Morgunblaðið - 16.04.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
C 5
RÖDDIN ER
HLJÓÐFÆRIÐ HANS
Jónas Jónasson kveður Útvarpið sem fastur starfsmaður í byrjun maí en
þá hefur hann starfað þar meira og minna í rúm 40 ár
Texti: Hildur Friðriksdóttir/Mynd: Árni Sæberg
Frá upptöku þáttarins Páskagteði Útvarpsins sem sendur verður út á páskadag. Jónas
Ingimundarson, Jónas Jónasson og skriftan Helga Brá Árnadóttir.
„ÞEGAR maður er hættur að geta lesið
símaskrána, er kominn tími til að hætta,“
dæsir Jónas Jónasson, þar sem hann situr
við skrifborð sitt í Útvarpshúsinu við Efst-
aleiti. „Fyrirgefðu augnablik," segir hann
svo, „ég þarf að hringjá eitt símtal." Það
hvarflar að mér meðan hann talar í sím-
ann, að hann líti hreint ekki út fyrir að
vera kominn á eftirlaunaaldur. Enda er
hann ekki alveg béfinn að segja skilið við
Útvarpið — sem hann hefur tengst meira
og minna í tæp 60 ár — þó svo að hann
sé að hætta sem fastur starfsmaður. „Mér
þótti vænt um,“ segir hann að loknu sím-
talinu, „að þeir báðu mig að halda áfram
með Kvöldgesti“. Hann hallar sér aftur á
bak, spennir greipar fyrir aftan höfuðið
og segir: „Þeir höfðu nú ekki mikla trú
á því þegar ég bað um að fá að byija
með þessa þætti, en þeir hafa sannað sig.“
að varð ekki meira úr samtalinu
þennan daginn, því framundan var
undirbúningur hjá Jónasi fyrir
viðamikinn þátt, sem sendur verð-
ur út á páskadag. „Auk þess verð ég að fá
að vita eitthvað um þig fyrst, því þegar ég
gef eitthvað af sjálfum mér vil ég fá eitt-
hvað í staðinn," segir hann, og við ákveðum
að hittast síðar í vikunni.
Þátturinn sem Jónas var með í undirbún-
ingi er í raun kveðjuþáttur hans. „Eins kon-
ar páskaegg Ríkisútvarpsins í ár,“ eins og
hann orðaði það. Mjög er vandað til þáttar-
ins, en kór og söngvarar Óperunnar eru
uppistaðan. Úpptakan fór fram í Óperunni
síðastliðið föstudagskvöld fyrir fullu húsi,
þar sem mikil stemmning var ríkjandi.
Við hittumst heima hjá Jónasi daginn eft-
ir upptökuna. Hann andvarpar um leið og
hann sest í sófann og segir: „Ég á ekkert
eftir í dag. Ég gaf allt sem ég átti í þáttinn
í gær. Þetta var eins og að synda í kafi í
tvo tíma.“ Það bráir þó af honum þegar líð-
ur á samtaiið og hann verður aftur sami
Jónas og landsmenn þekkja. Þegar hann
segir frá og rifjar upp liðna atburði kumrar
skemmtilega í honum og alltaf er stutt í
brosið.
Faðir hans Jónas Þorbergsson var fyrsti
útvarpsstjórinn og því var snáðinn litli fljót-
lega farinn að þvælast um stofnunina sem
þá var í Landsímahúsinu. Hann var „pikkóló"
— í ólaunuðu starfi — tók á móti fólki og
vísaði því áfram innanhúss. Hann var ekki
nema 15 áraþegar þulirnir Pétur Pétursson
og Jón Múli Arnason létu hann stundum
leika danslögin á laugardagskvöldum, meðan
þeir skruppu frá, því þá voru lögin ekki
kynnt heldur spilaðar langar syrpur.
