Morgunblaðið - 28.04.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.04.1992, Blaðsíða 3
B 3 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1992 -- " ' -------- '" ' " "" — ' ' HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Arni Sæberg Hálfdán Þórðarson skorar síðasta mark FH-inga, eftir línusendingu frá Sigurði Sveinssyni. FH-ingar náðu að stöðva kvikuhlaup Eyjamanna FH-INGAR stóðu uppi sem sig- urvegarar í æsispennandi leik gegn Eyjamönnum og kemur það í hlut þeirra að berjast um Islandsmeistaratitilinn við Sel- fyssinga. Leikurinn var mikill spennuleikur, sem tók á taugar leikmanna og dómara. Æsing- urinn var svo mikill í byrjun að leikmenn gáfu sér varla tíma til að draga andann. Eyjamenn skoruðu fyrsta markið eftir fimm mín. úr sinni sjöttu sókn- arlotu, en það tók FH-inga 10.30 mín. að skora - Hans Guðmundsson skoraði markið með skoti yfir endilangan völl- inn og var það skorað úr tíundu sóknarlotu þeirra. Eyjamenn höfðu þá skorað þrjú mörk. Krafturinn var það mikill í leik Eyjamanna í byijun, að það var eins og.um sprengjugos væri að ræða. Þeir voru SigmundurÓ. yfir, 3:0, 4:1 og 6:3 Steinansson — um miðjan fyrri skrifar hálfleikinn. Það var þá sem FH-ingar fóru að átta sig á hlutunum og náðu þeir að kæla kvikuhlaup Eyja- manna niður og stöðva rennslið að markinu. FH-ingar minnkuðu mun- inn í 6:5 og síðan jöfnuðu þeir - 8:8 og 9:9, þegar 32 sek. voru til leikshlé. Allt var á suðupunkti og æsingurinn var mikill þegar dómar- ar leiksins, Guðjón L. Sigurðsson og Hákon B. Siguijónsson dæmdu mark af FH-ingnum Sigurði Sveins- syni þegar tíminn var að renna út. Sprengjugos Eyjamanna hélt áfram í byijun seinni hálfleiks, en það stöðvaðist þegar staðan var, 12:14, og ellefu mín. búnar af hálf- leiknum. Þá skoruðu Eyjamenn ekki mark í níu mínútur, en Hans Guð- mundsson fór á ferðina og FH-ing- ar komust yfir, 17:14. A þessum kafla munaði miklu um að FH-ing- ar fóru að leika grimmt flata vörn og var eins og Eyjamenn næðu ekki að vinna á henni. Zoltan Bel- any skoraði, 17:15, fyrir Eyjamenn þegar tíu mín. voru til leiksloka, en FH-ingar svörðuðu með tveimur mörkum, 19:15, og lögðu gunninn að sigri sínum. Eyjamenn reyndu að klóra í bakkan undir lokin, en yfirhönd FH-inga var það sterk - að sigurinn var örugglega í þeirra höndum, 22:19. Eins og í fyrsta leik liðanna var handknattleikurinn ekki upp á marga físka sem boðið var upp á - spennan og þýðing leiksins hafði þar mikið að segja. Og eins og í fyrsta leiknum voru það gömlu kapparnir Guðjón Árnason og Hans Guðmundsson sem héldu merki FH-inga á lofti þegar mest á reyndi. Þeir létu Eyjamenn ekki slá sig út af laginu og skoruðu þýðingarmikil mörk þegar mest á reyndi. Eyjamenn byijuðu leikinn á mikl- um krafti; voru þá hreyfanlegir og hugmyndaríkir, en það sem munaði mestu um í sóknarleik þeirra að góður varnarleikur FH-inga kom í veg fyrir að þeir næðu að skora með langskotum. Eyjamenn skor- uðu aðeins tvö mörk með langskot- um og skoraði t.d. Gylfi Birgisson, skyttan öfluga, ekki mark í leikn- um. Eyjamenn skorðu bæði mörk sín með langskotum