Morgunblaðið - 05.03.1992, Side 12

Morgunblaðið - 05.03.1992, Side 12
JÍlnrgnmM&foifo VIÐSKIFn AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1992 Markaðstorg 62% þjóðarínnar hafa komið íKolaportið Alls hafa 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins komið í Kolaportið sam- kvæmt könnun sem Islenskar markaðsrannsóknir unnu fyrir Kolap- ortið í febrúar sl. Talsverður munur var á svörum eftir búsetu og ef tekið var mið af landinu í heild hafði 62% þjóðarinnar komið þangað minnst einu sinni. Af 1200 manna úrtakl sögðust tæplega 6% hafa leigt sölubás eða selt í Kolaportinu. „Fastir seljendur í Kolaportinu hafa í vaxandi mæli viljað taka upp notkun sjóðvéla og við höfum reynt að útvela þeim rafmagn til bráða- birgða," segir Jens Ingólfsson fram- kvæmdastjóri Kolaportsins. „Al- menn notkun sjóðvéla verður þó ekki möguleg fyrr en að loknum framkvæmdum í rafmagnsmálum hússins sem vonandi leysast fljótt. Við munum þá auðvelda seljendum notkun á sjóðvélum með því að leigja þær á staðnum. Lögum sam- kvæmt er þó meirihluti seljenda í Kolaportinu undanþeginn virðis- aukaskatti, eins og t.d. allir þeir sem selja fyrir minna en 180.000 á ári og því eru ómaklegar þær fullyrðingar að Kolaportið sé ein- hvers konar svarti markaður þar sem allir steli undan virðisauka- skatti." Nú hefur Kolaportið starfað í tæplega þrjú ár og athyglisvert er að 62% þjóðarinnar hefur komið þangað minnst einu sinni. Sam- kvæmt könnuninni er Kolaportið í mestum vinsældum hjá yngsta hópnum sem könnunin náði til, 15-24 ára og hafði 87% þjóðarinnar á þeim aldrí heimsótt markaðstorg- ið. Af elsta aldurshópnum sem könnunin náði til, 55-69 ára, höfðu um 45% komið í Kolaportið einu sinni eða oftar. Að sögn Jens hafa margar rang- hugmyndir verið uppi um gesti markaðstorgsins. „Margir hafa tal- ið að það sé alltaf sama fólkið sem komi hvern markaðsdag en sam- kvæmt könnuninni er ljóst að gest- ir Kolaportsins eru mun stærri hluti þjóðfélagsins en nokkurn óraði fyr- ir. Þrátt fyrir það eigum við greini- lega stóran hóp tryggra viðskipta- vina,“ segir Jens. Hann segir meiri- hluta seljenda í Kolaportinu í fyrsta lagi vera einstaklinga og félaga- samtök sem komi tvisvar til fjórum sinnum á ári til fjáröflunar. I öðru lagi eru þar fyrirtæki sem koma nokkrum sinnum á ári til að selja afgangslagera og tii að kynna vörur sínar. í þriðja lagi er í Kolaportinu hópur seljenda sem eru þar oft eða alltaf og eru það aðallega þeir sem hingað til hafa notað sjóðvélar í einhveijum mæli. í könnuninni var spurt um við- horf fólks til Kolaportsins og kom fram að langflestir eru jákvæðir gagnvart markaðstorginu. Tæplega 43% sögðust vera mjög jákvæðir en tæplega 32% frekar jákvæðir. Einungis 3% aðspurðra voru nei- kvæðir gagnvart Kolaportinu. „Það kom okkur á óvart hversu stór hluti þjóðarinnar segist hafa selt í Kolaportinu og þá ekki síður hve stór hluti hinna segist vel geta liugsað sér að gera það,“ segir Jens. „Það styrkir okkur í þeirri trú að Kolaportið eigi langa og bjarta framtíð fyrir sér og muni halda áfram að þróast og breytast.