Morgunblaðið - 16.04.1992, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
C 3
Sjónvarpiö:
Leikrit Davíðs Oddssonar
Allt gott frumsýnt
Texti: Hildur Fridriksdóttir
Sjónvarpið frumsýnir nýtt sjónvarps-
leikrit, Allt gott, eftir Davíð Odds-
son á páskadag. Um er að ræða
35 mínútna langt leikrit í gaman-
sömum tón. Þetta er þriðja sjón-
varpsleikritið sem Sjónvarpið sýnir eftir
Davíð, en hin tvö eru Róbert Elíasson kem-
ur heim, sem sýnt var 1977 í leikstjórn
Hauks J. Gunnarssonar, og Kusk á hvít-
flibbann, sem sýntvar 1981 íleikstjórn
Andrésar Indriðasonar. Hrafn Gunnlaugs-
son er leikstjóri að þessu sinni. „Mér þótti
strax vænt um handritið þegar ég sá það
fyrir nokkrum árum,“ sagði Hrafn í sam-
tali við Morgunblaðið, „vegna þess að ég
man sjálfurtímann áðuren viðreisnar-
stjórnin tók við á íslandi, þannig að epli
voru eingöngu til um jólin. Á mig virkaði
verkið pínulítið pólitískt vegna þess að það
sýnir okkur tíma þegar sjálfsagt þótti að
höft ríktu í innflutningi á ákveðnum vöru-
tegundum, sem stjórnvöld vildu ekki leggja
blessun sína yfir. Eg veit hins vegar ekki
hvort Davíð lítur svo á verkið.“
Bernskuminningar höfundar
Leikritið er byggt á berskuminningum
höfundar og gerist á Selfossi á þeim tíma
þegar eplalyktin var ilmur jólanna og á
Islandi ríktu höft í innflutningi munaðar-
vöru frá útlöndum. Sagan segir frá tveimur
sjö ára strákum og ráðabruggi þeirra til
að höndla þau verðmæti, sem þá þóttu topp-
urinn á tilverunni. Þeir reyna að ná sam-
bandi við Guð og þá dreymir um að hann
geti hlutast til um að þeir verði ekki útund-
an í tilverunni hvað það snertir. Einnig
kemur við sögu kaupmannsfjölskylda sem
virðist hafa úr meiru að spila en sauðsvart-
ur almúginn.
Það var fyrirtæki Hrafns Gunnlaugsson-
ar sem tók að sér að framleiða leikritið og
er þetta í fyrsta skipti sem leikrit fyrir alla
fjölskylduna er tekið algjörlega utanhúss,
að sögn Sveins Einarssonar dagskrárstjóra.
Hann segir að yfirleitt hafi leikin verk Sjón-
varpsins verið unnin af starfsfólki þess
nema einstaka leiknar barnamyndir eins
og til dæmis Pappírspési og Gamla brúðan.
Samvinna frá gamalli tíð
Hrafn Gunnlaugsson er ekki að stíga sín
fyrstu skref í samvinnu við Davíð Oddsson
eins og flestum er kunnugt, því saman sáu
þeir um Utvarp Matthildi ásamt Þórarni
Eldjárn. Einnig unnU þeir þrír saman að
leikritinu Ég vil auðga mitt land, sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum.
Hrafn segir að staðið hafí til að hefja
tökur á myndinni fyrir nokkrum árum, en
það hafi dregist vegna þess að hann hafi
verið í risavöxnum verkefnum. „Þess vegna
var óskaplega gaman að koma og vinna
að þessu litla, netta verkefni, sem er allt
öðru vísi en það sem ég hef fengist við að
undanförnu. Það varð til þess að ég gat
slakað á og haft ánægju af þessu á meðan
upptökur fóru fram.
Guðlaugur Hrafn Ölafsson (t.v.) og Ragnar Nikulásson reyndu að semja við Guð um
að þeir misstu ekki af lystisemdunum.
