Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 10 Einleikstónleikar í Listasafni Islands: Hressandi tilbreyt- ing að spila á íslandi — segir bandaríski píanóleikarinn Beth Levin í kvöld heldur bandaríski píanóleikarinn Beth Levin ein- leikstónleika í Listasafni íslands. Á efnisskránni eru verk eftir Mozart, Beethoven, Ravel og Schumann. Þetta er í fyrsta skipti sem Beth heldur einleikstónleika á íslandi, en áður hefur hún leikið hér með Trio Borealis. Beth Levin fæddist í Fíladelfíu en býr nú og starfar í New York. Tólf ára gömul lék hún einleik með Fíladelfíuhljómsveitinni og stuttu seinna var hún valin ásamt tveimur öðrum nemendum til að læra hjá Rudolph Serkin við Curtis Institute. Arið 1978 vann hún til verðlauna í alþjóðlegri píanókeppni í Leeds. Hún hefur leikið einleik með fjölda banda- rískra sinfóníuhljómsveita og komið fram á þekktum tónlistar- hátíðum vestra, svo sem Marl- boro, Harvard, Amherst og Blue Hill-hátíðunum. Þá hefur hún leikið inn á hljómplötur fyrir Columbia Masterworks. „Ó, þetta er spennandi ævin- týri, hressandi tilbreyting frá starfinu í New_York,“ segir Beth um dvöl sína á íslandi. „Ég mundi fara til Sri Lanka ef því væri að skipta til að spila með Richard Talkowsky og Einari Jóhannes- syni,“ segir hún, en þeir eru fé- lagar hennar í Trio Borealis, sem hefur verið á tónleikaferð um suðvesturhornið undanfarið. Síð- an berst talið að lífí tónlistar- manns í New York. „Það gengur upp og ofan. Stundum hefur maður heilmikið að gera, stundum ekkert. Ég hef aðallega einbeitt mér að einleik í New York og það er því líka góð tilbreyting að koma hingað og spila kammermúsík. Það er gott að komast út úr æfíngaher- berginu og spila með öðru fólki, maður getur einangrast dálítið yfir píanóinu sínu.“ — Miklum sögum fer af sam- keppni í listalífinu í New York, hvaða áhrif hefur hún á lista- manninn? „Hún getur dregið úr manni kjark og fengið mann til að efast stöðugt um eigið ágæti. En það er enga lausn á því að finna svo maður heldur bara áfram og reynir að hugsa ekki of mikið um það. Stundum gengur manni vel, stundum illa. En mér finnst ég alltaf vera á leiðinni að mark- inu. Kannski þegar ég verð átt- ræð...“ — Fólk þarf þá að vera mjög ákveðið og einbeitt til að gefast ekki upp? „Ég er nú orðin svo gömul að ég er komin yfir það að gefast upp,“ segir hún og hlær. „Þegar ég var yngri var ég stundum á mörkum þess að gefa tónlistina upp á bátinn, en af einhveijum ástæðum heldur maður alltaf áfram, jafnvel þótt allt virðist svart. Núna gæti ég ekki hugsað mér að hætta í tónlist, hún er orðin svo stór hluti af mér. Kem- ur ekki til mála! Nema einhver banki upp á hjá mér og segi: Þú færð ekki að spila á fleiri tónleik- um!“ _ — í Bandaríkjunum heyrist oft að eina leiðin til að komast áfram sé að giftast listinni. „Nú þegar ég lít um öxl virð- ist það rétt stefna!“ segir Beth og skellihlær. „Ég hefði aldrei átt að eignast fjölskyldu, en nú þegar ég hef eignast mann og börn get ég ómögulega verið án þeirra! Ef ég ætti að byija upp á nýtt, vitandi hve erfitt þetta er, mundi ég ekki gera neitt ann- að en að æfa mig. Ég þekki kenn- ara sem segja við nemendur sína: Ekki gifta þig, æfðu þig bara og æfðu. En ég er ekki þannig manneskja. Hvað getur maður komið með að píanóinu ef maður les ekki, skoðar ekki myndlist og tekur þátt í mannlífinu? Ekkert. Ég held að því meira sem maður Beth Levin. Morgunblaðið/Emilía hafi upplifað, því betur skilji maður tónskáldið og sköpunar- verk þess. -Þetta er tjáning og því eldri sem ég verð, því betur geri ég mér grein fyrir að tækn- in er ekki allt, því einfaldari sem