Morgunblaðið - 25.02.1992, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 25.02.1992, Qupperneq 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 KIMATTSPYRNA / ENGLAND Manchester United í mjög vænlegri stöðu FráBob Hennessyi Englandi MANCHESTER United stefnir hraðbyri að fyrsta Englands- meistaratitli sínum síðan 1968. Liðið vann Crystal Palace ör- ugglega á heimavelli um helg- ina, 2:0, en Leeds gerði aðeins jafntefli við Everton, 1:1, á úti- velli. Staða United er þvi væn- leg. |ark Hughes var í aðalhlut- verki hjá United á laugar- dag. Hann gerði fyrsta sinni tvö mörk í leik í vetur og var illviðráðan- legur. En hann fékk gult spjald fyrir brot og fer í bann. Missir af leik gegn Middlesbrough í undan- úrslitum deildarbikarkeppninnar og deildarleik gegn Sheffield United. United hafði ekki leikið í deild- inni í tvær vikur, og sagði Alex Ferguson, stjóri liðsins, leikmenn sína greinlega haft gott af hvíld- inni. „Það var eins og nýtt keppnis- tímabil væri að hefjast," sagði hann. Steve Coppell, stjóri Palace og fyrrum leikmaður United, sagði það í höndum leikmanna United-liðsins hvert meistaratitillinn færi. „Útlitið er gott fyrir þá, og ég vona að þeir vinni.“ Lundúnarisarnir Tottenham og Arsenal skildu jöfn á White Hart Lane, heimavelli Spurs. Ian Wright jafnaði á 89. mín. Kevin Campbell þrumaði á markið, Erik Thorstvedt varði en Wright var réttur maður á réttum stað og potaði í markið af stuttu færi. Þetta var 20. mark hans í vetur. Tony Adams, fyrirliði Arsenal, var ekki með. Lá heima með flensu og David Rocastle ekki heldur, þar sem hann er meiddur á ökkla. Menn voru sammála um að Tott- enham hefði átt að vera búið að tryggja sér sigur löngu áður en Wright jafnaði. Durie skaut fram- hjá opnu marki í fyrri hálfleik og Gary Lineker klúðraði tveimur fær- um í þeim seinni; á 75. og 84. mín. Tottenham aðeins unnið einn deild- arleik af síðustu 12. Hefur ekki leikið illa, en gengið illa að skora. Guðni Bergsson var ekki með Tottenham og ekki á varamanna- bekknum. George Graham, stjóri Arsenal, sagði: „Þeir hefðu átt að vinna 6:4. Spurs lék mjög vel en við ekki.“ Peter Shreeves, stjóri Spurs, sagði: „Við eigum tvo mikilvæga bikarleiki gegn Nottingham Forest og Feyenoord framundan svo ég verð að vera ánægður með þessa frammistöðu. En við hefðum átt að fá þijú stig í dag.“ Norwich vann öruggan sigur á Liverpool á heimavelli sínum, Carrow Road. Hroðaleg vamarmi- stök gestanna stuðluðu að tveimur síðari mörkunum sem Robert Fleck gerði. Fyrst átti Mark Wright laf- lausa sendingu ætlaði markverði sem Fleck komst inn í og síðan náði hann knettinum af Svíanum Glen Hysen, sem var að væflast við miðlínu, óð upp völlinn og einn í teig og skoraði örugglega. „Ég vona að menn haldi ekki áfram að tala um meiðslin hjá Li- verpool. Mínir menn áttu skilið að vinna,“ sagði David Stringer, stjóri Norwich. Það voru orð að sönnu, liðið var mun betra. Ungveijinn Istvan Kozma var með Liverpool í fyrsta sinn, lék hægra megin á miðjunni, en náði sér ekki á strik og var skipt út af. Dean Saunders var einnig tekinn út af í síðari hálfleik. Ronnie Ros- enthal og Mark Walters komu inn í stað þeirra. Aston Villa, sem hafði ekki sigr- að í deildinni síðan 28. desember og ekki skorað í 518 mínútur, vann Oldham 1:0. Gamla brýnið Cyrille Regis skallaði í netið eftir fyrirgjöf. Brian Stein, sem orðinn er 34 ára og kom aftur til Luton sl. vor eftir að hafa leikið í Frakklandi, kom liðinu yfir gegn Sheffield Un- ited. Þetta var fyrsta mark hans í 26 leikjum. Mick Harford gerði sig- urmarkið, 2:1, með skalla. Nottingham Forest fékk óska- byijun gegn