“ Fólk Breytmgar ílsafoldar- prentsmiðju WRAGNAR Ragnarsson hefur verið ráðinn í starf prentsmiðju- stjóra Isafoldar- prentsmiðjunnar hf. Ragnar var áður verkstjóri í prentsal og hefur starfað hjá ísa- foldarprentsmiðju í rúm 2 ár. Ragn- ar mun sjá um til- boðsgerð, þjón- ustu við viðskipta- menn, ráðgjöf og annað sem teng- ist prentun. KOLAPORTIÐ — Eins og sjá má á þessum niðurstöðum þá eru tæplega 62% sem hafa einhvern tíma komið í Kolaportið en rúmlega 38% hafa aldrei komið þangað. MERLING Erlingsson cand.mag. hefur verið ráðinn sem deildarstjóri í ísafoldarprent- smiðju. Meðal verkefna Erlings verða bókaútgáfa, markaðsmál, sam- skipti við við- skiptamenn og önnur verkefni sem lúta að þjón- ustu og upplýs- ingamiðlun. Erling Framkvæmda- sijóri Oracle ísland MELVAR Steinn Þorkeisson hóf störf sem framkvæmdastjóri Oracle ísland 1. desember sl. El- var sem er 30 ára lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík úr Eðlisfræðideild I árið 1981 og sem tölvunarfræðingur frá Califörnia State University, Chico árið 1985. Hann gegndi starfi framkvæmdastjóra Hughönnunar frá 1985 til 1988, en starfaði síðan sjálfstætt við ýmis verkefni. Meðal verkefna má nefna Húsbréfakerfið fyrir Húsbréfadeild Húsnæðisstofn- unar ríkisins og tilraunakerfið Hippocrates fyrir heilsugæslustöðv- ar sem unnið var sem samstarfs- verkefni Heilbrigðisráðuneytisins, Tryggingastofnunar og Landlækn- isembættisins. Torgið Húsbréfin fá uppreisn æru í TORGINU í byrjun desember velt- um við fyrir okkur mismunandi áliti í greinargerð Seðlabankans um peningamál annars vegar og hins vegar skýrslu starfshóps á vegum félagsmálaráðherra um reynsluna af húsbréfakerfinu og áhrifum þess á vaxtamyndunina á fjármagns^ markaðinum í heild. Seðlabankinn dró upp dökka mynd af húsbréfun- um í þessu samhengi en starfshóp- urinn taldi þau hafa gefist vel. Svo ólík var niðurstaða þessara tveggja hópa um sama hlutinn að allt stefndi í að hið æsilegasta hag- fræðidrama væri í uppsiglingu, en Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra sló á þá skemmtan með því að skipa annan starfshóp til að fara yfir og gefa umsögn um þau atriði sem greindi á milli sjónarmiða þessara tveggja aðila. Af hálfu Seðlabankans tók Bjarni Bragi Jóns- son aðstoðarbankastjóri sæti í hópnum, viðskiptaráðuneytið lagði til Finn Sveinbjörnsson skrifstofu- stjóra og Húsnæðisstofnun Grétar J. Guðmundsson þjónustuforstjóra sem jafnframt var formaður nefnd- arinnar. Nú liggur álit nýja starfs- hópsins fyrir. Það er í alla staði diplómatískt eins og vænta mátti, en þó verður ekki annað lesið á milli línanna en Seðlabankinn hafi farið offari í greinargerð sinni og gert húsbréfakerfið að óþarflega miklum sökudólg vegna þess mis- vægis sem varð á peningamarkað- inum 1991. Áður en lengra er haldið er rétt að rifja upp aðalatriðin í álitum þessara tveggja hópa. Fyrri starfs- hópur félagsmálaráðherra komst að þeirri niðurstöðu að í öllum meginatriðum hafi húsbréfakerfið reynst vel og valdið verkefni sínu. í húsabréfakafla Seðlabankans var hins vegar m.a. fundið út að gífur- leg skuldasöfnun einstaklinga hafi átt að langmestu leyti rót sína að rekja til húsbréfa og annarra lána hins opinbera íbúðalánakerfis á 12 mánaða tímabili til septemberloka 1991. Það sem ef til vill skiptir meira máli er mat greinargerðar Seðlabankans á því hvernig þess- um fjármunum var varið. í nýju álits- gerðinni er greint frá því mati Seðla- bankans að af 35,7 milljarða raun- aukningu útlána til heimilanna hafi 24,5 milljarðar komið úr opinbera húsnæðislánakerfinu. Samkvæmt áætlun Þjóðhagsstofnunar sé verg fjármunamyndun í ibúðarhúsnæði talin nema 15,9 milljörðum á árinu 1991, og á grundvelli þessara talna álykti Seðlabankinn að ekki meira en helmingur lánsfjárnotkunarinnar hafi fariö til fjárfestinga í nýju íbúð- arhúsnæði. „Við þessa greiningu er ýmislegt að athuga enda er henni aðeins ætlað að gefa grófa vísbendingu. í fyrsta lagi eru meiri háttar viðhald og endurbætur undanskilin í tölum um fjárfestingu í íbúðarhúsnæði en ávallt gengur nokkur hluti af lántök- um einstaklinga og fjölskyldna til slíkra