Morgunblaðið - 28.04.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1992
B 5
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Titill íeftirrétt hjá Leeds
Reuter
Leikmenn Leeds leyndu ekki gleði sinni, þegar 3:2 sigur gegn Sheffield United var í höfn. Þeir voru komnir í nána
snertingu við Englandsmeistaratitilinn og seinna um daginn varð hann þeirra, þegar Liverpool vann Manchester United 2:0.
LEEDS vann Sheffield United
3:2 í ævintýralegum leik á
sunnudaginn, en meistaratitill-
inn var ekki f höfn fyrr en nokkr-
um stundum síðar eða eftir að
Liverpool hafði unnið Man-
chester United 2:0 á Anfield.
Howard Wiikinson, stjóri
Leeds, tók safaríka steik fram-
yfir viðureignina á Anfield, en
fékk úrslitin og titilinn í eftir-
rétt.
Þetta er í þriðja sinn, sem Leeds
verður enskur meistari í
knattspyrnu, en Don Revie stýrði
liðinu til sigurs 1969
Frá og 1974. Hins vegar
Bob hefur Wilkinson
Hennessy ekki fyrr staðið í
'Englandi efsta þrepi. Og hált
var á toppnum, sviptingar og sveifl-
ur í Sheffield.
„Hjartað hætti nokkrum sinnum
að slá í Sheffield og hjartasérfræð-
ingur hefði ekki verið ánægður með
hjartsláttinn síðustu mínúturnar.“
sagði Wilkinson. „Við hefðum ekki
getað valið erfiðari stað til að leika
á. Ég hef séð lið koðna niður á
Bramall Lane, en við stóðumst álag-
ið. Ég taldi að við gætum verið
ánægðir með jafntefli, en var ekk-
ert að segja leikmönnunum það.
Þetta tók á taugarnar, en því verð-
ur ekki neitað að guðirnir voru
okkur hliðhollir."
David Batty, miðjumaður Leeds,
var að vonum kátur. „Meistaratitil-
inn kom ekki á óvart, en fyrir
nokkrum vikum var útlitið annað.
Við settum okkur það takmark að
tryggja sæti í Evrópukeppni en að
það skuli vera Evrópukeppni meist-
araliða kemur sem bónus.“
Skotinn Gary McAllister var enn
að ná áttum. „Það síast hægt og
rólega inn að við erum meistarar."
En Frakkinn Eric Cantona lét eitt
orð nægja: „Stórkostlegt."
Sonur Wilkinsons horfði á leik
Liverpool og Manchester United í
sjónvarpinu og færði honum tíðind-
in frá Anfield. „Þetta er í raun ótrú-
legt. En engu að síður staðreynd
Draumur að veruleika
ÍÞfóniR
FOLK
■ LEEDS, sem varð Englands-
meistari í þriðja sinn, hefur fimm
sinnum hafnað í öðru sæti og varð
bikarmeistari 1972. Liðið lék til
úrslita í Evrópukeppni meistaraliða
1975 og Evrópukeppni bikarhafa
1973. Það sigraði tvisvar í Evrópu-
keppni félagsliða (sem þá hét Fairs
Cup).
■ LEEDS féll í 2. deild 1982 og
tryggði sér ekki aftur sæti í 1. deild
fyrr en 1990.
■ LUTON bjargar sér frá falli
með því að sigra Notts County á
útivelli og jafnframt verður Co-
ventry að tapa fyrir Aston Villa.
Luton hefur ekki sigrað á útivelli
á tímabilinu.
■ ARSENAL hefur ekki sigrað
áStanford Bridge í.sex ár.
I ÞORVALDUR Örlygsson var
í byijunarliði Nottingham Forest,
sem gerði 1:1 jafntefli við QPR,
en var skipt útaf.
■ DES Walker kvaddi stuðnings-
menn Forest, en hann leikur með
ítalska liðinu Sampdoria á næsta
tímabili.
■ UM 26.000 áhorféndur sáu
Newcastle vinna Portsmouth.
Tryggð stuðningsmanna við Newc-
astle þykir með ólíkindum, en liðið
er að berjast við að falla ekki í 3.
deild.
Howard Wilkinson sagði að
sunnudagurinn liði sér aldrei
úr minni. „Þetta er hápunkturinn á
starfsferlinum — einn af gömlu
draumunum varð að veruleika. Þeg-
ar ég var 24 ára taldi ég mér fyrir
bestu að gerast framkvæmdastjóri,
því sem leikmaður átti ég enga
framtíð fyrir mér.“
Wilkinson sagði að Alex Fergu-
son, sljóri Manchester United, ætti
alla samúð sína. „Ég veit hvað hann
hefur farið í gegnum og hvernig
honum líður. Það fór með Manc-
hester United að þurfa að leika fjóra
leiki á sex dögum. Það er sjálfs-
morði líkast og óréttlátt."
Um árangur Leeds sagði stjórinn:
„Ef einhveiju er að þakka má segja
að við héldum okkur við áætlunina,
sem við settum okkur í byijun.
Hugarfarið var rétt og við trúðum
allan tímann á það, sem við vorum
að gera. Ég fór aðeins framá það
að leikmennirnir gerðu sitt besta
og gerðu þeir það myndu þeir upp-
skera eins og til væri sáð.“
Peter Lorimer, sem var í sigur-
sælu liði Leeds á áttunda áratugn-
um, tók þátt í gleðinni í Leeds. „Ég
er viss um að fjölskylda Dons (Revi-
es, sem lést 1989), hugsar til hans
á þessari stundu og þeirra afreka,
sem hann vann. Stuðningsmennim-
ir áttu þetta skilið. Þeir hafa beðið
lengi eftir þessu.“
Norman Hunter, fyrrum leikmað-
ur Leeds, tók í sama.streng. „Strák-
amir stóðu sig með sóma og slepptu
ekki tækifærinu, þegar það gafst.
