Morgunblaðið - 05.03.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.03.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1992 B 9 Bílar Erfitt ár fram- undan íEvrópu Genf, Reuter. í DAG hefst bílasýning'in í Genf þar sem nýjustu módel allra helstu bílaframleiðenda verða kynnt. Vegna mikils afturkipps á þýska markaðnum er því spáð að árið framundan muni reynast erfitt, eink- um evrópskum bílaframleiðendum. Sérfræðingar spá því að allt að 800.000 færri bílar verði seldir í ár miðað við síðasta ár. Þó þeir telji einnig að salan muni halda áfram fyrri vexti næsta ár segja þeir að evrópskir bílaframleiðendur verði nú þegar að draga úr kostn- aði og fækka starfsfólki til að mæta aukinni samkeppni frá Japan. Uppdrifnir af sameiningu Þýska- lands keyptu Þjóðveijar bíla eins og óðir væru á síðasta ári. Salan jókst um 30% frá fyrra ári og varð til þess að metsala náðist í Evrópu, 13,5 milljónir bíla alls. í ár er búist við að salan í Þýska- landi dragist saman um 20%, úr 4,2 milljónum, sem samkvæmt mati sérfræðinga gæti leitt til þess að heildarsalan í Evrópu falli niður í 12,7 til 13 milljónir. Búist er við að salan.í Frakk- landi og Spáni, sem var slök í fyrra, skáni nokkuð. Jafnvel er von til þess að kreppuþjáðir Bretar taki við sér seinna á árinu. í lok þessa árs fækkar viðskipta- hindrunum gagnvart japönskum bílum. Vegna þess verða evrópskir bílaframleiðendur, einkum í Þýska- landi, að bæta samkeppnisstöðu sína. Erfiðleikarnir verða mestir í Þýskalandi. Þar eru greidd hæstu launin og lagasetning og samningar við verkalýðsfélög gera það að verk- um að erfítt er að segja upp starfs- fólki. Margir framleiðendur hafa þegar hafist handa. í síðasta mánuði til- kynnti Bayerische Motor Werke, BMW, að fyrirtækið hygðist segja upp 3.000 manns og stjórnedur Daimler-Benz sögðust íhuga upp- sagnir á næstunni. Ford í Evrópu hefur nýlega fækk- að um 2.100 starfsmenn og dóttur- fyrirtæki General Motors í Evrópu, Vauxhall, hefur einnig fækkað starfsmönnum. Á síðasta ári hóf Fiat á Ítalíu sömuleiðis að fækka starfsfólki. Á næsta ári má búast við enn fleiri uppsögnum hjá Þjóðveijunum, Daihatsu hættir í Bandaríkjunum JAPANSKI bílaframleiðandinn Daihatsu MotorCo. ætlar að draga sig út úr bandaríska markaðnum fyrir fólksbíla. Er það í fyrsta sinn í 31 ár, að japönsk bifreiðaverksmiðja gefst upp í Bandaríkjunum. Talsmenn fyrirtækisins segja, að ástæðan sé sú mikla samkeppni, sem ríkir í Bandaríkjunum, en Dai- hatsu kom síðast japönsku fyrir- tækjanna inn á markaðinn þar eða 1987. Er markaðshlutdeild þess nú 0,07%. Verður framleiðslu þeirra tveggja gerða, sem hafa verið smíð- aðar sérstaklega fyrir Bandaríkja- markað, hætt en áfram verður boðið upp á litlar flutningabif- reiðar. Á síðasta ári var hlutdeild jap- anskra bifreiða í sölunni á Banda- ríkjamarkaði 26,5% en minni eftir- spurn hefur valdið því, að sam- keppnin er grimmari en nokkru sinni fyrr. Hágæða afritunarbönd tryggja gögnin þín. TÖLVUVÍRUS 6. MARS! SPA UM BiLASOLU ■ BANDARiSKUR A HELSTU MÖRKUÐUM ■ BÍLAIÐNAÐUR í VANDA Bandariskur bílaiðnaður hefur orðið fyrír miklum skakkaföllum vegna lægðar í rfl. bandarískum efnahag og 0 nýverið tilkynnti y |f,r General Motors um mesta tap- rekstur í banda- rískri fyrir- tækjasögu