Morgunblaðið - 25.02.1992, Page 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992
HANDKNATTLEIKUR / BIKARÚRSLIT
FH bikarmeistari ífjórða sinn:
FH-ingar héldu
hreinu í 22 mín.
í fyrri hálfleik
Valsmenn réðu ekki við vörn FH-inga og skoruðu ekki úr 15 sóknum í röð
KRISTJÁN Arason og læri-
sveinar hans í FH sýndu á laug-
ardaginn hvers þeir eru megn-
ugir, þegar þeir unnu Val 25:20
íbikarúrslitum karla í Laugar-
dalshöll eftir að hafa verið fjór-
um mörkum yfir í hálfleik, 10:6.
Þremur dögum áður tryggðu
FH-ingar sér deildarmeistara-
titilinn og þátttökurétt í Evr-
ópukeppni félagsliða, en með
sigrinum gegn Val eru þeir að
sjálfsögðu í Evrópukeppni bik-
arhafa, en Víkingur í IHF-
keppninni. Með sama áfram-
haldi í úrslitakeppni íslands-
mótsins verður FH í Evrópu-
keppni meistaraliða í haust, en
Valsmenn fá þá keppni bikar-
hafa í sárabætur.
Allt annað var að sjá til FH-inga
en í tveimur síðustu leikjum.
Þeir vissu hvað var í húfi og stóðu
undir nafni, þegar á
Steinþór reyndi. Gott lið læt-
Guðbjartsson ur ekki bugast á
skrifar úrslitastundu og
FH-ingar héldu sínu
striki, þrátt fyrir mótlæti fyrstu
fimm mínúturnar.
Bergsveinn lokaði markinu
Eftir að hafa átt skot í stöng og
slá og fengið á sig mark úr horni,
annað eftir hraðaupphlaup og tvö
fyrir utan sögðu FH-ingar hingað
og ekki lengra. 6-0 vörn þeirra var
sem óyfirstíganlegur múr og Berg-
sveinn Bergsveinsson lokaði mark-
inu í 21 mínútu og 40 sekúndur. Á
þessum tíma fengu Valsmenn 15
sóknir án þess að skora. FH-ingar
voru 4:1 undir en komust í 7:4 og
FH-Valur 25:20
Laugardalshöll, úrslitaleikur i bikar-
keppni karla í handknattleik laugar-
daginn 22. febrúar 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 1:4, 7:4, 8:6,
10:6, 10:7, 10:9, 12:11, 13:12, 16:12,
16:14, 19:14, 20:16, 23:16, 26:18,
25:20.
Mörk FH: Þorgils Óttar Mathiesen 6,
Hans Guðmundsson 5, Kristján Arason
4, Guðjón Ámason 4, Gunnar Bein-
teinsson 3, Sigurður Sveinsson 2, Hálf-
dán Þórðarson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
15/1 (þar af fjögur, þegar boltinn fór
aftur til mótherja).
Utan vallar: Átta mínútur.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 5, Jón
Kristjánsson 5/3, Dagur Sigurðsson
4, Ármann Sigurvinsson 3, Ólafur Stef-
ánsson 2, Jakob Sigurðsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkeisson
5/1 (þar af 3/1, þegar boltinn fór aft-
ur til mótherja).
Utan vallar: Tvær mínútur.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Óli
P. Ólsen.
Áhorfendur: 1.389 greiddu aðgangs-
eyri.
grunnurinn var lagður að sigrinum.
Bergsveinn varði átta skot á þess-
um kafla, þar af fjögur úr horni
og tvö eftir hraðaupphlaup.
Það segir sig sjálft að lið, sem
skorar ekki í 22 mínútur í röð og
gerir ekki nema sex mörk í fyrri
hálfleik, á sér ekki viðreisnar von,
allra síst í úrslitaleik. Valsmenn
fengu reyndar óskabyijun í báðum
hálfleikjum og voru með 100%
sóknarnýtingu fyrstu mínúturnar,
gerðu fjögur mörk úr fyrstu fjórum
sóknunum fyrir hlé og þrjú í jafn-
mörgum sóknum í upphafi seinni
hálfleiks, en þeir höfðu ekki burði
til að bregðast rétt við, þegar FH-
ingum óx ásmegin. Þar skiptu
reynsluleysi Valsmanna og leik-
reynsla FH-inga sköpum.
Fjölbreytni — einhæfni
Markvarslan og vörnin voru aðal
FH-inga, en sóknarleikur þeirra var
einnig mun fjölbreyttari, ákveðnari
og markvissari.en hjá Valsmönnum.
