Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
9
Hjartans þakkir til allra vina minna, sem
heiðruðu mig og glöddu á 80 ára afmœli mínu
16. apríl síðastliðinn.
Asdís Káradóttir,
Furugrund 58,
Kópavogi.
ARKITEKT RÁÐLEGGUR
UM LITVAL í MÁLARANUM
Valgerður Matthíasdóttir arkitekt veitir
viðskiptavinum Málarans ókeypis ráðgjöf um
litaval í málningu og viðarvörn
fimmtudag og föstudag klukkan 13-18 og
laugardag klukkan 10-13.
Verið velkomin í Málarann og þiggið ókeypis
ráðgjöf Valgerðar.
Málarinn
Grensásvegi 11 Sími 81 35 00
Tilkynning frá gatnamálastjóra um
hreinsunardaga í Reykjavík vorið 1992
Sérstakir hreinsunardagar verða laugardagarnir 9. og
16. maí og verða ruslapokar afhentir í hverfastöðvum
gatnamálastjóra.
Eftir hreinsunardagana munu starfsmenn Reykjavíkur-
borgar fara um hverfi borgarinnar og hirða upp poka
og rusl.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl eru gámar á eftir-
töldum stöðum:
Ánanaust móts við Mýrargötu.
Sléttuveg í Fossvogi.
Sævarhöfða móts við malbikunarstöð.
Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Jafnasel í Breiðholti.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík,
hreinsunardeild.
Reykjavík, 4. maí 1992.
Burt með sam-
keppnishömlur
Viðskiptaráðherra
sagði:
„Vaxandi skilningur er
hér á landi sem annars
staðar í Evrópu á mikil-
vægi virkrar samkeppni
til að stuðla að hag-
kvæmri nýtingu fram-
leiðsluþátta og efnahags-
legum framíorum. Eins
og fram hefur komið
hefur samkeppni hér á
landi aukist i ýmsum
greinum á siðustu árum,
en mikið vantar á að hún
sé fullnægjandi. Með
þessu frumvarpi er að
því stefnt að efla virka
samkeppni enn frekar á
þeim sviðum, þar sem
hún getur bezt tryggt
liag neytenda, atvinnu-
lifsins og þjóðfélagsins í
heild. Það er gert með
þvi að skerpa þær sam-
keppnisreglur, sem nú
eru í gildi, auka gagnsæi
markaðarins og draga
úr opinberum samkeppn-
ishömlum.
Með þessu frumvarpi
er þó aðeins með óbein-
um hætti hægt að stuðla
að síðast talda atriðinu,
þar sem opinberar sam-
keppnishömlur, t.d. inn-
flutningsbönn, tæknileg-
ar viðskiptahindranir
verðlagning búvöru,
verðlagning lyfja, vá-
trygginga o.fl., eru bund-
in í öðrum lögum, sem
endurskoða þarf sérstak-
lega. Ég á þó von á þvi
að skilningur á nauðsyn
virkrar samkeppni á
þessum sviðum eigi eftir
að aukast og í frumvarp-
inu er gert ráð fyrir að
samkeppnisyfirvöld geti
komið á framfæri ábend-
ingum við stjórnvöld um
ákvæði laga og stjórn-
valdsfyrirmæla sem
stríða gegn markmiði
þessara Iaga.“
Samkeppni
efld
„í gildandi lögum hafa
bein verðlagsafskipti
verið i fyrirrúmi, en sam-
kvæmt frumvarpinu
munu þau heyra til und-
antekninga. Þess i stað
Samkeppnin bætir lífs-
kjorin
„Réttar leikreglur um samkeppni geta
haft gífurleg áhrif til bættra lífskjara al-
mennings og stuðlað að hvers konar
hagræðingu í rekstri fyrirtækja. Reglur
sem vinna gegn einokun og hringamynd-
un, sem vinna gegn samþjöppun efna-
hagslegs valds og sem setja seljendum
vöru og þjónustu leikreglur um sam-
skipti við neytendur vernda hagsmuni
hvers einasta manns í landinu og bæta
lífskjör hans.“ Þannig komst Jón Sigurðs-
son að orði þegar hann mælti fyrir stjórn-
arfrumvarpi til samkeppnislaga.
er megináherzla lögð á
að ná höfuðmarkmiði
lagaima um hagkvæm-
ustu nýtingu framleiðslu-
þátta með eflingu virkr-
ar samkeppni ...
