Morgunblaðið - 28.04.1992, Side 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI k IRt>RIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1992
ANDRESAR ANDARLEIKARNIR
Vel heppnaðir
Andrésarleikar
- þrátt íyrir leiðinlegtveður í Hlíðarfialli
Alaugardaginn lauk á Akureyri
17. Andrésar Andarleikunum.
Að þessu sinni mættu um sjöhundr-
uð böm til keppni
og má reikna með
Rn'k’s’son að a leikana hafi
skrifar komið yfir eitt þús-
und manns þegar
fararstjórar og aðstandendur em
taldir með. „Veðrið gerði okkur
svolítið erfitt fyrir að þessu sinni
en í heildina gekk þetta nokkuð vel
og hægt var að keppa í öllum grein-
um. Því miður þá urðum við þó að
fella niður aðra ferðina í tveimur
greinum en við því var ekkert að
gera,“ sagði Gísli Kristinn Lórenz-
son formaður Andrésarnefndar að
loknum leikunum.
Veðrið fyrstu tvo daga mótsins
var þokkalegt þó oft hafi það verið
betra en þegar fólk vaknaði á laug-
ardagsmorguninn var komin mikil
hríð á Akureyri og gekk fólki erfið-
lega að komast upp í Hlíðarfjall og
því þurfti að seinka keppni nokkuð
á laugardaginn og af þeim sökum
var ekki hægt að slíta leikunum á
tilætluðum tíma. En það var ekki
að sjá að það hefði áhrif á krakk-
ana því í þeirra augum þá voru
Andrésarleikamir örlítið lengri fyrir
vikið.
„Ég er mjög ánægður með leik-
ana í heild og held ég að við getum
vel við Unað. Það er alltaf hápunkt-
ur vetrarins hjá okkur að halda
þetta mót — og alltaf jafngaman
að standa að þessu. Krakkarnir eru
líka alltaf mjög ánægðir með mótið
og það er okkur mjög mikils virði.
Að lokum þá langar mig að koma
kveðju til allra keppenda og farar-
stjóra, með þakklæti fyrir ánægju-
lega daga hér fyrir norðan. Þá vil
ég síðast en ekki síst þakka öllum
þeim sem starfað hafa að þessu
móti með okkur, en vinna þeirra
er ómetanleg og það er víst að
mótið hefði ekki tekist eins vel og
raun bar vitni nema með góðu
starfsfólki," sagði Gísli Kristinn að
lokum.
■ Úrslit / B11
Morgunblaðið/Reynir
Lísebet
sigraði
tvö-
faltí
göngu
Lísebet Hauksdóttir
frá Ólafsfirði sigr-
aði í hefðbundinni
göngu og einnig með
frjálsri aðferð í flokki
11 ára.
„Ég hef keppt á
Andrés síðan ég fékk
aldur til, en þetta er
fyrsta árið sem ég vinn.
Ég hef æft mjög vel í
vetur og var ákveðin í
að leggja mig alla fram
í keppninni til þess að
sigra en ég bjóst nú
ekki að ná að sigra, en
það tókst. Ég er mjög
ánægð með sigurinn og
er ákveðin í því að æfa
af fullum krafti á kom-
andi árum,“ sagði Líse-
bet að lokum.
Hélt uppá
afmælis-
daginn
með sigri
Kolbrún Jóhanna Rúnars-
dóttir frá Seyðisfirði hélt
uppá ellefu ára afmælisdaginn
með því að sigra í svigi 10 ára
stúlkna. „Ég bjóst nú ekki við
að vinna þetta mót, en það tókst
og er ég mjög ánægð með ár-
angurinn. Ég hefkeppt á Andrés
áður en sigurinn í dag er sá
fyrsti sem ég vinn á Andrésar-
leikum. Það er alveg ofsalega
gaman að koma hingað á Andr-
és og hitta alla krakkana sem
eru að keppa. Ég er strax farin
að hlakka til að koma hingað
að ári liðnu og keppa,“ sagði
Kolbrún og fór að tala við vin-
konur sínar sem höfðli safnast
um hana til að óska henni til
hamingju með verðlaunin.
Kolbrún
Lítið
getað
ívetur
Hallur Þór Hallgrímsson frá
Húsavík sigraði í svigi 10
ára. „Þetta er í þriðja skiptið sem
ég keppi á Andrés og er það alltaf
jafn gaman. Ég hef aldrei unnið
áður og bjóst ekki við að geta það
að þessu sinni. Ég hef mjög lítið
getað æft í vetur vegna þess að það
hefur nær enginn snjór verið á
Húsavík í vetur, en það kom ekki
að sök, ég náði að sigra. Ég vona
bara að það verði meiri snjór næsta
vetur svo maður geti æft af krafti
áður en kemur að næstu Andrésar-
leikum," sagði Hallur Þór.
Hallur Þór Hallgrfmsson.
Morgunblaðið/Reynir
Morgunblaðiö/Reynir
Margrét Krlstinsdóttlr.
Fyrsti
sigurinn
á Andrés
Margrét Kristinsdóttir frá Nes-
kaupsstað sigraði í svigi og
stórsvigi 12 ára og var mjög ánægð
eftir að hafa tekið á móti verðlaun-
um sínum. „Þetta var alveg frá-
bært mót og gaman að enda ferilinn
á Andrés með tvöföldum sigri en
ég hef tekið þátt í fimm Andrésar-
leikum og aldrei sigrað fyrr. Ég hef
æft mjög vel í vetur og hef farið á
skíði alla þá daga sem hægt hefur
verið að fara.
Þetta er síðasta árið sem ég keppi
á Andrés og á ég örugglega eftir
að sakna þess í framtíðinni. A
næsta ári byrja ég að keppa í ungl-
ingaflokkum og er þegar farin að
hlakka mikið til,“ sagði Margrét
Kristinsdóttir.