Allir FH-ingar tóku virkan þátt í
sókninni, en brotalamir voru hjá
Valsmönnum. Til marks um það
gerði Dagur Sigurðsson öll fjögur
mörk Vals fyrir utan, hinar skytt-
urnar nýttust ekki sem skyldi og
vinstra hornið var illa notað.
FH-ingar héldu sínu striki allan
tímann og treystu á sömu mennina.
Þeir unnu sem ein heild og og hættu
ekki fyrr en settu marki var náð.
Bergsveinn tryggði sér endanlega
landsliðssæti í b-keppninni með
markvörslu sinni; Kristján sýndi að
jafnvel meiddur _ er hann öðrum
fremri; Þorgils Óttar lék eins og
hann getur best; Guðjón styrkti
sóknarleikinn; Hans var öflugur;
Gunnar sýndi fjölhæfni og Sigurður
gaf hvergi eftir í vörn sem sókn.
Valsmenn mættu ofjörlum sín-
um, en þrátt fyrir að á brattann
hafi verið að sækja, gáfust þeir
ekki upp og ber að meta viljann
fyrir verkið. Ármann lék sennilega
besta leik sinn á línunni, en auk
þess að gera þrjú mörk fiskaði hann
þijú vítaköst. Jón Kristjánsson
styrkti liðið, en hefði að ósekju
mátt reyna meira sjálfur. Valdimar
Grímsson stóð fyrir sínu og Dagur
Sigurðsson var ógnandi, en þegar
á heildina er litið var við ofurefli
að etja og því fór sem fór.
Morgunblaðið/Einar Falui
Þorgils Óttar Mathiesen var markahæstur FH-inga í úrslitaleiknum, gerði sex möi
og lætur hér óspart gleði sína í ljós eftir að hafa gert 18. mark liðsins eftir hraðauf
hlaup. Sigurinn þá svo til örugglega í höfn.
Bergsveinn markvörður FH:
Einvígi - ég
hafði betur!
Fyrir úrslitaleik bikarkeppninn-
ar höfðu margir á orði að
fyrst og fremst yrði um einvígi
landsliðsmarkvarðanna Berg-
sveins Bergsveinssonar, FH, og
Guðmundar Hrafnkelssonar, Val,
að ræða. Bergsveinn sagði við
Morgunblaðið að hann hefði farið
í leikinn með því hugarfari.
„Þetta var einvígi — og ég hafði
betur! Það var alveg ljóst að ég
varð að taka á og hafa fyrir hlut-
unum. Dæmið gekk upp hjá mér,
en enn mikilvægara er að ég var
með ofboðslega góða vöm fyrir
framan mig, sem gerði markvörsl-
una mun auðveldari. Þess vegna
er ekki hægt að taka mig út úr
heildinni — vömin á rosalega mik-
ið skilið, alveg rosalega."
Bergsveinn varði snilldarlega,
þegar mest á reið í fyrri hálfleik,
en sýndi einnig góða takta eftir
hlé og kórónaði daginn með því
að veija vítakast í stöðunni 20:16.
„I vetur hefur loðað við okkur
að vera kærulausir í byijun og
það er eins og við þurfum tíma
til að komast í gang. Það blés
ekki byrlega fyrstu mínúturnar
og eins og útlitið var gátum við
alveg eins tapað. Það var hins
vegar ekki á dagskrá og hugurinn
um sigur bar mig hálfa leið, en
ég var fyrst öruggur með titilinn,
þegar ég varði vítið.“
Morgunblaðið/KG/
Sigrinum fagnað. Frá vinstri eru: Gunnar Beinteinsson fyrirliði FH, Óskar Helgason, Siggi lukkutröll og Bergsveinn Bergsveii
son markvörður.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992
B 7
H
Vamarleikur og
markvarslaá
heimsmælikvarða
- sagði Kristján Arason, þjálfari og leikmaður FH, um frammistöðu bikarmeistaranna
Kristján Arason tók við þjálfun
FH fyrir keppnistímabilið og
verður ekki annað sagt en þjálfara-
ferillinn byiji vel. FH sigraði í svo-
kölluðu átta liða haustmóti, þar sem
flest bestu lið landsins voru á með-
al þátttakenda; liðið varð deildar-
meistari og nú bikarmeistari.
„Ég er himinlifandi með árangur-
inn,“ sagði Kristján Arason, þjálf-
ari og leikmaður FH, við Morgun-
blaðið eftir að bikarmeistaratitillinn
var í höfn á laugardaginn. „Bikar-
úrslitaleikurinn er hápunktur vetr-
arins hveiju sinni og sigurinn veitir
okkur byr undir báða vængi fyrir
úrslitakeppni íslandsmótsins. Þá
verður eingöngu um úrslitaleiki að
ræða og við vitum að hveiju við
göngum — mætum reynslunni rík-
ari, þegar þar að kemur.“
FH-ingar léku eins og þeir hafa
best leikið í vetur og því var ekki
að spyija að leikslokum. Liðið lék
ekki vel í síðustu tveimur leikjum,
en nú hvað við annan tón.
