Morgunblaðið - 08.05.1992, Síða 25
MORGUNBuAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
25
:a bæði
ísum
Jón Ingvarsson. Morgunblaðið/KGA
veiðiráðinu. Við leituðum þá meðal
annars álits sölumanna okkar í Jap-
an, Þýskalandi, Frakklandi, Eng-
landi og í Bandaríkjunum. Allir, að
undanteknum sölumanninum í Jap-
an báru þeir mikinn kvíðboga fyrir
þeirri stöðu sem kynni að koma upp
ef hvalveiðar væru hafnar í kjölfar
úrsagnar úr ráðinu. Þeir bentu með-
al annars á það, að viðkvæmni fyrir
vistkerfinu og hvers konar „grænum
málum“ hefur farið vaxandi meðal
helstu og stærstu viðskiptavina okk-
Atvinnustarfsemin hefur í áratugi
verið svo samofin því, hvernig árar
í landbúnaði og sjávarútvegi og síðar
í vaxandi mæli í ferðamannaiðnaði,
að verði samdráttur þar m.a. vegna
sjálfsagðrar hagræðingar kemur það
niður á flestum öðrum sviðum.
Að mínu mati vantar oft meiri
skilning á því i almennri umræðu
hér, hve þýðingarmikil útflutnings-
starfsemi okkar er.
Um áratugaskeið höfum við rætt
um nauðsyn þess að skjóta fleiri
stoðum undir útflutningsstarfsemina
til þess að jafna út þær sveiflur, sem
sjávarútvegurinn býr við og auk þess
að tryggja auknar útflutningstekjur.
Þrátt fyrir mikla vinnu við það
verkefni, þá heldur sjávarútvegurinn
enn sínum sess hlutfallslega og vel
það, ef undan eru skilin stóriðjufyrir-
tækin tvö.
Það er auðvitað ánægjulegt út af
fyrir sig, en engu að síður er það
jafnframt mikið áhyggjuefni, ef til
vill ekki síst fyrir sjávarútveginn.
Við versnandi afkomu heimilanna
í landinu eru gerðar sífellt meiri kröf-
ur til sjávarútvegsins og til þess er
ætlast að hann standi áfram undir
efnahagslegri velferð þjóðarinnar,
eins og hann hefur gert. En getur
hann það?
Sjávarútvegurinn hérlendis hefur
verið í fararbroddi á áravís og verð-
ur það enn. Stöðugt er unnið að
verðmætari framleiðslu og sífellt eru
að koma í ljós nýir möguleikar. Víst
munu ijölmörg tækifæri sýna sig í
framtíðinni og ég er mjög bjartsýnn
á að verulega megi auka á vinnslu-
virði fiskaflans okkar á næstu árum.
Að mínu mati bar okkur talsvert
af leið um skeið á meðan yfir okkur
í fískvinnslunni gekk sú óheillaum-
ræða, sem fylgdi í kjölfar þess að
of margir héldu að búið væri að finna
gullkálfinn með útflutningi á óunn-
um fiski til Bretlands.
Nú er vaxandi skilningur og áhugi
á ný á aukinni verðmætasköpun í
landinu og að fylgja eftir þeim
árangri, sem náðst hefur með þrot-
lausri baráttu í áratugi við að fram-
leiða og selja matvæli fyrir kröfu-
harða kaupendur, hvort sem það eru
veitingamenn, húsmæður eða fjöl-
skyldufeður."
ar allan síðasta áratug, og þannig
auðveldara nú að beita viðskiptaleg-
um þrýstingi. Við enduðum því
umsögn okkar til sjávarútvegs-
nefndar Alþingis á þessa leið:
„Samandregin sjónarmið SH eru
því, að mjög varhugavert sé að Is-
land segi sig úr Alþjóðahvalveiðiráð-
inu á þessu stigi.
Vandséð er hver ávinningur yrði
af úrsögn nema að ásetningur sé
að hefja hvalveiðar í kjölfar þess,
en hins vegar gæfi það tilefni til
mikils áróðurs gegn íslenskri vöru
og þjónustu erlendis.