Heildartap 1991:7.5mrö 1990:0.4mrð Amr töur i dollurum REUTER 16 milljónir seldra bíla' VESTUR EVRÓPA / BANDARÍKIN ‘Heimamarkaður Á: Áætlun iðnaöarins fleiri hjá BMW og umtalsverðum uppsögnum hjá Volkswagen. Sérfræðingar telja að evrópskir framleiðendur verði að fækka starfsfólki um 20% fyrir árið 2000 til að mæta 20% minni framleiðslu- kostnaði Japana og fljótlegasta og einfaldasta leiðin til að draga úr kostnaði er að fækka starfsfólki. í dag er hlutur Japana um það bil 12% af markaðnum í Evrópu en þeim hefur verið haldið aftur með ýmis konar viðskiptahindrunum. Frá og með 1993 og til 2000 verða allar þær hindranir felldar niður jafnhliða þróunar sameiginlegs innri markaðar EB. Gera má ráð fyrir að stóru evrópsku framleið- endurnir lendi ekki í verulegum erfiðleikum fyrst um sinn. Breyt- ingamar verða mestar 1996/97 og þá fyrst reynir á hveijir standa sig. Má þá jafnvel búast við samein- ingu, eða hugsanlega gjaldþrotum. Á bílasýningunni í Genf, sem stendur frá 5. til 15. mars, er búist við að mesta athygli vekji tveggja sæta Honda CRX-sportbíll. Einnig er búist við að Mazda kynni nýjan lúxusbíl sem ætlað er að keppa við 300-línuna frá BMW. Toyota mun svipta hulunni af Carina E-bílnum sem smíða á í Bretlandi, þar sem hann á að keppa um hylli fjölskyldu- fólks við Opel Vectra/Vauxhall Cavalier, VW-Passat, Ford Sierra og Peugeot 405 sem eru allsráð- andi á markaðnum. Frá Evrópu verða kynntir Peuge- ot Safrane og Fiat Cinquecento sem smíðaður er í Póllandi. HREINGERNINGAR FYRIRIÆKJA Reglulegar hreingemingar em nauðsynlegar öllum fyrirtækjum og stofhunum. SECURITAS h/f, hefur á annan áratug rekið ræstingardeild sem tekur að sér hreingemingar fyrir fyrirtæki og stofnanir á stór- Reykj avíkursvæðinu. Reglulegar hreingemingar em eðlilegur hluti af rekstri vel rekinna fyrirtækja og stofnana. Þær bæta ímynd og auka vellíðan viðskiptavina og starfsmanna. Hreingemingar saman standa m.a. af teppahreinsun, gólfbónleysingu og -bónun, innréttinga- og húsgagnahreinsun og gluggaþvotti. Hreingemingar em nauðsynlegar viðhaldi allra húsa. Ræstingardeildin býður nú ffam þjónustu sína á sviði hreingeminga í fyrirtækinu þínu. Þjónusta sem ömgglega skilar árangri. Við gerum þér tilboð án skuldbindinga! SECURITAS RÆSTINGARDEILD sími 687600 / H3 Electrolux^X CONSTRUCTOR HI170 hillukerfi Hillurekkar úr stóli sem settir eru saman ó öruggan og einfaldan hótt. Við þó mó bæta endalaust m.a. með ýmsum aukahlutum, s.s. skúff- um, boxum o.fl. Henta vel til geymslu ó alls konar smóvöru. Hetugir og litríkir fataskópar fyrir skóla, vinnustaði, sundlaugar o.fl. Fjórir eða fimm saman, með eða ón setbekks. Einfaldir í uppsetningu. Oýpt: 840 mm. Hæð: 2235 mm. Breidd: 300 eða 400 mm. V - LIIX 83 brettarekkar Kerfi fyrir geymslu ú vörum ú brett- um (pallettum). Sett saman úr sam- tengdum rekkum. Lagerinn nýtist betur, t.d. lofthæðin. Auðvelt að breyta og auka við eftir þörfum. Stök herbergi sem auðvelt er að flytja að vild (með gaffallyftara). Mú stafla svo tvær hæðir myndist. Fóst í fjórum litum og fveimur stærðum. Breidd: 3650 mm og 2750 mm. Hæð: 2660 mm. naiíst Borgartúni 26 Sínni: (91) 622262 Mynds.: (91 >622203 Þú svalar lestrarþörf dagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.