„Að undanförnu höfum við verið
með hugann við bikarúrslitaleikinn
og það kom niður á okkur gegn
Víkingi og Gróttu. Ég er meiddur
og hlífði mér í þessum leikjum, en
nú var að duga eða drepast. Við
gerðum okkur grein fyrir að Vals-
menn legðu allt í úrslitaleikinn, en
vorum ákveðnir í að láta þá ekki
slá okkur út af laginu, heldur halda
okkur við fyrirfram ákveðin leik-
kerfi, hvað sem gerðist. Leikreynsl-
an hafði mikið að segja og við vor-
um ekkert að æsa okkur, þrátt fyr-
ir óheppni í byijun. Við sögðum að
þetta hlyti að koma fyrr eða síðar
og út frá því gengum við minnugir
þess að við höfum oft lent í ámóta
stöðu fyrr í vetur.“
Kristján sagði ennfremur að
breiddin hefði haft mikið að segja
og mikill fengur hefði verið að fá
Guðjón Árnason inn á ný, „en ekki
fer á milli mála að vörnin var eins
og best verður á kosið og Berg-
sveinn var sérstaklega góður. Þetta
var varnarleikur og markvarsla á
heimsmælikvarða. “
Dýrkeypt mistök
- sagði ÞorbjörnJensson, þjálfari Vals
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, kenndi lélegri sóknamýtingu manna
sinna í fyrri hálfleik fyrst og fremst um tapið. „Fyrri hálfleikur
var slakur hjá okkur. Ef við hefðum nýtt þó ekki væri nema brot af
færunum hefði leikurinn þróast allt öðru vísi og við jafnvel staðið
uppi með pálmann í höndunum. En það er ekki hægt að sigra með
svona nýtingu og mistökin voru allt of dýrkeypt.“
Þorbjöm sagði að leikmenn Vals hefðu ekki þolað spennuna, „en
ég óska FH til hamingju — liðið átti skilið að sigra. Hins vegar er
umhugsunarefni hvað dómararnir voru slakir. Ég vil ekki kenna þeim
um hvernig fór, en það er orðið tímabært að taka dómaramálin föstum
tökum.“
Morgunblaðið/KGA
Kristján Arason hafði sannarlega ástæðu til að fagna. Þetta er fyrsta keppn-
istímabil hans sem þjálfara og hefur liðið þegar sigrað í þremur mótum undir
stjórn hans; haustmóti og deildar- og bikarkeppni HSI.
FOLK
■ FH hafði ekki sigrað í bikar-
keppninni síðan 1977 eða í 15 ár.
■ BERGSVEINN Bergsveinsson,
markvörður FH, og Guðmundur
Hrafnkelsson, markvörður Vals,
voru valdir bestu menn liða sinna.
Þorbergur Jensson, þjálfari Vals,
og Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, völdu.
■ GUÐMUNDUR Árni Stefáns-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði, af-
henti bikarmeisturunum sigurlaunin
og sagði að sér hefði ekki leiðst það.
■ MARKÚS Örn Antonsson,
borgarstjóri í Reykjavík, afhenti
Valsmönnum silfrið.
■ FH-INGAR fengu tvö vítaköst,
en skoruðu úr hvorugu. Valsmenn
nýttu hins vegar þijú af fimm víta-
köstum sínum.
■ FH-INGAR gerðu sjö mörk með
langskotum, en Valsmenn fjögur.
B SEX mörk FH-inga komu eftir
hraðaupphlaup, en Valsmönnum
tókst þrisvar að nýta slík tækifæri.
■ FH gerði fimm mörk af línu og
jafnmörg með gegnumbrotum, en
samsvarandi tölur hjá Val voru þriú
og þijú.
■ KRISTJÁN Arason á stóran
þátt í velgengni FH í vetur. Hann
lét sitt ekki eftir liggja í bikarúrslit-
unum; gerði fjögur mörk, átti þrjár
línusendingar, sem öllum lauk með
marki, „stal“ boltanum einu sinni —
hraðaupphlaup og mark — og fiskaði
vítakast.
■ KRISTJÁN braust í gegnum
vörn Vals, þegar 5,16 mín. voru til
leiksloka og skoraði, 21:16. Þungu
fargi var af Hafnfirðingum létt og
þeir sungu: „Bikarinn í Fjörðinn, bik-
arinn í fjörðinn...