Það virðist því liggja í augum
uppi, að hafi íslendingar í huga
hvort heldur er úrsögn eða að hefja
hvalveiðar, þurfi að koma til mikil
og markviss áróðursherferð til að
skýra málstað og áætlanir íslend-
inga, áður en nokkuð frekara verður
gert.“
Nú, þegar þetta skref hefur verið
stigið, vil ég aðeins ítreka þessi nið-
urlagsorð. SH getur sjálfsagt lagt
sitt af mörkum með því að kynna
viðskiptavinum okkar þann anga
málsins, að þegar hvalveiðar verði
hafnar á ný, sé það ekki af þjónkun
við þrönga sérhagsmuni, heldur sem
liður í heildarstjórnun lífríkisins á
þessu svæði og m.a. til að tryggja
stöðugt og jafnt framboð fjöl-
breyttra sjávarafurða héðan. Að
hættan á útrýmingu hvalategunda
vegna veiða sé liðin hjá og tími til
kominn að eðlileg grisjun stofnsins
taki við. Mikilvægt er að staðreynd-
ir málsins verði ræddar nú meðan
hugir manna eru í sæmilegu jafn-
vægi. Okkar framlag til þessara
mála mun hins vegar aldrei skipta
sköpum. Því verður stöðugt að brýna
fyrir stjórnvöldum og nýjum sam-
tökum þjóða um skynsamlega
stjórnun þessara mála, að á þeim
hvíli sú þunga skylda að vinna mál-
inu byr á alþjóðavettvangi og leitast
við að snúa almenningsálitinu í átt
til skynsamlegrar og skipulagðrar
nýtingar allra auðlinda hafdjúp-
anna.“
Guðfinnur Guðmundur
Einarsson. Karlsson.
Guðfinnur
og Guðmund-
ur hætta í
stjórn SH
TVEIR núverandi stjórnarmanna
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hafa tilkynnt að þeir gefi
ekki lengur kost á sér til stjórnar-
setu. Það eru þeir Guðfinnur Ein-
arsson, Bolungarvík, og
Guðmundur Karlsson í Vest-
mannaeyjum.
Guðfinnur Einarsson hefur átt
sæti í stjórn SH frá árinu 1962 eða
lengur en nokkur annar. Hann hefur
auk þess átt sæti í stjórn Coldwater
Seafood Corporation í Bandaríkjun-
um, dótturfyrirtæki SH, frá árinu
1962 og verið formaður þess félags
frá árinu 1977.
Guðmundur Karlsson hefur átt
sæti í stjórn og varastjórn SH frá
árinu 1976. Ilann átti ennfremur
sæti í stjórn Coldwater frá árinu
1972. Þá starfaði Guðmundur sem
framkvæmdastjóri sameiginlegs
fyrirtækis SH og TMS í Japan 1974
til 1975.
Jón Ingvarsson, formaður stjórn-
ar SH þakkaði báðum þessum sanr-
starfsmönnum sínum ágæt störf í
þágu SH í ræðu sinni á aðalfundin-
um og óskaði þeim velfarnaðar í
framtíðinni.
Christian Roth forstjóri ÍSAL:
Deilan snýst um réttinn
ta að stjóma fyrirtækinu
VSÍ felldi í gær fyrir hönd ÍSAL miðlunartillögu sáttasemjara til lausn-
ar kjaradeiíu félagsins og starfsmanna þess. Fyrirtækið gerir tvær
meginkröfur um að viðsemjendurnir falli frá eldri ákvæðum í samning-
um aðilanna. Annars vegar ákvæði veita starfsmönnum neitunarvald
gagnvart breytingum á vinnufyrirkomuiagi og hins vegar ákvæði er
gera þeim meðal annars fæi-t að koma í veg fyrir að einstakir þættir
starfseminnar verði boðnir út og fengnir undirverktökum. „Þessi
deila snýst ekki um peninga heldur um réttinn til að stjórna þessu
fyrirtæki," segir Christian Roth, forstjóri ISAL, í viðtali við Morgun-
blaðið. „Við munum halda þessum kröfum til streitu þangað til við
náum þeim fram. Þar til að því kemur getur samkeppnisstaða okkar
ekki talist viðunandi." Roth upplýsir að á fyrsta þriðjungi þessa árs
hafi fyrirtækið tapað um 200 milljónum til viðbótar þeim 1.400 milljón-
um króna sem töpuðust á síðasta ári. Þá greinir hann frá því að til
að undirstrika það að eigendur fyrirtækisins telji að ISAL eigi sér
framtíð hér á landi hafi verið ákveðið að í dag verði hafist handa
við undirbúning að byggingu undir mötuneyti fyrir starfsmenn fyrir-
tækisins, sem muni kosta um 120 milljónir kr. Aðspurður um stöðu
og horfúr á álmarkaði kveðst hann ekki bjartsýnn á skammtímahorf-
ur. Verð hafi þokast upp en birgðir séu meiri en nokkru sinni fyrr.