Lögin taka til viðskipta
hér á landi, en ekki til
samninga, skilmála og
athafna sem ætlað er
hafa álirif utan íslands.
Verði samningurinn um
Evrópska efnahagssvæð-
ið fullgiltur hér á landi
fylgja honum kvaðir um
lögfestingu samkeppnis-
reghia, sem gilda eiga í
viðskiptum milli ríkja á
markaðssvæðinu. Islenzk
samkeppnisyfirvöld
myndu með því öðlast
möguleika til þess að
hafa afskipti af ýmsum
atriðum er vai-ða inn-
flutning til íslands, t.d.
af sanmingum milli fyrir-
tækja á markaðssvæðinu,
sem ætlað er að hafa
áhrif hér á landi, en vitað
er um ýmis konar fyrir-
komulag sem hækkað
hefur innflutningsverð til
Islands svo sem að dönsk
fyrirtæki hafi frá fornu
fari einkaumboð fyrir
innflutning frá þriðja ríki
til Islands og þiggi fyrir
það umboðslaun."
Markaðsráð-
andi fyrirtæki
„I gildandi löguin eru
nokkrai’ tegundir sam-
keppnishamla bannaðar.
Samkvæmt frumvarpinu
er gert ráð fyrir að fjölga
slíkum bönnum, þannig
að þær samkeppmshöml-
ur, sem að fenginni
reynslu eru ótvírætt
skaðlegar, verði bannað-
ar. Það felur í sér að
samningar, samráð og
aðrar samstilltar aðgerð-
ir um verð, gerð tilboða
og markaðsskiptingu
verða bannaðar. Bann
við markaðsskiptingu er
nýmæli og einnig bann
við útgáfu ýmissa starfs-
stétta á sameiginlegum
verðtöxtum. Það er einn-
ig nýmæli að seljandi
vöru getur ákveðið það
verð sem endurseljandi
má hæst verðleggja vör-
una á ...
Einnig er lagt til að
heimiluð verði íhlutun í
aðrar tegundir athafna,
sem skaðleg áhrif geta
haft á samkeppni fyrir-
tækja. Þar er um að ræða
heimildir til íhlutunar
gegn misbeitingu mark-
aðsráðandi fyrirtækja á
aðstöðu sinni. Almennt
er viðurkennt að fylgjast
þurfi sérstaklega vel með
þessari tegund sam-
keppnishamla, en það
hefur sýnt sig að vera
erfitt, í framkvæmd ...
Hér er lagt til að íhlut-
un eigi sér stað að undan-
gengnu mati á einstökum
tilvikum og er það sami
háttur og hafður er á í
fámennari samstarfsríkj-
um okkar í EFTA. Mark-
aðsyfirráð sem slík eru
ekki bönnuð, en það er
matsatriði samkeppnis-
yfirvalda í hverju ein-
stöku tilviki hvort og að
hvað miklu leyti er um
misbeitingu að ræða...
Lagt er til að sam-
keppnisráð hafi heimild
til þess að baima sam-
runa fyrirtækja eða yfir-
töku fyrirtækis á öðru
fyrirtæki, ef það dregur
venilega úr samkeppni á
markaðinum ... Sama á
við ef eigendur með virk
yfirráði í einu fyrirtæki
ná virkum yfii-ráðum i
öðru fyrirtæki eða það
sem ég nefni „de facto“
yfirtöku. Eftirlit með
samruna eða yfirtöku
fyrirtækja er nátengt eft-
irliti með misbeitingu á
markaðsyfin'áðum."
STEINAR WAAGE
kr. 2.995,-
Ath.: Léttir og liprir Stærðir: 31/2-71/2
gönguskór Litur: hvítur
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Toppskórinn,
Veltusundi,
sími 21212
V ________
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
simi 689212
SlMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
FÖSTUDAGUR TIL FJÁR
TÖLVUELDHÚSVOG
í DAG
KOSTNAÐARVERÐI
byggt&bOið
I KRINGLUNNI