Morgunblaðið - 08.05.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
37
Vortónleikar Amesingakórsins
Yfirlýsing
lunsamræmt
stærðfræði-
próf í10.bekk
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá
skólastjóra, stærðfræðikennur-
um Foldaskóla og trúnaðar-
manni við samræmt lokapróf í
stærðfræði við skólann. Þessir
aðilar segja að þeir vilji af gefnu
tilefni benda á eftirfarandi:
„Ákveðið var að prófa alla nem-
endur skólans í einum sal, þ.e. í
félagsmiðstöðinni. Vegna tækni-
legra atriða, stillingu á hátalara-
kerfi, merkingu á viðverulista,
truflun vegna seinna nemenda,
hófst prófið ekki fyrr en kl. 9.16.
16 mínútum var því bætt við próf-
tímann. Allur þorri nemenda skil-
aði prófúrlausnum sínum á réttum
tíma.
Nokkrir nemendur unnu að úr-
lausnum nokkrum mínútum leng-
ur en ætlað var. Bent hafði verið
á að tíminn væri útrunninn en
nokkrar mínútur tók að safna öll-
um úrlausnum saman og koma
síðustu nemendum út úr prófsaln-
um.
Nemendur og kennarar gerðu
ákveðna athugasemd við lengd
prófsins og bentu á að það gæti
ekki verið að nemendum væri
ætlað að leysa það á áætluðum
tíma. Sama athugasemd hefur
komið frá forstöðumönnum skóla
um allt land að prófi loknu.“
Loks segja áðurnefndir embætt-
ismenn Foldaskóla að þeir harmi,
að einn nemandi skólans skuli
hafa verið leiddur fram sem vitni
um tímasetningu.
ÁRNESINGAKÓRINN heldur
sína árlegu vortónleika í Lang-
holtskirkju laugardaginn 9. maí
nk. kl. 17.00. Efnisval tónleikanna
er fjölbreytt og er þar að finna á
meðal Þorkel Sigurbjörnsson,
Þórarin Guðmundsson, Sigvalda
Kaldalóns, Inga T. Lárusson, Jón
Ásgeirsson, Sigurð Bragason,
Wofgang Amadeus Mozart og
César Franck.
Einsöngvarar með kórnum eru
þau Dúfa S. Einarsdóttir og Árni
Sighvatsson, undirleikari er Bjarni
Jónatansson og söngstjóri er Sig-
urður Bragason.
Árnesingakórinn minnist þess nú
á þessu ári að liðin eru 25 ár frá
stofnun hans. Hélt hann m.a. tón-
leika í Seljakirkju 4. apríl sl. ásamt
Samkór Selfoss. Einnig verða
haldnir tónleikar í Skálholtskirkju
fimmtudagskvöldið 21. maí nk. kl.
21.00.
Starf kórsins hefur verið blóm-
legt þessi 25 ár og hafa m.a. kom-
ið út tvær hljómplötur með honum,
sú seinni, Glerbrot, fyrir jólin 1990.
Einnig hefur kórinn farið þtjár
söngferðir til útlanda og fer nú sína
fjórðu til Mið-Evrópu dagana
3.-16. júní nk.
Þau sem boða til samkomunnar
á Hótel Börg eru Thor Vilhjálmsson
rithöfundur, Brynja Benediktsdóttir
leikstjóri, Jón Karlsson bókaútgef-
andi og Ólafur Ragnar Grímsson
alþingismaður. Í dreifibréfi frá þeim
Stjórn kórsins skipa nú: Rúnar
Sigurbjörnsson formaður, Ragna
Freyja Karlsdóttir gjaldkeri, María
Baldursdóttir ritari, Guðrún Eygló
Guðmundsdóttir meðstjórnandi og
Örn Lýðsson meðstjórnandi.
(Fréttatilkynning)
segir að ætlunin sé að koma saman
til þess að samfagna Guðrúnu,
leggja áherslu á þá þýðingu sem
góðar barnabækur hafa fyrir menn-
ingu þjóðarinnar og til þess að gera
sér dagamun af svo ágætu tilefni.
Klausturhólar:
Stafrófskver
og afmælis-
rit fræðinga á
bókauppboði
BÓKAUPPBOÐ Klausturhóla,
184. uppboð, verður haldið laug-
ardaginn 9. maí nk. kl. 14.00 á
Laugavegi 25.
Flokkar bóka eru: Verk Halldórs
Laxness, gamlar útgáfur, ævisögur
og minningar, trúmálarit, bókfræði,
orðabækur, málfræðirit, fornritaútg-
áfur, þjóðsögur og þjóðleg fræði, ljóð,
Islendingasögur, afmælisrit og
kveðjurit, ferðabækur, landfræðirit,
blöð, tímarit og æviskrár.