„Mitt mat er að álverksmiðjur muni þurfa að beijast af öllu afli til
að vera í hópi hinna hæfustu sem munu lifa þetta ástand af,“ segir
hann. En tilefni viðtalsins og meginefni eru santningamálin og ástæð-
ur þess að ÍSAL gaf VSÍ fyrirmæli um að fella miðlunartillöguna.
Það er langt síðan ÍSAL féllst á
takmarkanir á rétti stjórnenda fyrir-
tækisins til að ráða ýmsum stjórnun-
arlegum atriðum. Verkalýðsfélögin
hafa neitunarvald gagnvart hver-
slags breytingum á vinnufyrirkom-
ulagi,“ segir hann. „Veröldin hefur
breyst mikið síðan þetta var. Nú
þykja það sjálfsögð réttindi stjórn-
enda, ekki aðeins hjá fyrirtækjum
sem eiga í alþjóðlegri samkeppni,
heldur hjá öllum fyrirtækjum á ís-
landi nema ÍSAL að stjórnendur
stjórni fyrirtækjunum. Til dæmis
hefur verið skrifað undir samning
við Atlantsál þar sem því fyrirtæki
er heitið rétti til að skipuleggja
starfsemina, forræði í verkstjórnar-
málum og ákvörðunarvald um það
hvaða þættir starfseminnar verði
fengir undirverktökum í hendur. Það
er ekki að ástæðulausu því að
Atlantsál getur ekki frekar en við
rekið fyrirtæki í þessari grein við
afar erfið skilyrði í harðri sam-
keppni á alþjóðamarkaði, án þess
að stjórnendur fyrirtækisins hafi
yfir að ráða þessum grundvallar-
rétti allra stjórnenda fyrirtækja. Við
þurfum á þessu að halda til að kom-
ast af í því erfíða efnahagsumhverfí
sem nú blasir við. Þess má geta að
ISAL fékk síður en svo hagstæðari
samninga en önnur íslensk fyrirtæki
við verkalýðsfélög er það hóf starf-
semi sína._ Eins og alkunna er hafa
laun hjá ÍSAL alla tíð verið hærri
en víðast annars staðar í landinu.
Berjumst fyrir lífi okkar
„Eins og fram hefur komið töp-
uðum við 1.400 milljónum króna á
síðasta ári og fyrstu fjóra mánuði
þessa árs nam tapreksturinn 200
milljónum íslenskra króna. Þannig
að það er augljóst að við erum að
beijast fyrir lífi okkar. Fram að
þessu hefur tekist að reka þetta
álver á fullum afköstum, á sama
tíma og ýmist hefur dregið úr fram-
leiðslu í öðrum álverum Alusuisse,
ef þeim hefur þá ekki verið lokað
eða þau seld. Með allt þetta í huga
fínnst mér furðulegt að við njótum
ekki meiri stuðnings frá verkalýðs-
félagum okkar fólks í þessari bar-
áttu fyrir framtíð fyrirtækisins.
Annað sem skiptir máli í þessu
sambandi er það að hinar miklu
tækniframfarir sem orðið hafa á
síðustu árum kalla á að fyrirtæki
hugsi hlutina upp á nýtt. Það
verður að halda í við þróunina
og við þekkjum dæmi frá Bret-
landi og Ástralíu um það hvernig
fer ef reynt er að standa í vegi
framfara að þessu leyti og stjórn-
endur hafa ekki fijálsar hendur
um grundvallaratriði eins og til
dæmis breytingar á vinnufyr-
irkomulagi."