hlutirnir eru, því betra. Maður þarf ekki endilega að sitja við píanóið í tuttugu tíma á dag. Maður meltir líka tónlistina með sér þótt maður sé ekki fyrir fram- an píanóið. Eitthvað sem ekki tengist tónlist á neinn hátt getur hjálpað manni að leysa tónlistar- legt vandamál. Ég hef líka til- hneigingu til að setja allt í sam- band við tónlist, ef einhver legg- ur mér ráð verður mér fyrst fyr- ir að hugsa hvernig þau geti nýst mér við píanóið." Beth ætlar að leika verk eftir Schumann, Mozart, Beethoven og Ravel á tónleikunum. „Þetta er svo frábær tónlist," segir hún.„Kreisleriana, verkið sem ég ætla að spila eftir Schumann, er algjört meistaraverk. Reyndar er það ekki spilað mjög oft, senni- lega af því það er svo erfitt. Schumann fæst þar við tvær andstæðar persónur og maður verður að töfra fram margs kon- ar hughrif og sveiflast öfganna á milli. Samt er þetta mjög þétt verk og leyfír manni að nota ímyndunaraflið til hins ýtrasta. Beethovensónatan, opus 110, er líka mjög ögrandi. Fantasían eft- ir Mozart er styttri, en þar notar hann margs konar blæbrigði og lætur gamminn geisa. Og svo er það Ondine eftir Ravel, það er eitt af þessum yndislegu, safa- ríku verkum. Það er ekki beint nein saga í því, en samt er mað- ur að skapa eins konar veröld þegar maður spilar það. Efnis- skráin er sem sagt dásamleg — ef ég bara kemst í gegnum hana!“ segir Beth og hlær enn, nú áhyggjufull á svip. — Það er engu líkara en þú sért ástfangin af þessum verkum. „Það er ég, en í aðra röndina er ofurlítið hatur vegna þess hve erfið þau eru. Maður þykist hafa náð þeim einn daginn, en daginn eftir er allt ómögulegt. Þau eru afar ögrandi, maður þarf að nota alla sína hæfileika." — Hvernig er að koma frá New York og spila í smáþorpum á íslandi eins og þú hefur gert með_ Trio Borealis? „í New York hef ég spilað í fallegum tónleikahöllum, en líka í hlöðum, þannig að það er ekki alltaf um neinn dýrðarljóma að ræða. Mér fínnst mjög spennandi að spila fyrir íslendinga.“ — rhv íbúð í húsi fyrir aldraða í Vesturbæ 2ja herb. fullbúin íbúð ca 45 fm auk sameignar. Fallegt útsýni yfir sjóinn. Öll sameign mjög glæsileg. í sameign er t.d. samkomusalur á efstu hæð, setustofa á hverri hæð og saunabað og heitir pottar á jarðhæð. íbúðin er laus nú þegar. Góð greiðslukjör. ú FJARFESTING FASTEIGNASALA1 Borgartúni 31. Lögfr. Pétur Þ. Sigurðsson hdl. 624250 FÉLAÍJ ELDM BORGAR\ 621477 ÓÐAI fyrirtækjasala Skeifunni 11A, 3. hæð, -a* 682600 Sölumaður Magnús Jóhannsson, lögmaður Sigurður Sigurjónsson hrl. Seljendur athugiö! Vegna endurnýjunar í söluskrá biðjum við þá, sem eru með fyrirtæki á skrá hjá okkur, að hafa samband sem allra fyrst. Við seljum þitt fyrirtæki fljótt og vel. Kaupendur athugiö! Höfum á skrá mörg mjög góð fyrirtæki, bæðí stór og smá. Látið okkur finna rétta fyrirtækið fyrir ykkur. Við þjónum ykkur með ánægju. Opið mánudag til föstudags frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-15 Tón-Mynda-Lj óð Myndlist Eiríkur Þorláksson í Perlunni á Öskjuhlíð stendur nú yfir nokkuð óvenjuleg sýning, þar sem þrír listamenn stilla saman strengi sína í einni sýningu, eða einu verki, eins og þeir vilja orða það. Hér eru á férðinni myndlistarmaður- inn Grímur Marinó Steindórsson, tónskáldið Gunnar Reynir Sveinsson og Ijóðskáldið Hrafn Andrés Harðar- son, og afraksturinn er tón-ljóða- myndir, mynd-tóna-ljóð eða ljóð- mynda-tónar, eftir því hveijir áhersluþættir samsetningarinnar eru. í glæsilegri sýningarskrá sem þeir félagar hafa gefið út með myndum, ljóðum og tónum, segir í formála: „Grunntónn þessa verks, því eitt er verkið þótt margar hendur og þrír hugir vinna saman, er sköpun, mótun í myrkri. Um þennan tón óma hafið, djúpið og óravíddir him- ingeims. Og fuglinn Fönix rís upp úr öskunni í líki margra annarra fugla. Og skuggar leika um svið. Myndir í málmi, máli og tónum. Tón- ljóðamyndir. Ekki með þeim hætti að einn geri verk við annars hug- mynd, heldur kveikir hver í öðrum, neistinn breiðist milli huga, fram og aftur, uns úr verður bál, sem ekkert fær slökkt og sköpunargleðin skírist í þeim eldi.