Chelsea, Teddy Sher- ingham skoraði efetir 45 sekúndur. Þetta var 19 mark hans í vetur. En Clive Allen tryggði Chelsea eitt stig með jöfnunarmarkinu. Hann hefur heldur betur náð sér á strik eftir mögur ár hjá Bordeaux og Man. City. Chelsea keypti hann á 250.000 pund í desember og hefur hann síðan gert átta mörk í 16 leikj- um. „Ég er farinn að skora á ný vegna þess að ég hamingjusamur hjá félaginu," sagði kappinn. QPR gerði 15. jafntefli sitt í vet- ur. Að þessu sinni heima gegn Notts County, 1:1. Gerry Francis, stjóri QPR, sakaði dómarann um að hafa brugðist þegar langt var liðið á leikinn. Brot hefði verið fram- ið innan teigs, en hann aðeins dæmt aukaspymu utan hans. „Þetta sann- ast á myndbandsupptöku," sagði hann. Mark Hughes lan Wright SPANN Spenna á Spáni SPÆNSKU meistararnir í Barc- elona misstu af gullnu tækifæri til að komast upp að hlið Real Madrid á toppi deildarinnar þar ílandi um helgina. Liðið gerði aðeins jafntefli, 1:1, heima gegn Sporting Gijon. Real hefur eins stigs forskot á Barcelona eftir 0:1 tap úti gegn Sevilla. Real sigraði Athletico Bilbao 5:0 um fyrri helgi og áhangendur þess vonuðust að leiðin lægi upp á við eftir erfitt gengi undanfarið. En leikmenn komu aftur niður á jörðina er þeir fóru til Sevilla. Tap- ið var hið fjórða í röð á útivelli. Það var miðjumaðurinn Rafa Paz sem gerði eina mark leiksins á 30. mín. Hollendingurinn Leo Beenhak- ker, sem tók við liðinu í lok janúar af Radomir Antic, hefur því lítið haft til að brosa yfir að undanf- örnu. Árangur liðsins síðan hann tók við er tvö töp, eitt jafntefli og einn sigur. ÞYSKALAND Real hefur nú 34 stig en Barcel- ona 33. Michael Laudrup skoraði strax á 11. mín. fyrir lið Barcelona og byijunin lofaði góðu. En aðeins tveimur mín. síðar jöfnuðu gestirnir og þar var að verki Juanele Castano úr vítaspymu. Heimamenn sóttu ákaft í síðari hálfleik en án árang- urs. Þess má geta að búlgarska fram- heijanum Kristo Stoichkov var skipt af leikvelli á 67. mín. og er það í tólfta skipti í vetur sem hann er tekinn út af í leik. Áhorfendur voru ekki ánægðir með það; vildu frekar að Juan Goikoetxea yrði hvíldur, en hann hafði átt erfitt uppdráttar að þeirra mati. Atletico Madrid er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Real. Fyrirliði liðsins, Portúg- alinn Paulo Futre, átti enn einn stórleikinn nú er liðið burstaði Real Sociedad, 5:1. Jafnræði var með lið- unum fyrir hlé en ekki að því lo- knu. Futre lagði upp fjögur mörk í leiknum. íÞftimR FOLK H GEOFF Thomas, fyrirliði Crystal Palace, fékk högg á höfuð- ið í leiknum gegn Man. Utd. á laug- ardag, og sagðist ekkert muna eft- ir seinni hálfleiknum! ■ ASTON Villa keypti varnar- manninn sterka Earl Barrett frá Oldham fyrir helgina á 1,7 milljón- ir punda. Liðin mættust einmitt á laugardag, en þar sem ekki hafði formlega verið gengið frá kaupun- um fyrir kl. 17 á föstudag gat hann ekki verið með. ■ BARRETT, sem var fyrirliði Oldham, kom frá Man. City árið 1987. Þá greiddi Oldham 30.000 pund fyrir hann, þannig að hagnað- ur félagsins af honum er dágóður! H KEVIN Keegan, nýráðinn stjóri 2. deildarliðsNewcastle, fékk fyrir helgina gamla vamaijaxlinn Brian Kilcline að láni frá Oldham út keppnistímabilið, en hann lék þar áður með Coventry. H KEVIN Sheedy er einnig kom- inn til Newcastle. Hann fékk fijálsa sölu frá Everton fyrir dygga þjónustu við félagið og Keegan samdi við hann. Sheedy er 31 árs og lék fyrsta leik sinn með Newc- astle á laugardag. H GRAEME Souness, stjóri Li- verpool, dreif sig til Italíu eftir tapið gegn Norwich. Ekki þó í fel- ur, heldur til að sjá Genoa spila gegn AC Milan í