Morgunblaðið - 16.04.1992, Blaðsíða 1
BLAÐ
VIKUNA 17. — 23. APRÍL
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
Kristnihald íMoskvu
Sjónvarpið:
Hvað varð um rússnesku kirkj-
una á dögum kommúnista í
Rússlandi? Var trúin upprætt og
kirkjan þurrkuð út? Séra Rögnvald-
ur Finnbogason fór til Moskvu á
dögunum og leitaði svara við þess-
um spurningum og fleiri. Afrakstur
ferðarinnar verður sýndur í Sjón-
varpinu föstudaginn langa kl.
20.25.
Myndin er gerð á síðustu dögum
perestrojkunnar, en séra Rögnvald-
ur hefur allt frá árinu 1984 kynnt
sér endurkomu kirkjunnar í rússn-
esku samfélagi. Myndin er tekin í
Moskvu og skammt utan hennar, í
Zagorsk, þar sem Þrenningar-
klaustur Sergiusar af Radonez er,
og í Volokolamsk, öðru fornfrægu
klaustri sem staðið hefur í eyði í
hálfa öld.
Reynt er $ð kynnast viðhorfi
manna til kirkjunnar og opna mönn-
um sýn til þess innra iífs sem fólk
lifir í nýju sambandslýðveldunum.
Ungt fólk er tekið tali og spurt um
sögu hennar. Einnig er rætt við
fólk af öðrum trúarbrögðum, bæði
múslíma og gyðinga.
Stjórnvöldum Sovétríkjanna
tókst aldrei að þurrka út trúarlíf
fólks eða knésetja kirkjuna að fullu,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
þess um áratuga skeið. Margt
bendir til þess að trúin hafi aldr-
ei haft dýpri rætur í hugum
manna í Rússlandi en einmitt á
þeim tímum þegar kirkjan galt
mest afhroð af hendi stjórn-
valda. En nú er ný tíð runnin,
hvarvetna er verið að endur-
byggja gamlar kirkjur og reisa
forn klaustur úr rúst. Rússnesk-
ur kirkjusöngur er endurvakinn
og íkónalistin gamla blómstrar
á ný.
En verður það rússneska
kirkjan eða efnisleg gæði
Vesturlanda sem koma til með
að heilla til sín ungu kynslóðina
í Rússlandi dagsins í dag? Ef
til vill gefur þessi stutta mynd
einhverja hugmynd um hvert
stefnir í trúarlegum efnum
hinna nýju sambandslýðvelda.
Sjónvarpið:
Judy í herþjónustu
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-12
Útvarpsdagskrá bls. 2-12
Fyrri bíómynd Sjónvarpsins
laugardagskvöldið 18. apríl
heitir á frummálinu Private Benj-
amin. Goldie Hawn leikur Judy
Benjamin sem hyggst finna
lausn á tilvistarvanda sínum
með því að gerast sjálfboðaliði
hernum.
Judy á tvö
hjónabönd að
baki, annað ent-
ist í sex mánuði
en hitt í
klukkutíma.
herþjón-
ust-
Sjónvarpið:
Heimssýningin í Sevilla
unni fær Judy að upplifa eitt og
annað sem sældarlíf hennar í
föðurgarði hefur ekki búið hana
undir, enda er hún fordekruð
og ofvernduð pjattrófa. Leik-
stjóri er Howard Zieff, en auk
Goldie leika Eileen Brennan,
Armand Assante, Robert Web-
ber og Harry Dean Stanton.
vikmyndahandbók Maltin’s
gefur ★ ★ ★.
Hvernig skyldi Judy
ganga íhernum,
hún sem er
Sjónvarpið sýnir næstkomandi
þriðjudag kl. 22.00 frá opn-
unarhátíð heimssýningarinnar í
Sevilla, en þar
gefur að sjá allt
það helsta sem
er að gerast á
sviði lista í heim-
inum í dag. Opn-
unarhátíðin sem
fer fram mánu-
daginn 20. apríl,
verður fest á
band með full-
tingi 70 sjón-
varpsupptöku-
véla.
I þættinum
verður sýnishorn
af öllum listviðburðunum á sýn-
ingunni með öllu því besta frá
heimsálfunum fimm á sviði óperu,
balletts, rokktón-
listar, sinfóníu,
þjóðdansa, jass-
tónlistar, leikhúss,
kvikmynda, o.fl.
Meðal þeirra lista-
manna sem koma
fram eru Placido
Domingo, Mons-
errat Caballé,
Christina Hoyos,
Ruben Blades,
Celia Cruz, New
Kids on the Block,
Yusus NDoorf og
Edoku Madaiko.
Viðtal við Jónas Jónasson bls. 5
Placido Domingo
Myndbönd bls. 8
Bíóin í borginni bls. 10
Stöð 2:
Vinstri
fóturinn
- saga Christy
Brown
Stöð 2 sýnir myndina Vinstri fót-
urinn - saga Christy Brown
föstudaginn langa kl. 21.20. Tveir
leikaranna, Daniel Day-Lewis og
Brenda Fricker, hlutu Oskarsverð-
laun fyrir túlkun sín á unga mannin-
um Christy Brown og móður hans.
Á árunum í kringum 1970 kynnt-
ist leikhússtjórinn Noel Pearson rit-
höfundinum og málaranum Christy
Brown, sem var bæklaður frá fæð-
ingu. Kunningsskapur þeirra varð
að vináttu og Pearson var nokkurs
konar umboðsmaður Brown, þar til
hann lést árið 1981. Pearson hafði
keypt réttinn til að kvikmynda sög-
una „My Left Foot" og samdi við
Shane Connaughton um handrits-
ge'rð. Síðarfékk hann annan íra, Jim
Sheridan, til samstarfsins, og sá
hann um leikstjórn myndarinnar.
Myndatökurnar fóru allar fram í
og umhverfis Dublin og í Ardmore-
myndverinu á írlandi. Lokið var við
tökur myndarinnar á einungis sjö
vikum, síðsumars 1988, vegna anna
Daniels Day-Lewis, en gagnrýnend-
ur voru á einu máli um að hann
hefði sýnt afburðaleik i myndinni.
Snilld hans hefði ekki síst falist í því
að túlka hugarheim fatlaðs manns
og baráttu hans við að tjá sig. Kvik-
myndahandbók Maltin's og Mynd-
bandahandbókin gefa báðar
★ ★ ★ ’/2.
Listamaðurinn Christy Brown var
bæklaður frá fæðingu.