Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 Edda Svavarsdóttir, markaðsstjóri Búnaðarbankans, afhendir krökk- unum í 3 áb, í Setbergsskóla, gróðursetningarbæklinginn. Skógræktarátak hafið: Bæklingi dreift í skóla ÁTAK á vegum Skógræktar Ríkisins og Búnaðarbankans, varðandi skógrækt, hófst í gær, 7 maí. Var þá hafin dreifing á bæklingi með leiðbeiningum varðandi gróðursetningu. 3. bekkur áb í Setbergs- skóla í Hafnarfirði varð fyrstur að taka við bæklingnum. Mjólkursala: Einkaleyfí Samsöliuinar féll úr gildi fyrir hálfu öðru ári HEIMILD sem ráðherra hefur til að skipta landinu í mjólursölu- svæði hefur ekki verið notuð í tvö ár. Landið er því í raun eitt sölusvæði og öllum mjólkursamlögum heimilt að selja vörur sínar hvar á landinu sem er. Það einkaleyfi sem Mjólkursamsalan hafði á grundvelli þessarra ákvæða til sölu á nýmjólk og fleiri vörum á höfuðborgarsvæðinu jafnframt skyldum til að tryggja nægilegt framboð mjólkurvara er því ekki lengur fyrir hendi. Edda Svavarsdóttir, markaðs- stjóri hjá Búnaðarbankanum, sagði að þetta væri fyrsti bekkurinn sem fengi bæklinginn f hendur en síðan væri ætlunin að dreifa honum í alla grunnskóla á landinu. Auk þess verður hann til sölu í útibúum Búnaðarbankans og gróðrarstöðv- um. Það er Skógræktarfélag íslands sem hefur séð um efni bæklingsins sem er skreyttur skýringamyndum til að gera efnið aðgengilegra. Brynjólfur Jónsson, framkvæmda- stjóri, segir að markmiðið með út- gáfunni sé að efla fræðslu og þekk- ingu á skógrækt. Þá segir hann að mikilvægt sé að gera vinnu- brögð markvissari. A næstunni verður dreift öðrum bæklingi, um fræsöfnun og sán- ingu, á vegum sömu aðila. Er sá bæklingur einkum ætlaður full- orðnum, enda verður hann mun ýtarlegri. Landinu hefur verið skipt í mjólkursölusvæði í marga áratugi. Svæðin hafa yfirleitt verið bundin við starfssvæði hvers mjólkursam- lags nema hvað sölusvæði númer eitt náði yfir Vestur-Skaftafells- sýslu til og með Austur-Barða- strandarsýslu, það er að segja Suður- og Vesturland. Mjólkurs- amlögin höfðu einkaleyfí til sölu á helstu mjólkurafurðum, það er nýmjólk, ijóma og skyri, á sínu sölusvæði en gátu selt aðrar vörur að vild. Jafnframt tóku samlögin á sig þær skyldur að sjá til þess að nægilegt framboð væri af þess- um vörum á svæðinu. Frá því bú- vörulögin voru samþykkt 1985 hefur samstarfsnefnd Fram- leiðsluráðs og Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði beðið árlega um framlengingu sölusvæðaskipt- ingarinnar og landbúnaðarráð- herra gefið hana út með ráðherra- bréfi sem gilt hefur eitt ár í senn. Síðast var slíkt ráðherrabréf gefið út fyrir verðlagsárið 1989-90 og féll því úr gildi 1. september 1991. Síðan hefur ekki verið óskað eftir sölusvæðaskiptingu. Gísli S. Karlsson framkvæmda- stjóri Framleiðsluráðs landbúnað- arins sagði um ástæður þess að ekki hafi verið óskað eftir fram- lengingu söluskiptingarinnar að það tengdist því að samgöngur hefðu batnað og ekki væri sama ástæða og áður til að leggja þá skyldu á samlögin að sjá neytend- um fyrir mjólk. Öryggissjónarmið- ið vægi ekki eins þungt og áður, fleiri möguleikar væru til að ná sér í mjólk en áður. Hann sagði að það eina sem takmarkaði mjólk- ursöluna væru reglur heilbrigðis- yfirvalda. Guðlaugur Björgvinsson for- stjóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavík sagði að það hefði litla þýðingu þó einkaleyfi' fyrirtækis- ins væri niður fallið með afnámi sölusvæðaskiptingar. Fólk innan mjólkuriðnaðarins ynni áfram eins og fyrri reglur væru enn við líði. Sumir hefðu ekki vitað annað en þær væru enn í gildi. Hann sagði að Mjólkursamsalan hefði til dæm- is ekki selt vörur út fyrir sitt gamla sölusvæði. Halldór Blöndal Iandbúnaðar- ráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði lengi verið þeirrar skoðunar að landið allt ætti að vera eitt sölusvæði og benti á að sjömannanefnd gerði einmitt tillögur um það. Fram kom í nýlegri grein hér í blaðinu að Mjólkursamsalan ætti mikið eigið fé. Landbúnaðarráð- herra sagði að það væri mjög ánægjulegt