Morgunblaðið - 05.03.1992, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNlILÍF FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1992
B 5
fyrir Póst og síma að óttast þessa
samkeppni. Meiri ástæða er til að
óttast samkeppni stóru símafélag-
anna.
Það er ljóst að nýir tímar eru
að renna upp í fjarskiptum þar sem
einkaleyfi Pósts og síma á fjar-
skiptaþjónustu á ekki við. Einka-
leyfið var byggt á forsendum sem
áttu við hér áður enda eru núna
uppi áform um að endurskoða fjar-
skiptalögin bæði vegna EES og
tæknibreytinga. Sennilega fetum
við í fótspor nágrannalandanna
sem eru að opna fyrir nýja tækni
og samkeppni um nýja þjónustu á
síma- og fjarskiptamarkaðnum.
Það hefur sýnt sig að gömlu síma-
félögin eru treg til að fara út í
nýjungar og reyna að halda uppi
verðinu í stað þess að lækka verð-
ið til að auka notkunina. Þjónusta
IDT er aðeins fyrsta skrefið. Önn-
ur símafélög eru nú þegar í við-
ræðum við Póst og síma um það
að fyrirtækið veiti Bandaríkja-
mönnum og öðrum útlendingum
ódýrari símaþjónustu frá íslandi
gegnum íslenska símakerfíð. Það
skýtur skökku við að Póstur og
sími skuli vera reiðubúinn að gefa
útlendingum kost á ódýrari síma-
þjónustu hér á landi en íslending-
um.“
Póstur og sími hafnar
samstarfi
Undanfarin fjögur ár hefur
Holberg unnið að nýjungum í sam-
bandi við gagnanet og þjónustu
við tölvudeildir, m.a. fyrir Póst og
síma. „Stofnunin hefur tekið upp
nokkrar nýjungar á síðustu árum
en án mikils samráðs við aðila á
markaðnum," segirhann. „Má þar
m.a. nefna farsímaþjónustu, boð-
tæki, gagnanet, gagnahólfaþjón-
ustu og nú síðast háhraðanet. Hún
hefur alltaf verið frekar treg til
samstarfs um nýjungar. Eina
dæmið um slíkt samstarf sem
gengið hefur vel er Gula línan.
VeiT hefur gengið hjá öðrum fyrir-
tækjum sem hafa reynt samstarf
við Póst og síma svo sem ísnet
og Skjásýn. Póstur og sími hefur
ekki gert sér nægilega grein fyrir
þeirri ábyrgð sem fylgir því að
hafa einkaleyfi. Það er notað til
að koma í veg fyrir samkeppni og
þar með að ný þjónusta sé tekin
upp. Þetta getur ekki hafá verið
tilgangur löggjafans með því að
veita einkaleyfið.
IDT leitaði til mín og óskaði
eftir að ég kæmi þjónustunni á
laggirnar en það er ekki ljóst hvort
ég muni annast hana til frambúð-
ar. Ég ákvað að stofna um þetta
hlutafélagið Fón hf. og það má
segja að þetta gæti orðið vísir að
fyrsta símafélaginu á íslandi fyrir
utan Póst og síma. Hugmyndiri
er sú að Fónn verði þjónustufyrir-
tæki fyrir IDT og geti tekið að sér
víðari þjónustu á fjarskiptasviðinu.
Önnur bandarísk símafyrirtæki
hafa sýnt áhuga fyrir íslandi og
þá með það í huga að koma á eig-
, in línum hingað þannig að fólk
geti komist inn á erlend símanet
á lægri töxtum. í raun og veru
er miklu meira að gerast á þessu
sviði en menn halda. Þannig eru
bæði bókunarkerfin Galileo og
Amadeus, tölvunet IBM o.fl. tengd
hingað til lands en þau gætu orðið
vísir að samkeppni við Póst og
síma.
Símamarkaðurinn er smám
saman að opnast vegna breytinga
á tækni. Því miður kemur nýút-
komin reglugerð um gjaldskrá
Pósts og síma frá 1. febrúar í veg
fyrir að hægt sé að samnýta bún-
að. En ný tækni gerir hins vegar
VASKHUGI
Hafðu bókhaldið alltaf á hreinu.
