Morgunblaðið - 05.03.1992, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.03.1992, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1992 Verslunarráð Skjaldborg um fijálst og heilbrigt viðskiptalíf lenskra stórkaupmanna ? „Það hefur aldrei staðið á því. Við höfum vonað, frá því að Ijóst var um mitt ár 1991 að líklega yrði ekki um áframhaldandi sam- starf á Skrifstofu viðskiptalífinsins að ræða, að bæði uppskiptin á skrif- stofunni og áframhaldandi sam- skipti þessara samtaka yrði á frið- samlegum grunni. Verslunarráð hefur ekkert út á FÍS að eða önnur samtök í atvinnurekstri að setja.“ Formaður Verslunarráðs íslands, Einar Sveinsson, í viðtali við Morgunblaðið ILLVÍG átök og persónuleg hafa einkennt samskipti Verslunarráðs íslands og Félags íslenskra stórkaupmanna að undanförnu. Atök sem teygja anga sína víða og sumir segja að séu einungis persónulegar deilur nokkurra manna sem við stjórnvölinn hafa setið. Aðalfundur Verslunarráðs var haldinn nýverið og í stað Jóhanns J. Olafssonar, sem hafði verið formaður ráðsins í 6 ár, var Einar Sveinsson, fram- kvæmdasljóri Sjóvár/Almennra, kosinn formaður. Einar hefur verið í stjórn Verslunarráðs frá árinu 1986, í frámkvæmdastjórn frá 1988 og varaformaður ráðsins sl. tvö ár. í viðtali við Morgunblaðið segist hinn nýji formaður umfram allt vilja frið og sættir þannig að hægt sé að vinna að þeim mikilvægu málum sem Verslunarráði sé ætlað að gera. — Er ekki erfitt að hefja störf sem íormaður Verslunarráðs í þeim miklu átökum og hræringum sem verið hafa ? „Það er vissulega ekki óskastaða þar sem ég tel mig friðarins mann. Tildrög þess að ég gef kost á mér sem formaður eru þó eldri en það ástand sem ríkt hefur. Fyrir tveim- ur árum var það ámálgað við mig hvort að ég gæfi ekki kost á mér til formanns. Á þeim tíma var ég ekki undir það búinn og tók því víðsfjarri. Þá var ég spurður að því hvort leita mætti til mín að tveimur árum liðnum og sagði ég það vera allt annað mál. Ef ég hefði bakkað núna hefði ég talið mig vera að ganga bak orða minna í ljósi þess ástands sem nú ríkir.“ —Nú voru 19 aðilar kosnir í aðal- stjórn félagsins á sl. aðalfundi þar af eru nú 9 sem ekki sátu í stjórn- inni á síðasta kjörtímabili. Munu einhveijar grundvallarbreytingar verða á starfsemi ráðsins ? „Ég á ekki von á miklum brejd- ingum á störfum ráðsins. Verkefnin sem þar eru til umijöllunar innan stjórnarinnar hveiju sinni eru þess eðlis að mannabreytingar valda ekki meiriháttar röskun þar á. Hlutverk Verslunarráðs er mjög mikilvægt ekki síst þegar markaðir Evrópu eru að opnast líkt og nú er að gerast. Starf okkar mun mik- ið verða mótað af þessu í náinni framtíð líkt og verið hefur undan- farið. Samstarf við alþjóðalega að- ila hefur verið nokkuð t.d. við Euro- chambers og norræn verslunarráð. Svo komum við auðvitað til með að vinna að því sem Verslunarráðið hefur alltaf gert, þ.e. að vera mál- svari atvinnulífins gagnvart stjórn- völdum. Fijálsir atvinnuhættir, jafnrétti og samkeppni eru þar höfð að leiðarljósi. Starf VÍ hefur verið mjög umfangsmikið. Allt sem horf- ir til framfara hjá viðskiptalífmu látum við okkur varða, t.d. erú haldin viðskiptaþing ráðisins annað hvert ár og á aðalfundum er tekið á mjög mikilvægum málum fyrir viðskiptalífið. Á síðasta aðaifundi var lögð fram ítarlega skýrsla um framleiðni í íslenskum viðskiptum. Bílamerkingar AUGLYSINGAR - SKILTAGERÐ SILKIPRENTUN SKEIFUNNI 3c - 108 REYKJAVlK SlMI: 68 00 20 - FAX: 68 00 21 Þá eru reglulega haldnir fundir sem eru öllum opnir um hin ýmsu hags- munamál atvinnulífínsin. Síðan er Verslunarráðið ábyrgðaraðili að Verslunarskóla íslands og skipar í skólanefnd hans.