Ég mati^ hvað við glöddumst þegar
titlar vom í höfn og það er sárt að
Don skuli ekki vera á meðal okkar
til að samgleðjast. Draumur hans
var að sigra í Evrópukeppni meist-
araliða. Við fómm í úrslit, en náðum
ekki að sigra. Hugsanlega getur
þetta lið látið drauminn rætast, fyr-
ir leikmennina og Don.“
Gascoigne og Gary
Lineker heiðraðir
Paul Gascoigne og Gary Lineker voru kallaðir út á völl fyrir leik
Tottenham og Everton og þeim færðar gjafir fyrir vel unnin störf
í þágu félagsins. Gascoigne er á leið til Ítalíu og leikur ekki meira
með Spurs, en Lineker, sem er á förum til Japans, spilaði í síðasta sinn
á White Hart Lane. Þeir fengu m.a. eftirlíkingar af bikarnum, sem
veittur er fyrir sigur í ensku bikarkeppninni, frá Tottenham.
Uppselt var á leikinn og vom um 6.000 manns fyrir utan, sem
komust ekki inn. Vegna örtraðarinnar hófst leikurinn stundarfjórðungi
síðar en áætlað var.
Reuter
Gascoigne og Lineker.
og tilfellið er að enginn getur gert
meira en hann getur og við höfum
staðið okkur vel í allan vetur. Þetta
er góður endir og dásamlegur eftir-
réttur."
Manchester United var með
pálmann í höndunum þar til í síð-
ustu viku, þegar liðið tapaði fyrir
Þorvaldi Örlygssyni og samheijum
í Nottingham Forest og síðan fyrir
fallliði West Ham. Liverpool gerði
síðan endanlega út um vonir United
á titlinum. „Lokin hjá okkur eru
gífurleg vonbrigði," sagði Alex
Ferguson, „en hinu er ekki að leyna
að Howard Wilkinson stóð sig mjög
vel. Þetta er stór sigur fyrir hann.
Leeds og Manchester United byij-
uðu mjög vel, fóm strax á toppinn
og voru þar allt tímabilið. Arsenal
byijaði illa en leikur vel um þessar
mundir. Mönnum er refsað fyrir
mistök og því má ekkert út af
bregða ætli menn sér sigur í þess-
ari erfiðu deild."
Sheffield Wed. í Evrópukeppni
Mark Bright, miðheiji Crystal
Palace, jafnaði 1:1 gegn Sheffield
Wednesday, þegar tvær mínútur
voru til leiksloka á laugardaginn.
Þar með var Sheffíeld úr leik í bar-
áttunni um meistaratitilinn, en jafn-
teflið tryggði sæti í Evrópukeppni
félagsliða í haust, þar sem Arsenal
náði aðeins jafntefli gegn Chelsea.
„Við leyfðum okkur ekki þann
unað í byijun tímabilsins að láta
okkur dreyma um Evrópusæti,“
sagði Trevor Francis, stjóri Sheffí-
eld.
Arsenal hefur leikið 16 leiki í röð
án taps, en George Graham var
ekki ánægður eftir jafnteflið á
Stamford Bridge. „Þetta var hörm-
ulegur leikur, sérstaklega í fyrri
hálfleik. Völlurinn var ekki mönn-
um bjóðandi og ógerlegt að láta
boltann ganga á milli þriggja
manna.“
Coventry vann West Ham 1:0 og
sendi West Ham þar með endanlega
niður en er enn í fallhættu. „Við
erum niðri,“ sagði Billy Bonds. „Það
er staðreynd, sem hefur legið í loft-
inu í marga mánuði."
Luton vann Aston Villa 2:0 og
heldur enn í vonina um að bjarga
sér frá falli á síðustu stundu fjórða
árið í röð. „Ef við hefðum sigrað í
aðeins einum útileik værum við
ekki í þessari stöðu," sagði David
Pleat, stjóri Luton.
Notts County taði og féll þar
með í 2. deild, en Ipswich tryggði
sér sigur í 2. deild með 1:1 jafn-
tefli gegn Oxford.
Newcastle vann Portsmouth 1:0
og fór af fallsvæði 2. deildar, en
David Kelly skoraði, þegar fímm
mínútur voru til leiksloka.
bfiúm
FOLK
■ MICKQuinn, markahæsti leik-
maður Newcastle undanfarin ár,
hefur hins vegar fengið sig fullsadd-
an. „Ég fer í sumar. Keegan á
margt ólært í sambandi við stjóm-
un.“
■ KENNY Dalglish fagnaði loks
sigri hjá Blackburn, 2:1 gegn
Millwall í 2. deild. Þetta var fyrsti
sigurinn íi síðustu átta leikjum, en
liðið virðist ekki ætla að ná tak-
markinu — að leika um sæti í 1.
deild.
■ ROBERT Fleck var kjörinn
besti leikmaður félagsins á tímabil-
inu. Hann hefur oftast verið nefnd-
ur sem eftirmaður Gary Linekers
hjá Tottenham, en Norwich vill
fá um 200 millj. ÍSK fyrir kappann.