Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 •AUGL YSINGAR ATVINNAIBOÐI Vélavörð vantar á Garðar II SH-164. Upplýsingar í síma 93-61440. Næturvörður Hótel Holt vill ráða næturvörð til framtíðar- starfa. Krafist er reglusemi, stundvísi og snyrtimennsku. Tungumálakunnátta er nauð- synleg. Umsækjendur verða að vera eldri en 30 ára. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu hótelsins. AU H Bergstaðastræti 37. CHATEAUX. í vörslu óskilamunadeildar lögreglunnar er margt óskilamuna, svo sem reiðhjól, fatn- aður, lyklaveski, lyklakippur, seðlaveski, handtöskur, úr, gleraugu o.fl. Er þeim, sem slíkum munum hafa glatað, bent á að spyrjast fyrir um þá á skrifstofu óskilamuna, Hverfisgötu 113 (gengið inn frá Snorrabraut), frá kl. 14.00-16.00. Þeir óskilamunir, sem búnir eru að vera í vörslu lögreglunnar ár eða lengur, verða seldir á uppboði í portinu í Borgartúni 7, laug- ardaginn 9. maí 1992. Uppboðið hefst kl. 13.30. Lögreglustjórirm í Reykjavík. Aðalsafnaðarfundur Aðalsafnaðarfundur Hjallasóknar verður hald- inn í Digranesskóla sunnudaginn 10. maí nk. og hefst hann kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Sóknarnefnd. Opið hús verður í Félagsheimili SVFR í dag, föstudag- inn 8. maí. Húsið opnað kl. 20.30. Dagskrá: ★ Veiðihorfur sumarið 1992: Guðni Guðbergsson frá Veiðimálastofnun flytur. ★ Hljómlist: Haukur Sveinbjarnason. ★ Glæsilegt happdrætti. Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR. SVTR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR BSc. - nám í búvísindum Umsóknarfrestur um nám við búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri er til 10. júní nk. Athygli er vakin á inntökuskilyrðunum: Stúd- entsprófi af raungreinasviði eða hliðstæðri menntun og búfræðiprófi með fyrstu einkunn. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 93-70000. Bændaskólinn á Hvanneyri. Sjávarútvegsdeildin á Dalvík - VMA veturinn 1992-1993 Skipstjórnamám: Kennt er til skipstjórnarprófs, 1. og 2. stigs. Fiskiðnaðarnám: Kennt er til fiskiðnaðarmannaprófs. Almennt framhaldsnám: 1. bekkur framhaldsskóla. Heimavist á staðnum. Umsóknarfrestur er til 15. júní. Upplýsingar í símum (96)61380, 61162, 61218 og 61160. e. .. ... Skolastjori. Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum eign- um fer fram f skrifstofu embættis- ins, Hörðuvöllum 1, miðvikudaginn 13. maf 1992 kl. 10.00: Austurmörk 7, austurhl., Hveragerði, þingl. eigandi Austurverk hf. Uppboðsbeiðandi er Landsbanki íslands, lögfræðid. Engjavegi 12, Selfossi, þingl. eigandi Soffía Ólafsdóttir. Uppboðsbeiðandi er Jakob J. Havsteen hdl. Laufskógum 33, Hveragerði, þingl. eigandi Brynjólfur G. Brynjólfsson og Edda Guðgeir. Uppboðsbeiðendur eru Byggingasjóður ríkisins, Ásgeir Magnússon hdl. og Kristín Briem hdl. Sýslumaðurinn í Árnessýslu. Bæjarfógetinn á Selfossi. Uppboð Eftir beiðni lögreglustjórans í Reykjavík fer fram opinbert uppboð í Borgartúni 7, bak- lóð, laugardaginn 9. maí 1992 og hefst það kl. 13.30. Seldir verða óskilamunir, sem eru í vörslu lögreglunnar, svo sem reiðhjól, úr, skraut- munir, fatnaður og margt fleira Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík. Gistiheimili - fokhelt Til sölu tvær 270 fm hæðir, sem rúmað geta 20 herbergi, á fögrum stað í Reykjavík. Kjörið fyrir fjölskyldu, sem vill skapa sér at- vinnu og búa á staðnum. Upplýsingar í símum 16541 og 622264. Útboð Húsnæðisnefnd Kópavogs auglýsir útboð á byggingu 38 íbúða við Lautasmára 29-41. Búið er að steypa sökkla og botnplötu. Útboðinu er skipt í 3 verkhluta. Útboð A: Uppsteypt hús tilbúið undir tréverk. Útboð B: Pípulagnir. Útboð C: Raflagnir. Útboðsgögn eru afhent á verkfræðistofu Guðmundar Magnússonar, Hamraborg 7, 3. hæð, gegn skilatryggingu. Tilboð verða opnuð í Félagsheimili Kópavogs á 2. hæð þriðjudaginn 26. maí nk. kl. 14.00. VBrkfræÖistofa Guðmundar Magnússonar VorktrmAiráOafafar Hamraborg 7.200Kópavogi. S. (91)42200. Til leigu verslunarhúsnæði á Laugavegi 51. Kjallari 130fm Götuhæð 100fm l.hæð 130fm Upplýsingar í síma 15093. Kristinn Bergþórsson sf. Laugardagsfundur með Halldóri Blöndal Næsti laugardagsfundur Landsmálafélags- íns Varðar verður á morgun, þann 9. maí. Halldór Blöndal, landbúnaðar- og sam- gönguráðherra er gestur fundarins. Fundurinn hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 12.00. Allt sjálfstæðisfólk velkomið. Stjórn Landsmálafélagsins Varðar. Hestamót helgarinnar: Stóðhestasýning- á Hólum Landsmót í skólaskák EIN ST AKLIN GSKEPPNI, Landsmót i skólaskák, hófst á fimmtudagskvöld með setningu landsmótsins og tefld var fyrsta umferðin. í dag verða síðan tefld- ar 2. umferð í yngri og eldri flokkum, 3., 4. og 5. umferð í báðum flokkum. Landsmótinu Iýkur á sunnudag og er teflt frá 09 að morgni og fram á kvöld, en áætlað er að mótinu ljúki kl. 13 á sunnudag. Teflt er í hús- næði Skáksambands íslands, Faxafeni 12. Á laugardag fer fram 6. umferð fyrir hádegi, en 7. umferðin hefst klukkan 13. Síðan er gert ráð fyrir 7. umferð og hin 8. hefst svo klukk- an 16,30. Á sunnudag hefst 9. umferð í eldri flokki klukkan 09 og í yngri flokki klukkan 10. Eldri flokkur fær 1 klukkustund til um- hugsunar á fyrstu 30 leikina og 20 mínútur til þess að ljúka skákinni, en yngri flokkur fær 45 mínútur til þess að ljúka hverri skák. Mótslit verða klukkan 13 á sunnudag. HESTAMENN verða mikið á ferðinni um helgina eins og reyndar allar helgar í sumar. Samkvæmt mótaalmanaki Land- sambands hestamannafélaga og Hestaíþróttasambands Islands verða þrjú mót um helgina auk kynbótasýningar. Hæst ber að þessu sinni kynbóta- sýning á Bændaskólanum þar sem sýndir verða stóðhestar á stóðhesta- stöð Norðurlands sem starfrækt hefur verið á Hólum í vetur. Einnig koma fram önnur hross bæði stóð- hestar og hryssur. Þá fer einnig fram keppni í tölti þar sem fram koma úrvals töltarar á Norðurlandi og keppt verður í fimmgangi. í Kópavogi halda Gustsmenn sitt árlega íþróttamót, forkeppni fer fram á laugardag en úrslit verða á sunnudag. Keppnin fer fram á fé- lagssvæði Gusts Glaðheimum. Skuggi í Borgarnesi verður með íþróttamót í Borgarnesi á laugardag og hefst keppni klukkan 9.00 og verða úrslit síðdegis. Að síðustu má geta að Háfeti í Þorlákshöfn verður með firma- keppni í Faxholti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.