þarfa. Séu húsbréf reiknuð á markaðsvirði í stað nafnverðs lækka húsnæðislán um 2-3 mrð. kr. Greiðsluerfiðleikalán námu tæp- lega 3 mrð. kr. árið 1991 og í flest- um tilfellum var þeim varið til að greiða upp skammtímaskuldir ein- staklinga og fjölskyldna í bankakerf- inu vegna fyrri fjárfestinga í íbúðar- húsnæði. Vegna eiginleika hús- næðislánakerfisins frá 1986 voru öll lán, sem veitt voru úr því á árinu 1991, vegna fjárfestinga frá fyrri árum. Þá má nefna að allt að 35% af húsbréfum verða eftir í eigu ein- staklinga og fjölskyldna, þannig að hluti af húsnæðislánum á sér eðli- legt mótvægi í húsbréfaeign," segir m.a. í álitsgerð nýja starfshópsins, og síðan:„Þegar tekið hefur verið tillit til allra ofangreindra þátta er munurinn á milli lánveitinga úr hús- næðiskerfinu og fjárfestingar í íbúð- arhúsnæði á árinu 1991 mun minni en fram kemur í greinargerð Seðla- bankans." Á það er einnig bent að vaxandi þáttur opinbera húsnæðiskerfisins í fjármögnun íbúðarbygginga hafi létt húsnæðislánafyrirgreiðslu af bankakerfinu og lífeyrissjóðunum í auknum mæli en þessir aðilar hins vegar ekki nýtt það svigrúm til auk- inna lánveitinga annarra aðila í þjóðfélaginu heldur haldið áfram að veita einstaklingum og fjölskyld- um neyslulán, e.t.v. vegna takmark- aðrar eftirspurnar atvinnulífsins eft- ir lánum. Það segir okkur kannski þá sögu að almenningur sé ennþá á þeim buxunum að fara áþekka leið og ríkissjóður gerði til skamms tíma - að brúa samdráttarskeiðin með lántökum - meðan atvinnulífið hafi látið sér segjast af háum vöxt- um og takmarki lántökur eins og kostur er. En ef reynt er að draga saman niðurstöður nýja starfshópsins í sem skemmstu máli er þar í fyrsta lagi bent á að árið 1991 hafi á ýmsan hátt verið sérstakt vegna þess að þá hafi húsnæðiskerfið verið þanið til hins ýtrasta, m.a. vegna þess að þetta var fyrsta árið sem það var öllum opið, gefin voru út greiðsluerfiðleikalán og gamla húsnæðislánakerfinu frá 1986 var ekki lokað þótt öllum stæðu hús- bréfin til boða. Niðurstaða starfshópsins nýja er að misvægi á lánsfjármarkaði 1991 megi rekja til margslungins samspils ýmissa þátta. Húsbréfin og húsnæðislánakerfið eru þó ekki lengur aðal skúrkarnir, eins og lesa mátti út úr greinargerð Seðlabank- ans. Í álitsgerðinni eru þó húsbréfin ekki algjörlega sýknuð því að þar segir einnig að ekki sé unnt að full- yrða hversu stóran þátt einstakir liðir í húsnæðislánakerfinu, eins og húsbréfin, eigi í misvæginu. „Jafnframt telur þessi starfshóp- ur augljóst að ábendingar Seðla- bankans um að lántökur til hús- næðismála hafi að miklu leyti runn- ið til annarra þarfa eigi ekki við um ráðstöfun fjárins af hálfu upphaf- legra lántakenda. Fremur sé um að ræða ábendingu um að með þess- ari aukningu opinbera húsnæðis- lánakerfisins skapist aukið svigrúm annars staðar til að veita neyslulán og lán til annarra fjárfestinga en í húsnæði," segir í niðurlagi álits- gerðarinnar og ennfremur:„Hús- bréfakerfið er nýjung í húsnæðis- lánakerfinu og húsbréf nýjung á lánsfjármarkaðinum. Fjölmiðlar hafa fylgst grannt með stöðu hús- bréfa á markaðinum. Að ýmsu leyti virðist sem húsbréfakerfið hafi ver- ið gert að samnefnara fyrir hús- næðislánakerfið. Að mati þessa starfshóps gætir þessarar afstöðu í greinargerð Seðlabankans því að víða er húsbréfakerfið dregið fram sérstaklega þegar vikið er að hús- næðislánakerfinu og þróun hús- næðislána. Þessi framsetning bankans hefur valdið því að greinar- gerð hans hefur að ófyrirsynju verið túlkuð sem gagnrýni á húsbréfa- kerfið." BVS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.