Morgunblaðið - 08.05.1992, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. MAI 1992
Listagallerí opn-
að í Hafnarhúsinu
A
Aherslan lögð á samtímalist
Laugardaginn 9 maí opnar nýtt gallerí, Listmunahúsið, í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Eigandinn, Knútur Bruun, vill
með stofnun gallerísins stuðla að nýtingu Hafnarhússins í þágu
menningar og lista þegar framtíð þess verður ákveðin.
Knútur segir að Listmunahúsið
muni einbeita sér að samtímalist.
Hann segir að mest verði lagt
upp úr sýningum frekar en sölu,
þótt nauðsynlegt verði að selja
Ííka. Annars leggur hann áherslu
á að stofnun gallerísins sé fyrst
og fremst hugsuð sem fyrsta
skrefið í að breyta Hafnarhúsinu
í eins konar listamiðstöð. „Ég sé
fyrir mér að héma á annari hæð
verði skrifstofur félags tónverka-
höfunda og sambands mynd-
listarmanna. Þessi samtök gætu
þá staðið að tónleikum og högg-
myndasýningum í miðju hússins
eftir að búið væri að setja gler-
þak yfir portið. Þarna gætu einn-
ig verið veitingahús og kaffistof-
ur. Þá kæmi til greina að hafa
þama smá handverkstæði og
antikverslun. Aðalatriðið er að
þetta verði lifandi og skemmti-
legt.“
Hugmyndir Knúts Bruun mið-
ast við að eigendur hússins setji
glerþak yfir portið í miðju húss-
ins. Síðan yrði það húsnæði sem
leigja á út, leigt út til handverks-
manna og viðskiptaaðila sem
gætu innréttað hver eftir sínum
smekk. „Það yrði slys ef sam-
ræma ætti hlutina of mikið og
ef farið yrði út í dýrar fram-
kvæmdir með marmara og ann-
að,“ segir hann. „Þetta á að vera
alhliða miðstöð menningar og
viðskipta, með mikið líf fyrir fólk.
Þama á fólk að geta komið inn
í skjól undan veðri og vindum
og notið þess sem hér er að ger-
ast. Svona hús em víða erleríðis
og hafa gefist vel.“
Knútur segir að hugmyndir
hans séu mjög í samræmi við
hugmyndir borgar- og hafnar-
yfirvalda. „Borgarstjómin hefur
lagt áherslu á að endurlífga
gamla miðbæinn. Hafnarhúsið er
hluti að þeirri endurlífgun. Opn-
Knútur Bruun, eigandi List-
munahússins í Hafnarhúsinu.
un Listmunahússins er fyrsti
tónn þessarar þróunar sem sleg-
inn er í Hafnarhúsinu," segir
Knútur Braun, sem er bjartsýnn
á framhaldið.
A fyrstu sýningu Listmuna-
hússins, verða sýnd verk eftir Jón
Gunnar Árnason, Brynhildi Þor-
geirsdóttur og Daníel Magnús-
son. Auk þess verða sýndar
nokkrar bronsafsteypur eftir
Gerði Helgadóttur, sem gerðar
hafa verið að frumkvæði Lista-
og Menningarráðs Kópavogs.
Einnig verða á sýningunni stórir
keramikvasar eftir Kolbrúnu
Björgólfsdóttur.
Sjónvarpsþættirnir Sigla himinfley:
Höfðum náð mála-
miðlun við RUY
-segir Guðrún Alfreðsdóttir fráfar-
andi formaður Félags leikara
GUÐRÚN Alfreðsdóttir fráfarandi formaður Félags íslenskra leikara
segir að deilan um greiðslur fyrir sýningar á sjónvarpsþáttunum Sigla
himinfley sé mál sem leysa verði ytra. „Þetta er ekki deila á milli
okkar og Sjónvarpsins heldur deila milli leikara á Norðurlöndum og
Norræna sjónvarpssjóðsins," segir Guðrún. „Það verður að leysa hnút-
inn ytra en við hér heima vorum komin með málamiðlun við Sjónvarp-
ið varðandi þessa þætti þegar sjóðurinn kippti að sér höndunum og
neitaði að fallast á það.“
Eins og fram kom í frétt í Morg-
unblaðinu í gærdag telur Norræni
sjónvarpssjóðurinn, sem fjármagnar
að veralegu leyti gerð Sigla him-
infley, að beita beri svokallaðri EBU-
gjaldskrá þegar um er að ræða
greiðslur til ieikara fyrir sýningar á
öðrum Norðurlöndum en heimalandi
viðkomandi leikara og að þá verði
greidd 20% af upphaflegri greiðslu
fyrir vinnuna sem leikarinn ynnti af
hendi. Áður fyrr giltu þær reglur um
þessar endurgreiðslur að þær námu
90% fyrir íslenska leikara en 75%
fyrir leikara á öðrum Norðurlöndum
ef mynd var sýnd á íslandi auk
þriggja af hinum Norðurlöndunum.