Af einstökum bókum má nefna
fyrstu bók Halldórs Laxness, frumút-
gáfuna hans af Barni náttúrunnar,
útg. 1919, einnig ádeilurit hans,
Kaþólsk viðhorf, svar við árásum
Þórbergs Þórðarsonar, fjöldi afmæl-
isrita til fræðimanna íslenskra fræða:
Grímsævintýr til Gríms M. Helgason-
ar, Davíðsdiktur til Davíðs Erlings-
sonar, Ólafskross til Ólafs Halldórs-
sonar, Trójuhesturinn til Jonna Louis
Jensen prófessors, handrit að Sögu
Kommúnistaflokks íslands, fjölritað
fyrir leshring kommúnista, höfundur
Brynjólfur Bjarnason, Söngbók Stúd-
entafélagsins í Kaupmannahöfn,
1894, svokölluð Brennivínsbók, ýms-
ar erlendar ferðabækur um íslands
m.a. eftir Paul Burkert, sem njósn-
aði um ísland og íslendinga fyrir
Himmler nasistaforingja á þriðja ára-
tugnum, eins og próf. Þór Whitehead
hefur greint í bókum sínu, einnig
ferðabækur eftir W.H. Auden, Spet-
hmann um Öskju o.fl. Einnig ætt-
fræðibækur: Ámesingaættir, Islend-
ingar í Danmörku, Strandamenn eft-
ir sr. Jón Guðnason og marvíslegt
annað efni innan íslenskra fræða
fyrr og nú.
Samfagnaður með
Guðrúnu Helgadóttur
í VIKUNNI var tilkynnt að Guðrún Helgadóttir hefði hlotið Nor-
rænu barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Undir illgresinu. Af því
tilefni verður efnt til samfagnaðar á Hótel Borg laugardaginn 9.
maí. Húsið opnar kl. 22.00 en dagskrá fagnaðarins byrjar stundvís-
lega kl. 22.30.
Hulda H. Olafs-
dóttir - Minning,
Aðfaranótt miðvikudagsins 29.
apríl sl. lést á Landspítalanum
elskuleg tengdamóðir mín, Hulda
H. Ólafsdóttir. Langar mig að minn-
ast hennar með nokkrum orðum.
Hulda var fædd á Bakkarstíg 1
í Reykjavík 26 september 1927,
þriðja í röð barna hjónanna Ólafs
Þ. Olafssonar fiskilóðs, og Margrét-
ar Guðmundsdóttur húsmóður.
Systkini Huldu voru fimm, Guðrun,
Ólafur Björn, Érla Margrét, Helga
Ásta og Reynir. Auk þess sem upp-
eldissystirin Jóna var á heimilinu.
Haustið 1933 flutti fjölskyldan
að Bakkastígnum og á Bræðraborg-
arstíg 4 og þar bjó Hulda allt til
ársins 1971. Hún kom því oft að
að hún væri Vesturbæingur og var
( hreykin af.
Á Bræðraborgarstígnum bjó
einnig Siguijón Steindórsson, síðar
vélvirki, fæddur 21. apríl 1924. Þau
Hulda og Siguijón felldu ung hugi
saman og voru gefin saman í hjóna-
band 9. ágúst 1947 og þá um haust-
ið fæddist þeim dóttirin Kolbrún.
Þau nutu hvors annars ekki lengi,
því Siguijón Iést af slysförum 18.
desember 1950. Fráfall hans var
erfitt hinni ungu eiginkonu og litlu
dótturinni og komst Hulda aldrei
fyllilega yfir þá sorg sem fylgdi
missi eiginmannsins.
Fjölskyldan hafði og mátt þola
ástvinamissi skömmu áður en Sig-
uijón dó, er bróðirinn Ólafur Björn
( drukknaði og faðirinn Ólafur hafði
farist með bv. Gullfossi í febrúar
1941.
( Ég kynntist Huldu er ég fór að
venja komur mínar á Bræðraborg-
arstíginn til að heimsækja Kol-
( brúnu. Fann ég strax hve Hulda
var heilsteypt og góðgjörn kona.
Er við Kolbrún hófurn búskap var
það af okkar beggja hálfu að ekki
kom annað til greina en að bjóða
Huldu að búa hjá okkur. Fyrst
bjuggum við í lítilli íbúð þar sem
þrengsli voru mikil, einkum eftir
að börnin okkar tvö voru fædd, en
árið 1977 fluttum við í hús sem við
byggðum þar sem Hulda bjó í lítilli
íbúð útaf fyrir sig.
Hulda reyndist börnum okkar,
Siguijóni og Herborgu, alveg ein-
staklega góð amma og hún naut
þess að fá að gæta þeirra ef svo
bar við.
