Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 4

Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 VSI felldi miðluiiar- tillögn fyrir f SAL Framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands íslands felldi miðl- unartilögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu VSÍ vegna íslenska álfé- lagsins og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga. Framkvæmdastjórnin samþykkti aðrar miðlunartilögur samhljóða í atkvæðagreiðslu sem fór fram 5. og 6. maí. Miðlunartillögur sáttasemjara voru sjö talsins. Aðalltillagan var í kjaradeilu Alþýðusambandsins og VSÍ, Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna, Meistara og verk- takasambands byggingarmanna, Reykjavíkurborgar, Kópavogs- kaupstaðar og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Önnur var í deilu VSÍ vegna Áburðarverk- smiðju ríkisins og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga. Þriðja í deilu Ál- versins og verkalýðsfélaga, fjórða í deilu VSÍ vegna íslenska jám- blendifélagsins og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga. Fimmta tillagan var í deilu VSI vegna Kísiliðjunnar við Mývatn og hlutaðeigandi verk- alýðsfélaga, sjötta tillagan var í deilu VSÍ vegna Sementsverk- smiðju ríkisins og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga, og sú sjöunda í deilu VSÍ vegna Steinullarverk- smiðjunnar og hlutaðeigandi verk- alýðsfélaga. Framkvæmdastjórn VSÍ hafði atkvæðisrétt um tillögurnar en þar sitja 20 manns. 18 tóku þátt í kosningunni og voru sex tillagn- anna samþykktar með 18 sam- hljóða atkvæðum. Tillagan sem beindist að ÍSAL var hins vegar felld með 15 atkvæðum en þrír seðlar voru auðir. Ríkissáttasemjari mun ekki birta formlega úrslit atkvæða- greiðslu verkalýðsfélaganna um miðlunartillögumar fyrr en í dag. ■■■■■■■ tffv' . 'S. ... ..% Krían í Tjarnarhólmann Morgunblaðið/Emilía Fyrstu kríurnar sáust við Tjörnina í Reykjavík í fyrrakvöld. Krían er vön að koma í byijun maí. í fyrra kom hún 4. maí, eða tveimur dögum fyrr en í ár. VEÐUR Kvikmyndahátíð hafin í Cannes; VEÐURHORFUR I DAG, 8. MAI YFIRLIT: Skammt suðaustur af Hornafirði er 990 mb lægð sem hreyfist austur, en yfir vestanverðu Grænlandi er heldur vaxandi hæðarhryggur. SPÁ: Vaxandi norðanátt á tandinu, víða stinningskaldi í nótt, en í fyrra- málið lægir vestantil. Éljagangur verður um landið norðanvert, en syðra léttir til. Afram verður kalt í veðri, og allvíða má búast við næturfrosti. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg norðlæg átt. Smáél við norðaustur- ströndina, en þurrt og víða bjart veður annarstaðar. Frostlaust sunnan- lands að deginum, annars 0 til 5 stiga frost. HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg átt. Þurrt og bjart veður um mest allt land. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en víða nokkuð næturfrost. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V EI — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur |~^ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hitl 0 3 veður alskýjað skýjafl Bergen 2 rigníngogsúld Helsinki 13 'skýjað Kaupmannahöfn 14 rignlng Narssarssuaq +7 léttskýjaö Nuuk *r6 alskýjað Ósló 13 skýjað Stokkhólmur 15 rigning Algarve 25 léttskýjað Amsterdam 15 súidásíð.klst. Barceiona 20 léttskýjað Berlm 16 alskýjað Chicago 4 heiðskírt Feneyjar 23 léttskýjað Frankfurt 20 skýjað Glasgow 11 rigningog súid Hamborg 14 rigning London 19 léttskýjað Los Angeles 17 alskýjað Lúxemborg 18 léttskýjað Madríd vantar Malaga 21 skýjað Mallorca 24 léttskýjað