Morgunblaðið - 25.02.1992, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fHávgtmtttafrifc
1992
KNATTSPYRNA
Markvörður
skoraði
með skalla
Sá fáséði atburður gerðist á ítal-
íu á sunnudaginn að mark-
vörður Cremonese, Michelangelo
Rampulla, skoraði mark með skalla
og tryggði félagi sínu jafntefli, 1:1,
gegn Atalanta þegar tvær mín.
voru komnar yfir venjulegan leik-
tíma. Rampulla brunaði fram þegar
aukaspyrna var tekin og skallaði
knöttinn í netið. Hann er fyrsti
markvörðurinn í ítölsku 1. deildar-
keppninni til að skora mark.
Erlenda knatt-
spyrnan / B9
HANDBOLTI
Dökkt
útlit
hjá Val
Ekkert nema kraftaverk get-
ur tryggt íslandsmeistur-
um Vals rétt til að leika í úrslita-
keppninni í 1. deild, eftir að
Eyjamenn lögðu Stjörnumenn
að velli, 26:20, í Vestmannaeyj-
um í gærkvöldi. Valsmenn eru
fjórum stigum á eftir ÍBV og
Stjörnunni, en eiga tvo leiki til
góða á Stjörnuna.
ÍBV, sem á einn leik til góða,
er með 27 mörk í plús, en Stjarn-
an, sem hefur lokið keppni, er
með 21 mark í plús. Valsmenn
eru með sex mörk í mínus, þann-
ig að þeir þurfa að vinna leiki
sína gegn UBK, heima, og Sel-
fossi, úti, með 28 marka mun
til að komast upp fyrir Stjörn-
una.
Ef Valsmenn ná ekki Stjörn-
unni kemur það í hlutverk
Stjömumanna að leika gegn FH
í úrslitakeppninni, en enn er
óljóst hvernig raðast niður á
hinar þijár viðureignimar í
úrslitakeppninni.
Llrslit / BIO
Staðan / B10
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR
BLAÐ
B
adidas
• ••
annaö ekki
Landsliðið til Dubayy
Landsliðið í knattspyrnu heldur
til Sameinuðu arabískufur-
stadæmana og leika landsleik
gegn þeim í Dubayy við Persaflóa
á mánudaginn. Þá mun liðið leika
æfingaleik í ferðinni - gegn 21
árs_ landsliði.
Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálf-
ari, valdi í gær þá leikmenn sem
fara í ferðina. Þeir eru: Birkir
Kristinsson, Fram, Friðrik Frið-
riksson, ÍBV, markverðir, Einar
Páll Tómasson, Val, Atli Helga-
son, Víkingi; Ólafur Kristjánsson,
FH, Þormóður Egilsson, KR,
Baldur Bjarnason, Fram, Baldur
Bragason, Val, Kristinn R. Jóns-
son, Fram, Arnar Grétarsson,
UBK, Rúnar Kristinsson, KR,
Valur Valsson, UBK, Andri Mar-
teinsson, FH, Tómas Ingi Tómas-
son, ÍBV, Grétar Einarsson, FH
og Atli Einarsson, Víkingi.
JUDO
Morgunblaðifi/KGA
Brons hjá Sigurði í Edinborg
Sigurður Bergmann hlaut brons-
verðlaun á opna skoska meist-
aramótinu í júdó, sem fór fram í
Edinborg um helgina. Sigurður
keppti við Japanann Yamasaki í
þungavikt og lagði hann á ippon.
Sigurður, sein hefur tryggt sér 66
punkta á alþjóðlegum mótum, þarf
nú aðeins fjóra punkta til að tryggja
sér farseðilinn á ÓL í Barcelona.
Halldór Hafsteinsson, Ármanni,
keppti um brons í -86 kg flokki og
Vernharður Þorleifsson, KA, keppti
um brons í -95 kg flokki, en þeir
töpuðu báðir sínum glímum.
Bjarni Á. Friðriksson keppti ekki
á mótinu, en hann stefnir að þátt-
töku í nokkrum sterkum mótum fram
að Ólympíuleikunum í Barcelona; því
opna tékkneska eftir rúmar tvær vik-
ur, opna hollenska, opna breska,
Norðurlandamótinu hér heima í apríl,
Evrópumótinu í París í maí, og svo
hugsanlega móti í Frakklandi í júní.
FH-ingar
fagna
FH-ingar fögnuðu bik-
armeistaratitii í hand-
knattleik í Laugardals-
höllinni - í fyrsta sinn
í fimmtán ár. Á mynd-
inni eru Gunnar Bein-
teinsson, Þorgils Ótt-
ar Mathiesen og Sig-
urður Sveinsson.
Sjá B6, B7.
ALBERTVILLE: ÁRAIMGURIMORÐMANIMA KEMUR EKKIÁ ÓVART / B2,B3,B4,B5