Morgunblaðið - 18.03.1992, Síða 8

Morgunblaðið - 18.03.1992, Síða 8
i iHoi'cumtiIaíiib úr VERINU SÉRBLAÐ UM SiÁVARÚTVEG / MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1992 Hátt verð fyrir kola ÚTFLUTNINGUR á óunnum físki fyrstu tvo mánuði ársins nam 11.501 tonni að verðmæti um 1,3 milljarðar króna. Meðalverð á kíló var 117,18 krónur. Útflutningurinn skiptist þannig, að fískiskipin settu 5.936 tonn í gáma og sigldu með 4.646 tonn. Vinnslustöðvar fluttu svo 919 tonn utan í gámum. Mest var flutt utan af karfa, 5.519 tonn. 2.386 tonn af þorski voru flutt óunnin utan, 850 af ýsu, 981 tonn af ufsa, 265 af steinbít, 317 af grálúðu, 363 tonn af kola og 797 tonn af öðrum botnfiski. Loks er annar afli 23 tonn. Útflutningsverðmæti þorsks var 289 milljónir króna, meðalverð 118,15. Fyr- ir ýsuna fékkst að meðaltali 146,21 króna og samtals 124 milljónir króna. Fyrir ufsa fengust 83,59 á kíló og alls 82 milljónir króna. Karfínn skilaði 652 milljónum króna, en hann seldist að meðaltali á 118,11 krónur. LEYST FRA POKANUM Morgunblaðið/Alfons ÞEER eru að gera það nokkuð gott á dragnótinni Erlingur Helgason, skipstjóri og áhöfn hans á Friðriki Bergmann SH 240. Þeir róa frá Ólafsvík og þegar vinnufriður hefur verið fyrir veðri, hefur gengið vel. Á dögunum fóru þeír út á Djúpaskarö og fengu þar góðan afla af úrvals þorski. alls um 5,5 tonn. Að jafnaði eru þeir fjórir á og ianda aflanum hjá Enni hf. Loka þarf tveimur húsum til að eitt af þremur beri sig SOFFANÍAS Cecilsson, fisk- verkandi í Grundarfirði, segir að bátar hans séu að verða búnir með kvótann og til hreinnar auðnar horfi í Grund- arfirði. Þar vanti físk og þar þurfí að loka tveimur frystihúsum af þeim þremur sem þar eru.í rekstri, til þess að rekstrargrundvöllur verði fyrir eitt, sem geti hæglega unnið allan þann físk sem á land kemur í Grundarfirði. Rætt við Soffanías Cecilsson í Grundarfírði „Sannleikurinn er sá að það er svo lítill fiskur núna, að til hreinnar auðnar horfir. Kvótinn er svo lftill, að það þarf að taka hann í rólegheitum, til að geta jafnað vinnuna yfir árið. Hjá okkur stefnir í að kvótinn verði búinn það snemma, að ég geti ekki farið á rækj- una, því það þarf fisk með rækjunni," segir Soffanías í samtali við Morgun- blaðið. „Það er óskaplega erfítt að hafa hem- il á körlunum þennan tíma fram að því að rækjuvertíðin hefst. Þeir vilja físka meðan fiskur er til, en þá kemur að því að enginn fiskur verður til með rækjunni. Rækjan er ekki þess virði að vinna hana og tæplega þess virði að veiða hana. Þá stendur eftir úrræðið að kaupa kvóta til að komi bátunum á rækju, sem kostar 45 krónur kílóið." Soffanías segir að slíkt dæmi gangi ekki upp, því ef þorskurinn sem þannig yrði veiddur væri svo seldur á markað í Reykjavík, þá gæti hann gert sér von- ir um að fá 90 krónur fyrir kílóið. Þá yrði að draga frá 45 krónur á hvert kíló, vegna kvótakaupa og afgangurinn færi í að greiða áhöfninni kaup. „Með hveiju á svo að borga allt hitt, olíuna, veiðarfærin, viðhaldið og fleira?" spyr Soffanías. Hann segist aldrei hafa getað svarað þeirri spumingu og þess vegna hafí hann aldrei keypt kvóta. „Þetta er svo skelfilegt dæmi, að það er ekki um neitt annað að ræða, en hverfa frá helvítis kvótanum. Hann hefur eyðiiagt allan rekstur fiskvinnslunnar, svo ein- falt er það. Það er ekkert nema kvótinn sem er upphafið að öllum vandamálum í sjávarútvegi," segir Soffanías. Hann segir að jafnhliða'"þessu sé annað vandamál. Það sé að enginn fái að fara á hausinn. IHér í Grundarfirði gæti ég unnið allan fiskinn sem kemur á land, ef ég hefði til þess mannskap. Sama máli gegnir um hin tvö frystihús- in hér í Grundarfírði, þannig að hér er tveimur frystihúsum ofaukið. Hér erum við með þijú hús að guggta í því sem eitt getur afkastað. Hér þarf einfaldlega að loka tveimur frystihúsum, ef það á að vera grundvöllur fýrir eitt." FOLK Þorgeir Pálsson Þorgeir hjá FAO um tíma ■ ÞORGEIR Pálsson, mark- aðsathugunarstjóri Útflutn- ingsráðs Islands, starfar nú framíapríl hjá FAO, Mat- væla- og land- búnaðar- stofnun Sam- einuðu þjóð- anna í