Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 36

Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 Bergþóra Andrés- dóttir — Minning Fædd 1. júní 1922 Dáin 30. apríl 1992 Allt á að mætast á efsta stað. Allt að samhljómnum stefnir. (Einar Benediktsson) í dag er jarðsett frænka mín og vinkona Bergþóra Andrésdóttir. Mig langar að minnast hennar nokkrum orðum. Bergþóra var fædd á Felli í Ár- neshreppi, Strandasýslu, og var þriðja í röðinni af ellefu börnum hjónanna Andrésar Guðmundsson- ar sem var fæddur 11. september 1882 og dáinn 1. ágúst 1974 og Sigurlínu Guðbjargar Valgeirsdótt- ur sem er fædd 16. júlí 1900 og lifir nú dóttur sína í hárri elli. Að líkindum hafa uppvaxtarár Bergþóru verið áþekk því sem gerð- ist í sveitum landsins á þeirri tíma. Þó við slitum bamsskónum í sömu sveit kynntist ég henni ekki náið fyrr en ég kom til Reykjavíkur, enda aldursmunur nokkur. Eftir að Bergþóra fluttist til Reykjavíkur gekk hún til ýmissar daglaunavinnu og var ávallt eftir-- sóttur starfskraftur sakir síns dugnaðar og samviskusemi. Nú síðast vann hún um margra ára skeið í borðsal Hrafnistu í Reykjavík auk þess að stunda hús- móðurstörfin á heimili sínu. Það var árið 1963 að Bergþóra gekk að eiga Helga Símonarson, f. 22. apríl 1925, sjómann frá Hellisfirði í S- Múlasýslu. Þau eignuðust tvo syni, Daníel Jón prentara, f. 22. júní 1964 og Viðar yfirbókara, f. 2. nóvember 1966. Áður hafði Berg- þóra eignast dóttur, Kristjönu Jónu húsmóður, f. 22. mars 1948. Faðir hennar er Ragnar Halldórsson. Öll hafa börnin fest ráð sitt og eru barnabörnin orðin fimm og barnabarnabörnin eru tvö. Eins og ég sagði hér fyrr kynn- ist ég Bergþóru ekki náið meðan við vorum bæði að alast upp í sveit- inni okkar. Þeim mun meiri urðu kynnin síðar, þegar bæði höfðu flust til Reykjavíkur enda drógust þá frændsystkinin úr sveitinni saman til félagsskapar og mannfagnaða. Var þá heimili Bergþóru oft og tíð- um nokkur miðpunktur. Ég held að ekki sé ofmælt þó ég segi að nánast hafi það talist til undantekninga meðan ég stund- aði sjóinn að ég liti ekki við og heilsaði uppá Bergþóru frænku mína þegar komið var að landi enda stóð.heimili hennar mér ætíð opið bæði hversdagslega og ófáar voru þær stórhátíðir sem ég var þar gest- ur. Þessa alls er nú gott að minn- ast og gleymast mun það ekki að sinni. Einn var ríkur þáttur í fari Berg- þóru, en það var greiðviknin. Eg held að hún hafi bókstaflega ekki kunnað að neita bón ef til hennar var leitað. Bergþóra hafði ákveðnar skoðan- ir á mönnum og málefnum og fór ekki dult með þær. Af eigin raun þekki ég að þeir sem minna máttu sín áttu vísan stuðning þar sem hún var. Þegar ég nú kveð vinkonu mína og frænku að leiðarlokum 'þakka ég henni af alhug þá vinsemd sem hún sýndi mér og mínu fólki til hinstu stundar. Aldraðri móður, eftirlifandi eig- inmanni og öllum öðrum aðstand- endum sendi ég og mín fjölskylda samúðarkveðjur og biðjum algóðan guð að leggja þeim líkn með þraut. Blessuð veri minning Bergþóru Andrésdóttur. Guðlaugur Gíslason. Mig langar til að minnast tengda- móður minnar, Bergþóru Andrés- dóttur í nokkrum orðum, en hún lést á Landspítalanum að kvöldi fimmtudagsins 30. apríl eftir erfið veikindi. Ég og dóttir mín komum inn í þessa fjölskyldu fyir tæpum þremur árum, okkur var tekið þar opnum örmum og fór dóttir mín þótt stálp- uð væri fljótlega að kalla þau ömmu Beggu og afa Helga og sótti mikið í að fara til þeirra og er það til marks um hvernig þau hafa reynst okkur. Mig langar að þakka fyrir þann tíma sem ég átti með Bergþóru, ég trúi varla ennþá að hún sé horfin á braut og maður eigi ekki eftir að sjá hana meir. Mig langar að kveðja hana með sálmi eftir Valdimar Briem. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN KR. TRAUSTASON, Skúlagötu 76, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 5. maí. Bjarni Jónsson, Hörður Hólm Garðarsson, Guðrún Ólafsdóttir, Þóra Haraldsdóttir, Kaj Larsen, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, SÓLVEIG KRISTMUNDSDÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi miðvikudaginn 6. maí. Fyrir hönd aðstandenda, Kristmundur Sigurðsson, Jónína Sigurðardóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Jóhannes Sigurðsson, Sigurjón Sigurðsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR GUÐRÚN ELÍASDÓTTIR NORÐDAHL, lést á heimili sínu 1. maí sl. Að vilja hennar hefur útförin farið fram í kyrrþey. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið, Landssamtökin Þroskahjálp og hjálparsveitir. Skúli H. Norðdahl, Guðrún Valgerður Skúladóttir, Guðbjörg Astrid Skúladóttir, Ingibjörg Lára Skúladóttir, Valgerður Hrund Skúladóttir, Elias Skúli Skúlason, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN KRISTINSSON, Kárastfg 14, Hofsósi, verðurjarðsetturlaugardaginn9. maíkl. 14.00frá Hofsóskirkju. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR, Stórholti 25. Haukur Guðmundsson, Erna Sampsted og börn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐJÓN ÓLAFSSON skipstjóri frá Vestmannaeyjum, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginnn 11. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag fslands og Vífilsstaðaspítala. Sigriður Friðriksdóttir, Gréta Guðjónsdóttir, Friðrik Ó. Guðjónsson, Sigrún B. Sigurðardóttir, Guðjón Sigurbjörnsson, Þórunn B. Bjarnadóttir, Guðbjörg Osk Friðriksdóttir, Dominico Gala, Ófeigur Friðriksson, Árelíus og María Birgitt Gala. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Vatnsdal í Vestmannaeyjum, sem andaðist á gjörgæsludeild Land- spítalans laugardaginn 2. maí, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, laugardaginn 9. maí kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Félags nýrna- sjúkra. Birgir Sigurjónsson, Harpa Kolbeinsdóttir, Haraldur G. Hlöðversson, Anna Kolbeinsdóttir, Marý Kolbeinsdóttir, Marinó Sigursteinsson, Guðrún Kolbeinsdóttir, Jörundur Guðmundsson, Ingibjörg Kolbeinsdóttir, Elfa Kolbeinsdóttir, PatrickTear, Freyr Kolbeinsson, Jóhanna Jónsdóttir, systkini og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar og frænda, VIGFÚSAR SCHEVING JÓNSSONAR frá Vatnsskarðshólum i Mýrdal. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar G-2, Hrafnistu. Ólaffa Jónsdóttir, Tryggvi Ólafsson, Guðný J. Scheving, Eyþór Ólafsson, Sigrún Scheving. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, KLÖRU EGGERTSDÓTTUR, Stórholti 14. Guðrún Guðjónsdóttir, Gunnar Gissurarson, Heiða Guðjónsdóttir, Guðmundur Clausen, Guðný Guðjónsdóttir, Ástþór Valgeirsson, Fanný Eggertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kallið er komið, komin er nu stundin, vinarskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stnð. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Sigríður Hjartardóttir. Að kvöldi fimmtudags, á síðasta degi aprílmánuðar, lauk ævi móður- systur minnar, Bergþóru Andrés- dóttur. Þá yfirgaf' þennan heim eftir óvægin veikindi kona, sem hefur gefið mér svo ósegjanlega mikið. í skjóli hennar, Helga og mömmu, ólumst við upp saman frændsystk- inin fjögur og seinna bættust Símon og Sunna í hópinn. Þetta var stór fjölskylda og þó að þær systur, mamma og Begga, hafi síðar, eftir 25 ára sambúð, flutt sundur hvor með sína fjölskyldu, vorum við samt og verðum alltaf ein stór fjölskylda. Begga og Helgi hafa ætíð reynst mér eins og þau ættu mig sjálf, bæði í stóru og smáu. Begga átti örlátt hjarta og vildi ávallt það besta sínu fólki til handa. Og ég er svo lánsöm að vera ein af því fólki sem naut umhyggju hennar. Því langar mig að þakka elsku Beggu minni fyrir allt það sem hún var okkur, börnunum hennar Eygló- ar og undanfarin ár líka mínum börnum. Elsku amma, Helgi, Kidda, Daddi, Viðar, mamma og ykkar fjöl- skyldur. Mig langar að kveðja Beggu með síðasta erindi Maí- stjörnunnar eftir Halldór Laxness: En í kvöld lýkur vetri sérhvers vinnandi manns og á morgun skín maísól það er maísólin hans. Það er maísólin okkar okkar einingarbands. Fyrir þér ber ég fána þessa framtiðarlands. Megi maísólin lýsa Beggu minni inn í hennar framtíðarland. Ástarkveðjur frá Soffíu. ERFIDRYKKJUR Perlan á Öskjuhlíð perlan sími 620200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.