Montreal 8 léttskýjað New York vantar Orlando vantar París 21 skýjað Madeira 19 skýjað Róm 23 léttskýjað Vín 20 skýjað Washington vantar Winnipeg 11 skýjað Fjórar íslenskar kvikmyndir sýndar Cannes, frá Þorfinni Ómarssyni fréttaritara Morgunblaðsins FJÓRAR íslenskar kvikmyndir verða sýndar á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi, sem sett var í 45. skipti í gærkvöld. Tvær þeirra, Svo á jörðu sem á himni, eftir Kristínu Jóhannesdóttur, og Ingaló á græum sjó, eftir Ásdísi Thoroddsen, eru innan aðaldag- skrár hátíðarinnar, en það hefur ékki gerst síðan Atómstöðin var sýnd hér árið 1984. Kvikmyndahátíðin í Cannes, sem er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, gerir Norðurlöndunum sérstök skil að þessu sinni. Ein kvikmynd er sýnd frá hverju landi, utan Finnlands. Þetta eru fyrstu verkin sem styrkt voru af Kvik- mynda- og sjóvarpssjóði Norður- landanna, en fulltrúi íslands er Svo ájörðu sem á himni. Kristín Jóhann- esdóttir, leikstjóri myndarinnar, sagði í gær undirbúning og kynn- ingu vera að smella saman. Myndin verður frumsýnd næsta mánudag, en síðan tvisvar til viðbótar. Vegna réttindaákvæða þurfti að breyta erlendum titili myndarinnar og heit- ir hún „Sur terre“ (Á jörðu) á frönsku, en „As in Heaven" (Sem á himni) á ensku. „Mér finnst bæði rétt og fallegt að skipta titlinum upp á milli þessara tveggja menn- ingarheima. „Sur terre" hljómar betur á frönsku, en „As in Heaven“ er fallegra á ensku,“ sagði Kristín. Hún kvaðst eftir á að hyggja vera ánægð með að hafa breytt titlinum, því tilvísun hans hefði hugsanlega farið fyrir bijóstið á kaþólikkum í Frakklandi. Ingaló, eftir Ásdísi Thoroddsen, tekur þátt í dagskrá kvikmynda- gagnrýnenda á hátíðinni. Sex aðrar myndir eru í dagskránni og keppa þær um tvenn peningaverðlaun. Auk þess keppir Ingaló um Caméra d’Or-verðlaunin, sem veitt eru fyrir bestu frumraun leikstjóra. Þá verður sýnd hér á hátíðinni kvikmyndin Sögur frá norðurslóð- um, sem er þrískipt mynd frá ís- landi, Færeyjum og Grænlandi. Kristín Pálsdóttir leikstýrði íslenska hlutanum. Fjórða íslenska myndin er Börn náttúrunnar, sem sýnd er á markaði dreifingaraðila. 20 kvikmyndir keppa um gull- pálmann eftirsótta. Þar á meðal er Sigutjón Sighvatsson framleiðandi tveggja mynda, „Twin Peaks: A Fire Walks With Me“, eftir David Lynch og „A Stranger Among us“, í leikstjórn hins annálaða Sidney Lumet með Melanie Griffith í aðal- hlutverki. Félag bókagerðarmanna og FÍP: Nýr kjarasamn- ingnr undirritaður FÉLAG bókagerðarmanna og Félag íslenska prentiðnaðarins undir- rituðu nýjan kjarasamning sl. miðvikudag með fyrirvara um sam- þykki félagsmanna. Að sögn Þóris Guðjónssonar, formanns Félags bókagerðarmanna, er allt meginefni kjarasamningsins byggt á miðl- unartillögu ríkissáttasemjara m,a. hvað varðar 1,7% launahækkun, launabætur, orlofsuppbót og gildistíma til 1. mars 1993. Fundur hefur þegar verið haldinn meðal félagsmanna í Reykjavík en samningurinn verður lagður fram í aðildarfélögum á Akureyri og Akra- nesi um helgina. Verður niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn ljós á mánudagskvöld. Félag bókagerðarmanna var ekki aðili að miðlunartillögu ríkissátta- semjara „Við sáum enga ástæðu til að biðja sáttasemjara að senda okk- ur miðlunartillöguna til þess eins að vera með sama kerfi og aðrir. Við göngum bara frá þessu með venjubundnum hætti og tökum af- stöðu til samningsins eins og við erum vön,“ sagði Þórir Guðjónsson, formaður Félags bókagerðarmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.