Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 5

Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNÐLÍF FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 D 5 ; verið um 50-60 milljarðar kr. í árslok 1991. Eignir lífeyrissjóða á þeim tíma námu um 155-160 milljörðum kr., allar óbeint í eigu heimilanna. Samtals er verðmæti þessara eigna um 650-660 milljarðar kr. eða um 450 milljarðar kr. að frá- dregnum skuldum. Séu þessar ágiskanir réttar er hrein eign ís- lenskra heimila aðeins um tvöfald- ar árstekjur þeirra eftir skatta (jafnvel þótt eignir lífeyrissjóð- anna séu taldar með), innan við helmingur af hreinni eign banda- rískra heimila í hlutfalli við árs- tekjur þeirra, um 40% af hreinni eign meðalheimils í Bretlandi og innan við þriðjungur af meðaleign heimilis í Japan í hlutfalli af árs- tekjum þeirra (sjá OECD Ec- onomic Outlook, desember 1991). Misvægi í fjármálum ríkissjóðs er mun alvarlegra en skuldasetning einkaaðila Þótt eignatölurnar íslensku séu ekki að fullu samanburðarhæfar við erlendar tölur er það þó sá samanburður okkar við útlönd sem einkum vekur ugg. Skuldir ís- lenskra heimila í hlutfalli af árs- tekjum þeirra eftir skatta eru sam- bærilegar við það sem gerist í öðrum löndum en hrein eign ís- lensks heimilis er aðeins um þriðj- ungur til helmingur af hreinni meðaleign heimila í sömu löndum þegar eignir eru reiknaðar sem hlutfall af árstekjum eftir skatta. Þess vegna hlýtur að þrengja meira að íslenskum heimilum nú vegna skuldsetningar en beinn samanburður á skuldahlutföllum bendir til. Afar æskilegt væri að birtar væru opinberar áætlanir um efnahagsreikning heimila á íslandi fólki til stuðnings þegar það rejm- ir að ráða í fjárhag sinn, eignir og skuldir, tekjur og gjöld. Skuldir einstaklinga og fyrir- tækja þeirra þurfa í sjálfu sér ekki að vera áhyggjuefni annarra en þeirra sjálfra. Oðru máli gegn- ir um hið opinbera vegna þess að fjármál ríkisins hafa áhrif á allt peningakerfi þjóðarinnar. Neðri myndin hér á síðunni sýnir lands- framleiðslu á íslandi og í ríkjum OECD og samneyslu á sömu stöð- um til samanburðar en lang- stærstu þættir hennar eru heil- brigðis- og tryggingamál og skóla- og fræðslumál. í ríkjum OECD hefur samneysla í reynd vaxið minna en framleiðsla á árunum frá 1980 til 1992 (áætlun). Á íslandi hefur samneysla vaxið úr 100 árið 1980 í 162,8 árið 1991 eða 162,3 samkvæmt þjóðhagsspá fyrir árið 1992 en framleiðsla úr 100 árið 1980 í 121,4 samkvæmt áætlun fyrir árið 1992. Af þessari miklu aukningu í útgjöldum ríkisins hefur stafað mikil lántaka í útlöndum og þensla í peningakerfi þjóðarinnar. Lang- varandi útgjöld ríkissjóðs umfram tekjur eru áhyggjuefni vegna þess að þau valda misvægi í peninga- málum og þau geta valdið verð- bólgu, viðskiptahalla og annarri truflun fyrir heilbrigða atvinnu- starfsemi í landinu eins og dæmin sýna. Af þeim ástæðum hafa nú- verandi stjórnvöld gripið til ráð- stafana til að stuðla að betra jafn- vægi í fjármálum ríkisins. Myndin sýnir einnig að fjarstæðukennt er að óttast um velferðarkerfið þótt útgjöld til samneyslu aukist ekki um sinn. Ef markmið stjómvalda urn jafnvægi í ríkisbúskapnum nást á þessu ári og því næsta er líklegt að fjármál heimilanna leið- rétti sig sjálfkrafa á nýjan leik í tímans rás. Höftmdur er framkvæmdnstjóri VÍB — Verðbréfamarkaðs íslands- banka hf. Flug Verður Dornier 