“ rýnt fyrir að vera félag hinna stóru sterku afla í viðskiptalífinu, en smærri aðilar hafi mátt sín lítils innan ráðsins. Hveiju svarar þú slíkri gagnrýni ? „Ég er algjörlega ósammála þessari gagnrýni. Verslunarráðið er ekki félag hinna stóru heldur samtök sem mynda skjaldborg um fijálst og heilbrigt viðskiptalíf. Inn- an þess ramma rúmast allir hags- munir stórra og smárra fyrirtækja og jafnvel einyrkja. Ráðið hefur heildarhagsmuni að leiðarljósi og er sú bijóstvörn sem viðskiptalífið hefur t.d. gagnvart stjórnvöldum. Það endurspeglast í stjórn Verslun- arráðins að þar eiga sæti fulltrúar Verslunarráðs ásamt formanni. Á fyrsta fundi hinnar nýju stjórnar í sl. viku var Kristinn Björsson, for- stjóri Skeljungs hf. kosinn varafor- maður, aðrir í framkvæmdastjórn eru Sverrir Bernhöft í Barr hf., Sigurður Gísli Pálmason í Hagkaup hf. og Kolbeinn Kristinsson í Brauð hf._ í stjórninni fer hver maður með eitt atkvæði en reyndar kannast ég ekki við að mál séu afgreidd þar eða í framkvæmdastjórn með at- kvæðagreiðslu heldur er leitað sam- komulags um niðurstöðu og þannig mun það áfram vera innan Verslun- arráðs. Það að stjórnarkjörið væri ólýð- Morgunblaðið/K.nstjan u. Arngnmsson VERSLUNARRAÐ —Hinn nýi formaður , Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Sjóvár/Almennra, á skrifstofu sinni. Út um gluggann sést í Hús verslunarinnar þar sem skrifstofur Verslunarráðs eru til húsa. Um deilur Verslunarráðs og Félags íslenskra stórkaupmanna segir Einar m.a.: „Ég hef frekar trú á að um persónulega árekstra sé að ræða en efnislega.“ Sveiflur í stjórn eðlilegar —Fráfarandi formaður Verslun- arráðs, Jóhann J. Ólafsson, náði ekki kjöri í aðalstjórn ráðins, má túlka þessa niðurstöðu sem óánægju meðal félaga VÍ um hans störf sem formanns ? „Það munar einungis um 400 atkvæðum á því að Jóhann næði sæti í aðalstjórninni. Reyndin er sú að á milli aðalfunda eru miklar sveiflur á endanlegri röð manna í kosningu til stjómarinnar. Ég reikna með því að ef Jóhann hefði rekið kosningabaráttu þá hefði hann væntanlega náð fleiri atkvæð- um og verið kosinn í aðalstjórn. Það er regla að varamenn mæta tölu- vert mikið á stjórnarfundi. Því á ég von á og vona að Jóhann muni, sem hingað til, starfa mikið áfram innan Versiunarráðs þar sem mjög gott hefur verið að vinna með hon- um. Jóhann hefur átt undir högg að sækja að undanfömu þar sem hann var því miður fórnarlamb þeirrar óánægju sem upp kom eftir að ljóst var að ekki yrði um áfram- haldandi rekstur á Skrifstofu við- skiptalífsins, sem var samrekstur Félags íslenska stórkaupmanna og Verslunarráðs á ámnum 1990 og 1991.“ —Verslunarráð hefur verið gagn- úr ýmsum fyrirtækjum og greinum viðskiptalísins, fulltrúar stærri og minni fyrirtækja. Þessi skipting og breidd endurspelgast líka í 5 manna framkvæmdastjóminni. Annað atriði sem hefur verið gagnrýnt er að ekki sé lýðræðislega kosið til stjórnar ráðsins. Stjóm Verslunarráðs er kosinn skriflegri kosningu. Öllum félagsmönnum eru send kjörgögn ásamt ábendigalista með nöfnum 57 aðila sem hafa gefið kost á sér í kjör stjórnar. Hver félagi kýs 12 manns og síðan mynda þeir 19 sem fá flest atkvæði stjórnina og 19 eru kosnir til vara. Þetta teljum við mjög lýðræðislegt form á skipan stjórnar enda hefur reyndin orðið sú að þeir sem hafa haft áhuga á að starfa í stjóm og njóta almenns trausts ná kosningu. í raun fá hin stærri fyrirtæki mun færri atkvæði en þau ættu að hafa ef eingöngu væri farið eftir veltu. Auk þess eru settar takamarkanir við það að enginn aðili getur farið með meira en 4% atkvæða. Ég held að stærstu aðilarnir fari með um 1% atkvæða hver. Ástæður fyrir ágreiningi fundnar upp Hin 19 manna stjórn velur Qóra til að vera í framkvæmdastjórn ræðislegt var ekki atriði sem Versl- unarráð og FÍS greindi á um þegar rætt var um áframhaldandi starf- semi Skrifstofu atvinnulífins heldur var það fundið upp seinna sem ástæða fyrir ágreiningi.