Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 28

Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir; Ríkisstjórniu stend- ur við sín fyrirheit — segir Eiður Guðnason umhverfisráðherra SJÚKRAHÚS, heilbrigðisstofn- anir og þeirra málefni voru rædd í tengslum við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar vegna kjarasamn- inga. Eiður Guðnason umhverfis- ráðherra svaraði þremur fyrir- spurnum í fjarveru Sighvats Björgvinssonar heilbrigðis- og tryggingaráðherra á 135. þing- fundi í gærmorgun. Sumarlokanir Anna Ólafsdóttir Björnsson spurði hvort afleiðingar af sumar- lokunum sjúkrahúsa hefðu verið kannaðar. Anna taldi margt sem gert hefði verið og fyrirhugað væri, vera með endemum. Niðurskurður á einum stað leiddi til kostnaðar á öðrum. Og þar sem ríkissjóði tækist að spara yrðu aðrir að gjalda fyrir; sjúklingar og aðstandendur. Anna spurði eftir því hvort það hefði ver- ið metið hvaða áhrif lokanir sjúkra- stofnana og einstakra deilda þýddu fyrir önnur sjúkrahús? Eiður Guðnason umhverfisráð- herra greindi frá því að óskað hefði verið eftir upplýsingum um hvernig heilbrigðisstofnanir hygðust haga rekstri miðað við heimildir fjárlaga og með hliðsjón af niðurskurði og sparnaði. Beðið hefði verið um upp- lýsingar og hefðu flestar stofnanir brugðist vel við. I samræmi við þær upplýsingar hefði heilbrigðisráð- herra í samráði við fjármálaráðun- eyti og fjárlaganefnd úthlutað af þeim fjármunum sem væru ætlaðir til að mæta hinum svonefnda „flata niðurskurði". Við ákvörðun hefði verið sérstaklega haft í huga: 1) Að bráðaþjónusta, skurðstofuþjón- usta, væri hvergi lögð niður á stór- um landsvæðum. 2) Að fæðingarað- staða yrði áfram rekin í þeim mæli sem hún hefur verið og að hvergi yrði lokað fæðingaraðstöðu á heil- um landsvæðum. 3) Að hjúkrunar- deildum yrði haldið opnum af fremsta megni. 4) Að heimahjúkrun yrði að mestu óbreytt. Eiður Guðnason var í vissum erfiðleikum við að veita fyrirspyij- anda nákvæm svör þar eð fullnaðar- ákvarðanir hefðu ekki verið teknar um sumarlokanir á sjúkrahúsum. Það væri þó ljóst að sumarlokanir yrðu fyrst og fremmst á Reykjavík- ursvæðinu eins og verið hefði und- anfarin ár. „Eðlilegur rekstur?" Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) gerði grein fyrir fyrirspurn sinni um hvaða rök væru fyrir því að loka einu sérhæfðu legudeild landsins í geðlækningum barna? Reyndar hefði hún lagt þessa fyrir- spurn fram fyrir margt löngu. Síðan hefði það gerst tíðinda að í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga segði: „Barna- geðdeild við Landspítalann verður áfram í eðlilegum rekstri." Núna vildi Ingibjörg Sólrún fá að vita nánar um „eðlilegan rekstur", t.d. hvort hætta ætti við breytingar á vaktfyrirkomulagi lækna sem hefði leitt til minni þjónustu? Hún sagði einnig að starfsfólk deildarinnar hefði ekki fengið tilkynningu um að hætt væri við fyrirhugaða lokun. Eiður Guðnason sagði að ríkis- stjómin hefði heitið því að bama- geðdeild Landspítalans yrði áfram í eðlilegum rekstri og við það yrði staðið. Að vísu hefði yfirstjórn Rík- isspítalanna þegar undirbúið nokkurn samdrátt í starfsemi þess- arar deildar. Vegna þess hve áliðið væri orðið vors yrði ekki unnt að afturkalla þær ráðstafanir að fullu. En allt yrði gert til halda áfram eðlilegum rekstri. Hefði starfsfólki ekki borist upplýsingar um þetta þá yrðu að sjálfsögðu gerðar ráð- stafanir til að bæta úr því. Ráðherra sagðist ekki ætla að fara að skýra það nánar hvað átt væri við með „eðlilegum rekstri", það væri sjálfsagt sá rekstmr sem þarna hefði verið og ætti þetta orða- lag ekki að gefa tilefni til, hártog- ana. Svavar Gestsson (Ab-Rv) fór fram á það að stjóm spitaíanna fengi upplýsingar um það hvað niðurstöður nýgerðra kjarasamn- inga þýddu. Stjórnarnefndin hefði ekki fengið neinar formlegar upp- lýsingar um ijármuni til að halda opnum öldranarlækningadeildum eða legudeild bama. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafði vissan skilning á því að Eiður Guðnason vildi ekki útskýra orðin „eðlilegan rekstur"; enda væri þetta mál ekki á hans málasviði. En þessi orð þörfnuðust útskýringa. Það væri eitt af því sem heilbrigðis- ráðuneytið þyrfti að gera Ríkispí- tölunum grein fyrir. Ingibjörg Sól- rún taldi einnig nauðsynlegt að það lægi fyrir hvaða ráðstafanir væri ekki unnt að afturkalla að fullu. Rekstur eða fjárfesting Finnur Ingólfsson vildi fá upp- lýsingar um fyrirhugaðar lokanir deilda vegna sparnaðar á sjúkra- húsunum í Reykjavík. Það mátti glöggt skilja að Finnur teldi þessi mál í illþolandi óvissu. Sjúkrahús hefðu orðið fyrir hnífnum og gert að spara. Og svo þegar forstöðu- menn huguðu að lokun einhverjar deildar, brigði stundum svo við að það heyrðist hljóð frá ráðherra; þessari deild mætti ekki loka. Ráð- herrann kæmi svo sem frelsandi engill og útdeildi af þessum hálfa milljarði sem hann hefði til að mæta hinum margnefnda „flata niðurskurði". Þess vegna yrði hann spyija nánar um þessar lokanir og þá sérstaklega um öldrunarþjón- ustuna en henni þyrfti helst að hlífa. Eiður Guðnason umhverfisráð- herra sagði engar skipulegar lok- anir í sparnaðarskyni verða á Borg- arspítala á þessu ári. Þær lokanir sem þar myndu verða, væra ein- göngu vegna hefðbundinna sumar- leyfa. M.t.t. breytts hlutverks spít- alans, væri gert ráð fyrir að fleiri rúm yrðu þar nýtt í sumar heldur en verið hefði. Hvað Landspítalann varðaði sagði ráðherra að þegar skoðaðar væra lokanir umfram þær sem stöf- uðu af hefðbundnum lokunum vegna sumarleyfa starfsfólks hefði spítalinn tekið mið af lokunum eins og þær voru á árinu 1990. Enda þótt ekki hefði komið til aukins niðurskurðar hefði á þessu ári orðið að loka öldrunardeild í 3 mánuði, eins og gert var á árinu 1991. En þessu til viðbótar höfðu ríkisspítalar ráðgert lokun öldrunardeildar í 3 mánuði til viðbótar. Hefði verið tal- ið að 30 milljónir hefðu sparast við þá viðbótarlokun. Samkvæmt yfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar í tengsl- um við kjarasamninga yrði ekki af þessum lokunum. Hins vegar teldu Ríkisspítalamir erfitt að afturkalla fyrri lokunina nú þar sem öllum undirbúningi og þar með skipulagn- ingu sumarleyfa væri lokið. Ráðherra sagði að rík áhersla væri lögð á það við Ríkisspítalana að lokun í Hátúni ylli sem minnstu óhagræði fyrir vistmenn, m.a. yrði rými notað á Vífilsstöðum. Þær lokanir sem yrðu snertu aðallega svonefndar hvíldarinnlagnir. Hins vegar væri á öðram stöðum verið að kanna aukna möguleika á hvíld- arinnlögnum annars staðar en nið- urstöður um þetta lægju ekki fyrir. Það kom einnig fram í svari ráð- herra að ríkisspítalamir teldu að lokanir á öðram deildum, umfram hefðbundnar lokanir, skiluðu 60 milljón króna sparnaði en ríkissþít- alarnir treystu sér ekki til að sundurliða þann sparnað niður á einstakar deildir eða rúm. Alls teldu ríkisspítalamir að lokanir umfram hefðbundnar lokanir spöraðu 100 milljónir króna. A Landakoti færi fram endur- skipulagning á starfseminni. Því væri erfitt að tala um lokanir rúma á