Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROl I iRpRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992
OLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI
Reuter
Viktor Tíkhonov, sem stjómaði liði til sigurs í íshokkíkeppninni þriðju Ólympíuleikana í röð, fékk flugferð að launum
frá leikmönnum sínum eftir að úrslitaleiknum lauk.
Rögnvaldur
aftarlega
Röngnvaldur Daði Ingþórs-
son, skíðagöngumaður frá
Akureyri, hafnaði í 54. sæti í
50 km göngunni á Ólympíuleik-
unum í Albertville á laugardag-
inn. Hann gekk á tveimur
klukkustundum 25 mínútum og
16,9 sekúndum og var 22 mínút-
um á eftri Bimi Dæhlie frá
Noregi, sem sigraði. Alls voru
67 keppendur sem kláruðu
gönguna.
Haukur Eiríksson ætlaði
einnig að vera með, en hætti
við þátttöku vegna hálsbólgu.
~ Reuter
Oðru marki Samveldisins gegn Kanadamönnum fagnað. Til vinstri er Vladím-
ír Malakov og Igor Boldin er hægra megin.
Kanada
réðekkí
við „rauða"
herinn
ViktorTíkhonovstjómaði liði til sigurs
þriðju Ólympíuleikana í röð
SAMVELDI sjálfstæðra ríkja,
SSR, hélt uppteknum hætti
fyrrum Sovétríkja og hlaut gull-
verðlaunin í íshokkf á Ólympíu-
leikunum í Frakklandi, rétt eins
og Sovétmenn gerðu í Calgary
1988 og Sarajevo 1984. Viktor
Tíkhonov stjórnaði sigurliðinu
á öllum leikunum, en að þessu
sinni mátti lið Kanada sætta
sig við 3:1 tap i úrslitaleiknum.
Mikill hraði var í leik þessara
„risa“ í íshokkíinu á sunnu-
daginn. Liðin sóttu stíft og Kanada-
menn fengu nokkur marktækifæri
til að byija með, en síðan náðu
Samveldismenn undirtökunum.
Vörn Kanada var hins vegar mjög
sterk og Sean Burke í markinu var
sem óyfirstíganlegur þröskuldur.
„Við fengum okkar tækifæri, en
Burke bjargaði okkur í öðrum leik-
hluta,“ sagði Dave King, þjálfari
Kanada. „Þá unnum við vel, en
vorum of flatir.“
Leikurinn var markalaus ótrú-
lega lengi, en Vyacheslav Butsajev
komst loks á lista skorara í keppn-
inni í byijun þriðja leikhluta. Sam-
veldismenn bættu öðru marki við
undir lokin áður en Kanada náði
að minnka muninn, en Bykov gerði
vonir Kanadamanna að engu. Hann
sagðist hafa sungið sovéska þjóð-
sönginn, þegar ólympíuóðurinn var
leikinn. „Við iékum fyrir fólkið í
fyrrum Sovétríkjum og ég vissi að
það hugsaði til okkar á þessari
stundu.“
Kanada, sem eins og venjulega
var án bestu leikmannanna vegna
NHL-keppninnar, sigraði síðast í
íshokkí á Ólympíuleikunum 1952
og fékk bronsið 1968, en hefur
ekki verið á verðlaunapalli síðan.
„Ég varð fyrir vonbrigðum með
frammistöðuna, en er mjög hreyk-
inn af silfurverðlaununum," sagði
King þjálfari. „En þeir [Samveldis-
menn] hafa alla burði til að ráða
ríkjum um ókomin ár.“
Tíkhonov, sem er 62 ára og hef-
ur þjálfað landsliðið í 20 ár, er ekki
þekktur fyrir að sýna svipbrigði,
en hann gat ekki varist gleðibrosi,
þegar leikmennirnir „tolleruðu“
hann í leikslok. „í byijun keppninn-
ar vorum við ekki taldir sigur-
stranglegir, en okkur óx ásmegin
með hveijum leik og vorum á toppn-
um á réttum tíma.“
Tékkóslóvakía, sem sló heims-
meistara Svíþjóðar óvænt út í átta
liða úrslitum, sigraði SSR í riðla-
keppninni og vann Bandaríkin 6:1
í keppni um bronsverðlaunin.