Guðrún Alfreðsdóttir segir að við
samningsgerð milli leikara hérlendis
og Sjónvarpsins hafi verið gerð mála-
miðlun um að þessi greiðsla yrði 40%
og hefði Sjónvarpið fallist á það fyr-
ir sitt leyti. Hinsvegar hafi Norræni
sjónvarpssjóðurinn hafnað þessu
samkomulagi. „Við töldum okkur
hafa gengið eins langt og við gátum
í málinu og Sjónvarpið hafði fullan
skilning á okkar málstað enda gáfum
við einnig eftir á öðrum launatengd-
um sviðum," segir Guðrún. „Ég veit
ekki hvert framhald þessa máls verð-
ur því það er ekki lengur í okkar
höndum. Nú sem stendur eiga
sænskir leikarar í hatrammri deilu
við sænska sjónvarpið um svipað mál
en Danir hafa aftur á móti samið á
svipuðum nótum og við ætluðum að
semja við Sjónvarpið hér. Ég á ekki
von á að nein niðurstaða fáist fyrr
en þessi mál hafi verið leyst á öllum
hinum Norðurlöndunum.“
Listamenn fá í fyrsta skipti
laun samkvæmt nýjum lögum
182 hljóta laun en 496 sóttu um
Úthlutunarnefndir listamannalauna, samkvæmt lögum nr.
35/1991, hafa fyrir nokkru lokið störfum. Er þetta í fyrsta sinn
sem listamannalaunum er úthlutað samkvæmt þessum lögum. Alls
bárust 496 umsóknir um starfslaun listamanna en 182 hljóta laun.
Listasjóði bárast 66 umsókn-
ir, Launasjóði myndlistarmanna
bárust 184 umsóknir, Launasjóði
rithöfund bárust 211 umsóknir,
og Tónskáldasjóði bárust 35 um-
sóknir.
Eftirtöldum listamönnum voru
veitt starfslaun sem hér segir:
Jónsdóttir, Sólveig Aðalsteinsdótt-
ir.
Úr launasjóði myndlistar-
manna:
3 ár: Björg Þorsteinsdóttir,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristinn
Guðbrandur Harðarson, Rúrí
(Þuríður Fannberg).
1 ár: Finnbogi Pétursson, Hall-
dór Ásgeirsson, Jónína Guðnadótt-
ir, Magnús Pálsson, Ragnheiður
6 mánuðir: Ása Ólafsdóttir,
Ástríður (Ásta) Ólafsdóttir, Birgir
Andrésson, Comelies (Kees) Viss-
er, Eggert Pétursson, Georg Guðni
Hauksson, Guðjón Ketilsson, Guð-
rún Gunnarsdóttir, Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir, Hafsteinn Aust-
mann, Hallsteinn Sigurðsson,
Hannes Lárusson, Harpa Björns-
dóttir, Hrafnkell Sigurðsson,
Kristinn E. Hrafnsson, Kristín
Jónsdóttir frá Munkaþverá, Magn-
ús Tómasson, Níels Hafstein
Steinþórsson, Þorbjörg Höskulds-
dóttir, Örn Þorsteinsson.
Gráslegpuvertíðm
hafiii í Ameshreppi
Trékyllisvfk.
GRÁSLEPPUKARLAR í Árneshreppi eru nú í óðaönn að koma
netum sínum í sjó og þrátt fyrir dræmar gæftir hefur flestum
tekist að leggja. Grásleppuveiði er stunduð frá 7 til 8 bæjum
í hreppum auk þess sem sumaríbúar stunda einhveija veiði.
Grásleppuveiðin tengist á einn
eða annan hátt lífi allra íbúanna.
