Morgunblaðið - 08.05.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
17
Orðsending til
Einars Kárasonar
eftir Birgi Svan
Símonarson
í morgun las ég Moggann minn
að venju, drakk teið mitt og nart-
aði í ristað brauð. Allt með þokka-
lega kyrrum kjörum. En svo rek
ég augun í grein eftir Einar Kára-
son ágætan formann Rithöfunda-
sambandsins og það lá við að mér
svelgdist á teinu. Formaðurinn er í
greininni að hirta óbreyttan rithöf-
und, sem er reyndar bara í hinni
vinnunni sinni að flytja mönnum
fréttir. Þessi rithöfundur og blaða-
maður heitir Sigurður Á. Friðþjófs-
son. Einar lætur sér ekki nægja að
benda á einhverjar misságnir í frétt-
inni, sem var víst aðsend og ekki
höfundarverk Sigurðar, heldur hót-
ar hann Sigurði málssókn og æru-
missi og væntanlega gapastokki.
Einar telur Sigurð vera vafasaman
pening, segir að Sigurður hafi verið
kærður fyrir siðanefnd blaða-
manna. Eg hélt að hver maður
væri saklaus þar til sekt væri sönn-
uð. Þá er vert að benda á að illa
hefur gengið að dæma æruna af
sumum mönnum. Nægir að minna
á Þorgeir Þorgeirsson í því sam-
bandi.
Fyrrnefndur blaðamaður og rit-
höfundur er gamall vinur minn og
hef ég aldrei orðið þess var að með
honum leyndist svæsinn siðferðis-
brestur. Þvert á móti hefur hann
Birgir Svan Símonarson
helgað lítilmagnanum krafta sína.
Hann er sannur jafnaðarmaður og
drengur góður. En hvað sem því
líður þá fannst mér tónninn í grein
formannsins okkar heldur rosalegur
og vil ég leyfa mér að biðja hann
að hlífa okkur almennum félögum
við slíkum ádrepum og persónuleg-
um hirtingum á síðum Morgun-
blaðsins. Leyfa okkur að drekka
morgunteið í friði. Það hefur lengi
verið óskráð regla meðal þeirra fé-
laga Rithöfundasambandsins sem
ég hefi átt samleið með, að reyna
frekar að ræða og leysa málin ann-
ars staðar en í íjölmiðlum. Ég held
það sé afturför og óvinafagnaður
ef formaðurinn ætlar að leggjast í
fjölmiðlaþus. Staðreynd málsins er
auðvitað sú að bæði Sigurður Á.
Friðþjófsson og Einar eru bestu
menn. Einar hlýtur að hafa farið
vitlausu megin fram úr rúminu
þennan morgun. Það er einlæg ósk
mín til beggja að þeir ræði mál
sambandsins málefnale'ga og án
æsings á komandi aðalfundi. Það
er alveg óþarfi að fara í fýlu eða
taka reiðiköst þótt ágreiningur sé
um mál og menn.
Ljóst er að það er blaðamanns-
skylda Sigurðar að greina frá því
í blaði sínu, að tveir menn eru í
framboði til formanns Rithöfunda-
sambandsins. Honum ber einnig að
greina frá því ef hann þykist vita
að menn séu óánægðir með ný lög
um úthlutun almannafjár til rithöf-
unda. En kæri Einar, ég bið þig
lengstra orða að stilla þig og orðum
þínum í hóf og um að efna ekki til
bræðraviga í fjölmiðlum.
Höfundur er rithöfundur.
------» ♦ ♦-----
Lokahóf þriggja
aðildarfélaga JC
LOKAHÓF JC Bros, JC Vík og JC
Borg verður haldið í kvöld, föstu-
daginn 8. maí, kl. 19.30 í Hamra-
borg 12 (Alþýðubandalagshúsinu).
Lokahófið hefst með borðhaldi kl.