“ —Nú er verksvið Verslunarráðs umfangsmikið og þú segir að í ráð- inu séu fulltrúar alls staðar að úr viðskiptalífinu. Ætti ráðið þvl ekki að geta sinnt t.d. þeim verkefnum sem hið nýja Flutningakauparáð ætlar að gera, m.a. að standa vörð um hagsmuni hinna smærri aðila sem eru kaupendur að flutningum ? „Menn hafa fullt frelsi til að stofna öll þau samtök sem þjóna þeirra hagsmunum. Innan Verslun- arráðs starfa hins vegar ýmis undir- samtök, þar sem menn safnast í hópa eftir sameiginlegum hags- munum sínum, t.d. eru samtök smáfyrirtækja innan ráðsins. Ef eftir því hefði verið leitað hefði Verslunarráð alveg getað hýst menn með áhuga á flutningakaup- um sérstaklega. VÍ er þó ekki sam- keppnisaðili við sérhagsmunasam- tök. Það er full þörf fyrir að menn safnist í samtök sem þeir telja að geti unnið best að sínum hagsmun- um, það er ekkert nema gott um það að segja.“ — Er Verslunarráð tilbúið að hefja aftur samstarf við Félag ís- Breyta þarf kjöri í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna — Hvernig lítur þú á þær deilur sem verið hafa innan Lífeyrissjóðs verslunarrmanna um hveijir skuli sitja í stjórn sjóðsins ? „Lífeyrissjóðurinn var stofnaður 1956 og tveimur árum síðar var gert samkomulag milli þeirra sam- taka vinnuveitenda sem að sjóðnum standa um hvernig þau skildu til- nefna í stjórn sjóðsins. Þetta sam- komulag var síðan ítrekað árið 1977 milli Verslunarráðs, Stórkaup- manna og Kaupmannasamtaka. Samkomulagið um tilnefningu í stjórn Lífeyrissjóðsins gekk eftir þangað til nú. Það sem virðist vera að gerast núna er það að FÍS hefur ákveðið að standa ekki við þetta samkomulag og tilnefná sína menn án samráðs við Verslunarráðið. Okkur ber skylda til að mótmæla slíkum vinnubrögðum. Af hverju þetta verður veit ég ekki. Ég hef frekar trú á að um persónulega árekstra sé að ræða en efnislega. Vonandi finnst á þessu farsæl lausn. Deilur og ósætti milli aðila innan viðskiptalífins sem eiga sam- leið eru öllum til tjóns og þjóna engum tilgangi. Hvernig niðurstað- an verður er nú ekki ljóst. Sá tími er kominn að breyta þurfi því fyrir- komulagi sem hefur verið á kjöri manna í stjórn Lífeyrissjóðsins. Breytingarnar eru viðkvæmt mál og um þær þarf að vera sem víðtæk- ust samstaða. Opnun þjóðfélagisins í öllum skilningi leiðir til þess að menn vilja fá að sjá betur hvað líf- eyrissjóðir eru að gera. Því er eðli- legt að kosið sé í stjórn til skemmri tíma en þriggja ára, árlega séu haldnir aðalfundir og að sjóðirnir geri grein fyrir sinni starfsemi, en á þetta hefur nokkuð skort. Þetta gerist þó ekki í einu vetvangi og með einhveijum látum heldur verð- ur þróunin að taka sinn tíma.“ Lög VÍ tekin til endurskoðunar — Á aðalfundi Verslunarráðs voru einhveijir þeirrar skoðunar að ráðið mætti alls ekki afsala sér völdum I Lífeyrirssjóðnum, ert þú sammála þeim ? „Verslunarráð er eitt af þeim samtökum sem eru aðilar að Lífeyr- issjóði verslunarmanna. Ég reikna með að á aðalfundinum hafi menn átt við að Verslunarráð megi ekki segja að Lífeyrissjóðurinn komi ráð- inu ekki við. Sjóðurinn kemur okkur við, Verslunarráð ber ábyrgð á sjóðnum með örum og um það snýst málið." Nú liggur fyrir að innan VI verði stofnuð sérstök laganefnd til endur- skoðunar á lögum ráðsins. Að hveiju er líklegast að þessi nefnd einbeiti sér ? „Lög Verslunarráðs voru síðast endurskoðuð árið 1977 og það er tímabært að gera það aftur. Niður- staða aðalfundar var sú að breyta ekki atkvæðavægið í ráðinu líkt og lagt var til heldur verður laganefnd skipuð til að gera heildarúttekt á Iögunum. Líkt og Iögð hefur verið áhersla hingað til þarf nefndin að hafa í huga með hvaða hætti Versl- unarráð getur verið þessi fulltrúi viðskiptalífins út á við, sem það þarf nauðsynlega að vera til að skapa mótvægi gagnvart stjórn- völdum og til að þjóna hagsmunum almennings, t.d. með aukinni sam- keppni. Lögin þurfa að vera í takt við það sem er að gerast 1 þjóðfélag- inu,“ segir Einar Sveinsson. ÁHB

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.