Morgunblaðið - 08.05.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
29
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Reyklaus bekkurfær verðlaun
Krakkarnir í 9. bekk C í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar duttu í lukkupottinn þegar þau voru valin
úr hópi reyklausra bekkjadeilda á landinu, en það
er Krabbameinsfélagið sem h'efur á síðustu árum
veitt nokkrum reyklausum deildum í þremur efstu
bekkjum grunnskóla verðlaun. Hvað 9. bekk varð-
ar eru verðlaunin 2.000 krónur fyrir hvern nem-
enda og þannig fengu krakkarnir í 9. C, 48 þús-
und krónur. Baldvin Jóh. Bjarnason skólastjóri
kallaði nemendur og foreldra þeirra til fundar í
fyrrakvöld þar sem þetta var tilkynnt en jafnframt
var sest á rökstóla og velt upp ýmsum möguleikum
varðandi hvemig nota eigi þetta fé. Ákveðið var
að fara í ferðalag eftir prófin í vor, en ákvörðun
um hvert farið verður bíður seinni tíma. Af 18
bekjardeildum í Gagnfræðaskólanum reyndust 8
vera reyklausar og sagði Baldvin að heldur væri
farið að síga á ógæfuhliðina hvað þessi mál varð-
ar. Halldóra Bjarnadóttir starfsmaður Krabba-
meinsfélagsins afhenti krökkunum verðlaunin.
Kaldbakur gekk í Is-
lenskar sjávarafurðir
Kaldbakur á Grenivík gekk fyrir skömmu í sölusamtök ísienskra sjávar-
afurða, en frystihúsið var utan sölusamtaka á síðasta ári, eftir að það
gekk úr Sölusamtökum hraðfrystihúsanna um áramótin 1990-91.
Ásgeir Arngrímsson framkvæmd-
astjóri Kaldbaks sagði að menn hefðu
fengið ákveðna reynslu af því að
vera utan sölusamtaka og hefði það
bæði í för með sér kosti og galla.
Þegar málið var skoðað að nýju hefði
mönnum fundist gallarnir fleiri en
kostimir og því hefði sú ákvörðun
verið tekin að ganga að nýju í sö-
lusamtök. Því fylgdi meira öryggi,
sem ekki veitti af að hafa, enda
væri um þessar mundir mikil hreyf-
ing á mörkuðum erlendis.
Kaldbakur gekk úr Sölusamtökum
hraðfrystihúsa um áramótin 1990-91
og á síðasta ári seldi frystihúsið af-
urðir sínar á eigin vegum eða í gegn-
um smærri aðila. Asgeir sagði að
þegar upp hefði verið staðið hefði
mönnum þótt gailarnir við þetta fyr-
irkomulag fleiri en kostirnir og því
verið ákveðið að ganga að nýju í
stærri sölusamtök. Bæði sölusamtök-
in, SH og íslenskar sjávarafurðir
hefðu staðið sig mjög vel, en þar sem
Kaldbakur hefði nýlega sagt sig úr
SH hefði verið ákveðið að ganga inn
í hin samtökin.
Vegnr gerður yfir
Þverá í stað brúar
Ytn-Tjörnum.
NÚ standa yfir framkvæmdir við Þverá í Eyjafjarðarsveit, en þær
hófust síðastliðið haust þegar stórt ræsi var steypt í ánna.
Verktakafyrirtæki Ama Helga-
sonar vinnur nú að því að leggja veg
yfir gljúfrið, sem er allbreitt og djúpt
á þessum stað. Vegurinn hefur verið
færður nokkuð vestar, en gamla brú-
in var.
Að sögn Áma Helgasonar á hann
að skila verkinu um mánaðamótin
júní-júlí, en hann átti lægsta tilboðið
í verkið, 5,7 milljónir, sem er aðeins
55% af kostnaðaráætlun.
Þetta verður mikil samgöngubót
fyrir íbúa sveitarinnar og aðra sem
leið eiga um, en gamla brúin er mjög
þröng og með kröppúm beygjum
beggja vegna. Á undanfömum árum
hafa þrír bílar farið í ána við brúna,
en ekki hafa orðið teljandi slys á
fólki.
Fyrsta brúin yfir Þverá var byggð
í kringum 1886 að fmmkvæði Ara
Jónssonar á Þverá, en steinbrú var
byggð árið 1926 og var hún síðan
endurbyggð árið 1956. Með tilkomu
vegarins fyrir ánna hefur brúin lokið
hlutverki sínu.
Eyjafjarðarsvæðið:
Útlit fyrir mikla vinnu
í frvstihúsum í sumar
Nægur kvóti til ráðstöfunar
ÚTLIT er fyrir að mikil vinna verði í frystihúsum á Eyjafjarðarsvæð-
inu í sumar, veiði hefur verið heldur dræm það sem af er ársins og
því er meiri kvóti til ráðstöfunar en reiknað var með. Mikil ásókn er
í störf í frystihúsunum og er mikið hringt til að spyrjast fyrir um
vinnu. Ungt fólk af höfuðborgarsvæðinu er áberandi fjölmennt í
þeim hópi.
Jóhann Þór Halldórsson útibús-
stjóri KEA í Hrísey sagði að vel
liti út með vinnu í sumar og verk-
efni væru næg. Mun meiri kvóti
væri nú eftir en reiknað hafði ver-
ið með og því benti allt til þess
að mikið yrði að gera í frystihús-
inu í sumar.