að fyrirtækið hefði sterka eiginfjárstöðu. Ekki veitti af vegna þeirra breytinga sem yrðu í kjölfar EES og GATT samn- inga. Nauðsynlegt væri að hafa sterk og vel rekin fyrirtæki til að standast þá nýju samkeppni sem von væri á. Hann sagði hugmynd- ir um að MS greiddi einkaleyfis- gjald í ríkissjóð broslegar í ljósi þess að mjólkurvörur væru niður- greiddar af ríkissjóði. MS hefur verið tortryggt vegna framleiðslu á vörum í samkeppni við einkaaðila, svo sem brauðum og ís, vegna þeirrar sterku aðstöðu sem fyrirtækið hefur á markaðn- um vegna sölu á mjólkurafurðum. Halldór sagði þegar leitað var álits hans á þessu að afurðastöðvar bænda væru ýmist reknar sem sjálfstæðar einingar eða sem hluti af stærri heild og nefndi KEA sem dæmi um hið síðarnefnda. „Ekki hafa komið fram hugmyndir um að þvinga fyrirtækin til að skipta sér upp en ýmsir hafa talið að bændur stæðu sterkar að vígi með sjálfstæðar afurðastöðvar og það myndi auðvelda hagræðingu, með- al annars í mjólkuriðnaði. Sam- keppnin er holl og nauðsynleg en það verður að fara gætilega. Setja verður almennar reglur í þessu efni en ekki reglur sem eru klæð- skerasaumaðar fyrir eitt fyrir- tæki,“ sagði landbúnaðarráðherra. Sífellt fleiri konur sem lagðar eru í einelti leita til Kvennaathvarfsins Dæmi um einelti af hálfu fyrrverandi maka í níu ár TIL Samtaka um kvennaathvarf leita æ fleiri konur sem lagðar eru í einelti af fyrrverandi maka eða sambýlismanni. Af 217 konum sem leituðu ásjár hjá Kvenna athvarfinu á síðasta ári komu 28 vegna eineltis. Á þessu ári hafa 92 konur leitað til Kvennaathvarfsins, 13 þeirra vegna eineltis. Tryggvi Agnarsson, lögfræðingur, segir að ef árangur eigi að nást í meðhöndlun þessará mála þurfi nýjar reglur til að vinna eftir. Fulltrúar Kvennaathvarfsins lögðu fyrir nokkru fram tillögur fyrir dóms- málaráðherra um breytingar á hegningarlögum til að reyna að ráða bót á vandanum. Guðrún Ágústsdóttir, fjölmiðla- fulltrúi Samtaka um kvenna- athvarf, sagði á blaðamannafundi í gær að dæmi væru um einelti af hálfu fyrrverandi maka í allt að níu ár. „Konurnar sem verða fyrir þessu eru aldrei öruggar og geta hvenær sem er búist við að ráðist verði á þær. Þær búa við síendur- teknar morðhótanir og hótanir um líkamlegt og andlegt ofbeldi, inn- rásir á heimili, vinnustað og hótanir um að börn þeirra verði sköðuð,“ segir Guðrún. Þá segir hún að dæmi séu um að sami maðurinn leggi hveija konuna á eftir annarri í einelti. Mál tveggja kvenna sem leitað hafa til athvarfsins Jenný Anna Baldursdóttir, starfskona hjá Kvennaathvarfinu, kynnti á fundinum mál tveggja kvenna sem leitað hafa til Kvennaathvarfsins vegna eineltis. Önnur konan kom til dvalar í Kvennaathvarfínu með mikla lík- amlega áverka, s.s. glóðarauga á báðum augum, kinnbeinsbrot og handleggsbrot. Konunni hafði einnig verið nauðgað. Með henni voru fjögur ung börn hennar á aldrinum 1 til 10 ára. Tvö þeirra voru börn árásar- mannsins sem konan var að flýja undan. í Ijós kom að konan hafði flúið undan- þessum fyrrverandi sambýlismanni sínum út um allt land sl. tvö ár. Hann flutti inn á hana jafnharðan og ofbeldið fór stigvaxandi. Meðal annars hafði konunni margoft verið nauðgað. Þijár ofbeldiskærur voru til á manninn frá jafnmörgum stöðum af landinu. Meðan konan var í athvarfinu kom upp grunur um sifjaspell á átta ára dóttur hennar. Það mál var kært samstundis og fór eðli- lega leið til barnaverndaryfir- valda. Konan dvaldi í Kvennaat- hvarfinu í þrjá mánuði. Á þeim tíma voru sex sinnum framin skemmdarverk á bíl hennar. Með- al annars réðst maðurinn einu sinni á framrúðu bílsins með kú- beini þegar konan var með tvö börn sín í bílnum. Bremsuborðar voru skornir í sundur og lá við stórslysi vegna þess. ÖIl skemmd- arverkin voru jafnharðan kærð til RLR. Þegar konan fór úr athvarf- inu liðu fáeinir dagar og var þá bíll hennar gjöreyðilagður. Að því atviki voru fjöldi vitna eins og stundum áður. í dag, tveimur árum seinna, hefur ekkert komið út úr kærum konunnar á hendur manninum en aðstæður hennar eru breyttar