Morgunblaðið - 08.05.1992, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
EVRÓPUSÖNGVAKEPPNIN , í Málmey, Svíþjóö, 9. maí 1992 Land Heiti lags é y «5 WÁ /é J// f/i M k % k /é Wé/ /ty* Af §/í/ wt / /v $/&/&/ /W/ /tyÁ//Á// $/£/£/&/£/* /&/$/&/$/&
1. Spánn Todo esto es la musica
2. Belgía Nous on vout des violons
3. ísrael Ze rak sport
4. Tyrkland Yaz bitti
5. Grikkland Olou tou kosmou i elpida
6. Frakland Monte la rivie
7. Svíþjóð I morgon ár en annan dag
8. Portúgal Amor d'agua fresca
9. Kýpur In love I trust
10. Malta Little child
11. ÍSLAND Nei eða já
12. Finnland Yamma-Yamma
13. Sviss Mister music man
14. Lúxemborg Sou frái
15. Austurríki Zusammen gehn
16. Bretland One step out of time
17. írland Why me
18. Danmörk Alt det som ingen ser
19. Ítalía Rapsodia
20. Júgóslavía Ljubin te pesmama
21. Noregur Visjoner
22. Þýskaland Tráume.sind fúralle da
23. Holland Wijs me de weg
Söngvakeppni sjónvarpsstöða í Evrópu;
Fær Island Nei eða já?
FRAMLAG íslendinga í Söngva-
keppni sjónvarpsstöðva í Evr-
ópu, lagið Nei eða já, verður flutt
á sviðinu í Málmey í Svíþjóð á
morgun, laugardagskvöld. Þetta
er í sjöunda sinn, sem Islending-
ar taka þátt í keppninni, sem nú
er haldin 37. sinni. 16. sætið var
hlutskipti íslensku tónlistar-
mannanna fyrstu þrjú árin og
enn seig á ógæfuhliðina árið
1989, þegar engin dómnefnd sá
ástæðu til að gefa íslendingun-
um svo mikið sem eitt stig. Arið
1990 náðist besti árangurinn
hingað til, 4. sæti, en á síðasta
ári sótti enn í sama farið, þegar
íslenska lagið hafnaði í 15. sæti.
Tveir af flytjendunum í ár, Grét-
ar Örvarsson og Sigríður Beinteins-
dóttir, stóðu einnig á sviðinu í
Zagreb í Júgóslavíu árið 1990, þeg-
ar 4. sætið náðist. Þau hafa bent
fólki á að gæta hófs í bjartsýninni
og í viðtali við Morgunblaðið sagði
Sigríður, að auðvitað væri ekki
hægt að lofað jafn góðum árangri,
en allir myndu gera sitt besta. Þar
mæðir mest á henni og Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur, sem hafa
stundað þrotlausar söng- og dans-
æfingar undanfamar vikur.
Róleg og hröð lög til skiptis
Þau lög, sem íslendingar hafa
valið til þátttöku í keppninni, hafa
verið hröð og róleg til skiptis. Fyrst
var það lag Magnúsar Eiríkssonar,
Gleðibankinn, sem Eiríkur Hauks-
son, Helga Möller og Pálmi Gunn-
arsson fluttu í Bergen árið 1986.
Það var fjörugt, en fékk 16. sætið.
Árið eftir varð lag Valgeirs Guð-
jónssonar, Hægt og hljótt, fyrir
valinu, sungið af Höllu Margréti
Árnadóttur. Rólegt lag og varð í
16. sæti. Allt er þegar þrennt er
og lag Sverris Stormskers, Sókrat-
es, sungið af Stefáni Hilmarssyni,
átti að gera betur á írlandi. Það
var mun hraðara en Hægt og hljótt,
en stigin nægðu aðeins tii 16. sætis.
Þegar hér var komið sögu, töldu
ýmsir að 16. sætið væri óumflýjan-
legt. Svo reyndist þó ekki vera árið
1989, því hið rólega lag Valgeirs
Guðjónssonar, Það sem enginn sér,
sungið af Daníel Ágústi Haralds-
syni, fékk ekkert stig og lenti í
neðsta sæti keppninnar í Sviss.
Þeim mun meiri varð sjálfsagt
ánægja sjónvarpsáhorfenda hér á
landi, þegar Stjórnin náði 4. sæti í
Júgóslavíu árið eftir, með fjörugt
lag Harðar Ólafssonar, Eitt lag enn.
í fyrra hélt svo Eyjólfur Krist-
jánsson til Rómar ásamt Stefáni
Hilmarssyni, söng um Nínu og
hafnaði í 15. sæti.
Margra vikna undirbúningur
Islenski hópurinn, sem kemur
fram undir nafninu Heart 2 Heart,
er skipaður söngkonunum Sigríði
Beinteinsdóttur og Sigrúnu Evu
Ármannsdóttur, lagahöfundunum
Friðrik Karlssyni gítarleikara og
Grétari Örvarssyni, hljómborðsleik-
ara, auk annarra meðlima Stjórnar-
innar, Halldórs Gunnlaugs Haukss-
onar, trommuleikara og Jóhanns
Ásmundssonar, bassaleikara. Hóp-
urinn uppfyllir því það skilyrði, að
ekki mega fleiri vera á sviðinu en
sex.
Undirbúningur hefur verið
strangur. Helena Jónsdóttir, dans-
höfundur, hefur haldið hópnum á
stífum æfingum, þar sem nákvæm-
lega er farið yfir allar hreyfingar á
sviðinu. Lagið var útsett að nýju
eftir keppnina hér heima og til þess
var fenginn þekktur breskur útsetj-
ari, Nigel Wright. Þá var lagið einn-
ig hljóðritað með enskum texta og
ber í þeirri útgáfu heitið Time after
time. íslenska textann á Stefán
Hilmarsson og hann er einnig skrif-
aður fyrir enska textanum, ásamt
Nigel hinum breska. María Ólafs-
dóttir hannar búninga keppenda.
Bein útsending Ríkissjónvarpsins
frá keppninni í Málmey hefst kl.
19 á morgun. Hér með fylgir tafla,
sem lesendur geta notað til að færa
atkvæðatölur inn jafnóðum.
RSv
Heart 2 Heart
- frítt plakat
af Eurovision-
söngflokknum
Eins og kunnugt er þá hefur
Toyota stutt dyggilega við bak-
ið á söngflokknum Heart 2 He-
art sem keppir fyrir íslands
hönd í söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva þann 9. maí nk.
í Svíþjóð.
í tilefni af þessu samstarfi býð-
ur Toyota þeim sem vilja eignast
glæsilegt litprentað plakat af
söngflokknum að vitja þess hjá
næsta sölu- eða þjónustuaðila Toy-
ota um allt land. Plakatið verður
afhent án endurgjalds.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!__x
CAA/vyh* o
Af því tilefni bjóðum við afmælisafsláft af öllum vörum okkar
1S°/o-20°/o
á tímabilinu 8.-16. maí. Notið tækifærið og gerið kjarakaup á fyrsta
flokks gclfefnum, veggdúkum og niðurhengdum loftum frá Armstrong.
________Afsiáttarverð miðað við staðoreiðslu:_
Gólfteppi 20% - Gólfdúkar 20% - Parkett 15% - Flísar 20% - Mottur,
stök teppi 20% - Dreglar 20% - Veggdúkar 15% - Loftaplötur 15%
TEPPABÚÐIN
Gólfetnamankaður, Suðurlandsbraut 28, sími 91-681950