■ HÁLFDÁN Þórðarson kom
inná hjá FH undir lokin og skoraði
24 markið við mikinn fögnuð stuðn-
ingsmanna liðsins.
■ EINN ungur stuðningsmaður
FH fór heim þegar staðan var 4:1.
Ástæðan var ekki sú að hann taldi
leikinn tapaðan fyrir FH, heldur fékk
hann mikinn höfuðverk og kenndi
lúðrablæstri áhorfenda um.
■ DÓMARAR eru stöðugt undir
smásjánni og eru leikmenn og þjálf-
arar oft ósáttir við frammistöðu
þeirra. í Höllinni var spurt hvort
ekki mætti koma í veg fyrir leiðindi
manna á milli með því að þjálfarar
viðkomandi liða veldu dómaraparið,'
þegar um úrslitaleik væri að ræða.
Spumingunni er hér með komið á
framfæri.
Hvað sögðu þeir eftir leikinn?
orgils Óttar Mathiesen var
markakóngur leiksins og þótti
honum það við hæfi. „Það verður
einhver að taka af skarið! En að öllu
gamni slepptu þá var þetta sigur
reynslumikillar liðsheildar og það er
ánægjulegt að fagna tveimur titlum
á þremur sólarhringum.“
Hann bætti við að endurkoma Jóns
Kristjánssonar í Valsliðið hefði
þjappað FH-ingum betur saman.
„Við vorum ekki hræddir við Jón,
en þvert á móti gerði hann það að
verkum að við einbeittum okkur enn
betur að leiknum.“
Óttar, sem hefur verið leikstjórn-
andi FH í íjarveru Guðjóns Árnason-
ar í vetur, lék lengst af á línunni,
en kom út, þegar Valmenn brugðu
á það ráð að taka Kristján og Hans
úr umferð. „Það var einhver tauga-
titringur í þessu hjá okkur í byijun,
en við vorum fljótir að komast yfir
hindrunina og eftir það var ekki aft-
ur snúið. Reyndar var aldrei spuming
um hvort liðið sigraði — ég var ör-
uggur um sigur þegar ég vaknaði
mörgum stundum fyrir leik!“
Framtíðin björt
Valdimar Grímsson sagði að leik-
reynsla FH-inga hefði ráðið úrslitum,
en benti á að Valsmenn þyrftu ekki
að örvænta.
„Það er lítið hægt að segja. Meiri
hluti okkar manna er óvanur svona
leikjum og fyrir flesta var þetta fyrsti
leikur sinnar tegundar. Reynsluleysið
varð okkur því að falli.“
Hann sagði að mótlætið í fyrri
hálfleik hefði gert Valsmenn taugaó-
styrka. „Þegar ekkert gekk upp hjá
okkur fóm menn á taugum. FH-ing-
ar eru hins vegar með mjög gott lið,
þar sem reynslan ræður ríkjum. Allir
leikmenn liðsins hafa verið í landsliði
og leikið úrslitaleiki. Með öðrum orð-
um þekkja þeir vel að leika undir
miklu álagi — þeir hafa svo oft geng-
ið í gegnum þetta.“
En hornamaðurinn leit á björtu
hliðarnar. „Við höfum gengið í gegn-
um ýmislegt á tímabilinu og með
ólíkindum er hvað margir hafa verið
á sjúkralista. Miðað við ástandið er
árangurinn ekki svo slæmur og þess
ber að geta að það tekur tíma að
öðlast reynslu. En við erum með
unga og efnilega stráka og því er
framtíðin vissulega björt.“
Viðunandi
Jón Kristjánsson, sem hefur leikið
með þýska liðinu Suhl í vetur, skipti
aftur yfir í Val og lék með liðinu á ný.
„Ég náði hálfri æfingu með strák-
unum á föstudaginn eftir að hafa
ekkert æft í 10 daga vegna lungna-
bólgu. Það er alltaf erfitt að koma
svona skyndilega inní lið og ég var
hræddur um að ég félli ekki inní lið-
ið einn, tveir og þrír, en sá ótti var
ástæðulaus. Reyndar er ég ekki í
100% æfingu vegna veikindanna og
því er ég ánægðastur með að ég
hélt út leikinn."
Jón sagði að Valsmenn gætu vel
við úrslitin unað. „Ég held að Vals-
menn geti verið ánægðir með að
hafa komist þetta langt. í fyrri hálf-
leik fengum við vissulega tækifæri
til að gera betur, en sóknir okkar
strönduðu á Begga [Bergsveini Berg-
sveinssyni]. Eftir að FH-ingar höfðu
náð undirtökunum komumst við tvi-
svar nálægt þeim, en í stöðunni 20:15
sprakk þetta endanlega hjá okkur
og eftir það áttum við ekki mögu-
leika.“