og eineltinu lokið. Jenný Anna nefndi einnig dæmi um konu sem kom í athvarfíð vegna ítrekaðra morðhótana og eineltis frá fyrrverandi kærasta. Hún átti þijú börn úr fyrra hjóna- bandi og hafði búið ein með þau í nokkur ár þegar hún kynntist árásarmanninum. Hann flutti inn á heimili hennar og bjó þar í rúman mánuð. Á þeim tíma beitti hann hana grófu líkamlegu ofbeldi, meðal annars síendurteknum nauðgunum. Hún henti honum út og þá hófust of- sóknir sem fólust í líflátshótunum, innbrotstilraunum á heimili henn- ar, heimsóknum á vinnustað og stöðugum símhringingum. Mað- urinn sat fyrir konunni nánast hvert sem hún fór og áreitti hana og hótaði í sífellu. Við þessu brást konan með því að kæra. Skyld- menni hennar var á vakt á heimil- inu allan sólarhringinn og hún fór aldrei út fylgdarlaus. Konan skipti fimm sinnum um símanúmer, allt leyninúmer en maðurinn hafði upp á þeim í öll skiptin. Um og eftir dvöl konunnar i athvarfinu réðst hann á hana úti á götu oftar en einu sinni og fór í skóla barnanna og réðist þar á son konunnar. Það mál var kært til barnavemdaryfirvalda. Hann fékk að lokum lögregluáminn- ingu. Eftir það réðst hann a.m.k. tvisvar á konuna úti á götu og hlaut hún áverka, þó ekki stór- vægilega. Núna, einu og hálfu ári seinna, hafa aðstæður hennar breyst. Hún er komin í samband við ann- an mann og eineltinu er lokið. Jenný Anna lagði áherslu á að málin sem tekin voru fyrir á fund- inum væm ekki éinstök heldur ættu þau sér margar hliðstæður. Tillaga um breytingar á hegningarlöggj öf í desember sl. lögðu fulltrúar Kvennaathvarfsins fram tillögur fyrir dómsmálaráðherra um að í staðinn fyrir áminningu lögregl- unnar fyrir að raska friði annars manns með því að ásækja hann eða ofsækja með bréfum eða öðr- um hætti komi grein sem feli i sér að hægt verði að dæma menn sem gerst hafi sekir um að valda konum ónæði til að láta ekki sjá sig á ákveðnum stöðum eða hafa samband við ákveðna aðila I til- tekinn tíma. Ef þeir ekki sinni þessu sé með skjótum hætti hægt að handtaka þá og láta þá sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi. Tryggvi Agnarsson sagði á fundinum að vandamálið hvað þetta varðaði væri sönnunin en mennirnir sýndu oft ótrúlega út- sjónarsemi í að grípa konurnar þegar enginn væri nálægt eða veita áverka sem ekki sæjust. Ólík mál og andstyggileg Tryggvi sagði að eineltismál væru í sérhópi fyrir það hve and- styggileg þau væru. „Skelfingin sem getur fylgt því að vera með einhvem á eftir sér, vita aldrei hvenær hann lætur til skarar skríða eða hvernig hann gerir það er ólýsanleg. Konurnar sem verða fyrir þessu eru haldnar ótakmörk- uðum og skeljalausum ótta um líf sitt og barna sinna. Það er ein- faldlega ekki hægt að lýsa þvi sem þarna er á ferðinni," sagði Tryggvi. Hann sagði málin eins ólík og þau væru mörg en þó væru ákveðnir þættir sem fylgdu þeim flestum, innbrot, líkamsárásir, nauðganir, símhringingar og hringingar á dyrabjöllum. Hann sagði að sameiginlegt einkenni þessara mála væri hve erfitt væri að koma höndum á mennina og stoppa þá. Nýjar reglur nauðsynlegar „Við sjáum að þegar konur þurfa að sæta þessu árum saman þá er eitthvað að. Við hljótum að vera með vondar reglur úr því að þetta getur gengið svona. Þetta er smánarblettur á þjóðfélagi okk- ar því það á að vera hægt að ná utan um þetta með nýjum starfs- aðferðum og nýjum reglum," sagði Tryggvi. Hann sagði að þrátt fyrir vinn- una sem lögð hefði verið í þessi mál hefði ekki náðst nægilegur árangur en til þess að hann næðist þyrfti nýjar reglur til að vinna eftir. Guðrún Ágústsdóttir sagði að samhliða væri brýnt að aðrar lausnir yrðu fundnar á vandanum og nefndi sem dæmi að í Svíþjóð hefði nýlega verið ákveðið að hver kona sem byggi við slíkar aðstæð- ur fengi ýmis konar öryggisbún- að, þ.á.m. öryggishnapp sem tengdur væri við lögreglustöð. Þá sagði Guðrún nauðsynlegt að gerð yrði könnun að tíðni heim- ilisofbeldis hér á landi en engin áreiðanleg könnun liggur fyrir um það efni nú.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.