Róm. Verksvið hans er könnun á markaði fyrir tilbúna sjávarrétti í Evrópu, en það verkefni vinnur Út- flutningsráð í samvinnu við FAO. Þorgeir hélt til Rómar í lok janúar. Rætt er við Þorgeir í nýjastatölublaði Fréttabréfs útflutningsráðs og lætur Þor- geir vel af sér. „Kerfið innan stofnunarinnar er frekar þungt í vöfum og allur tækjakostur fornfálegur. Það er auðvitað gríðarlegt magn upplýsinga, sem hingað kemur en báknið er mikið og því er oft ekkert auðvelt að nálgast skjöl eða pappíra. Þetta er hins vegar góður skóli en ég verð ósköp ánægður að komast heim aftur og starfa í aðeins minna og skilvirkara umhverfi," segir Þorgeir Pálsson. Helgi Hallvarösson íslendlngar á Nýfundnalandi ■ ÍSLENDINGA R eru tíðir gestir á Nýfundnalandi um þessar mundir, en þar eiga menn við um- talsverðan vanda aðetja vegna slæmr- ar stöðu þorskstofns- ins. Telja menn orsakir þess ýmsar, meðal annars rányrkju skipa frá Evrópu- bandalaginu á landgrunninu utan lögsögu Kanada. Út- gerðarmenn þar vestra höfðu því samband við Helga Hall- varðsson, skipherra hjá Gæzl- unni, og brá hann sér vestur með upplýsingar og myndir um klippumar góðu, sem komu að svo góðum notum í Þorskastríðinu hér heima. Hvort þær verða notaðar vestra á svo eftir að koma í ljós. Arthur Bogason, for- maður Landssambands smá- bátaeigenda, hefur einnig verið á Nýfundnalandi að kenna mönnum nýjustu að- ferðir við veiðar á smábátum, einkum með handfæri. Loks var Páll Gíslason, fram- kvæmdastjóri Icecon, á Ný- fundnalandi í vikunni að ræða þar ýmis möguleg verkefni fyrir íslenzka athafnamenn. Margir bátar keyptir til Flateyrar undanfarið FLATEYRl - BÁTUM, sem gerðir eru út frá Flateyri, hefur fjölgað mikið á síðustu vikum. Þrir bátar hafa ný- lega verið keyptir til staðarins og sá fjórði er væntanleg- ur. Auk þess er bátur frá Höfn í Homafirði nú gerður út frá Flateyri og tveir aðrir aðkomubátar eru væntanlegir. Þá leggja 2-3 bátar frá Þingeyri einnig upp á Flateyri. Bjami Kristinsson á Flateyri festi nýlega kaup á 5,7 tonna plastbáti, Straumi ÍS 205, sem er dekkbátur, smíðaður hjá Samtaki hf. í Hafnarfirði árið 1991. Báturinn er á krókaveið- um. Útgerðarfélagið Bót hf., sem stofnað var nýlega, keypti 15 tonna plastbát, Óla KE 166, sem smíðaður var í Englandi árið 1983. Eigendur bátsins eru Sigurður Garðarsson, sem á 50% í Óla KE og eigendur útgerðarfélagsins Brimness hf., þeir Hinrik og Guðmundur H. Kristjánssynir og Guðmundur Jóns- son. Báturinn var í eigu Lsness hf. í Keflavík. Kristinn Jónsson, Krislján Erlingsson-, Einar Oddur Kristjáns- son og Karl újálmarsson keyptu nýlega 9,2 tonna yfírbyggðan plastbát, Ármann SH 233 frá Ólafsvík, sem smíðaður var árið 1989 af Knerri hf. á Akranesi. Báturinr, fær nafnið Torfi ÍS 89. Þá er Útgerðarfélag Flateyrar hf., sem er í eigu Hjálms hf., að festa kaup á skelfiskbátnum Villa Magg af Byggðastofnun. Báturinn er 145 tonn að stærð og var smíðaður í Hollandi árið 1987 fyrir Bylgjuna hf. á Suðureyri. Villi Magg verður á skel- fiskveiðum í Önundarfirði og að sögn Kristjáns Erbngssonar hjá Hjálmi hf. er verið að koma upp aðstöðu á Flateyri til að vinna aflann en skelfiskur hefur ekki verið unninn á Flateyri. Faxafell GK 110, sem er 113 tonna stálbátur ftá Höfn í Homafirði, kom til Flateyrar sl. laugardag. Eigandi hans er Einar Kristinsson og á næstu dögum er væntanlegur annar bátur til Fiateyrar í eigu Einars. Hann hyggst gera þessa tvo báta út frá Flateyri og leggja upp aflann hjá Önfirðingi hf. Með vorinu er einnig væntanlegur Gissur hvítí ÍS frá ísafirði, sem einnig verður gerður út frá Flateyri. VIKULEGAR SIGLINGAR Á MARKAÐI I ÞÝSKALANDI Erlendir fiskmarkaðir eru kröfuharðir. Til að þú getir verið fyllilega samkeppnisfær bjóða Samskip þér fúllkomna frysti- og ferskfiskgáma og sigla vikulega til Hamborgar, þaðan sem vörumar þínar berast fijótt og ömgglega á markaði í Þýskalandi. Samskip sjá þér fyrir ferskum og traustum flutningum. Truustur valkostur Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavlk • Sími (91) 69 83 00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.