Bóndinn sækir sjóinn, húsmóðir-
in gefur búfénu, börn og eldra
fólk bíða spennt eftir að báturinn
komi í land og allir vonast eftir
góðum afla. Ef tveir eða fleiri
koma saman ræða menn um
grásleppu og rauðmaga, eru
menn að fá ’ann, hversu margar
trossur eru komnar i sjó, er sjó-
veikinn nokkuð að angra menn,
er ekki útlitið gott?
Að sögn kunnugra er allt útlit
fyrir góða veiði og þeir sem vitj-
að hafa um eru nokkuð ánægðir
með fenginn. Fyrsti báturinn til
að leggja var Guðmundur Gísli
frá Munaðarnesi. Að sögn Guð-
mundar Jónssonar formanns
lagði hann snemma í ár og segir
hann að það sé ágætis kropp,
grásleppan stór og full af hrogn-
um. Aðspurður sagði Guðmund-
ur að það væri alltaf einhver
slæðingur af öðrum fiski í netun-
um, s.s. rauðspretta, tindabikkja
og þorskur. Einnig fengu þeir
reyting af gaddakrabba, hörpu-
skel og ígulkerjum. Allt er þetta
matur og telst kærkominn til-
breyting á matseðli stranda-
manna.
- V. Hansen.
Úr launasjóði ritliöfunda:
3 ár: Einar Kárason, Steinunn
Sigurðardóttir.
1 ár: Birgir Sigurðsson, Einar
Már Guðmundsson, Gyrðir Elías-
son, Kristín Steinsdóttir, Kristján
Karlsson, Pétur Gunnarsson, Víg-
dís Grímsdóttir, Þórarinn Eldjárn.
6 mánuðir: Ándrés Indriðason,
Anton Helgi Jónsson, Björn Th.
Björnsson, Böðvar Guðmundsson,
Egill Egilsson, Einar Bragi, Guð-
bergur Bergsson, Guðjón Friðriks-
son, Guðlaugur Arason,
Guðmundur Ólafsson, Guðmundur
Steinsson, Hallgrímur Helgason,
Hannes Sigfússon, Heiður
Baldursdóttir, Iðunn Steinsdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir, ísak
Harðarson, Jón Óskar, Kristín
Ómarsdóttir, Kristján Kristjáns-
son, Nína Björk Árnadóttir, Ólafur
Gunnarsson, Ólafur Haukur Sím-
onarson, Óskar Árni Óskarsson,
Páll Pálsson, Rúnár Ármann
Arthúrsson, Rúnar Helgi Vignis-
son, Sigfús Bjartmarsson, Sigfús
Daðason, Sigrún Eldjárn, Sigurður
A. Magnússon, Sigurður Pálsson,
Siguijón B. Sigurðsson, Stefán
Hörður Grímsson, Steinar Sigur-
jónsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson,
Þorgeir Þorgeirsson, Þorsteinn frá
Hamri, Þórunn Valdimarsdóttir,
Þuríður Guðmundsdóttir.
Úr Tónskáldasjóði:
3 ár: Leifur Þórarinsson, Áskell
Másson.
1 ár: Karólína Eiríksdóttir,
Gunnar Reynir Sveinsson.
6 mánuðir: Hróðmar Ingi Sigur-
björnsson, Stefán S. Stefánsson.
Úr Listasjóði, a) leikhúslista-
menn:
3 ár: Brynja Benediktsdóttir.
1 ár: Viðar Eggertsson.
6 mánuðir: Ásgeir Sigurvalds-
son, Bára L. Magnúsdóttir, Gunn-
ar Þórðarson, Hávar Siguijónsson,
Hlín Agnarsdóttir, Jóhann
Sigurðsson, Pétur Einarsson, Pét-
ur Eggerz, Sigríður Eyþórsdóttir,
Helga Braga Jónsdóttir, Örn Ingi.
b) tónlistarmenn:
1 ár: Guðni Fransson, Kolbeinn
Bjarnason, Sigrún Eðvaldsdóttir,
Þorsteinn Gauti Sigurðsson.
6 mánuðir: Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, Jónas Ingimundarson, Lára
Rafnsdóttir, Martial Guðjón
Nardeau, Örn Magnússon, Selma
Guðmundsdóttir, Ásthildur Har-
aldsdóttir, Sigurður Flosason.
Auk þess voru veitt listamanna-
laun til þeirra listamanna sem
fengið hafa listamannalaun und-
anfarin ár og eru orðnir 60 ára
og eldri, skv. 3 gr. laga nr.
