Morgunblaðið - 08.05.1992, Síða 15

Morgunblaðið - 08.05.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 15 hugsjónum ekki fyrir róða. Þær gera þeim, sem ákveða að bijótast til mennta, fyrst og fremst eftirleik- inn erfíðan og það kann vissulega að nægja til þess að telja ýmsum þeim, sem hyggja á framhaldsnám, hughvarf. Eftir sem áður getur hver sem er farið í það nám sem hugurinn stendur til. Námsárangur — námslán En þetta eru ekki einu breyting- arnar, sem fyrirhugaðar eru, og nú er komið að stórbrotnasta atriði leiksýningarinnar, ráðstöfun, sem hefði fengið forsprakka leikhúss fáránleikans til að rifna af stolti, hefði hún verið þeirra hugarfóstur. Ríkisstjórnin hefur í hyggju að veita engum námslán fyrr en að sýndum námsárangri. Nú á þetta við um þá, sem eru að hefja nám. Náms- menn verða að taka bankalán á vöxtum fyrsta misserið í námi og standist þeir námskröfur fá þeir lán hjá Lánasjóðnum til að greiða bank- alánið og lánað fyrirfram að auki fyrir næsta misseri. Nú verður hver og einn að sýna fram á árangur áður en lán er veitt allt fram að námslokum. Þetta hefur í för með sér að hver námsmaður verður að leita á náðir banka í upphafi hvers misseris. í lok misseris berst lánið frá Lánasjóðnum og getur náms- maðurinn þá farið fagnandi í ban- kann til að greiða gamla lánið og sótt um leið um nýtt lán. Þessi hringavitleysa mun halda áfram allt til þess að námsmaðurinn út- skrifast og hellir sér út í alvöru lífs- ins. Hefur hann þá í veganesti auk menntunar ærna reynslu í því að beijast í bönkum, sem mun tví- mælalaust koma í dijúgar þarfir á lífsleiðinni. Þessi fyrirhugaða breyting bitnar ekki aðeins á þeim, sem eru að hefja nám. Fólk í miðju námi verð- ur í haust fyrir því að kippt verður undan því fótunum og allar þær forsendur, sem gefnar voru í upp- hafi náms, bresta. Ekki bætir úr skák að menntamálaráðuneytið hef- ur ekki séð ástæðu til þess að kynna námsmönnum erlendis frumvarpið og hafa þeir því orðið að reiða sig á slitróttar fréttir og fiskisögur að heiman, öldungis óvissir um það hvernig þeim verður tryggt banka- lán eða einfaldlega áframhaldandi skólaganga. Þetta sýnir einnig væntanlegum námsmönnum að þeir geta ekki treyst á það kerfi, sem á umhverfísráðuneytisins um árlegt opinbert fjárframlag til úrbóta á hrikalegum sorp- og skolpvanda- málum á íslandi úr 125 millj. kr. í 5 millj. kr.! Það sem í fyrrnefndri grein DV er haft eftir forstöðumanni Holl- ustuverndar ríkisins lýsir betur en mörg orð ábyrgðar- og stefnuleysi þeirra stofnunar, sem eftirlit og forystu á að hafa um úrbætur í þessum efnum. Eftir forstöðumann- inum er m.a. haft: „Það er ekki búið að ákveða endanlega, hvaða mörk verða sett á þessa brennslu. En það er alveg hugsanlegt að þeir verði að bæta við viðbótarbúnaði til að ná því,“ og síðar: „Það er ekki búið að marka endanlega stefnu hér hjá okkur varðandi sorp- brennslur. Við höfum í sjálfu sér samþykkt þennan búnað en með því skilyrði að ef nauðsyn reynist á þá bæti þeir við viðbótarbúnaði. Það er hægt að bæta við þvottat- urni að því er okkur skilst með litl- um tilkostnaði.“ Fróðlegt væri að fá upplýst hjá forstöðumanninum við hvað hann miði þegar hann tali um „lítinn tilkostnað" tengdan hreinsibúnaði, sem uppfylli skilyrði staðla Evrópubandalagsins. Telja menn virkilega að hlutalausn þess- ara mála nú og síðan kröfur á hend- ur Vestmannaeyinga eftir 2-3 ár um fjárfestingu, sem talið er að þeir standi ekki undir, leiði til hag- kvæmari heildarútkomu fyrir ís- lensku þjóðina? Getur verið að ein höfuðástæða þess að Islendingar stefna nú hrað- byri í að verða meðal fátækustu þjóða Evrópu sé sú að þeir séu sí- fellt að bisa við að „finna upp hjól- ið“? að vera þeim stoð og stytta, fremur en íslenskt veðurfar. Rök fyrir þessu kynduga fyrir- . komulagi liggja ekki á lausu. Að- stoðarmaður menntamálaráðherra sagði á fundi með námsmönnum í Boston að með þessum hætti mætti veita lánþegum aðhald og koma í veg fyrir að þeir slægju slöku við. Þegar bent var á að þessar aðgerð- ir væru fram úr hófí fyrirhafnar- miklar svaraði hann því til að að- hald væri þó ekki aðalástæðan. Hver hún væri var hins vegar ekki ljóst af máli aðstoðarmannsins. Þar sem fátt er um svör af hálfu ráðamanna verður að geta í eyðurn- ar. Verði frumvarpið samþykkt með ákvæðinu um að lán verði ekki veitt fyrr en sýnt hefur verið fram á námsárangur mun Lánasjóðurinn ekki þurfa að lána krónu í haust. Námsmönnum hefur meira að segja verið tilkynnt að sumarlán