einstökum deildum eða sparnað þar að lútandi. En samkvæmt áætl- unum spítalans væri áætlað að loka: Handlækningadeild 3-B (19 rúm) frá 1. maí til 1. sept. en þessi deild hefur að jafnaði verið lokað í einn mánuð vegna sumarleyfa. Rúmum á handlækningdeild 2-B yrði fækk- að úr 28 í 13, tímabilið 1. júlí til 10. ágúst. Lyflækningdeild 1-A væri lokuð frá síðustu mánaðarmót- um en opnaði aftur í sumar að lokn- um endurbótum en þá sem hjúkrun- ardeild. Rúmum á lyflæknadeild 2A yrði fækkað um sex í sex vikur. Þessar lokanir sem hefðu verið fram taldar væru hluti að heildstæðum aðgerðum spítalans til að mæta um 400 milljón króna spamaði. Landa- kotsspítali treysti sér ekki til að svara því nákvæmlega hve stórum hluta þess sparnaðar yrði náð með ofnagreindum lokunum. Það var einnig upplýst að vegna þess að ráðgert væri að taka í notk- un 22 rúma hjúkranardeild hefði verið ákveðið að ráðstafa úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra 10-15 millj- ónum króna í breytingar á húsnæði. Finnur Ingólfsson þakkaði fyrir svörin, þótt honum þættu þau ekki nægilega skýr. Eftir því sem hann best vissi hefði fjárlaganefnd enn ekki skipt þeim fjármunum sem hún ætti að skipta milli sjúkrahúsanna. En svörin sýndu að sjúkrahúsunum væri mismunað. A ríkisspítölunum væri talað um að enn þyrfti að skera niður um 100 milljónir til að halda sig innan fjárlaga. Finnur sagði ráðgert að setja 115 milljónir fram- kvæmdir og endurbætur á Borgar- spítala og Landakoti. Það væri ámælisvert að nýta takmarkaða fjármuni i fjárfestingar á sama tíma og verið væri að loka deildum. Framkvæmdasjóður fatlaðra 1984-91: Ráðstafaði 1.900 milli. króna Framkvæmdasjóður fatlaðra ráðstafaði samtals 1.911 m.kr. á núgildandi verðlagi á árabil- inu 1984-91 að sögn félagsmála- ráðherra í svari við fyrirspurn frá Einari K. Guðfinnssyni (S-Vf.). Samkvæmt svarinu var ráðstaf- að frá 75 m.kr. upp í 710 m.kr. eftir kjördæmum á þessu árabili, samanber meðfylgjandi töflu. Framlög á árinu 1992 námu 258,5 m.kr., þar af til stofnana í Reykja- vík 113 m.kr. Nokkum hluta framlaga er ekki hægt að sundurliða eftir kjördæm- um, flokkast undir framlög til stofnana er þjóna landinu öllu, svo sem til Greiningar- og ráðgjafar- stöðvar ríkisins, Sjónstöðvar ís- lands, Tölvumiðstöðvar fatlaðra og ýmissa svæðisstjórna. Framlög til landssambanda eru færð á Reykjavík enda starfsemi þeirra að mestu leyti þar, segir ráðherra. Ýmsir skólar og vernd- aðir vinnustaðir í Reykjavík þjóna og öllu höfuðborgarsvæðinu. 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1984-91 Reykjavík..................... 77.818 95.529 91.891 82.810 93.599 67.307 88.175 113.428 710.557 Reykjanes .................... 51.584 47.531 29.510 66.085 45.086 86.094 74.266 58.162 458.317 V estu rland ................. 18.780 8.441 7Æ16 3.114 26.645 17.515 7.022 7.464 96.798 Vestfirðir ................... 13.625 12.803 7.034 12.343 8.050 10.042 7.624 4.299 75.819 Norðuriand vestra ............ 13.172 8.301 3.908 6.817 17.579 10.108 9.801 9.160 78.846 Norðuriand eystra ............ 12.266 8.864 8.946 22.255 13.719 13.994 13.017 24.168 117.229 Austuriand .................... 4.879 11.469 6.456 8.028 7.897 7.221 22.375 27.850 96.175 Suðuriand .................... 30.108 14.319 10.060 24.522 20.930 7.331 26.291 9.447 143.008 Ósunduriiðað ................. 