó taka fram að hér hjá mér varð orðaröðin önnur en er í tilv. klausu, og vona ég það komi ekki að sök, meiningin er óbreytt. Það getur ýmsu hnignað. Mér datt í hug auglýsingin: Slátruðu kjöti verslað. Eigum við kannske eftir að sjá það næst. Það slátrar enginn kjöti og kjöti verður heldur ekki verslað, það er keypt eða selt. Það verslar enginn vöru út 1 búð, heldur er hún keypt. Þetta eru aðeins lítil dæmi um slæma málsmeðferð á opinberum vettvangi, vettvanginum þeim, sem er hinn nærtækasti skóli ungu kyn- slóðarinnar í dag, fjölmiðillinn. Það er óskemmtilegt að hlusta á, ellegar að lesa allar ambögurn- ar, sem tröllríða húsum í fjölmiðlum landsins, hvort heldur er í mæltu eða rituðu máli. Næstum sama hvar í blað er lit- ið, hlýtt á útvarp eða á sjónvarp horft — alls staðar úir og grúir af ambögum — augljósum villum, kjánalegri orðaröð og röngum beyg- ingum. Líkt og að ómenntaðra málsóða hætti. Skeytingarleysi um virðingu og vandað mál. Hér er að verki hámenntað fólk, úr háskólum erlendra þjóða, kostað af þjóðinni, fyrst og fremst af þess- um einstaklingum, sem enn eru að basla og strita við frumgreinarnar, sem vissulega standa undir allri velmeguninni og tilurð okkar sem fijálsrar þjóðar. En sá raunveruleiki er ekki í sviðsljósinu í dag. Þeir sem dansa í kringum gullkálfinn hafa jafnan glýju í augum, og sjá hlutina í villu- ljósi. Við göslumst hér áfram sem í vímu, gerum naumast greinarmun á réttu og röngu. Erum að því leyti til verri heldur en strúturinn, sem stingur hausnum í sandinn til að forðast hættuna. Alsjáandi greinum við vá, sem víða steðjar að og gæti orðið okkur að íjörtjóni. Hér á ég fyrst og fremst við undirlægjuhátt okkar gagnvart öðrum þjóðum, bruðl og gégndarlausa eyðslusóun verðmæta og heimskulegan inn- flutning á margskonar varningi — sem við getum og verðum að fram- leiða hér heima, ef við viljum kom- ast af sem fijáls og sjálfstæð þjóð. Þrátt fyrir hina miklu menntun þjóðarinnar er líkast því sem marg- ir geri sér varla grein fyrir því hvað þarf til, svo dæmið okkar gangi upp. Jafnvel langskólagengið fólk virðist ekki hafa hugmynd um það hver undirstaðan er, sbr. grein menntamannsins sem var við nám úti í Ameríku um árið, og þótti illa vegið að Lánasjóði íslenskra náms- mánna. í Morgunblaðsgrein sinni reit hann að það væri nær að leggja niður dauðvona atvinnugreinar uppi á íslandi, s.s. landbúnað og sjávar- útveg, heldur en að draga fé af Lánasjóði íslenskra námsmanna. Ótrúlegt að nokkur skuli vera svo fávís, að hugsa svo, hvað þá segja. Hvað hefur okkur verið kennt? Þessi grein þótti ekki vera svaraverð, nema hvað smá andsvar birtist í Morgunblaðinu, hvar bent var á þá einföldu staðreynd, að væri enginn landbúnaður til á Islandi og ekki heldur sjávarútvegur, þá væri held- ur enginn lánasjóður, því hver ein- asta króna sem í þeim sjóði væri, kæmi þangað á einn eða annan hátt frá þessum tveimur atvinnu- greinum sem er algjör undirstaða undir alla velmegun hér, framfarir, athafnir okkar og þeirri staðreynd að við erum þó hér ennþá. Það er frumskylda hvers og eins að nýta eigin lindir. Á því lifir hann og öðruvísi kemst hann ekki af, nema sem ölmusumaður. Viijum við íslendingar virkilega vera sem slík- ir? Komnir upp á annarra náð og erlenda yfirdrottnun. Auðlindir landsins eru fyrst og fremst hafíð umhverfis landið og lífríki þess, ásamt landinu sjálfu, orku þess í fallvötnum og jarðhita og jarðar- gróða. Það skaut nokkuð skökku við í ræðu á fullveldishátíðinni 1. des- ember sl., er ræðumaður, í upptaln- ingu auðlinda landsins, nefndi eigi landbúnaðinn sem er þó sú auðlind- in sem gerði forfeðrum okkar kleift að setjast hér að. Allar götur síðan hefur hann verið styrkasta stoðin og án hans væri hér engin byggð. Það er ekki von að vel fari þegar slíkum undirstöðugreinum atvinnu- lífsins er ekki sýndur meiri sómi en raun ber vitni. Landbúnaðurinn er sem í heljargreipum, einskis metinn af fjöldanum — markvisst unnið að því að draga hann niður og lítið er það betra í hinni grein- inni, sjávarútveginum. Þar er ör- fáum, sægreifum að kallaðir eru, leyft að valsa með fiskinn í sjónum, láta hann ganga kaupum og sölum á milli sín. Það er líkast því sem fáráðlingar haldi um stjórnartau- mana í þessum efnum. Síðan er aflahluta upp úr sjó mokað í gáma og sent til útlanda með haus og sporði í stað þess að fullnýta aflann hér heima, vinna í verðmætari vöru. Hrikalegt! Þetta er nýlendustefna tuttug- ustu aldarinnar. Þannig fóru Evr- ópumenn með hinar fátæku þjóðir Asíu og Afríku á nítjándu