deildinni, en lið hans mætir Genoa í Evrópukeppn- inni í næsta mánuði. H ANDY Gray, miðjumaðurinn þeldökki hjá Crystal Palace, verð- ur líklega lánaður til Tottenham út keppnistímabilið. Eftir það kaup- ir félagið hann líklega á 750.000. Hann er 28 ára og neitaði að fara til Wimbledon sem bauð eina millj- ón punda, og Palace hafði sam- þykkt það. H ROB Jones, bakvörðurinn ungi hjá Liverpool, sem lék fyrsta landsleikinn fyrir England í síðustu viku gegn Frakklandi, meiddist lí- tillega á föstudag og lék ekki í Norwich. Hann er sá níundi á sjúkralistanum hjá Liverpool. H GLEN Hysen var kominn út á flugvöll í Liverpool á fimmtudags- kvöldið er Souness, stjóri félagsins, hringdi og lét kalla hann upp. Sagði Svíann verða að spiia í Norwich, vegna þess hve margir væru meidd- ir! Hysen var á leið til Svíþjóðar að ræða við GAIS í Gautaborg um samning. H MARTIN Hayes er kominn til Wimbledon frá Celtic. Hann fór til skoska félagsins frá Arsenal fyrir 18 mánuðum á 600.000 pund, en Celtic fékk ekkert fyrir hann nú. Gaf honum fijálsa sölu, enda hefur hann varla komist í liðið. ITALIA Óbreyttstaða MUNUR efstu liða á toppi ít- ölsku 1. deildarinnar hélst óbreyttur um helgina. Bæði gerðu markalaust jafntefli; AC Milan í leiðinlegum leik gegn Genoa á útivelli og Ju- ventus gegn Bari, einnig á útivelli. Milan hefur því enn fjögurra stiga forskot. Leikurinn í Genoa einkenndist frekar af hörku en leikni. Gullit og Albertini hjá Milan og Branco hjá Genoa voru allir bók- aðir. Heimamenn voru ágengari og var toppliðið heppið að sleppa með annað stigið á brott. Rómarliðin tvö eru ekki vinsæl meðal stuðningsmanna sinna nú, og leikmönnum beggja fylgdi baul og blístur er þeir gengu af velli á sunnudag. AS Roma tapaði heima, 1:3, gegn Fiorentina og Lazio tapaði 0:1 úti gegn Inter, þar sem Lothar Mattháus gerði eina markið úr víti. Argentínumaðurinn Gabriel Batistuta var í aðalhlutverkinu hjá Fiorentina. Hann skoraði tví- vegis, á 36. og 59. mín. og á 65. mín. var markvörður Roma rekinn út af fyrir brot á Argentínumann- inum. Þjóðveijinn Rudi Völler minnkaði muninn fyrir Rómveija á 79. mín. en Carlos Dunga gull- tryggði sigur Fiórensbúa á síðustu mínútu er hann skallaði í mark. H Úrslit / BIO H Staðan / BIO Eyjótfur lagði upp sigurmarkið Stuttgart aðeins tveimur stigum á eftir Dortmund Eyjólfur Sverrisson Eyjólfur Sverrisson lagði upp sig- urmark Stuttgart gegn Schalke á útivelli. Þetta var frysta tap Schalke á FráJóni heimavelli sínum í Halldóri deildinni í vetur. Garðarssyni Eyjólfur náði að i Þýskaiandi skalla knöttinn eftir aukaspyrnu og Ieggja bolltann fyrir Matthias Sammer, sem átti auðvelt með að skora af stuttu færi. Stuttg- art er nú aðeins tveimur stigum á eftir Dortmund, sem gerði marka- laust jafntefli við Dynamo Dresden. Gaudino var besti leikmaður Stuttg- art og hefur sýnt mjög góða leiki að undanförnu. Eyjólfur lék á miðj- unni og átti góðan leik. Christoph Daum, þjálfari Stuttg- art, sagði að leikurinn hafi verið „dramtískur" en án hörku. Schalke pressaði nokkuð stíft og við vorum nokkrum sinnum heppnir," sagði þjálfarinn. Frankfurt mátti teljast heppið að ná jafntefli gegn Kaiserslautern á útivelli. Norðmaðurinn Andersen skoraði mark Frankfurt - vippaði yfir markvörðinn, eftir slæm mistök í vöm Kaiserslautern. Það var síðan Stefan Kuntz sem jafnaði 12 mínút- um fyrir leikslok. Köln vann Niim- berg örugglega, 4:0, og var staðan 3:0 í hálfleik og gerði Frank Ord- enwitz, fyrrum landsliðsmaður, tvö marka Kölnar. Annars var mikið um leiðinlega leiki í þessari umferð og m.a. sjö jafntefli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.