Þegar er búið er að ráða rúm-
lega 30 manns til starfa í sumar
og sagði Jóhann að fleiri yrðu
ráðnir. Flestir þeir sem ráðnir hafa
verið eru skólafólk úr Hrísey og
fólk úr næsta nágrenni, eða þá
það tengjist eynni í gegnum
ættingja sína.
Mikil vinna hefur verið í frysti-
húsi Kaldbaks á Grenivík að
undanförnu og hefur verið unnið
frá kl. 6 á morgnana til 17 á dag-
inn og iðulega frá 6 og fram að
hádegi á laugardögum. Frystihús-
ið hefur ekki eigin útgerð, en Ás-
geir Amgrímsson framkvæmda-
stjóri Kaldbaks sagði að menn
byggjust við að hægt yrði að halda
vinnslu á fullum dampi í sumar.
Margir smábátar leggja upp afla
Vortónleikar Tónlist-
arskóla Eyjafjarðar
FJÓRÐU vortónleikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar verða haldnir í
Sólgarði í Eyjafjarðarsveit á laugardag, 9. maí kl. 15. Þar koma
fram nemendur skólans úr Sólgarðsskóla.
Fimmtu tónleikamir verða í Laug-
arborg á sunnudag og hefjast þeir
kl.'13.30, en á þeim koma fram nem-
endur úr Laugalandsskóla og Grunn-
skólanum í Hrafnagili. Sjöttu tónleik-
ar skólans verða í Gamla skólahúsinu
á Grenivík sama daga kl. 17.
Lokatónleikarnir og þeir sjöundu
í röðinni verða í Freyvangi þriðjudag-
inn 12. maí og hefjast kl. 21.00. Þar
koma fram söngnemendur skólans,
auk undirleikara þeirra, Guðjóns
Pálssonar.
Skólaslit verða í Grundarkirkju
miðvikudaginni 13. maí kl. 20.30.
(Fréttatilkyiuming)
hjá frystihúsinu að sumrinu, þá
mun Frosti ÞH landa þar og jafn-
vel fleiri skip.
Ásgeir reiknaði með að i sumar
yrðu ráðnir á bilinu 25 til 30 ungl-
ingar til starfa í frystihúsinu. „Það
er mjög mikið um að skólafólk af
höfuðborgarsvæðinu spyrjist fyrir
um vinnu hjá okkur í sumar og
þá hringir líka mikið af yngra fólki
sem er tilbúið að flytja ef það fær
atvinnu. Því miður er bara ekkert
húsnæði á lausu í þorpinu,“ sagði
Ásgeir.
Nægur kvóti er eftir hjá frysti-
húsi KEA á Dalvík og því fyrirsjá-
anlegt að mikil vinna verði þar í
sumar. Sigurður Jörgen Óskarsson
yfirverkstjóri sagði að ráðnir yrðu
til sumarafleysinga 30 til 40 ungl-
ingar og er það heldur fleiri en
verið hefur. Dregið verður úr salt-
fískvinnslu og fiski pakkað að
mestu í neytendapakkningar, en
það krefst fleira starfsfólks.
Heimamenn ganga fyrir með
vinnu, en Sigurður sagði að fjöldi
fyrirspurna aðkomufólks um at-
vinnu væri mjög mikill. Ekki væri
aðstaða á vegum frystihússins til
Morgunblaðið/Rúnar Þór
700 kíló-
metrar
að baki
„Þetta gengur samkvæmt
áætlun hjá mér,“ sagði
Ingibjörg Sveinsdóttir, en
hún ætlar á þessu ári að
ganga 1.992 kílómetra til
að minna fólk á norrænt
gigtarár sem nú stendur
yfír. Hún hefur nú lagt 700
kílómetra að baki og heldur
ótrauð áfram. Ingibjörg er
sjálf gigtarsjúklingur og
vill hún með göngunni
hvetja aðra sem eiga við
sama sjúkdóm að stríða til
að hreyfa sig og sagði hún
að það væri farið að bera
árangur. Fyrirhugað er á
næstunni að efna til skipu-
legra gönguferða, en fram
til þessa hefur Ingibjörg
gengið ein eða með
ættingjum sínum og vin-
um. I tilefni ársins er nú
unnið að því að efla starf-
semi Gigtarfélagsins á Ak-
ureyri. Gigtarsjúklingar
hafa nú fengið til umráða
sérstakan sundtíma í Gler-
ársundlaug, frá kl. 13 til
13.45 á hveijum fimmtu-
degi og þá hittist fólkið á
Súlnabergi einnig á
fimmtudögum kl. 17, þar
sem málin eru rædd yfir
kaffíbolla.
að taka við aðkomufólki. í sumar verður fiskurinn að mestu unnin í verðmeiri neytenda- pakkningar og bættist nýr kaup- andi frá Evrópu í hópinn sem fyr- ir var nú nýlega. Fyrir þann kaup- anda verður pakkað í fjórar nýjar pakkningar, tvær fyrir þorsk, ufsa og karfa. Þá verður eftir helgi farið að pakka í nýjar pakkningar Hárgreiðslu-/hárskerasveinn Óska eftir að ráða hárgreiðslu- eða hárskerasvein. Nemi, sem lokið hefur 9 mánuðum í skóla, kemur einnig 11. Upplýsingar á staönum. til greina. jwu i hársnyrtistofan
fyrir Bretlandsmarkað. Skipagötu 12, Akureyri, sími 23022.