35/1991 og ekki fengu starfslaun.
Hver fær styrk að fjárhæð kr.
85.000,- Þeir eru:
Agnar Þórðarson, Ármann Kr.
Einarsson, Árni Björnsson, Ás-
gerður Búadóttir, Benedikt Gunn-
arsson, Bragi Ásgeirsson, Bragi
Siguijónsson, Einar G. Baldvins-
son, Éiríkur Smith, Eyþór Stefáns-
son, Elías B. Halldórsson, Filippía
Kristjánsdóttir, Gísli Halldórsson,
Gísli Magnússon, Gísli Sigurðsson,
Guðmunda Andrésdóttir,
Guðmundur L. Friðfihsson,
Guðmundur Jónsson, Guðmundur
Ingi Kristjánsson, Gunnar Eyjólfs-
son, Gunnar Dal (Halld. Sig.),
Hallgrimur Helgason, Helgi
Sæmundssqn, Herdís Þorvalds-
dóttir, Hjörleifur Sigurðsson,
Hrólfur Sigurðsson, Hörður Ág-
ústsson, Jóhannes Jóhannesson,
Jóhannes Helgi Jónsson,’Jóhann-
es, Geir Jónsson, Jón Ásgeirsson,
Jón Björnsson, Jón Dan Jónsson,
Jón Þórarinsson, Jónas Árnason,
Karen Agnete Þórarinsson, Kjart-
an Guðjónsson, Kristinn Hallsson,
Kristinn Reyr, Kristján Einarsson,
Magnús Blöndal Jóhannsson,
Magnús Jónsson, Ólöf Pálsdóttir,
Óskar Aðalsteinsson, Pjetur Frið-
rik Sigurðsson, Róbert Arnfinsson,
Rúrki Haraldsson, Rögnvaldur
Siguijónsson, Sigurður Hallmars-
son, Sigurður Sigurðsson, Skúli
. Halldórsson, Stefán Júlíusson,
Steingrímur Sigurðsson, Svava
Jakobsdóttir, Sveinn Björnsson,
Tryggvi Emilsson, Veturliði Gunn-
arsson, Vilborg Dagbjartsdóttir,
Þórunn Elfa Magnúsdóttir, Þuríð-
ur Pálsdóttir, Örlygur Sigurðsson.
Bessastaðahreppur:
Sönghátíðog
lokatónleikar
Tónlistarskólans
í TILEFNI af ári söngsins verður
efnt til sönghátíðar í hátíðarsal
íþróttahússins í Bessastaðahreppi
laugardaginn 9. maí kl. 16.00.
Aðalefni hátíðarinnar verður fjöld-
asöngur við undirleik kennara og
nemenda Tónlistarskólans. Einnig
syngur Barnakórinn undir stjórn
Þórdísar Þórhallsdóttur, Álftanes-
kórinn undir stjórn John Speight og
Krakkakotskórinn nokkur lög.
Sama dag kl. 17.00 verða seinni
tónleikar Tónlistarskólans á þessu
vori og skólaslit. Þar koma fram
m.a. lengra komnir nemendur,
minnstu börnin þ.e. forskóli I og
hljómsveitin um leika nokkur lög
undir stjórn Wilmu Young. Þá verða
prófskírteini afhent .
>
►
Gítartónleikar
í Kristskirkju
• i •
KRISTINN H. Árnason gítarleik-
ari heldur tónleika í Kristskirkju
laugardaginn 9. maí nk. Tónleik-
arnir hefjast kl. 17. Á efnisskránni
eru verk eftir Luis Milan, J.S.
Bach, Hans Werner Henze, M.
Guiliani, Frank Martin og J.
Rodrigo.
Kristinn tók burtfararpróf frá
Tónskóla Sigursveins D. Kristinsson-
ar árið 1983. Árið 1987 lauk hann
BM-gráðu frá Manhattan School of
Music í New York. Kristinn hefur
einnig stundað nám í Englandi og á
Spáni. Hann hefur tekið þátt í nám-
skeiðum hjá Andrés .Segovia og
Manuel Barrueco. Kristinn hefur
haldið tónloika á íslandi, í Bandaríkj-
unum og á Ítalíu auk þess sem hann
hefur komið fram í útvarpi og sjón-
varpi.