Það er vissulega öðruvísi að vera
með tengdamóður á heimilinu og
ég veit að sumir ímynda sér að oft
komi til árekstra og vandamála.
En því var ekki þannig farið á okk-
ar heimili. Ég minnist þess ekki að
komið hafi til nokkurra árekstra eða
vandamála og færi það nánast allt
Huldu til tekna. Mannkostir henn-
ar, framkoma almennt, tillitssemi
og virðing fyrir okkur hinum, komu
algerlega í veg fyrir að vandamál
kæmu upp, auk þess sem þær
mæðgur voru svo mjög samrýmdar
og góðir vinir.
Hún Hulda var ákaflega fróð og'
víðlesin kona. Það var áhugavert
að ræða við hana um hvers konar
dægurmál og landsins gagn og
nauðsynjar. Maður kom aldrei að
tómum kofanum þar sem hún var
annars vegar. Hún hefur lengi
stundað vinnu utan heimilis, lengst
af í Landsbanka Islands. Það er ljúft
að greina frá því að augljóst er að
þar hefur hún eignast marga góða
vini og af samtölum við hana má
ljóst vera að þar ríkir góður vinnu-
andi og henni leið þar vel.
Það væri ofsagt að halda því fram
að hún hafi verið heilsuhraust síð-
ustu árin en hún skilaði þó sóma-
samlega sinni vinnu og henni leið
virkilega illa ef hún missti úr vinnu-
dag.
Sorgin hefur nýlega kvatt dyra
hjá henni sem og skyldmennum og
vinum, er elsta systirin Guðrún og
maður hennar, Sverrir, sem bæði
voru henni svo kær og góð, létust
fyrir skömmu með stuttu millibili.
Brotthvarf þeirra beggja var Huldu
mjög þungbært.
Það er sorglegt til þess að vita
með hveijum hætti brotthvarf
Huldu úr þessum heimi bar að og
sannast þar að kallið gerir oft ekki
boð á undan sér. Hún var að koma
heim úr vinnu föstudaginn 24. apríl
sl. í vondu veðri er hún datt og
mjaðmagrindarbrotnaði. Gerð var á
henni aðgerð sem tókst sem slík
vel, en því miður fékk hún blóð-
tappa sem leiddi hana til dauða.
Það er huggun harmi gegn að
vita til þess hve ósérhlífið og elju-
samt hjúkrunarfólk við eigum. Vil
ég fyrir okkar hönd færa starfsfólki
gjörgæsludeildar og deildar 13 G á
Landspítala okkar bestu þakkir fyr-
ir þá umönnun og aðhlynningu sem
hún Hulda okkar var aðnjótandi þá
sólarhringa sem hún dvaldi þar.
Brotthvarf ástvinar er alltaf sárt
og sorglegt, ekki síst ef það ber
brátt að. Við þær aðstæður er gott
að geta litið til baka og séð að
ævinni, sem er að baki, hefur verið
lifað af fyllingu og trygglyndi. En
lífið heldur áfram og munum við
sem eftir lifum halda minningu
hennar Huldu hátt á lofti. Megi
góður Guð veita okkur styrk til að
sjá framtíðina með gleði í hjarta og
í ljúfum minningum um yndislega
móður, tengdamóður, ömmu, systur
og umfram allt góðan vin.
Að lokum flyt ég, fyrir mína
hönd, konu minnar og barna, ein-
lægar þakkir fyrir samfylgdina og
biðjum við Guð að blessa hana og
varðveita.
Arnar Guðmundsson.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
GUÐMUNDAR STEINDÓRSSONAR
vörubifreiðarstjóra,
Langholtsvegi 95,
Reykjavík.
Þuríður Hjálmtýsdóttir,
Anna Guðmundsdóttir, Kjartan Ólafsson,
Steindór Guömundsson, Wlargrét Brynjólfsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhannes Ragnarsson,
Guðmundur Guðmundsson, Emilía G. Svavarsdóttir,
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Jóhann W. Jóhannsson,
Aslaug Guðmundsdóttir, Sigurður H. Einarsson,
Elín Guðmundardóttir,
Ólöf Guðmundsdóttir, Gunnar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför
MATTHÍASAR GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. bankaútibússtjóra.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Torfadóttir,
Guðmundur Matthíasson, Anne Matthíasson,
Torfi Rafn Matthíasson, Sunneva G. Filipusdóttir,
Ásgeir Matthíasson, Anna Ó. Sigurðardóttir,
Arnar Matthíasson, Anna Kristín Arnarsdóttir,
Hlynur, Helga og Harpa.
Lokað
Lokað í dag, föstudaginn 8. maí, til kl. 13.00 vegna
jarðarfarar ÓSKARS ÓSKARSSON,
Davið S. Jónsson og co. hf.