Vaskhugi er forrit, sem nýtur mikiila vinsælda vegna einfaldleika
í notkun. Fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölukerfi,
birgðir, uppgjör vsk., verkefnabókhald, jafnvel einföld
ritvinnsla..... allt í einu kerfi á mjög hagstæðu verði.
NÁMSKEIÐ
bæði fyrir byrjendur og þá, sem lengra eru komnir, verða haldin
næstu laugardaga.
Fáðu nánari upplýsingar hjá okkur í síma 656510.
íslensk tæki, Garðatorgi 5, Garðabæ.
ráð fyrir samnýtingu og hún gerir
mögulegt að ná fram hagkvæmni.
Stofnunin beitir einkaleyfínu til
að koma í veg fyrir að hægt sé
að nota nýja tækni og ná fram
þeirri hagkvæmni sem ný tækni
leyfir. Niðurstaðan er sú að hvorki
er hægt að nýta þessa nýju tækni
gegnum fyrirtækið né fram hjá
því. Þetta er það versta af öllu sem
hægt er að hugsa sér þannig að
þrýstingurinn á eftir að gukast
mjög mikið á að gerðar verði ráð-
stafanir til að auka samkeppni á
þessum markaði. Best væri að
leyfa íslenskum fyrirtækjum að
fara af stað með nýjungar og veita
síma- og íjarskiptaþjónustu. Síma-
markaðurinn hér á landi er stærri
en allur íslenski tölvumarkaðurinn.
íslensk tölvu- og tæknifyrirtæki
eru fullfær um að tileinka sér
tækni og veita þjónustu á þessu
sviði, en nauðsynlegt er að gefa
þeim tækifæri til þess. Grundvöllur
þess er ákvörðun stjórnvalda um
að heimila samkeppni á síma- og
fjarskiptasviðinu."
Atvinnu CAD-hugbúnnður
er okkar fag
SPIRIT CAAD 2D/3D hugbúnaður,
tengist arkitektúr, landlagsarkitektúr, raflagnatækni og
fleiru.
ELCAD CAD/CAE hugbúnaður,
tengist raforkuhönnun, rofaskápahönnun og fleiru.
MIRO-datensysteme hágæða vélbúnaður,
háupplausna 17/20/21“ trinitron og dynamic focus
skjáir og hraðvirk skjákort fyrir PC tölvur og Macintosh.
Hafðu samband,
kynntu þér verð
og möguleika.
CAD-kerfið
Sími: 91-67691 1
Fox:91-674145.
Hvað er það sem gerir BMW bíla áhugaverðari en aðra?
Það geturverið hagstættverð, lægri rekstarkostnaður, minna viðhald, háþróuð
tækni, fyrsta flokks þjónusta eða hámarks öryggi. Nýja BMW 3 línan sameinar
alla þessa kosti, en býður jafnframt upp á hinn "klassíska" stíl g"|g |
sem ávallt er að finna í BMW. BMW - bíll sem vekur athygli Krókhá^iíio Reykjavfk-sími 686633
Engum
líkur
BLIK AF FRAMTIÐINNI
-:-r' -x . V-V
uVö tihSi: K/i K > k
s-~
PARKET
iniPERGO
GÓLFEFNI
TILVALIÐ FYRIR
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
FALLEGTOG
NÍÐSTERKT
PARKETFRÁ
[©JPerstorp Flooring
ANTI-STATIK
©HF.OFNASMIBJAN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220
Flugfraktin gefur
inn- og útflytjendum
kost á aö sinna öllu
sem til þarf á einum
og sama staö.
Nú þarf ekki lengur að hiaupa
bæinn á enda því að öll starfsemi
Flugfraktar millilandaflugs er
flutt á Héðinsgötu 1-3. Söluskrif-
stofa, afgreiðsla farmbréfa og
vöruafgreiðsla eru nú öil á sama
stað og þar eru einnig Lands-
bankinn, Tollstjórinn og Toll-
vörugeymslan til húsa.
FLUGLEIÐIR
F R A K T
Þú getur sleppt
hlaupaskónum.