Christian sýnir blaðamanni
blað þar sem er að fínna útdrátt
á þeim tveimur atriðum sem ÍSAL
leggur höfuðáherslu á að fá fram
áður en gengið verði frá
samningum; annars vegar sé um
að ræða rétt til að fá
undirverktaka og hins vegar um
breytingar á vinnufyrirkomulagi.
Á blaðinu eru kröfum fyrirtækis-
ins lýst með eftirfarandi hætti:
„1. Verktakayfirlýsing: Að því
er stefnt að allur meginhluti verk-
efna í tengslum við framleiðslu ÍSAL
verði inntur af hendi af starfsmönn-
um þess.
Samningur aðila og yfirlýsing
þessi takmarkar þó ekki heimildir
ISAL til að fela verktökum á al-
mennum markaði verkefni, þar sem
slíkt er hagkvæmt. Sama gildir um
sérhæfð störf sem unnin eru af
starfsmönnum og/eða umboðs-
mönnum Jjjónustuaðila tækja og
búnaðar. ISAL mun láta aðaltrún-
aðarmann fylgjast með fram-
kvæmdum á vegum verktaka og
gera honum fyrirfram viðvart um
það hvaða verkefni áformað er að
fela utanaðkomandi aðilum.
Á yfírstandandi samningstímabili
verður könnuð hagkvæmni þess að
láta verktaka taka við framkvæmd
verkefna byggingadeildar, mötun-
eytis og ræstinga. Leiði þessi könn-
un til þess að ISAL hætti rekstri á
umræddum sviðum verður starfs-
mönnum gefínn kostur á öðrum
störfum í fyrirtækinu eða veitt að-
stoð til að gerast sjálfir undirverk-
takar. Engum fastráðum starfs-
manni verður sagt upp af þessum
sökum.
2. Breytingar á vinnufyrirkom-
ulagi: Við breytingar á vinnufyr-
irkomulagi komi sex mánaða frest-
un á gildistöku í stað neitunarrétt-
ar, ef um ágreining er að ræða.
Frá 1. júní nk. verður[, sam-
kvæmt tillögunum,] tekið upp nýtt
vinnufyrirkomulag í ræstingum, þ.e.
síðdegisvinna mánudaga-föstudaga
kl. 14.00-22.00. Vaktaálag verður
22,5% og aukafrídagar veittir.
Vinnufyrirkomulag þetta bætist við
önnur umsamin vinnufyrirkomulög
í ræstingu og verður notað jafn-
framt þeim. (I upphafí er gert ráð
fyrir að 6-8 manns muni vinna síð-
degisvinnu.)
Til viðbótar [núverandi] dag-
vinnufyrirkomulagi í flutningadeild
og á farartækjaverkstæði er einnig
samið um tvískiptar vaktir. Þessar
vaktir getur ÍSÁL ákveðið að taka
upp hjá hluta starfsmanna ofan-
greindra deilda með eins mánaðar
fyrirvara, en þær skulu síðan standa
í a.m.k. 3 mánuði."
í framhaldi af þessu er Christian
Roth spurður um önnur atriði sem
komið hefur fram að deilt sé um.
Um árdegiskaffitíma sem fram hef-
ur komið að fyrirtækið vilji leggja
niður segir hann aðspurður að fyrir
niðurfellingu þeirra sé fyrirtækið
reiðubúið að borga. Um endurnýjun
ákvæða um aukagreiðslur segir
hann að um hafí verið að ræða ein-
greiðslu sem samið var um í ein-
stöku góðæri, árið 1989. Árið 1990
voru greiddar aukagreiðslur en þá
var var hagnaður hátt í 20 millj.,
auk þess sem ákveðinn áfangi í
fækkun starfsmanna náði fram að
ganga. Útilokað er fyrir fyrirtæki
sem tapaði 1,4 milljörðum á síðasta
ári að semja um aukagreiðslur. En
stóru málin sem standa í vegi
samkomulags eru Verktakayfir-
lýsingin og breytingar á vinnu-
fyrirkomulagi.