328 skrúfuþotan Mercedes Benz smærri flugfélaga? OFT ER sagt um Mercedes Benz- bifreiðar að þær séu draumur á fjórum hjólum og í hugum flestra eru bifreiðar af Benz-gerð tákn um gæði í hvítvetna, traust og styrkleika. Á undanförnum árum hefur stórfyrirtækið Daimler- Benz markvisst haslað sér völl á fleiri sviðum en bílaframleiðslu. Þannig hefur fyrirtækið sótt fram í rafeindatækni, fjármálaumsýslu og síðast en ekki síst í flugiðnaði eins og hér verður greint frá. Deutsche Aerospace, dótturfyrir- tæki Daimler-Benz, tefldi fyrir skömmu fram nýrri hraðfleygri skrúfuþotu sem kallast Dornier 328. Nýja flugvélin rúmar 30-33 farþega og er með jafnþrýstu farþegarými. Dornier 328 nýtur þess umfram flest- ar aðrar skrúfuþotur sem nú eru á boðstólum að hönnun hennar hófst fyrir fáum árum og þess vegna er vélin tæknilega nýjust af nálinni í þessum flokki flugvéla. Þetta kemur m.a. glöggt fram í því hve Dornier 328 er hraðfleyg en sem dæmi um það má nefna að flugvélin yrði að- eins 29 mínútur að fljúga milli Reykjavíkur og Akureyrar. Með fyr- irtæki á borð við Daimler-Benz að bakjarli ætla margir að Dornier 328 geti skapað sér áþekkan sess og Mercedes-Benz meðal farþegaþotna í þessum stærðarflokki. í byijun virðist ætla að blása byr- lega fyrir Domier 328 og í því sam- bandi vekur tvennt athygli, annars vegar góð sala flugvélarinnar og hins vegar lofar reynsluflugið góðu. Fyrsta flugvélin af Dornier 328-gerð hóf umfangsmikla reynsluflugáætlun 6. desember sl. og í tilraunum sem þegar eru að baki hefur flugvélin sýnt betri afkastagetu en ráð var fyrir gert. T.d. er orðið ljóst að flug- drægið er 70 sjómílum meira en upphaflega var áætlað. Fyrsta flug- vélin verður tilbúin til notkunar snemma árs 1993 og verður þá af- hent svissneska flugfélaginu Shun- shine Aviation. Samtals hafa 148 Dornier 328-flugvélar verið seldar, þar af eru 70 með svokölluðum kaup- rétti. Persaflóastyijöldin og samdráttur í efnahagslífí heimsins hafa dregið mjög úr flugvélasölu og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða þotur af stærstu gerð eða skrúfuþotur á borð við Dornier 328. Á sl. ári skaut Dornier keppinautum sínum ref fyrir rass því Dornier 328 var mest selda skrúfuþotan i heiminum, þrátt fyrir að hún væri enn í smíðum. Fyrir íslendinga má geta þess að tvö ná- grannaflugfélög okkar, Grænlands- flug og Widerö í Noregi, eru meðal flugfélaga sem eiga í viðræðum við Deutsche Aerospace um kaup á Dornier 328. Það er grimm samkeppni milli flugvélaframleiðenda sem selja skrúfuþotur á stærðarbilinu 19-50 sæti. Þannig eru helstu keppinautar Dornier 328 hin 34 sæta Saab 340, Dash 8-100 sem er 36 sæta og frá Kanada, British Aerospace Jetstream 41 sem tekur 28 farþega og loks Embraer Brasilia frá samnefndu landi sem tekur 28 farþega. Það eru fyrst og fremst fjögur atriði sem Dornier 328 er sögð hafa umfram fyrrnefnda keppinauta. í fyrsta lagi er Domier 328 mjög hraðfleyg flugvél með því að vera farin að nálgast þotuhraða og nær 640 km hámarksfarflugshraða á klst. (345 hnútum). Deutsche Aerospace ábyrgist einnig að beinn flugrekstr- arkostnaður 328 verði 10% minni á hveija flogna sætismílu en hjá helstu keppinautunum. Þá hefur fyrirtækið reiknað út að áreiðanleiki í rekstri verði 99,6% (sama og Dornier 228) sem þýðir að af hveijum 1.000 flug- ferðum má búast við að aðeins 4 muni seinka um meira en 15 