í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik sögðu varnar- menn FH-inga; Lok, lok og læs. Bergsveinn Bergsveirisson varði þau þijú langskot sem Eyjamenn náðu að koma framhjá varnarmúr Hafnarfjarðarliðsins. Dómgæslan í leiknum var ekki í háum gæðarflokki að þessu sinni. Það var greinilegt að dómarar leiks- ins þoldu ekki þá spennu sem mynd- aðist í troðfullu íþróttahúsinu í Kaplakrika - þeir þoldu ekki að hafa 2500 áhorfendur á bakinu og leikmenn, þjálfara og forráðamenn félaganna. Dómaramir voru því ekki öfundsverðir, enda óvanir þeirri miklu taugaspennu sem var í Hafnarfírði; eins og leikmenn lið- anna í byijun ieiksins. ■ Þeir skoruðu mörkin / B10 Dómararnir voru okkur - sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari Eyjamanna að var greinilegt að við náðum ekki að einbeita okkur full- komlega fyrir þennan leik. Þegar á hólminn var komið bárum við of mikla virðingu fyrir FH-ingum,“ sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari Eyjamanna, sem var langt frá því að vera ánægður með dómgæsluna í leiknum. „Dómararnir virtust hafa misst tökin á leiknum í lok seinni hálfleiksins — þegar FH-ingar mót- mæltu kröfturlega þegar réttilega var dæmt mark af Sigurði Sveins- syni, sem tók tvígrip áður en hann skoraði. Við fundum að eftir þetta voru dómararnir á bandi FH-inga — eins og þeir væru að bæta þeim upp að hafa dæmt markið af Sig- urði. Það var ekki sama hver átti í hlut þegar þeir dæmdu. Já, það var ekki sama hvort leikmaðurinn hét Sigbjörn eða Kristján. Dómar- arnir dæmdu fjórum sinnum á okk- ur ólöglegar blokkeringar í upphafi seinni hálfsleiksins," sagði Sigrurð- ur og bætti síðan við; „Þrátt fyrir að dómararnir hafi snúist á sveif með FH-ingum, var það betra liðið sem fór með sigur af hólmi að þessu sinni. Eg vil óska FH-ingum til hamingju með sigurinn og góðs gengi í baráttunni sem framundan er,“ sagði Sigurður. Hvernig vörðu þeir? Þannig vörðu markverðirnir - innan sviga skot, sem fóru aftur til mótheija: ANNAR LEIKUR: Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV - 13(2) 5(1) langskot, 2 hraðaupp- hlaup, 2 úr horni, 3 af línu, 1(1) vítakast. Bergsveinn Bergsveinsson, FH - 6(1) 5(1) langskot, 1 af línu. Haraldur Ragnarsson, FH - 4 2 hraðaupphlaup, 1 gegnumbrot, 1 úer homi. ÞRIÐJI LEIKUR: Bergsveinn Bergsveinsson, FH - 10 6 langskot, 4 af línu. Haraldur Ragnarsson, FH —1/1 1 vítakast. Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV - 11(2) 6(2) langskot, 2 af línu, 2 hraðaupphlaup, 1 gegnumbrot. Ingólfur Arnarson, IBV - 1/1 1 vítakast. SOKNAR- NÝTING Úrslitakeppnin í handknattleik 1992 íTbV) Annar leikur liðanna ÍVestmannaeyjum ÍBV 25- FH Möfk Sóknii % Mðrk Sókrá % 13 27 48 F.h. 9 27 33 15 26 58 S.h. 15 26 58 28 53 53 ALLS 24 53 45 9 Langskot 9 6 Qegnumbrot 1 11 Hraðaupphlaup 4 1 Hom 1 | 1 Llna 4 0 Viti 5 Þriðji leikur liðanna i (Tí Hafnarftrði 27. april FH ÍBV' MBrk Sóknir % Mórk Sóknir % 9 26 35 F.h. 9 26 35 13 24 54 S.h. 10 25 40 22 50 44 ALLS 19 51 37 6 Langskot 2 : 5 Gegnumbrot 2 3 Hraðaupphlaup 3 2 Horn 2 i 2 Lína 5 4 Viti 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.