öldinni. Gengu í auðlindir þeirra, sem þeir ættu, fluttu heim til sín og hlutu bæði arðinn og vinnuna, en skildu fólkið eftir í fátækt og eymd þar sem auðlindir þess voru nýttar í framandi löndum. Fólkið í þessum fátæku löndum var illa upplýst og fákunnandi, öðru máli gegnir með okkur hér uppi á Islandi undir lok tuttugustu aldar- innar. Hér er menntun og þekking ekki minni en á meginlandinu. Samt erum við svo sljó gagnvart stað- reyndum lífsins að við sjáum hvorki né skiljum hættuna á því að senda hráefn okkar óunnið úr landi. Meg- inlandsmenn hafa ekkert breyst, þeir heimta enn hráefni okkar til þess að hagnast sjálfir á og ráð- andi menn liggja marflatir fyrir þessum hættulega áróðri og telja okkur hagkvæmast að lúta þeim í einu og öllu — jafnvel og senda þeim fiskinn í gámum út og fá vör- umar þeirra hingað til lands. Það er ekki nóg að við sendum fiskinn óunninn úr landi í stað þess að vinna hann hér heima. Heldur lifir hér og dafnar allskonar sýndar- mennska, milliliðabrask og fjár- plógsstarfsemi og fjöldinn allur virðist halda að uppspretta fjár- magnsins sé í bönkunum, enda eru þeir þær einu stofnanir sem hafa grætt hin síðustu árin. í skjóli vaxtaokurs. Svo er þessa dagana verið að tala um hálmstráið sem hanga á — að senda raforkuna út í streng til Evrópu. Væri ekki nær að nýta orkuna til fulls í unnum varningi til útflutnings. Það gæfi margfaldar tekjur fyrir þjóðarbúið — og það í beinhörðum gjaldeyri. Gunnar Gunnarsson Yíkverji skrifar Hinn tvíframlengdi Ieikur Vals og Víkings í bikarkeppninni í handknattleik sýndi og sannaði að fátt eða ekkert er meira spenn- andi en jafn og tvísýnn handbolta- leikur. Því er það óskiljanlegt að sjónvarpsstöðvarnar skuli ekki sýna beint frá svona leikjum. Það er sérstaklega mikilvægt að sýna beint frá leikjum sem fara fram í litlum og óhentugum húsum eins og þessi leikur, sem fram fór í íþróttahúsi Vals. Fjöldi manns varð frá að hverfa vegna þess að húsið tekur svo fáa áhorfendur. Víkveiji telur reyndar að HSí eigi ekki að leyfa alvöru handbolta- leiki í þessu húsi. Fjöldi áhorfenda sér ekki inn á völlinn og svo stutt er frá vellinum í áhorfendasætin að þess eru dæmi að hornamenn hafi hlaupið á fólk sem hefur verið að koma úr sjoppunni með popp og kók! Hitt er svo spurning hvort bruna- reglugerðir séu ekki þverbrotnar þegar troðið er í Valshúsið eins og gert var á miðvikudaginn. Voru brunaleiðir tryggar fyrir þá áhorf- endur sem í húsinu voru ef eldur hefði kviknað á meðan leikurinn stóð sem hæst? Það ættu að vera hæg heimatökin fyrir yfirmenn slökkviliðsins í Reykjavík að labba yfir götuna og kíkja á öryggismálin í húsinu. xxx að kemur fram í skýrslum ÁTVR yfir áfengissöluna í fyrra að stórlega hefur dregið úr sölu á bjór s.l. 2 ár. Reyndar er bjórsala miklu minni hér á landi en spáð var þegar hún var leyfð að nýju eftir margra áratuga bann. Flestir eru víst sammála um að rétt sé að beina drykkju frá sterkum vínum í bjór. En það verður ekki gert á meðan verðinu er haldið eins háu og gert er hér á Iandi. Þess eru dæmi að hálfs lítra kanna af bjór kosti 600 krónur á krá eða jafnvirði um 6 sterlingspunda! Jafn- vel fínustu hótel Lundúna myndu ekki voga sér að setja upp slíkt verð. xxx Víkveiji fann að því í pistli 6. desember sl. að Stöð 2 skyldi á fullveldisdaginn 1. desember vera með þátt um 15 ára afmæli hljóm- plötuútgáfunnar Skífunnar. Fannst Víkveija tilefnið ekki svo merkilegt að réttlætti langan sjónvarpsþátt. Undir þetta sjónarmið tók Ólafur M. Jóhannesson fjölmiðlagagnrýn- andi blaðsins í pistli sínum. Páll Magnússon sjónvarpsstjóri svaraði í blaðinu 11. desember og hét grein hans „Að hafa það sem rangt reynist“. Þar segir Páll m.a. að þátturinn hafi ekki verið um afmæli Skífunnar, heldur hluti af þáttaröðinni „Tónar á Fróni“ og Steinar hf., helsti'keppinautur Skíf- unnar, hafi átt hlutdeild að öðrum þáttum í þessari röð. Steinar Berg forstjóri Steina hf. hefur nýverið skrifað grein hér í blaðið þar sem hann sver af sér hlutdeild fyrirtækisins í þáttaröð- inni. Jafnframt segir Steinar Berg: „Fullyrðing Páls Magnússonar um að þátturinn hafi ekki verið „um afmæli hljómplötuútgáfu“ er að því leyti rétt að efnislega var ekki fjall- að um tiltekið afmæli eða fyrir- tæki. Það er hins vegar ljóst sam- kvæmt efnisvali þáttarins að honum var eingöngu ætlað að þjóna einu útgáfufyrirtæki, ef menn vilja trúa því, sem oft er rétt, að framkoma flytjenda í sjónvarpi hjálpi til við að selja plötur, diska og kassettur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.