Morgunblaðið - 08.05.1992, Side 1

Morgunblaðið - 08.05.1992, Side 1
72 SIÐUR B/C/D 103. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tadzhíkístan; Nabiyev flýr frá völdum Dushanbe. Reuter. RAKHMON Nabiyev forseti Tadzhíkístans flýði úr þinghúsi landsins i gær og sögðust stjórnarandstæðingar hafa náð völdum í landinu eftir öflug mót- mæli sem staðið hafa vikum sam- an. Að sögn sjónarvotta sásttil Nabi- yevs á flótta úr höfuðborginni, Dushanbe, en ekki var vitað hvert förinni var heitið. Leiðtogar stjórn- arandstöðunnar töldu þó líklegra að hann hefði ekki farið lengra en í höfuðstöðvar fyrrum sovésku leyn- ilögreglunnar, KGB, sem fjölmenn- ar og vel vopnum búnar hersveitir honum hliðhollar stóðu enn vörð um í gær. Að sögn útvarpsins í Dushanbe stofnuðu samtök stjórandandstæð- inga byltingarráð sem tók við völd- um í Mið-Asíulýðveldinu í gær. Þúsundir stuðningsmanna upp- reisnarmanna fögnuðu flótta Nabi- yevs á götum Dushanbe og kröfð- ust stofnunar íslamsks ríkis í Tadz- híkístan. Sjá „Valdabarátta milli þjóðar- brota. . .“ á bls. 22. Táknræn endalok kalda stríðsins Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum forseti Sovétríkjanna, flutti í fyrradag ræðu við Westminster-háskólann í Fulton í Missouri í Bandaríkjunum og hvatti til lýðræðislegrar þróunar um allan heim. Kvað hann einnig vera vaxandi skilning á nauðsyn eins konar heimsstjórnar, sem allar þjóðir ættu aðild að. Ræðuna flutti hann í sama púltinu og Winston heitinn Churchill, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, notaði fyrir 46 árum en þá nefndi hann járntjaldið á nafn fyrstur manna og vakti athygli á þeirri nýju heimsmynd, sem við blasti að heimsstyijöldinni lokinni. Hefur sú ræða oft verið höfð til marks um upphaf kalda stríðsins. Styttuna af Churchill gerði barnabarn hans, myndhöggvarinn Edwina Sandys. Sjá „Gorbatsjov hvetur til lýðræðislegrar þróunar um allan heim“ á bls. 22. Verkföll leysast í Þýskalandi Samið um 5,4% launahækkun Stuttgart. Reuter. LENGSTA verkfalli opinberra starfsmanna í Þýskalandi var aflýst í gærkvöldi eftir að sam- tökin höfðu gengið að nýju til- boði um launahækkanir sem samningamenn ríkisstjórnar- innar lögðu fram síðdegis í gær. Tilboð ríkisstjórnarinnar til lausnar verkfallinu felur í sér að lágt launaðir ríkisstarfsmenn fá 5,4% launahækkun frá 1. maí en þeir sem betri laun hafa frá 1. júní. Einnig fá láglaunamenn 750 marka eingreiðslu, jafnvirði 27000 ISK, en hinir 600 marka. Auk þess fá allir opinberir starfsmenn sérstaka 200 marka orlofsuppbót. Hátekjumenn í röðum opinberra starfsmanna fá enga eingreiðslu. Leiðtogar opinberra starfs- manna hvöttu félagsmenn til þess að samþykkja launatilboðið og er búist við að atkvæðagreiðsla með- al launþega verði aðeins formsatr- iði. Verkföllin höfðu staðið í 11 daga og lamað almenningssam- göngur og flugumferð. Reuter Bush kynnir sér eyðilegginguna George Bush Bandaríkjaforseti kynnti sér eyðilegginguna af völdum óeirðanna í Los Angeles í gær og var myndin tekin er hann gekk umkringdur öryggisvörðum um rústir miðbæjar Crenshaw-hverfisins. Víða áttu kröftug mótmæli sér stað á leið forsetans. Jeltsín stofnar rússnesk- an her með tilskipunum Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti stofnaði rússneskan her í gær með sérstakri forsetatilskipun og útnefndi sjálfan sig sem yfirmann hans, að sögn /tar-Tass-fréttastof- unnar. Rússneska þingið sam- þykkti í síðasta mánuði lagaupp- kast um stofnun sérstaks rúss- nesks hers er tæki við hlutverki fyrrum herja Sovétríkjanna sál- ugpi á rússnesku yfirráðasvæði. I tilskipun Jeltsín sagði að hlut- verk rússnesku heijanna yrði að veija frelsi og sjálfstæði Rússlands svo og tryggja öryggi landsins og fullveldi. Undir herinn munu fallsr allar stofnanir og öll mannvirki fyrr- um sovéthersins í Rússlandi svo og hersveitir og flotadeildir undir rússn- eskum yfirráðum sem staðsettar eru utan landamæra Rússlands. Þar á meðal eru hersveitir í Eystrasalts- ríkjunum, Póllandi og austurhluta Þýskalands. Jeltsín gaf út sérstaka tilskipun þar sem hann útnefndi sjálfan sig sem æðsta yfirmann rússneska hers- ins. Áður hefur hann tekið við starfi varnarmálaráðherra en í þriðju til- skipuninni sem hann gaf út í gær veitti hann ofurstanum Pavel Gratsjev herforingjatign og útnefndi hann sem fyrsta aðstoðarvarnar- málaráðherra., Fól hann Gratsjev yfirstjórn hersins þar til gengið hef- ur verið frá skipan herforingjaráðs. { kjölfar hruns Sovétríkjanna og stofnunar Samveldis sjálfstæðra ríkja vísaði Jeltsín kröfum um stofn- un sérstaks rússnesks hers á bug og hét stuðningi Rússa við að sovét- herinn fyrrverandi yrði fluttur undir sameiginlega yfirstjórn samveldis- ríkjanna. I tilskipuninni sagði að kjarnorkuherafli Rússa yrði áfram Kemur þetta fram í grein sem Jay Schneider, prófessor í tauga- lækningum við Hahnemannhá- skólann, skrifar í nýjasta hefti vísindaritsins Science. Þar kemur fram að tilraunir á öpum sýndu að hugsanlega væri hægt með lyfjameðferð að gera heilanum kleift að framleiða dóp- amín en með aldrinum dregur smám saman úr framleiðslu þess. Skortur á dópamíni kallar fram einkenni Parkinsonsveiki. í tilraununum við Hahnemann- háskólann var Parkinsonsveikum öpum gefið efnið GMl ganglioside og sýndu þeir áberandi batamerki á sama tíma og apar sem engin undir sameigirtlegri yfírstjórn sam- veldisríkjanna. Jeltsín hefur hins vegar neyðst til að skipta um skoðun vegna tilrauna annarra samveldis- ríkja, einkum Úkraínu, til stofnunar eigin heija. lyf fengu löguðust ekkert. Segir Schneider í greininni að ávinning- urinn af GMl virðist sá að efnið endurreisir taugaboðsflutning skemmdra taugafruma. í samtali við Morgunbtaðið sagði prófessor Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur í taugasjúkdómum, að hér væri um áhugaverðar fréttir að ræða og tilraunir sem virtust lofa góðu. Efnið væri ekki notað við meðferð Parkinsonssjúklinga og varhuga- vert væri að binda of miklar vonir við það meðan einungis væri um tilraunir á öpum að ræða. Bíða yrði eftir mælingum á áhrifum þess á menn. Parkinsonsveiki snúið við í öpum VISINDAMENN við taugalækningadeild Hahnemannháskólans í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hafa fundið leið til að meðhöndla og jafnvel lækna Parkinsonsveiki, sjúkdóm sem smám saman dregur úr hæfni mannsins til að hafa stjórn á hreyfingum sínum, að því er sagði í frétt Ifeufei's-fréttastofunnar í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.