Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 2
2 D MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNÐLÍF FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 Hótel Hótel íslandað fullu tilbúið 1. maí I BYRJUN maí verður Hótel Is- land opnað formlega en fram- kvæmdir við hótelið, sem hófust fyrir ári síðan, lýkur í lok þessa mánaðar. Alls munu það vera 77 herbergi sem bætast við hótelið en í fyrra voru opnuð 42 her- bergi. Konráð Guðmundssonar hót.elstjóri Hótel Sögu sem nú sér um rekstur Hótel Islands segist ekki geta gefið upp kostnað við framkvæmdirnar en þær munu vera undir framkvæmdaáætlun. Eftir framkvæmdirnar verða alls tilbúin 119 tveggja manna herbergi og þar af 3 svítur. Að sögn Konr- áðs verður ýmsum séróskum mætt á Hótel íslandi, t.d. verður herbergi fyrir hreyfihamlaða og fyrir þá sem ekki vilja hafa gólfteppi. Herbergin eru öll með baðherbergi. „Auk Vestmannaeyjar Hagnaður sparisjóðsins 12,4 millj. Hagnaður hjá Sparisjóði Vest- mannaeyja varð 12,4 milljónir króna á síðasta ári á móti 7,4 milljónum árið áður. Eigið fé sparisjóðisins í árslok 1991 nam 114,7 milljónum og hafði aukist um 21% á árinu. Skv. ársskýrslu Sparisjóðs Vest- mannaeyja námu innlán í sjóðnum að meðtöldum seldum bréfum veð- deildar 887,9 milljónum króna um síðustu áramót. Innlánaaukning milli ára var 21%, en að meðaltali var innlánaaukning viðskiptabanka og sparisjóða 14,5% á síðasta ári. Heildarútlán í Sparisjóði Vest- mannaeyja að viðbættum útlánum veðdeildar námu 812,3 milljónum um síðustu áramót samanborið við 668,5 milljónir króna árið áður. Um er að ræða 21,5% útlánaaukningu. í stjórn Sparisjóðs Vestmanna- eyja eiga nú sæti Arnar Sigur- mundsson, formaður, Ragnar Osk- arsson, varaformaður, Gísli Guð- laugsson, Þorbjöm Pálsson og Skæringur Georgsson. Sigurgeir Kristjánsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs á síðasta aðalfundi, en hann hefur átt sæti í stjórn spari- sjóðsins í 34 ár, þar af sem formað- ur frá 1974. Sparisjóðsstjóri er Benedikt Ragnarsson. hinna 77 nýju herbergja er einnig verið að ganga frá morgunverðarsal og fundarsal sem tekur 60-70 manns,“ segir Konráð. Nú þegar er búið að bóka rúm- lega 70% af herbergjum hótelsins frá maí til september. En stærsti hluti bókananna kemur frá ferðs- skrifstofum og mikið af þeim eru hópar. Að sögn Konráðs mun skemmti- staður hótelsins áfram verða rekin í því formi sem verið hefur. Lántaka Iðnlána- sjóður tekur lán hjá NIB NÝLEGA var gengið frá lán- töku Iðnlánasjóðs hjá Nor- ræna fjárfestingarbankanum (NIB) í Helsinki. Lánið er að fjárhæð 360 milljónir króna og er til 15 ára. Það er tekið í þýskum mörkum. Þetta er sjötta lántaka Iðn- lánasjóðs hjá Norræna fjárfest- ingarbankanum en samtals nema nú lán til sjóðsins frá bankanum 1.1931 milljón. Láns- samningurinn var undirritaður í Reykjavík af Þórhalli Ásgeirs- syni og Guðmundir Tómassyni f.h. bankans og Braga Hannes- syni f.h. Iðnlánasjóðs. SAMNIIMGURINN — Við undirritun samningsins. Á myndinni eru í fremri röð taið frá hægri Pálmi Jónsson, fjármálastjóri Innkaupastofnunar ríkisins, Ásgeir Jóhannsson, forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins, Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tæknivals og Kristján Óskarsson, deildarstjóri tölvudeildar Tæknivals. Standandi frá hægri eru Ómar Örn Ólafsson, deildarstjóri tæknideildar Tæknivals, Sveinn Áki Lúðvíksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Tæknivals, Agnes Vilhelmsdóttir, umsjónarmaður samningsins fyrir hönd Innkaupastofnunar, Jónas Hreinsson, deildarstjóri rekstrarvörudeildar Tæknivals og Gunnar Ólafsson, markaðsfulltrúi hjá Tæknivali. Tölvur Umtalsverð lækkun á ríkis- samningi um tölvukaup SAMNINGURINN sem Innkaupastofnun ríkisins gerði við Tækniv- al hf. í sl. viku um kaup og sölu á einmenningstölvum til handa opinberum stofnunum er um 12-13% lægri en samningurinn sem gerður var í fyrra. Að sögn Agnesar Vilhelmsdóttur umsjónar- manns samningsins fyrir hönd Innkaupastofnunar bárust alls til- boð frá 10 aðilum og voru lægstu tilboðin mjög jöfn. Vegna þess hve lægstu tilboðin voru jöfn og umfangs útboðsins varð nokkur dráttur á ákvörðun Innkaupastofnunuar um hvaða til- boði skyldi taka, en tilboðsfrestur- inn rann út þann 5. febrúar sl. Agnes segir tilboði Tæknivals um Hyundai-einmenningstölvur hafa verið tekið þar sem það hafi verið lægst samkvæmt útboðslýsingu að áliti sérfróðra manna. Samn- ingurinn gildir til maí loka á næsta ári. Áætlað verðmæti hans er 100-150 milljónir króna. Þetta er annað árið í röð sem Innkaupastofnun ríkisins efnir til útboðs af þessu tagi og samkvæmt upplýsingum þaðan hafa undir- tektir verið mjög góðar, Rétt til kaupa samkvæmt samningnum eru ríkisstofnanir og fyrirtæki í eigu ríkisins, ásamt ríkisstarfs- mönnum, skóiar og bæjar- og sveitarfélaög og starfsmenn þeirra. Lífeyrismál Tveir lífeyrissjóðir sameinaðir Lífeyrissjóðir málm- og skipasmiða og byggingarmanna sameinaðir frá og með 1. júní nk. ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina Lífeyrissjóð málm- og skipa- smiða og Lífeyrissjóð byggingarmanna þann 1. júní nk. Þessir sjóð- ir verða þá formlega lagðir niður og stofnaður nýr lífeyrissjóður á grunni þeirra beggja sem verður fjórði stærsti lífeyrissjóður landsmanna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur Jó- hannes Siggeirsson, framkvæmdasljóri hjá íslandsbanka verið ráð- inn framkvæmdasljóri hins sameinaða sjóðs. Tillaga um sameininguna verður lögð fram á þingi Málm- og skipa- smiðasambands íslands tii sam- þykktar í byrjun maí. Á sama tíma verður efnt til fundar hjá aðilum að Lífeyrissjóði byggingarmanna þar sem lögð verður fram sams konar tillaga. Lauslega áætlað verða heildareignir hins nýja sjóðs um 8 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að gömlu sjóðirnir starfi sem sérstakar deildir í hinum nýja sjóði frá 1. júní nk. til ársloka 1993. Fyrir þann tíma mun hins vegar fara fram tryggingarfræðilegt mat á skuldbindingum hvors sjóðs þannig að endanleg sameining fer fram 1. janúar 1994. Hins vegar verður hætt að taka við iðgjöldum í gömlu sjóðina frá og með lokum maímánaðar. Jóhannes Siggeirsson var ráðinn framkvæmdastjóri hjá íslands- banka við sameiningu bankanna fjögurra sem að honum stóðu en þar áður starfaði hann sem fram- kvæmdastjóri hjá Lífeyrissjóði málm- og skipasmiða um fimm ára skeið. œ1 (LíilKlfilScÐálíSQOB nrQ0GHM®G)fi)a)[IMKIG)G) veitir lán til raunhæfra framfaraverkefna í öllum atvinnugreinum • Sjóðurinn veitir gengistryggð lán með hag- stæðum greiðslukjörum. • Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign eða bankaábyrgð. • Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna í samvinnu við umsækjendur. • Lán frá sjóðnum geta að hluta verið skilyrt í upphafi. Lánasjóðurinn er i eigu Norðurlandanna alira. Athafnasvæði hans eru Vestur-Norðurlönd, þ.e. Færeyjar, Grænland og ísland. Samvinnuverkefni milli landa eru æskileg en ekki skilyrði. HAFÐU SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU OKKAR OG FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR. Lánasjódur Vestur-Norðurlanda hefur aðsetur á Rauðarárstíg 25, annarri hæð, pósthólf 5410,125 Reykjavík, sími (91) 605400, Telefax: (91) 29044. - I ■ ' _______________ Verðbréf Nýr tilboðsmarkaður fyrir hlutabréf STEFNT er að því að hefja viðskipti með hlutabréf á sameiginlegum tilboðsmarkaði verðbréfafyrirtækjanna þann 5. maí nk. Gert er ráð fyrir að á þessum markaði muni fara fram viðskipti með hlutabréf félaga sem ekki eru skráð hjá Verðbréfaþingi íslands. Þetta er veru- leg breyting frá núverandi fyrirkomulagi þar sem verðbréfafyrirtæk- in hafa hvert í sínu lagi skráð gengi hlutabréfa. Viðræður hafa far- ið fram við forráðamenn Verðbréfaþings um að þingið taki að sér rekstur viðskiptakerfisins. Með hinum nýja tilboðsmarkaði breytist verðmyndun hlutabréfa og viðskiptahættir á markaðnum. Verðbréfafyrirtækin munu öli birta sömu upplýsingar um hæsta kaup- gengi og lægsta sölugengi og ekki er gert ráð fyrir að þau gegni hlut- verki viðskiptavaka með sama hætti og verið hefur. Viðskiptin munu fara fram með þeim hætti að kaup- endur og seljendur gera bindandi tilboð eða ganga að fyrirliggjandi tilboðum og öll tilboð verða skráð í einu viðskiptakerfi. Verðbréfafyr- irtækin geta síðan skoðað hvaða tilboð liggja fyrir í bréf einstakra félaga á markaðnum og fyigst með viðskiptunum jafnóðum og þau verða. í lok hvers dags verða birtar tölur um magn viðskipta, lokagengi dagsins og gærdagsins ásamt hag- stæðustu kaup- og sölutilboðum. Þessar upplýsingar munu síðan verða birtar í ijölmiðlum. Forráðamenn verðbréfafyrir- tækjanna telja að með hinum nýja tilboðsmarkaði verði verðmyndun sýnilegri og markaðurinn virkari en verið hefur. Þannig geta bæði viðskiptaaðilar og almenningur fylgst betur með raunverulegu verði og veltu á hlutabréfamarkaði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.