“ Því miður er ekki hægt að fjalla á jafnan hátt um þá þijá þætti sem hér ftettast saman, sem full ástæða væri til; myndverkin eru mest áber- andi, og þau kalla á mesta skoðun. Tónlistin líður hins vegar mikið fyrir staðinn og hverfur í bakgrunninn, og krefst sérstakrar athygli í skark- ala hversdagsins að nema þá seið- andi tóna, sem berast um loftið. Myndir Gríms Marinós Steindórs- sonar á sýningunni eru 65 talsins, flestar unnar í málm, sem er brennd- ur, litaður, flattur og skreyttur á fjöl- breyttan hátt. Raunar tekur eitt verk Gríms, Minnisvarði um landpóstana (nr. 1) á móti gestum úti fyrir, en það tengist ekki beint því sem ber fyrir augu innan dyra. Grímur hefur verið þekktur fyrir óvenjuleg málm- verk sín af fiskum og sjávargróðri, en hér eru einkum á ferðinni verk er tengjast flugi, fuglum himinsins og öðrum þeim þáttum, sem ljóð Hrafns Harðarsonar fjalla einnig um. I þessum myndum tekur málmurinn oft á sig gervi Iitanna, því listamað- urinn hefur unnið hann á mismun- andi hátt, þar til undarlega blærík litmynd stendur eftir, sem stundum minnir á skrartgrip í litadýrð sinni. Ljóðin við hlið verkanna verða oft til að styrkja þær ímyndir sem lista- mennirnir hafa sett fram. Ýmsar fallegar myndir mætti nefna til, en hér skal bent á Fugla himinsins (nr. 9), Dagrenningu (nr. 38), Bláfjöll (nr. 41) og Narkissos (nr. 62), þar sem spegilmyndin eilífa blasir við gestum líkt og goðsagna- verunni forðum. Perluregndroparnir (nr. 43-49) eru hver öðrum fallegri, og Sköpun (nr. 52) minnir á kenning- ar um tilurð alheimsins. Það dregur hins vegar nokkuð úr ánægjunni af sýningunni, að Perlan er ekki góður sýningarstaður fyrir myndlist. Raunar er Perlan afleitur sýningarstaður fyrir myndlist, svo rétt orðalag sé viðhaft; hitabeltis- gróður, veitingaborð, óviðkomandi umferð og truflanir frá vökvunar- og gosbrunnakerfum eru nógu slæm- ar aðstæður, en steininn tekur úr þegar kynningum á bílum, tjaldvögn- um og jafnvel verkum óskyldra lista- manna er troðið inn á milli sýningar- gripanna, eflaust í mikilli óþökk þeirra sem að sýningunni standa. Gráir tankarnir eru yfirþyrmandi umhverfí fyrir flest listaverk, og þau mega varla við öllum þeim truflun- um, sem fylgja þessum stað. Því miður líður sýning þeirra félaga mik- ið fyrir þetta uinhverfi. Lista- og menningarráð Kópavogs hefur styrkt þá félaga til þessarar sýningar, enda tveir þeirra Kópa- vogsbúar. Er það virðingarvert, en jafnframt óskandi að Kópavogur fari að Ijúka hinu ófullgerða Listasafni Kópavogs, svo að listunnendur nái að njóta þar sýninga af þessu tagi við þær aðstæður sem þær eiga skil- ið. Sýningin TónMyndaLjóð í Perl- unni mun standa til 18. maí. Geithamrar - Grafarvogi Glæsileg efri sérhæð ásamt bílskúr. íbúðin skiptist í rúmgóðar stofur, 2 góð herb. ásamt 20 fm palli fyrir ofan hluta íbúðar. Þvottahús í íbúð. Flísalögð gólf. Glæsi- legt útsýni til borgarinnar. Laus fljótlega. Áhvílandi byggsjóður ca 5.200 þús. Verð 12,0 millj. 2409. S: 685009-685988 ÁRMÚLA21 DAN V.S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI, DAVÍÐ SIGURÐSSON, SÖLUMAÐUR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.