19.30 og meðal þess sem verður á
dagskrá er veiting verðlauna og við-
urkenninga fyrir starfsárið til ein-
staka félaga og nefnda auk
skemmtiatriða.
Kaupum ekki kött-
inn í sekknum
eftir Inga Björn
Albertsson
Mest alla starfsævi mína hef
ég starfað við sölumennsku. Ég
hef í því starfi kappkostað að
kynna sem allra best þá vöru sem
ég er að selja hveiju sinni, með
því meðal annars að gæta þess
vandlega að allir helstu kostir
hennar komi fram, allt sem getur
mælt með vörunni og þar með
hjálpað til að selja hana.
Til þess að selja vöru fer sölu-
maður ekki þá leið gð tína fram
allt sem neikvætt er við vöruna.
Hann felur það heldur ekki, en
svarar aðeins spurningum sem að
þessu lúta.
Þannig er því einnig farið með
samninginn um EES. Þar kapp-
kosta ráðherrar og embættismenn
við að selja sína „vöru“. Þeir reyna
að draga fram alla helstu kosti
„vörunnar", sýna fram á gildi
hennar og hversu lífið getur orðið
mönnum snúið án hennar. Þeir
gera sem sagt nákvæmlega það
sama og sölumaðurinn. Þeir gæta
þess vandlega að kostirnir komi
fram en kynna ekki ókostina nema
aðspurðir.
Það er þess vegna biýnt að
menn noti þann tíma sem nú gefst
í sumar til þess að kynna sér ræki-
lega samninginn um EES og
spyija síðan í þaula um málið,
þannig að menn viti nákvæmlega
hvaða vöru þeir eru að kaupa,
kosti hennar og galla.
Ríkisstjórnin á enn fremur að
beita sér fyrir almennri, ítarlegri
kynningu á samningnum þannig
að allur almenningur geti myndað
sér skoðun á málinu.
Ríkisstjórnin segir að hér sé á
ferðinni stærsta mál sinnar
tegundar í sögu lýðveldisins. Þetta
er jafnframt mál sem getur hugs-
anlega brotið í bága við stjórnar-
skrána, mál sem getur haft það í
Ingi Björn Albertsson
„ Allar hugsanlegar af-
leiðingar þessara
„vörukaupa“ verða að
vera okkur, sem erum
kaupendurnir, ljósir
þannig að öruggt sé að
við kaupum ekki kött-
inn í sekknum.“
för með sér að allt þjóðlíf hér ger-
breytist.
Állar hugsanlegar afleiðingar
þessara „vörukaupa“ verða að
vera okkur, sem erum kaupend-
urnir, ljósir þannig að öruggt sé
að við kaupum ekki köttinn I
sekknum.
Höfundur cr einn nf
alþingismönnum *
Sjálfstæðisfiokksins fyrir
Reykja víkurkjördæmi.
Fílharmonía heldur vor-
tónleika á sunnudaginn
SÖNGSVEITIN Fílharmónía heldur vortónleika sína í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 10. maí klukkan 17. Flutt verður
verkið La Petite Messe Solennelle eftir ítalska tónskáldið
Rossini.
Fjórir einsöngvarar taka þátt
í flutningnum, þau Elísabet Erl-
ingsdóttir, sópran, Alina Dub-
wik, alt, Olafur Árni Bjarnason,
tenór og Viðar Gunnarsson,
bassi. Verkið er samið fyrir
píanó og harmóníum og eru
hljóðfæraleikarar Hrefna
Eggertsdóttir, píanó, og Ferenc
Utassy, harmóníum. Stjórnandi
kórsins er Úlrik Ólason.
Aðgöngumiðar á tónleikana
eru seldir í bókaversluninni Kilju
við Háaleytisbraut og einnig við
innganginn í Langholtskirkju.
EMMESS Hversdag^g
Ömmupizzur
Frón matarkex
Goðalondon
KAUPSTADUR
MIÐVANGI HAFNARFIRÐI | VESTUIl I B.Æ (JL HUSINU')
a
s
I MJÓPD