3.031 12.775 893 8.767 74.102 20.771 9.566 4.570 134.474 Allt landið...................225.263 220.032 166.514 234.741 307.606 240.382 258.137 258.548 1.911J224 Stuttar þingfréttir Mest auglýst í Morgunblaðinu Utanríkisráðherra hefur svarað skriflega fyrirspurn frá Árna M. Mathiesen um auglýsinga- og kynn- ingarkostnað utanríkisráðuneytisins á árinu 1990 og fyrstu fjóra mánuði ársins 1991. Á árinu 1990 var heild- arkostnaður vegna auglýsinga, kynningar- og upplýsingastarfsemi 6.018 þús. krónur. Á fyrstu fjóram mánuðum ársins 1991 nam þessi kostnaður samanlagður 1.910 þús. - krónum. Með svari utanríkisráðuneytisins fylgir yfírlit yfir auglýsingakostn- aðinn og þá aðila sem fengu greiðsl- ur. Þar kemur m.a. fram að á árinu 1990 var auglýsingkostnaðurinn 1.025.922 krónur. Af einstökum fjöl- miðlum má nefna að Ríkisútvarpið fékk 66.055 krónur, dagblaðið Þjóð- viljinn 108.464 krónur, dagblaðið Tíminn 106.784 krónur, Lögbirting- arblaðið 8.000 krónur. í Morgun- blaðinu var auglýst fyrir 451.530 krónur. Morgunblaðið fékk því hæstu greiðslu á árinu 1990. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 1991 var auglýst fyrir 370.114 krón- ur. Þess má geta að dagblöðin Tíminn og Þjóðviljinn fengu 90.986 krónur í sinn hlut. Ekki er getið um Morgunblaðið. 10,5% stöðugilda Verðlagsstofnunar á landsbyggðinni Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur svarað fyrirspurn frá Bryndísi Friðgeirsdóttur (Ab-Vf) um starfs- mannahald Verðlagsstofnunar. Það kemur fram í svari ráðherra að í lok síðasta árs vora lögð niður 5 störf hjá stofnuninni. Ráðgerð er frekari fækkun starfa sem nemur 3 stöðu- gildum með því að ráða ekki í stöð- ur sem losna vegna uppsagna og þess að starfsmenn fara á eftirlaun. Bryndís spurði um hvernig stöðu- gildi Verðlagsstofnunar skiptust milli höfuðborgarsvæðisins og lands- byggðarinnar? Árið 1991 voru 4,5 störf á landsbyggðinni en 29 á höfuðborgarsvæðinu. Nú væru 3 störf á landsbyggðinni en 25,5 störf á höfuðborgarsvæðinu. Byggt og skipulagt Framvarpi til skipulags- og byggingarlaga var útbýtt til þing- manna í fyrrakvöld. Frumvarpið er samið að ósk Eiðs Guðnasonar um- hverfisráðherra. Frumvarpið er allít- arlegt alls 63. greinar í 7. köflum, auk 3. ákvæða til bráðabirgða. Með- al nýmæla í frumvarpinu má nefna að skipulagslög og byggingarlög eru sameinuð í einn lagabálk. Skilgreint er nýtt hlutverk Skipulagsstofnunar ríkisins þar sem m.a. er lögð aukin áhersla á ráðgjöf og rannsóknir. Skýrari ákvæði eru um löggildingu hönnuða og ábyrgð þeirra. Hönnuðir sem leggja uppdrætti fyrir bygging- arnefnd skulu hafa ábyrgðartrygg- ingu eða leggja fram bankatrygg- ingu sem verkkaupi hefur samþykkt. Nýir ríkisborgarar og lífeyrissjóður ljósmæðra I gær var samykkt sem lög frá Alþingi frumvarp um veitingu ríkis- borgararéttar. Að þessu sinni eign- ast hið íslenska lýðveldi 62 nýja þegna. Einnig var í gær samþykkt sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um að leggja niður Lífeyrissjóð ljós- mæðra en allar skuldbindingar sjóðs- ins skulu falla á ríkissjóð. Þetta frumvarp var flutt að tillögu Ljós- mæðrafélags Islands. Á það hefur verið bent að starfandi ljósmæður eiga eðlilega aðild að öðrum almenn- um lífeyrissjóðum. Lög frá Alþingi Síðastliðinn þriðjudag, var sam- þykkt sem lög frá Álþingi, frumvarp um breytingu á lögum um innflutn- ing dýra. Frumvarpið gerir ráð fyrir að sóttvarnardýralækni sóttvarnar- stöðvar verði heimilt með leyfi land- búnaðarráðherra og samkvæmt reglum sem yfirdýralæknir setur, að stunda dýralækningar utan sótt- varnarstöðvar. Frumvarpið var sam- þykkt með 38 atkvæðum gegn 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.