Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 45 Ný kubba- lína fyrir stelpur Frá Huldu Ólafsdóttur: ÞAÐ er ekki hægt annað en reka * upp stór augu og undrast, þegar virt fyrirtæki eins og LEGO, setur I á markað nýja kubbalínu í mildum ’ „rómantískum" litum og sér ástæðu til að geta þess í auglýsingu, að lína þessi sem fyrirtækið nefnir PARADÍSA sé sérstaklega ætluð stúlkum. Á auglýsingamyndinni, sem birt- ist í Sjónvarpsvísi fyrir maímánuð 1992, getur að líta baðstrandarlíf, hótel, pálmatré, smábíla, hesta og fleira, ásamt kubbafólki að njóta þessa sældarlífs. Og nú er mér spurn: Hvers vegna í ósköpunum er línan sérstaklega ætluð stúlkum? Fara stúlkur frekar á strönd en strákar? Búa þær frek- ar á hótelum með bleikum stigum en strákar? Sigla þær frekar skút- J um og fara þær oftar á hestbak en strákar? Ég bara spyr. Það er ekki hægt að finna nokkra ástæðu fyrir því að þessi kubbalína höfði frekar til stúlkna en drengja og hví þá að vera að auglýsa hana sem slíka? Nú væri gaman að fá svar og skýringu umboðsaðila. Það væri líka gaman að svona auglýsingar, sem vinna gagngert að því að við- halda kynjamismunun, hverfi af markaðnum. Þær eiga ekki heima í því samfélagi jafnréttis kynjanna sem við þykjumst búa við í dag. HULDA ÓLAFSDÓTTIR, leikskólastjóri Smáratúni 3, Keflavík. Pennavinir | 25 ÁRA STÚLKA frá Ghana vill w eignast pennavini af báðum kynjum á Islandi. Hún hefur áhuga á tón- | list og bréfaskriftum. Heimilisfang * hennar er: Miss Florence Sagoe | P.O. Box 135 * Oguaa State (C/R) Ghana, West Africa 16 ÁRA JAPÖNSK stúlka vill eign- ast pennavini á aldrinum 14-17 ára. Hún óskar eftir að fræðast um land og þjóð og biður um að fá mynd af pennavini sínum. Hún skrifar á ensku og heimilisfangið er: Shinko Oasi 1414-2 Yamanashiko Oazahighmtsu Kawaguti Saitma Japan. I leiðréttingar Rangt föðurnafn il Föðurnafn Erlends S. Baldurssonar misritaðist því miður í blaðinu í gær (stóð Baldvinsson). Er hann beðinn P velvirðingar á þeim mistökum. ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR Miðstráið týndist a í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær á bls. 29 var birt nýtt merki landbún- aðarins og urðu þar tæknilcg mis- h tök. Miðstráið af þremur, sem hend- w ur umlykja féll niður í prentun. Hér birtist merkið eins og það á að líta út. Hlutaðeigendur eru beðnir vel- . virðingar á þessum mistökum. Morgunblaðið Sverrir VORVERKIN Nú er tíminn til að taka til hehdinni og tína upp ruslið frá liðnum vetri. VELVAKANDI VESKl RAUTT barnaseðlaveski fannst í húsgagnaversluninni Línunni fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 36011. KETTLINGAR Tveir átta vikna þrifalegir kettlingar fást gefins. Upplýs- ingar í síma 19513. MÖPPUTASKA SVÖRT þunn möpputaska úr plasti tapaðist úr bíl 1. maí, sennilega í Hamraborg í Kópa- vogi. í henni voru ýmis pappírs- plögg o. fl. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 622571 eða skila töskunni til Þjónustumiðstöðvarinnar Afla- granda 40. TÝNDAR MYND- SNÆLDUR HINN 30. apríl sl. hurfu úr versluninni Faco tvær mynd- snældur með heimildarmyndum úr ferðalagi Friðriks Bridde til Egyptalands. Um er að ræða JVC SE-C45 myndsnældur úr myndbandsupptökuvél. Þessar myndir eru algjörlega óbætan- legar og biðjum við þann sem hefur snældurnar eða upplýs- ingar um þær að hafa samband eða senda þær til Faco, Lauga- vegi 89, pósthólf 442, 121 Reykjavík, sími 613008, eða hringja til Friðriks Bridde í síma 672825. Fundarlaun í boði. Viðskiptavinir! Rekstmrvörur verða lokaðar eftir kl. 14.00 í dag vegna 10 ám afmælis fyrirtækisins. Opnum kl. 8.00 á mánudagsmorgun. 1982-1992 10 ÁRA Rekstrarvörur, Réttarhálsi 2,110 Reykjavík. V_________________________________________4 Aðalfundur Stjórnunurfélags Islands Aðalfundur Stjórnunarfélags Islands verður haldinn á Hótel Sögu í Ársal fimmtudaginn 14. maí kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. „Nýsköpun í atvinnurekstri.“ Markús Örn Antonsson, borgarstjóri. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Þátttaka tilkynnist í síma 621066 Fundarstjóri: Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf. • Toyota brettakantar á allar gerðir Toyota jeppa. • Felgur, flestar gerðir - hvítar, krómaðar og úr áli. • Mikið úrval af dekkjum, 30 - 38 tommur. • NÝTT! Brettakantar á Land Cruiser '90 -'92. Úrvalsvara - aðaleinkenni Toyota aukahluta. Nýttu þér ráðgjöf okkar og sendingarþjónustu. (^) TOYOTA Aukahlutir NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI 44144 TOYOTA BRETTA- KANTAR, DEKK OG FEIGUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.