Morgunblaðið - 05.03.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1992
B 11
Tölvur
Marinó G. Njálsson
Breytingar hjá Borland
Nýr hugbúnaðarrisi verður til við yfirtöku Borland á Aston-Tate
Borland International kastaði sprengju inn í tölvuheiminn síðastlið-
ið haust, þegar fyrirtækið gerði hluthöfum Aston-Tate-fyrirtækis-
ins tilboð í hlutabréf fyrirtækisins í skiptum fyrir hlutabréf í Bor-
land International. Með þessu sameinast tveir af stærstu hugbunað-
arframieiðendum fyrir PC-tölvur og hatrammir keppinautar til
skamms tíma. En hvernig veíður það fyrir söluaðila Borland, sem
hingað til hefur ekki átt erfitt með að lýsa ókostum dBase gagna-
grunnsins, að byrja nú allt í einu að selja hann. Bjarne Schytte
svæðissljóri Borland á Norðurlöndum var staddur hér á landi fyr-
ir skömmu og fræddi mig um þetta og ýmislegt annað varðandi
framtíð hins nýja hugbúnaðarrisa.
Fyrir tíu árum kom snaggara-
legur Frakki, Philippe Kahn að
nafni, til Bandaríkjanna með 2.000
dali í vasanum. En án atvinnuleyf-
is gat hann hvergi fengið vinnu,
svo hann stofnaði ári seinna hug-
búnaðarfyrirtækið Borland Inter-
nationai, sem varð snemma þekkt
fyrir Turbo Pascal forritunarum-
hverfið. Á þeim árum sem síðan
eru liðin hefur Kahn náð að breyta
Borland úr litlu fyrirtæki með fáa
starfsmenn í 2.000 manna fyrir-
tæki með veltu upp á 500 milljón-
ir Bandaríkjadala.
Aston-Tate yfirtakan
Aston-Tate-hugbúnaðarfyrir-
tækið hefur allt frá því að dBase
gagnagrunnurinn kom á markað,
haft vissa sérstöðu á bandaríska
hugbúnaðarmarkaðinum. Mark-
aðshlutdeild dBase á PC-markað-
inum var um tíma um 70%, en
undanfarin 2-3 ár hefur Borland
verið að kroppa í'þennan markað
með Paradox gagnagrunninum
sínum. Fjárhagsstaða Aston-Tate
hafði farið versnandi. Mátti fyrst
og fremst rekja það til mistaka við
útgáfu dBase IV, sem kom á mark-
aðinn fyrir um tveimur árum. For-
ritið reyndist grálúsugt og upp-
fyllti engan veginn þau loforð, sem
Aston-Tate hafði gefið viðskipta-
vinum sínum. Einnig lenti Aston-
Tate í kostnaðarsömum mála-
rekstri vegna höfundarréttar á
dBase hugbúnaðinum, en málið
vannst fyrir áfrýjunarrétti.
Aston-Tate hafði fleira í far-
angrinum. Þar ber hæst Interbase
gagnagrunnurinn, sem Bjarne
Schytte sagði að væri aðalástæðan
fyrir því að Borland keypti Aston-
Tate. Interbase mun „uppfæra“
Borland inn í biðils-miðils umhverf-
ið og gera fyrirtækinu kleift að
bjóða stórfyrirtækjum gagnagrunn
við hæfi. Þetta þýðir að Borland
ætlar í samkeppni við gagna-
grunna á borð við Oracle, Informix
og Ingres.
En hvernig gengur að selja
dBase eftir að hafa keppt við hann
öll þessi ár? Bjarne sagði, að í
Danmörku væri þetta dálítið erfitt.
Með Paradox söluherferð síðustu
tvö ár hefði Borland nokkurn veg-
inn náð að þurrka dBase út af
landakortinu og nú ættu þeir að
fara selja forritið. Hann reiknaði
með að það tæki starfsfólk Borland
Scandinavia einhvern tíma að átta
sig á breytingunum, en nýjar Bor-
land-útgáfur aí' Aston-Tate-hug-
búnaðinum mundu hjálpa sölu-
mönnum að ganga í gegn um þessa
breytingu.
Margvíslegar nýjungar
Varla var blekið fyrr þornað á
yfirtökusamkomulaginu, en Bor-
land tilkynnti tvær nýjar útgáfur
af dBase. Annars vegar dBase IV
1.5 fyrir DOS, hins vegar dBase
fyrir Windows með innbyggðum
þýðanda (sem var búinn að vera í
þróun hjá Borland í þijú ár!!). Þar
með svaraði fyrirtækið strax
áhyggjufullum spurningum dBase
notenda um allan heim um hver
framtíð dBase yrði. Á sama tíma
hóf Borland mikla söluherferð í
Bandaríkjunum, þar sem Interbase
var boðinn á mjög freistandi verði,
ef kaupendur vildu skipta út
gagnagrunnum frá öðrum seljend-
um. (Nú verður fróðlegt að fylgj-
ast með hvort það endi í yfirtöku
Borland á Oracle.)