Ragnar Nikulásson leikur
Jóhannes, Guðlaugur Hrafn
Ólafsson er Daníel, Hólm-
fríður Þórhallsdóttir fer með
hlutverk ömmunnar, Már
Magnússon er kaupfélags-
stjórinn, Theódór Kr. Þórð-
arson leikur tollþjón, Jón
Tryggvason leikur bílstjóra
og Þórunn Pálsdóttir er í
hlutverki kaupmannsfrúar-
innar.
Vinnan gekk þægilega fyrir sig og góð
stemmning ríkti þegar við vorum að taka
upp. Ég hafði líka góða menn með mér,
Karl Júlíusson, sem hefur gert búninga í
öllum mínum myndum, Ara Kristinsson í
tökunni og Hilmar Örn í tónlistinni.“
— Hvað tóku myndatökur langan tíma?
„Átta daga. Hins vegar æfðum við í tvo
mánuði fyrir töku.“
— Núþegarþúlíturtilbakahvaðþótti
þér skemmtilegast við upptökurnar?
„Ég hef alltaf haft gaman af börnum.
Það em yfirleitt alltaf börn í þeim myndum
sem ég geri. Þó var þetta óvenjulegt að
því leyti að þau voru í aðalhlutverkum og
bera uppi myndina. Mér þótti líka spenn-
andi að reyna að bregða svip yfir Selfoss
Biblíumyndirnar höfðu einnig aðdrátt-
arafl.
nútímans, þannig að hann virkaði eins og
upp úr 1950. Það varð að láta staðinn líta
út eins og hann var, með drulluþollana á
sínum stað.“
— Hvernig fóruð þið að því?
„Það fáið þið að sjá í myndinni. Það var
ekki auðvelt, en ég held að það hafi tekist
að gera það trúverðugt."
Hrafn segir að hann hafi ekki síst notið
þess að leikstýra myndinni vegna þess að
hann þekki húmor Davíðs nokkuð vel. „Þess
vegna var kannski aðgengilegra fyrir mig
að túlka verkið. Þú veist að í bandarísku
myndunum er vondi maðurinn sá með
svarta hattinn, en í íslenskum myndum er
það kaupfélagsstjórinn. Er þetta ekki dálít-
ið góður húmor?“
Rás 1:
Mattheusar-
passían
■HHI Mattheusarpassían eftir
"I FT 00 Johann Sebastian Bach
— er á dagskrá Rásar 1
föstudaginn langa kl. 15.00. Bein
útsending verður frá tónleikum í
Langholtskirkju, en þar flytja kór
kirkjunnar, kór kórskóla Langholts-
kirkju, kammersveit Langholts-
kirkju og einsöngvarar þessa viðam-
iklu passíu hins mikla meistara bar-
okklistarinnar undir stjórn Jóns Stefánssonar. Einsöngvararnir sem
taka þátt í flutningnum eru íslenskir utan einn, en það er Michael
Goldthorpe tenór sem hefur sungið hlutverk guðspjallamannsins í þeim
passíum sem fluttar hafa verið í Langholtskirkju hin síðari ár. Áðrir
einsöngvarar em Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran, Björk Jónsdóttir
alt og bassarnir Bergþór Pálsson og Kristinn Sigmundsson. Konsert-
meistari er Júlíana Elín Kjartansdóttir. Tómas Tómasson kynnirtónleik-
ana fyrir útvarpshlustendum.
Rás 1:
Lagið Það er leikur að
læra í nýjum búningi
mmmm í páskaþætti Yfir Esjuna verða tekin fyrir orðaskipti Helga
M30 Hálfdanarsonar og þriggja tónskálda, sem farið hafa fram
““ á síðum Morgunblaðsins að undanförnu. Helgi hefur bent
á að þýska lagið, sem sungið hefur verið við menntasöng þjóðarinn-
ar, Það er leikur að læra, félli alls ekki að bragarhætti ljóðsins.