Vorið 1948 hóf hann síðan störf sem að-
stoðarfréttamaður. „Á þeim tíma sögðu þul-
irnir fréttirnar og þá heyrðust aldrei raddir
fréttamanna, nema að þeir lásu fréttirnar
síðdegis. Svo var það einn daginn að ég var
beðinn að lesa fréttirnar og þá uppgötvuðu
þeir að ég hafði ágætis útvarpsrödd.
Sem fréttamaður var ég eitt sinn beðinn
að skrifa um afmæli Svifflugfélags íslands.
Ég hefði auðvitað getað hringt eitt símtal,
spurt nokkurra spurninga og skrifað frétt
um félagið. Ég vildi hins vegar gera þetta
öðru vísi. Fór upp á Sandskeið með stálþráð-
inn, sem var þá kominn til sögunnar, fór í
flugferð og lýsti sviffluginu. Þar með held
ég að örlög mín hafi verið ráðin.“
Útvarpið eins og baktería
Hann hætti þó hjá Útvarpinu nokkrum
árum seinna og gegndi ýmsum störfum, en
ætlaði ekki að skipta sér meira af útvarpi.
„En þetta er eins og baktería. Þegar Vil-
hjálmur Þ. Gíslason hringdi í mig og sagði
að það vantaði fréttaþul, sló ég til.“ Hann
þagnar, brosir í kampinn, lítur síðan upp og
segir hressilega: „Svo var ég með óskalaga-
þátt fyrir unglinga sem hét Léttir tónar.
Og seinna vorum við Haukur Morthens með
Þriðjudagsþáttinn, sem var eiginlega forveri
Laga unga fólksins."
Hann stendur upp úr sófanum, dregur
ruggustól nær sófaborðinu og sest. „Síðan
hef ég verið að búa til þætti af öllum gerð-
um; frétta-, spurninga-, samtals-, músík- og
menningarþætti. Lengst hef ég verið með
Kvöldgesti. Þetta er alvarlegur þáttur um
„Ég er sannfærður um að
mér var ætlað að sjá um sam-
talsþátt sem þennan, þar sem
fólk er að upplifa eitthvað í
lífi sínu, er að segja ein-
hverja sögu.“
tilfinningar, alvöru, vonir og vonbrigði, en
fyrstog fremst um sigra fólks yfir aðstæð-
um. Ég er sannfærður um að mér var ætlað
að sjá um samtalsþátt sem þennan, þar sem
fólk er að upplifa eitthvað í lífi sínu, er að
segja einhveija sögu.“
Hann vendir kvæði sínu í kross eins og
honum fmnist umræðurnar orðnar of alvar-
legar og segir: „Það er ekkert að því að
fólk hlæi með menningunni. Eins og í upp-
tökunni í gær. Menn hlógu þrátt fyrir alvöru
söngsins.“ Síðan segir hann með lýsandi
ánægju manns, sem hefur yfirstigið erfiðan
þröskuld: „Þetta var rosalega djarft. Ég vissi
ekkert hvað margir kæmu. Það hefði getað
verið hálffullt hús, 10 hræður eða neikvæður
salur. Sjáðu, það er ekki hægt að búa til
handrit að svona þætti. Þarna voru til dæm-
is auð sæti þar sem Þuríður Pálsdóttir og
Magnús Jónsson áttu að sitja, en ég gat þó
hringt til þeirra í staðinn.
Ég skal alveg viðurkenna það að þegar
ég fer út í nýja tegund þátta, er ég annað
hvort að sanna sjálfan mig eða að þáttagerð-
in sé framkvæmanleg." Hann bætir því við
að hann hefði ekki getað gert þennan þátt
nema vegna þess að Jónas Ingimundarsonar
hjálpaði honum, en þeir hafa átt gott sam-
starf með þáttunum Góðvinafundur í Gerðu-
bergi í vetur.
