Morgunblaðið - 08.05.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. MAI 1992
11
Ásgerður Búadóttir
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Nú stendur yfir í listasalnum
Nýhöfn við Hafnarstræti sýning á
myndvefnaði Ásgerðar Búadóttur
myndlistarkonu. Hún hefur ekki
haldið margar einkasýningar í höf-
uðstaðnum þegar litið er til hennar
langa ferils í listinni og því er sér-
stakur fengur að sýningunni fyrir
listunnendur.
Ásgerður Búadóttir varð einna
fyrst íslenskra myndlistarmanna
til að helga sér myndvefnað sem
sinn helsta vinnumiðil, þó að hún
hafi í sínu listnámi fyrst og fremst
lagt stund á málaralist. Hún hefur
fyrir löngu skapað sér nafn sem
einn besti listamaður okkar á þessu
sviði og hefur tekið þátt í miklum
fjölda sýninga á erlendri grundu
síðustu áratugina, oft sem-fulltrúi
íslenskrar myndlistar í alþjóðlegum
samsýningum. Verk hennar er
einnig að finna í Ijölmörgum lista-
söfnum og opinberum byggingum,
bæði hér á landi og erlendis.
Myndvefnaður er sennilega sá
listmiðill sem krefst mestrar þolin-
mæði, ákveðni og seiglu, áður en
listamaðurinn fer að sjá árangur
erfiðis síns. Því er undirbúningur
hvers verks einn mikilvægasti þátt-
ur þess, bæði hvað varðar efnis-
og litaval, myndefni og skipulag
þess í fletinum. Það hefur löngum
einkennt verk Ásgerðar að mynd-
bygging hefur verið afar markviss
og sterkur þáttur í hennar vefn-
aði. Litaval hefur verið hógvært
en um leið hnitmiðað, og sam-
ræmst vel almennri hreyfingu í
fletinum, jafnframt því sem
mismunandi efni hafa unnið vel
saman til að mynda þau heildar-
hrif sem verkin skapa. Það er at-
hyglisvert að sjá skissur og undir-
búningsteikningar, sem einnig
hafa verið settar upp á sýning-
unni, og lýsa hluta af öllu þessu
ferli.
Á sýningunni í Nýhöfn getur að
líta alls tíu verk, sem ofin eru úr
ull og hrosshári; nokkur þeirra eru
síðan samsett úr tveimur eða fleiri
flötum. Verkin eru flest byggð á
áhrifum lands og náttúruafla, sem
listakonan vinnur úr á óhlutbund-
inn hátt. Það er hin milda náttúru-
sýn og umskiptin sem ráða ríkjum
í verkunum; verðrabrigði, mót dags
og nætur, sumars og veturs. Litir
dofna og styrkjast eftir ákveðinni
bylgjuhreyfingu í mörgum mynd-
anna og síðan geta örlitlir deplar
eða ræmur sterkari lita myndað
það mótvægi sem heldur heildar-
verkinu í jafnvægi. Ásgerður bygg-
ir oft myndirnar í kringum sterka
litþætti nálægt miðju þeirra, sem
aðrir litir og þættir vefnaðarirts
vinnast síðan út frá; notkun á
hrosshári á síðan mikinn þátt í að
skapa þá tilfinningu fyrir hreyf-
ingu sem er svo mikilvægur þáttur
í verkum listakonunnar.
í þessu sambandi er vert að
benda sérstaklega á nokkur verk
á sýningunni, þó að erfitt sé að
Skoðunar-
ferð um Voga
á morgun
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands fer laugardaginn 9. maí
í skoðunarferð um Voga í ferða-
röðinni Framtiðarsýnin okkar.
Farið verður frá Grunnskóla
Vatnsleysustrandarhrepps kl. 10.30
og gengið umhverfis byggðina í
Vogum. í leiðinni verða óröskuð eða
lítt röskuð náttúruleg svæði skoðuð
og ýmsar minjar. Gangan tekur um
einn og hálfan tíma en eftir hana
verða umræður í Grunnskólanum
um framtíðarsýn sveitarfélagsins
sem heild. I för verða fróðir menn
og hugmyndaríkir. Öllum er heimil
þátttaka.
gera upp á milli þeirra. Myndin
Haust á fjöllum (nr. 6) er einkum
athyglisverð fyrir hvernig grái og
ljósu litirnir eru sífellt að takast
á; grámi landsins og snjóþekjan
berjast um yfirráðin á þessum árs-
tíma, en rauðlit rönd og blettur
minna á eldinn undir, sem getur
ávallt brotist fram. Verkið Kontra-
punktur (nr. 10) er gott dæmi um
vægi hins miðlæga punktar, og á
hvern hátt heildarmynd getur
skapast í kringum hann. Andstæða
þessa er hins vegar Gengið með
sjó (nr. 5), þar sem litirnir gefa
til kynna kuldalega ímynd sjávar
og himins, og áherslan er á þá
bylgjuhreyfingu sem einkennir mót
lands og sjávar.
Fleiri verk mætti nefna, en þó
er rétt að láta listunnendum eitt-
hvað eftir. Ljóst er að listakonan
heldur hér áfram á þeirri braut sem
hún hefur markað sér fyrir margt
löngu, að vinna vandlega úr sjón-
hrifum sínum, byggja verk sín upp
af samviskusemi og setja þau fram
á þann hátt að listunnendur eigi
greiðan aðgang til að njóta þeirra.
Megi sem flestir listamenn vinna
á þeim nótum um ókomna framtíð.
Sýning Ásgerðar Búadóttur í
listasalnum Nýhöfn við Hafnar-
stræti stendur til miðvikudagsins
13. maí og eru listunnendur hvatt-
ir til að líta inn áður en henni lýkur.
Ásgerður Búadóttir: Haust á fjöllum. 1991.
ATT ÞU MIDA I SOLINA?
0 0
VIÐ DROGUM
í KVÖLD
ÞÁTTTAKA ÞÍN STUÐLAR AÐ
BJÖRGUN MANNSLÍFA!
HÆGT ER AD GREIÐA HAPPDRÆTTISMIÐA
MED GREIDSLUKORTI í SÍMA 91-27000
TIL KL. 23.00 í KVÖLD.
Slysavarnalélags Islands