Hjá Borland sjálfu eru nýjung-
arnar engu minni. Væntanlegar
eru nýjar útgáfur af öllum helsta
viðskiptahugbúnaði frá fyrirtæk-
inu. Fyrst er þar að nefna nýjar
DOS útgáfur af Paradox gagna-
grunninum (Paradox 4.0) og
Quattro Pro töflureikninum
.(Quattro Pro 4.0). Með þessum
tveimur útgáfum er Borland að
svara annars vegar ásókn FoxPro
inn á gagnagrunnsmarkaðinn og
hins vegar endurbætum á Lotus
1-2-3 töflureikninum. En Borland
ætlar ekki að láta þar við sitja.
Windows-útgáfur eru væntanlegar
af bæði Paradox og Quattro Pro.
Og talar Bjarne Schytte um hvort
tveggja, sem algera byltingu á sínu
sviði. Báðar útgáfurnar eru skrif-
aðar með hlutbundinni forritun
sérstaklega fyrir Windows-
umhverfíð. Með þessu heldur Bor-
land áfram forustu sinni í hlut-
bundum forritum, sem valdið hefur
algerri byltingu í því hvernig not-
endahugbúnaður er hannaður.
Quattro Pro fyrir Windows mun
að sögn Bjarne verða verðugur
keppinautur fyrir Microsoft Excel,
sem hefur verið eini töflureiknirinn
að viti fyrir Windows.
Borland lofar fleiru. Veikasti
hlekkur fyrirtækisins í nokkurn
tíma hefur verið í ritvinnslu. Bjame
Schytte sagði, að væntanlegt væri
ritvinnsluforrit, sem ætti ekki sinn
líka. Það mun keyra í Windows-
umhverfinu og er væntanlegt „fyrr
en maður gæti haldið".
Framtíðin
Fyrir nokkrum árum gerðu Bor-
land og IBM með sér samkomulag
þess efnis, að Borland mundi skrifa
alla sinn hugbúnað fyrir OS/2
stýrikerfið. Fyrir tveimur árum
snerist Borland hugur og ákvað
að taka stefnuna fyrst á Windows
og styðja þannig Microsoft í bar-
áttunni við IBM. Síðastliðið sumar
endurnýjuðu IBM og Borland eldra
samkomulag og er Borland nú
búið að skuldbinda sig til að koma
með öll helstu forrit sín fyrir OS/2.
Sidekick er þegar komið fyrir
OS/2, en væntanleg eru Object-
Vision (sem er nokkurs konar inn-
sláttar forrit fyrir Paradox) og
Borland C++. í framhaldi af
ObjectVision má sterklega reikna
með að Paradox fylgi á eftir. Til
þess að þetta verði, verður IBM,
að sögn Bjarne, „að koma með
stöðuga útgáfu af OS/2‘.‘.
Stór kostur við Aston-Tate yfir-
tökuna er, að Aston-Tate er þegar
búið að hasla sér völl með sinn
hugbúnað undir mismunandi stýri-
kerfum og notendaskilum. Borland
mun njóta góðs af þessu og ætti
það að flýta fyrir því að annar
Borland-hugbúnaður verði líka
færður yfir í þetta umhverfi. Fyrr
en seinna má svo búast við „Para-
Base“, þ.e. gagnagrunninum, sem
til verður þegar Paradox og dBase
renna saman í eitt. Hversu ör þró-
unin verður, er erfítt að segja en
Bjarne Schytte bjóst ekki við því
að viðskiptavinir Borland þyrftu
að kvíða framtíðinni.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
FRAMKVÆMDASTJORI
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Vesturlands. Skrifstofa
lífeyrissjóðsins er á Akranesi.
Starfssvið: Stjórnun á daglegum rekstri, s.s. innheimtu, mót-
töku og skráningu iðgjalda og greiðslu lífeyris. Yfirumsjón og
skipulagning fjárfestinga í samráði við stjórn. Eftirlit með verð-
bréfaeign sjóðsins. Undirbúningur stjórnarfunda og fulltrúa-
funda ásamt stjórnarformanni. Framkvæmdastjóri er ábyrgur
gagnvart stjórn sjóðsins.
Við leitum að starfsmanni á aldrinum 25-45 ára með viðskipta-
lega menntun og/eða reynslu.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórinn hefji störf um mánaða-
mótin apríl-maí eða fyrr eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnað-
armál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningaþjónustu
Hagvangs hf. merktar: „Lífeyrissjóður Vesturlands" fyrir
14. mars nk.
Hasvai ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík Simi 813666 — Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
rumkvæði
ramkvæmd
Markmið verkefnisins Frumkvæði - Framkvæmd er að aðstoða iðnfyrirtæki við
að afla sér ráðgjafar. Það er gert undir stjórn verkefnisstjóra og með fjárhags-
legum stuðningi. Aðstoð er veitt á eftirtöldum sviðum:
► Stefnumótun
► Fjárhagsleg endurskipulagning og fjármálastjórnun
► Vöruþróun og markaðsaðgerðir
► Skipulagning framleiðslu
► Gæðastjórnun
Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun, Iðnlánasjóði og atvinnuráðgjöf-
um víðs vegar um landið.
Frekari upplýsingar gefur Karl Friðriksson í síma 687000.
<0>
IDNLANASJÓÐUR
Iðntæknistofnun
n
Ármúla 13A, 155 Reykjavík. Sími 91-680400.
Telex 3084 llfund. Telelax 91-680950.
Keldnaholt, 112 Reykjavík. Simi 91-68 7000.
Telex 3020 Istech is. Teleíax 91-687409.
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950