Hann segist að vísu búa yfir ákveðinni
reynslu frá því að hann var með þættina
Hratt flýgur stund, sem voru í útvarpinu
fyrir nokkrum áratugum. „Þá fór ég með
tæknimenn út á land, smalaði saman fólki
á staðnum og sá um klukkustundar skemmti-
þátt, þar sem heimamenn skemmtu.
Ég var einnig með þætti sem hétu Staldr-
að við... Þar var hugsunin að kynna litla
staði út um landið. Kveikjan að þáttunum
var þegar ég ók vikulega til og frá Arat-
ungu, þar sem ég var að sviðsetja leikrit
um helgar. Ég ók alltaf heim í mykri og
leiddist að ferðast um á nóttunni. Mér fannst
gott að sjá ljósin á þessum litlu stöðum áður
en myrkrið á Hellisheiðinni gleypti mig. Þá
hugsaði ég hugsaði stundum: Hver kveikir
þessi ljós? Einn góðan veðurdag lét ég verða
af því að kanna það. Ók til Eyrarbakka og
skömmu síðar bjó ég til þáttinn Staldrað við
á Eyrarbakka. I sex þáttum kynnti ég stað-
inn og mannlífið með frásögn og viðtölum
við íbúa. Þættirnir vöktu athygli vegna þess
að fjallað var um baksvið fólksins sem þarna
bjó.“
Metnaður í fyrirrúmi
— Hefurðu alltaf fengið að fara eigin leið-
ir í þeim þáttum sem þú hefur séð um? Ertu
kannski prímadonna í útvarpinu?
Nú hlær hann ofan í bringuna um leið
og hann réttir sig í stólnum og segir: „Já,
já, ég er prímadonna og ég hef alveg leyfi
til þess. Ríkisútvarpið hefur aldrei þurft að
skammast sín fyrir þættina mína, því ég hef
alltaf lagt mikinn metnað í þá.“
Þættirnir Góðavinafundur í Gerðubergi
hafa vakið athygli í vetur. Þegar síðasti
þátturinn hafði verið sendur út hringdi lækn-
ir nokkur til Jónasar og spurði hvort það
væri rétt að þetta hefði verið síðasti þáttur-
inn. Þegar Jónas jánkaði því sagði læknir-
inn: „Það var leitt, því ég lét ánetjast þeim.“
Hann segist einnig verða var við að Kvöld-
gestir veki athygli, enda fái hann fólk ótrú-
lega til að tjá sig. „Það er hægt að spyija
nærgöngulla spurninga um alvarlega atburði
ef maður notar blíðu og samúð.
Ég hef nokkrum sinnum flutt fyrirlestra
fyrir nemendur í fjölmiðlafræði í Háskólan-
um. Einn nemendanna hélt því fram að ég
hlyti að dáleiða kvöldgestinn. En það er
hægt að fá fólk til að tala á tvennan hátt,
með því að gera það reitt eða með því að
ná trúnaði þess. Og röddin er mitt hljóð-
færi. Raunin er sú að ég kemst óskaplega
langt á því að vera blíður."
Hann þagnar smástund, en segir svo: „Ég
hef aldrei verið að sækjast eftir hlustendum,
en mér skilst að Kvöldgestir hafi fastan
hlustendahóp. Þátturinn er róandi og fólk
slakar á, enda er það ekki tilviljun að hann
er sendur út seint á kvöldin. Ég hef heyrt
af hjónum sem fara í náttfötin, hita sér
kakó, kveikja á kertaljósi og hlusta saman
á þáttinn. Einnig hef ég heyrt að sumir hlust-
endur fái sér rökkursvefn til að geta vakað
eftir þættinum, sem lýkur á miðnætti.“
— Hvers vegna ertu að hætta núna?
„Ég held ég sé orðinn þreyttur,“ svarar
hann. „Ég tók þessa ákvörðun fyrir fimm
árum.“ — Og þú art auðvitað svo þijóskur
að þú getur ekki breytt henni,“ skýtur blaða-
maður inn í. — „Ne-ei, ég er nefnilega naut.