fyrir þetta ár verði ekki greidd út fyrr en í janúar á næsta ári. Hér er á ferð- inni lítið galdrabragð. Þegar hefur verið gert ráð fýrir þessu í fjárlög- um, sem munu sýna undraverða hagkvæmni í rekstri Lánasjóðsins miðað við fyrri ár. Það er þó ekki svo vel að Lánasjóðurinn fái sömu úthlutun og endranær í því skyni að gera honum kleift að bæta stöðu sína gagnvart lánardrottnum sín- um, annaðhvort með því að greiða upp skuldir eða varðveita féð á vöxtum og hafa það handbært þeg- ar skuldir gjaldfalla. Þessu má líkja við lýtalækningar, þar sem hrukka er fjarlægð af fjárlögum eins árs, þótt vitað sé að hún birtist aftur jafn ófrýnileg og áður á fjárlögum þess næsta. Þetta er pólitískur leik- araskapur helgaður af skammtíma- sjónarmiðum, sem í alla staði stang- ast á við yfírlýst langtímamarkmið Lánasjóðsfrumvarpsins. Svo verður í það minnsta að ætla þar til nær- tækari skýringar fást. Annað atriði bendir einnig til þess að aðstandendur frumvarpsins gangi ekki til leiks af heilindum. Þegar frumvarpið var fyrst kynnt vakti athygli tillaga um að námslán yrðu endurgreidd á fjórföldum námstíma. Við nánari athugun kom í ljós að þetta skilyrði var aldrei sett fram af neinni alvöru. Námslán átti nefnilega að endurgreiða á fjór- földum námstíma, en fjögur prósent af útsvarstekjum fyrstu fimm árin eftir að endurgreiðslur hæfust og átta prósent þar á eftir. Þetta er eins og að setja fimmtíu kílómetra hámarkshraða, en aki menn hraðar þá skipti það ekki máli. Því næst var frumvarpið tekið til umQöllunar í menntamálanefnd Alþingis. Þegar það kom þaðan til annarrar umræðu á þingi hafði ákvæðið um endur- greiðslur á fjórföldum námstíma verið fellt niður og var látið að því liggja að námsmenn ættu að fyllast óumræðilegri kæti fyrir vikið. En í raun og veru stóð aldrei til að náms- lán yrðu endurgreidd á fjórföldum námstíma nema lánþegar gætu greitt þau á fjórföldum námstíma. Og þrátt fyrir að ákvæðið sé ekki lengur í frumvarpinu munu lánþeg- ar greiða námslánin aftur á fjórföld- um námstíma ef þannig stendur á, en annars á lengri tíma, nú, eða skemmri, allt eftir atvikum. Hins vegar var ákvæðið ekkert annað en orðin tóm, pólitískt herbragð til að geta sagst hafa gert tilslakanir þegar gagnrýni á frumvarpið kæmi fram. Það er fyrst og fremst það, að lán verði ekki veitt fyrr en að sýnd- um námsárangri, sem mun tryggja það að orð menntamálaráðherra þess efnis að frumvarpið muni leiða til þess að námsmönnum fækki rætist. Hér er beinlínis verið að vega að jafnréttishugsjóninni að baki Lánasjóðnum. Lánasjóðurinn hefur hingað til aðeins tekið mið af tekjum námsmanns þegar réttur til námslána er reiknaður, en tekjur foreldra hafa ekki verið látnar skipta máli. í frumvarpinu verður ekki gerð bein breyting þar á. En krafa um sýndan námsárangur mun gera það að verkum að þeir, sem hyggja á nám, hugsa sig um tvisv- ar, nema þeir hafí annaðhvort næg- ar tekjur til að íjármagna fyrsta misserið sjálfir og breyta þannig eftiráláni i fyrirframlán, eða eigi efnaða foreldra, sem gætu hlaupið undir bagga í upphafí náms. Þar sem stóreignamenn eru sjaldfundn- ir meðal verðandi framhaldsnema verður að teljast líklegt að oftar verði seinni kosturinn raunin. Því má ætla að synir og dætur efna- meiri foreldra muni í framtíðinni eiga greiðari leið í framhaldsnám en börn hinna efnaminni. Þetta gæti með tíð og tíma varpað skugga á einn aðal íslensks þjóðfélags, þar sem hvorki stétt né uppruni hafa hingað til verið tilefni til að draga fólk í dilka, leiðin milli þrepa í þjóð- félaginu hefur verið greið og verð- leikar skipt meira máli í metorða- stiganum en vöggugjöf. í þessari framtíðarsýn mun Lánasjóðurinn standa eftir sem gullkista þeirra, sem minna þurfa á honum að halda, en.þeim verða allar bjargir bannað- ar, sem sjóðurinn var stofnaður til að hjálpa. Sennilega þarf heiftarlegt skyn- semiskast að ljósta aðstandendur frumvarpsins til að því fáist breytt úr þessu. Til vara ætti því að leggja til að allir þeir forvígismenn frum- varpsins, sem enn eiga ógoldin námslán, greiði eftirhreyturnar með þeim kjörum, sem lán verða veitt í framtíðinni. Hér hefur verið rakinn aðdrag- andi og meginþráður þeirrar leik- sýningar, sem er að hefjast. Hlutað- eigandi geta spenntir fengið sér sæti og beðið þess að ljósin slokkni. Svo er bara að vita hvort sviðið standi autt þegar tjaldið verður dregið frá. Höfundur er námsmaður í Boston. Höfundur er viðskiptafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.