mín af tæknilegum ástæðum. Ennfremur þýðir óvenjugóð af- kastageta Domier 328 að fullhlaðin þarf Domier 328 aðeins 840 metra flugbraut. Loks heldur framleiðand- inn því fram að Domier 328 bjóði upp á betri þægindi en keppinautarn- ir og hafi sambærileg þægindi fyrir farþega og 150-350 sæta Airbus- farþegaþotur a.m.k. hvað varðar rými á hvern farþega. Farþegarými vélarinnar er sömuleiðis sagt það hljóðlátasta sem þekkist í skrúfuþot- um. Dornier 328 hefur vakið athygli fyrir mikla afkastagetu og góða flu- geiginleika enda á byggt á hátækni- vængjum Dornier 228, 19 sæta flug- vél frá sama fyrirtæki. Sú síðar- nefnda vakti einmitt athygli á Is- landi fyrir flugeiginleika sína, fyrst á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli og síðar í áætlunarflugi hér á landi á árunum 1989-1990. Deutsche Aerospace spáir því að á næstu 20 árum verði markaður fyrir allt að tvö þúsund skrúfuþotur af svipaðri stærð og Domier 328. Þetta er stór markaður en samkeppn- in er óvægin eins og fyrr segir. Deutsche Aerospace hefur varið 700 milljón mörkum (25 milljörðum kr.) í þróun og smíði Domier 328-vélar- innar og til að standa undir þessari gríðarlegu fjárfestingu þarf að selja um 360 flugvélar. Markaðskannanir fyrirtækisins hafa leitt í Ijós að flug- félög sýna talsverðan áhuga á stærri ' útgáfu af Dornier 328, svokallaðri í S-gerð. Slík flugvél myndi rúma 48 farþega og gæti verið komin í notkun árið 1995. Eiginleg flugvélaframleiðsla í i Þýskalandi stendur á gömlum merg, j t.d. var fyrsta flugvélin af Domier- t gerð smíðuð árið 1914. Eftir síðari \ heimsstyijöldina hefur flugiðnaður landsins aðallega verið byggður upp i með því að taka þátt í margvíslegum í samvinnuverkefnum við aðrar þjóðir, i svo sem innan evrópsku Airbus- | samsteypunni er smíðar samnefndar t farþegaþotur sem eru stærri en 150 | sæti. Framundan hjá Deutsche Ae- rospace er að vera leiðandi aðilinn í t samvinnuverkefni með ítölskum og » frönskum flugiðnaðarfyrirtækjum >; um smíði nýrra tveggja hreyfla far- | þegaþotna í stærðarflokknum 88-125 sæti. Þessar fyrirhuguðu þotur em kallaðar Regioliner 92 og | 122 og ef ráðist verður í smíðina | verða þær algjörlega ný hönnun í > þessum stærðarflokki. Domier 328 5 er hins vegar stærsta og fullkomn- asta flugvél sem þýskt fyrirtæki ber I eitt ábyrgð á eftir síðari heimsstyij- i öldina. Deutsche Areospace var stofnað 1 árið 1985 og er fyrirtækið að öllu f leyti í eigu Daimler-Benz. Þekkt f flugiðnaðarfyrirtæki á borð við Mess- f erschmitt, flugdeilda AEGxTelefun- I ken, hreyflafyrirtækið MTU-Motor- J en & Turbinen Union og loks Dorni- > er hafa verið keypt og sameinuð | undir hatti Deutsche Aerospace. W ' • > ; Wmi GLÆSILEG BMW 5 LINA FYRIR FÓLK SEM GERIR KRÖFUR Verð frá kr. 1,995,000.- - , U.W , A. .w»f ■UL'.* .askiaL»klLÍáÍM Hvað er það sem gerir BMW bfla áhugaverðari en aðra? BMW bílar eru kraftmeiri, sportlegri, glæsilegri, þægilegri og öruggari. BMW 5 línan er einn öruggasti bíll heims og hefur það verið staðfest með árekstrarprófunum stærsta bílatímarits Evrópu "Auto Motor und Sport" BMW - einn öruggasti bíil heims Engum líkur Bflaumboðið hf Krókhálsi 1-110 Reykjav(k-S(mi 686633 IÐNLANASJOÐUR fyrir íslenskt atvinnulíf ÁRMÚLA13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950 _________l_L.A:_:___________

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.