Mér fínnst gott að hætta um vor eins og
þegar ég gekk inn í Útvarpið um vor ungur
og galinn. Nú geng ég út gamall og galinn
og veit ekki hvað bíður mín.“
— Óttastu það dálítið?
„Já, ég óttast það dálítið, en jafnframt
finnst mér það gott. Ég hef alltaf þurft að
taka einhveija áhættu. Nú ætla ég að snúa
mér að því að skrifa, því ég á margt ógert
í þeim efnum."
Þegar við kveðjumst gengur blaðamaður
út í vorið og sólina með orð Jónasar í vega-
nesti: „Vertu blessuð — og passaðu þig á
bílunum."
Davíð Stefánsson
Aðalstöðin:
Ljóða-
flutningur
Aðalstöðin og Landsbanki ís-
lands hafa tekið höndum ''saman
um ljóðaflutning á Aðalstöðinni.
Verða ljóðin í formi örþátta, þ.e.a.s.
leiknar verða upptökur, þar sem
skáldin lesa eigin ljóð inn á milli
laga og tekur því hver upplestur
aðeins frá einni til þriggja mínútna.
Baldvin Jónsson útvarpsstjóri
Aðalstöðvarinnar sagði í samtali
við Morgunblaðið að fyrstu ljóða-
lestrarnir yrðu sendir út á skírdag.
„Fálkinn átti gamlar upptökur
margra stórskálda eins og Tómasar
Guðmundssonar, Þórbergs Þórðar-
sonar, Davíðs Stefánssonar,
Sigurðar Nordals og Steins Stein-
ars. Steinar hljómplötuúgáfa keypti
þetta efni á sínum tíma og þeir
færðu þetta fyrir okkur yfir á
segulbönd. Þessir upplestrar voru
oftar en ekki teknir upp á gamla
mátann, með stálþræði og Steinar
sá einnig um að hreinsa burtu
aukahljóðin, sem fylgdu með. Síðan
komum við þessu í búning til flutn-
ings.“
Eftir páska stendur til að fá
yngri skáld eins og Bubba Morth-
ens, Sjón, Vigdísi Grímsdóttur og
fieiri, til að lesa ljóðin sín, sem
verða síðan flutt sem örþættir. Þá
eru til þættir þar sem Matthías
Johannessen les eigin ljóð. „Við
völdum að senda þessa upplestra í
örþáttum, því við töldum að hlust-
endum þætti ennþá skemmtilegra
að fá öðru hvoru fallega lesið ljóð
í stað þess að vera með ákveðna
Ijóðaþætti. Það er sérstaklega gam-
an að þessu vegna þess að þarna
eru stórskáldin sjálf að lesa,“
sagðai Baldvin.
Að sögn Baldvins telja málrækt-
armenn að með auknum ljóðalestri
aukist málvitund almennings og
tilfínning fyrir málinu. Aðalstöðin
hóf fyrir nokkru að senda út ör-
þætti til að efla íslenskukunnáttu
landsmanna og heita þeir íslenskt
mál.
-----» ■ 4---
Sjónvarpið:
r'
Urslitaþátt-
ur í Kontra-
punktum
Undanfarnar vikur hafa íslend-
ingar, Finnar, Sviar, Danir og Norð-
menn reynt með sér í keppni um
það, hvetjir kunna gleggst skil á
tóndæmum frá hinum ýmsu skeið-
um tónlistarsögunnar.
Að kvöldi föstudagsins langa kl.
22.00 hefst spurningakeppni Norð-
urlandaþjóðanna og þá fæst loks
úr því skorið hver þeirra er best
að sér í fræðunum. Keppnin fer
fram í Danmörku. Fyrir Íslands
hönd taka þátt þeir Gylfí Baldurs-
son, Valdemar. Pálsson og Ríkarður
Örn Pálsson.
Stjórnandi og spyijandi þáttanna
er Svíinn Sixten Nordström.