Hefur hann skorað á tónskáld að semja nýtt, lipurt lag við textann.
Þijú tónskáld, Atli Heimir Sveinsson, Jón Þórarinsson og Skúli Hall-
dórsson brugðust skjótt við og hafa samið ný lög. í þættinum syng-
ur Erna Guðmundsdóttir söngkona lögin þijú. Ekki nóg með það,
heldur ætlar Þórarinn Eldjárn að semja nýjan texta við gamla lagið.
Þátturinn Yfir Esjuna er í umsjón Jóns Karls Helgasonar, Jórunnar
Sigurðadóttur og Ævars Kjartanssonar. Þátturinn er frá kl. 13-15,
en um kl. 14.30 verður fyrrgreind dagskrá á ferðinni.
Rás 2:
Frank Zappa
íSmiðjunni
■^■■■H í Smiðjunni hafa þeir
Q1 00 Kolbeinn Árnason og
“ J “ Jón Atli Benedikts-
son rakið sögu Frank Zappa
undanfarið. í kvöld heldur saga
hans áfram og taka þeir félag-
ar þá til við að flytja hluta úr
símaviðtali sem þeir áttu við
Zappa fyrir stuttu. Frank
Zappa er einn áhrifamesti tón-
listarmaður bandarískrar rökk-
sögu og um leið einn sá um-
deildasti, enda hefur hann ekki
bundið bagga sína sömu hnút-
um og samferðamennirnir. í
viðtalinu ræðir Zappa viðföng
sín í dag og framtíðarfyrirætl-
anir, aukinheldur sem hann
fjallar um einstök verk sem
verða flutt í þættinum.
2:
Mamma
elskaði mig
út af lífinu
■■■■I Föstudaginn langa
1 7 oo verður fluttur á Rás
l i ~~~ 2 þáttur sem var
frumfluttur í marsmánuði á
Rás 1 og vakti þá mjög mikla
athygli, bæði fyrir efnistök og
ekki síst fyrir málefnið sem þar
var tekið fyrir, götubörn í
Reykjavík. í þættinum er flétt-
að saman frásögnum fjögurra
ungmenna, þeirra Önnu, Fríðu,
Benna og Dóra, sem öll eru á
aldrinum 16 ára til tvítugs. Þau
hafa öll meira og minna átt
heima á götunni mörg undan-
farin ár. Um tíma voru þau í
sömu grúppunni, sem nú hefur
tvístrast. Anna heldur til í kjall-
araherbergi í Þingholtunum.
Fríða , besta vinkona hennar
er bundin við hjólastól og dvel-
ur nú á sjúkrastofnun. Benni
og Dóri eiga engan samastað,
helst er hægt að ganga að þeim
á Hlemmi. Annars taka þeir
því sem býðst hveiju sinni.
3 u 3 e-i- lulcu* Oa) - - • O, . . .
Rás 1:
Ég lít í anda
liðna tíð
■■■■■ Á
1 A 30 Pás-
— ka-
dag verður
fluttur á Rás 1
þátturinn
„Síung gleði
og sorgin
djúp“ í þátta-
röðinni „Ég lít í anda liðna tíð“.
Það er Guðrún Ásmundsdóttir
sem hefur tekið þættina saman
og byggir þá á viðtölum við
eldri Reykvíkinga. Leiknum at-
riðum úr lífi fólksins er fléttað
inn þættina. í þættinum á
páskadag ræðir Guðrún við frú
Katrínu Olafsdóttur Hjaltested,
en ári eftir að seinni heimstyij-
öldinni lauk kom út bók eftir
hana sem nefnist Liðnir dagar.
Þar segir Katrín frá reyslu sinni
í Austurríki en þar dvaldist hún
öll stríðsárin og eru flest leik-
atriðin í þessum þætti unnin
upp úr þeirri bók.