Margir vilja vestur
Leikmenn SSR komu frá hinum ýmsu ríkjum fyrrum Sovétríkja, en
í framtíðinni koma þeir til með að keppa í nafni ríkis síns, svo
framarlega sem þeir verða til staðar, þegar og ef kallið kemur. Þegar
er ljóst að margir hafa áhuga á að reyna fyrir sér með kanadískum
eða bandarískum liðum í NHL-deildinni og félög vestra hafa einnig
sýnt áhuga.
En þó leikmenn komi og fari telur Igor Dmitriev, aðstoðarmaður
Tíkhonov, að Tíkhanov verði áfram við stjórnvölinn hjá landsliði Rúss-
lands. Tíkhano vakti athygli fyrir að mæta ekki á blaðamannafundi
eftir leiki, en fyrir undanúrslitin sagði Dmitriev að þjálfarinn kæmi á
einn fund — eftir úrslitaleikinn og það voru orð að sönnu.
Örnólfur Valdimarsson var ánægður með 35. sætið í sviginu.
Sennilega síðasta
stórmótið erlendis
- sagði læknisfræðineminn Örnólfur Valdimarsson
ÖRIMÓLFUR Valdimarsson
hafnaði í 35. sæti í sviginu á
Ólympíuleikunum á iaugardag-
inn og var mjög sáttur við það.
„Þegar haft er í huga að menn
ífremstu röð, atvinnumenn,
sem taka þátt íheimsbikarn-
um, voru í 20. til 30. sæti get
ég ekki annað en verið sáttur
við minn hlut,“ sagði Örnólfur
við Morgunblaðið.
■ ■
Ornólfur fékk samanlagðan tíma
1:56.48 mín. og va'r hann
12,09 sek. á eftir ólympíumeistar-
anum, Finn Christian Jagge frá
Noregi. Örnólfur hafnaði í 35. sæti
af 65 sem komust í gegnum báðar
umferðirnar, en 119 hófu keppni.
„Maður reynir ávallt að gera sitt
besta, en síðan er spurningin hvern-
ig gengur,“ sagði Órnólfur aðspurð-
ur um hvort hann hefði tekið mikla
áhættu. „Ef skíðamaður sveiflar
ekki höndunum eða missir fæturna
halda margir að hann taki ekki
áhættu, en tilfellið er að það er
hægt að taka áhættu án þess að
gera mistök. Þetta er alltaf spurn-
ing um hvað menn sleppa sér í
brautunum. Fyrri ferðin í sviginu
gekk ekki alveg nógu vel hjá mér,
en ég sleppti mér alveg í seinni
umferðinni og þá gekk mér ágæt-
lega.“
Hann sagði að allur aðbúnaður
hefði verið uppá það besta, „en eina
sem skyggði á var að alpagreina-
karlarnir voru einangraðir frá öllum
öðrum keppendum og því var varla
um samskipti við aðra að ræða.“
Hann bætti við að mikið hefði verið
spurt um alþjóðlegu mótin á íslandi
í apríl n.k. og taldi að þau yrðu
áhugaverðari en áður vegna fleiri
erlendra keppenda.
Örnólfur, sem er á þriðja ári í
læknisfræði við Háskóla Islands,
sagði að nú tæki námið við á ný.
„Þetta var sennilega síðasta stór-
mótið mitt erlendis. Ég ætia að
taka þátt í íslandsmótinu og alþjóð-
legu mótunum, sem verða heima í
apríl, en síðan verð ég að snúa mér
að fullu að náminu."