— Þú segir að stjórnendur fyrir-
tækisins hafí verri möguleika til að
stjórna innri málum en aðrir stjórn-
endur hér á landi en á móti hlýtur
að koma að það býr við orkuverð,
sem tengt er heimsmarkaðsverði
framleiðslunnar og einnig við sér-
stakar skattareglur. Gefur sú sér-
staða fyrirtækinu ekki rými til að
mæta erfiðu árferði?
„Það er rétt að það gilda að
nokkru ieyti sérstakar reglur um
starfsgrundvöll okkar og auðvit-
að skipta þær máli en það gefur
þó augaleið að þegar um er að
ræða tap upp á 1,4 milljarða duga
þær skammt enda greiðir ÍSAL
síður en svo lægsta verð sem
stóriðja greiðir fyrir raforku hér.
— Hvers vegna er nauðsynlegt
að semja um ykkar sérkröfur nú
þegar aðrir aðilar vinnumarkað-
ar virðast hafa náð sátt um hóf-
lega samninga til 10 mánaða?
„Við viljum styrkja þetta fyrir-
tæki og stefnum að því að ná hér
hámarksafköstum fyrir árið 2000.
Við viljum styrkja atvinnugrundvöll
fólksins sem hér vinnur og það er
þess vegna og í þeirri staðföstu trú
að þetta fyrirtæki géti átt sér
bjarta framtíð sem ég er- tilbúinn
að taka því að skerast kunni í
odda nú. Það er ekkert vit í því
að bíða og bíða upp á von og
óvon og geta ekki komið í fram-
kvæmd umbótum."
Engin áform um lokun
— Geturðu metið það til fjár
hvaða þýðingu þessar kröfur ykkar
hafa fyrir afkomu fyrirtækisins í ár?
„Neiþað er útilokað. Það gæfi
okkur byr í seglin og aukinn
sveigjanleika. Þetta mundi örva
stjórnendur og gefa svigrúm til að
leita nýrra leiða út úr vandanum,
það eru fyrst og fremst slík atriði
sem um er að ræða.
— En komist þið af án þess að
gengið verði að ykkar kröfúm eða
liggur í loftinu hótun um að álverinu
í Straumsvík verði lokað eða dregið
úr starfsemi þar?
„Nei, þótt ég geti ekki útilokað
neitt þá hefur það ekki komið til
álita. Við höfum engin áform um
slíkt,“_segir Christian Roth ákveðið.
— Óttast þú ekki að starfsmenn
hér fari að fara sér hægt eða grípi
til armarra aðgerða?
„Ég get ekki svarað því með
vissu, en ég held ekki. Við erum
ánægð með það að vinnuandinn er
nú betri en oft áður. Okkar starfs-
fólk er mjög traustur vinnukraftur.
Ég á ekki von á aðgerðum.
Nýtt inötuneyti byggt
Ég hef trú á framtíð ÍSAL og til
að undirstrika umhyggju okkar fyr-
ir framtíð fyrirtækisins og hags-
munum starfsfólksins höfum við
ákveðið að ráðst í nýtt verkefni sem
hefur einkar mikla þýðingu fyrir
okkur og starfsmenn okkar. Við
höfum ákveðið að reisa nýja og full-
komna mötuneyti hér á svæðinu.
Þetta verður mikil fjárfesting og er
áætlaður kostnaður um það bil 120
milljónir króna."
Fram kemur hjá Christian að hús
þetta verði á einni og hálfri hæð,
um 1.250 fermetrar að grunnfleti.
Auk matsalar og eldhúss verður
meðal annars í því aðstaða fyrir
tæknideildir, svo og trúnaðarlækni
fyrirtækisins. Fyrirhugað er að
bygging þessi verði tekin i notkun
í lok næsta árs.
„Á föstdagsmorgun (þ.e. í dag),
verður hafist handa við undirbúning
verkefnisins og gerð útboðslýsinga.
Þetta er stórt verkefni og það að í
það er ráðist á þessum erfiðu tímum
undirstrikar, eins og ég sagði, að
ÍSAL hyggst vera hér til frambúðar
og skjóta frekari rótum og einnig
til að undirstrika það að við viljum
hag starfsfólks okkar sem mestan
og bestan." P.G.