Morgunblaðið - 08.05.1992, Side 46

Morgunblaðið - 08.05.1992, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 Mm FOLX ■ ENSKI landsliðsmiðvörðurinn í knattspymu, Des Walker, sem leikið hefur verið með Nottingham Forest, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við ítalska meistaralið- ið Sampdoria. Kaupverðið er 1,5 milljón punda. ■ FOREST neitaði tilboði upp á 3 milljónir punda í leikmanninn frá Juventus eftir HM 1990, og þá samdi Walker við félagið um að hann fengi að fara fyrir svo „litla“ upphæð ef hann yrði áfram hjá því þar til nú. Það eru nánast taldir smámunir sem Sampdoria greiðir fyrir Walker, miðað við hve frábær leikmaður hér er á ferðinni. ■ SÆNSKI þjálfarinn Sven Eriksson tekur í sumar við þjálfun Sampdoria af Júgóslavanum Vujadin Boskov. Svíinn beitir svæðisvörn, í stað þess að leika maður gegn manni, eins og tíðkast hjá flestum ítölskum liðum. Þess vegna lagði hann höfuðkapp á að kaupa Walker. ■ HUGMYNDIR eru uppi hjá franska knattspyrnusambandinu að ekki verði leikið til úrslita í bikar- keppninni í ár, vegna slyssins hörmulega sem varð er leikur Bast- ia og Marseille var að hefjast í undanúrslitum keppninnar í vik- unni. ■ LAGT hefur verið til að Món- akó, sem hafði tryggt sér sæti í úrslitum, og Marseille, leiki þess í stað 12. maí á Parc des Princes í París, til að safna fé fyrir þá sem eiga Um sárt að binda vegna slyss- ins. ■ BASTIA er hætt þátttöku í keppninni. Forráðamenn þess til- kynntu það í vikunni. ■ JEAN-Pierre Papin, fyrirliði Marseille og knattspymumaður Evrópu, sagði leikmenn á móti því að leikið yrði strax — best,væri að bíða með góðgerðarleik þar til í júní eða júlí. KORFUKNATTLEIKUR Opna Norðurlandamótið í Noregi: Aldrei möguleiki gegn Finnum ÍSLENDINGAR töpuðu fyrir Finnum ífyrsta leik sínum á opna Norðurlandamótinu í körfuknattleik í Osló í gær. Lokatölur urðu 70:101 og tala þær sínu máli um frammistöðu Islendinga. Staðan f hálfleik var 39:51. Liðið átti aldrei neina möguleika í leiknum, finnsku leikmennirnir voru betri á öll- um sviðum. Yfírburðir Finna komu strax í ljós og þegar fimm mín. voru liðnar var staðan 6:20. íslenska lið- BHHm ið náði sínum besta Erlingur leikkafla um miðjan Jóhannsson fyrri hálfleik, er það skrifarfrá náði að minnka oregi muninn í 22:25, en eftir það juku Finnar jafnt og þétt forystu sína og á köflum voru yfir- burðir þeirra algerir. Enginn íslensku leikmannanna átti góðan dag að þessu sinni og það var á köflum ekki heil brú í leik liðsins, hvorki sóknar- né varn- arleik. Valur Ingimundarson var bestur í íslenska liðinu og jafnframt stigahæstur með 21 stig. „Leikmenn mínir náðu ekki að gera það sem fyrir þá var lagt,“ sagði Torfi Magnússon, landsliðs- þjálfari, við Morgunblaðið eftir leik- inn. „Við spiluðum hörmulega í vörn og vorum alltof fljótir að ljúka sóknaraðgerðum okkar. Einnig var skotanýtingin léleg. Það vantaði stemmningu í liðið og það var eng- inn sem tók frumkvæðið og kom liðinu upp úr meðalmennskunni. Annars fannst mér Finnarnir sterk- ir og þeir eiga eflaust eftir að ná langt í mótinu," sagði Torfi. ísland - Finnland 70:101 Opna Norðurlandamótið í körfuknattleik, Njardhallen í Osló, fímmtudaginn 7. maí 1992. Stig íslands: Valur Ingimundarson 21, Magnús Matthíasson 12, Jón Kr. Gíslason 9, Guðmundur Bragason 9, Axel Nikulásson 6, Teitur Örlygsson 6, Guðni Guðnason 3, Tómas Holton 2, Birgir Mikaelsson 2. ■Stigahæstur Finna var Riku Martinen með 24 stig. Ahorfendur: Um 40, þar af 30 íslending- ar. Þetta var eini leikurinn á þessum stað, hinir þrír fóru fram í Nadderudhallen. A-riðill: Danmörk — Litháen 86:89 Eistland - Noregur...................112:84 B-riðill: Lettland - Svíþjóð...................84:82 ísland - Finnland...............-....70:101 ■íslendingar mæta Svíum í dag. Valur Ingimundarson frá Tindastóli lék best íslensku landsliðsmannanna í gærkvöldi og varð stigahæstur. En liðið náði sér engan vegin á strik og tap- aði stórt. KNATTSPYRNA 85 manna hópur utan á vegum KSÍ Kostnaður sambandsins á milli tíu og tólf milljónir króna Knattspyrnusamband sendir fiöenir landf íslands sendir fjögur landslið til út- landa á næstu dögum. A-landslið- ið og U-21 árs liðið fara til Grikk- lands, U-18 ára liðið til Tékkósló- vakíu o g kvennalandsliðið til Eng- lands. Alls verða þetta 85 manns með fararstjórum og þjálfurum sem fara á vegum KSI. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði að kostnaður við þessar ferðir væri á milli 10 og 12 milljónir króna. A-landsliðið og 21 árs liðið fer til Grikklands á laugardaginn. Piltalandsliðið fer utan á mánu- dag til Tékkóslóvakíu til að taka þátt í alþjóðlegu móti og kvenna- landsliðið fer til Englands á föstu- dag í næstu viku þar sem það leikur tvo leiki, gegn Englendinga og Skota í Evrópukeppninni. STAÐAIÞROTTANNA Framkvæmdastjórn ÍSÍ boðar til ráðstefnu um stöðu íþrótta- manna á íslandi í dag. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Sambandsstjórn ÍSÍ þannig að búast má við að þar verði saman- komið allt helsta forystufólk landsins innan íþróttahreyfingar- innar. Viðfangsefni ráðstefnunnar snertir alla íþróttaáhuga- menn. Staða íþróttanna verður rædd út frá ýmsum sjónar- hornum þannig að fram ættu að koma gagnleg atriði. Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 16. maí nk. og hefst kl. 10.00 í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ráðstefnugjald er kr. 600,- og er innifalin súpa og salat í hádegishléi auk kaffiveitinga. DAGSKRÁ: Kl. 10.15 Setning - Ellert B. Schram forseti ISÍ Kl. 10.25 Staða íþróttanna. Ávarp formanns (þróttanefndar ríkisins, Inga Björns Albertssonar. Kl. 10.40 Staða íþróttanna - sjónarmið bæjarfélags. Erling Ásgeirsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar. Kl. 11.05 Staða íþróttanna - sjónarmið sérsambanda. Sigríður Jónsdóttir formaður BSÍ. Kl. 11.30 Staða íþróttanna - sjónarmið íþróttahéraðs. Magnús Oddsson form. íþrottabandalags Akraness. Kl. 12.00 Léttur hádegisverður. Kl. 13.00 Umræður. Kl. 16.00 Ráðstefnuslit. Ingi Björn Albertsson Sigrfður Jónsdóttir Erling Ásgeirsson Magnús Oddsson Skráning þátttakenda í símum 91 - 813377 og 91 -814144 fyrir 14. maí. Forystumenn félaga, sambanda og allt áhugafólk um málefni íþróttahreyfingarinnar er velkomið á ráðstefnuna. SNOKER Stephen Hendry heimsmeistari í annað sinn SKOTINN Stephen Hendry tryggði sér heimsmeistaratitil- inn í snókar í annað sinn í Sheffield á mánudagskvöld. Hann sigraði Jimmy White, Englandi, í úrslitaleik 18:14. Hendry vann síðustu 10 ram- mana eftir að hafa verið undir, 8:14. endry, sem er 23 ára, fékk tæpar 16 milljónir ÍSK fyrir sigurinn. Jimmy White fékk tæpar 10 milljónir ÍSK fyrir annað sætið auk þess 12 milljónir fyrir hæsta skorið í einu stuði, 147 stig. Hendry vann White einnig í úr- slitum á HM fyrir tveimur árum. „Ég hef aldrei leikið betur á ferlin- um,“ sagði Hendry, sem oft hefur verið nefndur maðurinn með stál- taugarnar. „Þetta var leikur þar sem ekki mátti gera ein einustu mistök án þess að vera refsað fyrir það.“ White hefur aldrei unnið heims- meistaratitilinn þó svo að hann hafi verið í allra fremstu röð undanfarin ár. Þetta var í fjórða sinn sem hann tapar í úrslitaleik á HM. Hann sagði að Hendry hafi leikið frábærlega. „Ég kann vel við strákinn og því er ég ekki vonsvikinn að tapa. Hann átti þetta skilið,“ sagði White sem verður þrítugur i næstu viku. „Ég er sannfærður um að ég á eftir að vinna heimsmeistaratitilinn.“ Úrslitaleikurinn í tölum: (Stephen Hendry - Jimmy White, 18:14): 107 (105)-0, 16-117, 70-57, 15-101 (100), 54-68,76-8,53-68,65-67,75-29,9-92,63-47, 54-62, 6-128, 8-71, 70-11, 28-83, 0-90, 0-134 (134), 86-0, 76-7, 8-76, 52-86, 77-35, 65-53, 63-61, 70-60, 70-19, 128 (128)-0, 59-30, 81-26, 134 (134)-0, 112 (112)-5. FELAGSLIF Aðalfundur knatt- spyrnudeildar Vals Aðalfundur knattspyrnudeildar Vals verður að Hlíðarenda í kvöld, föstudag, kl. 20. Venjuleg aðalfund- arstörf. Aðalfundur Fram Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Fram verður haldinn fimmtudaginn 14. maí kl. 20.30 í Framheimilinu. í kvöld Knattspyrna Reykjavíkurmótið: KR og Fylkir eigast við í síð- ari undanúrslitaleik mótsins á gervigrasinu í Laugardal kl. 20. Litla bikarkeppnin: Breiðablik og IA mætast á Sandgrasvellinum í Kópavogi í kvöld og hefst leikurinn kl. 18.10. Blikar verða að sigra með þriggja marka mun ætli þeir í úrslit. Ef það tekst ekki verða það Skagamenn sem leika til úrslita. PILUKAST Landsliðið á NM í Danmörku Landsliðið í pílukasti,' sem keppir á Norðurlandamótinu í byrjun júní og Scandinavian open, hefur verið valið. Landsliðið skipa Ægir Ágústsson, Guðjón Hauksson, Frið- rik Jakobsson, Pétur Hauksson, Friðrik Diego, Örn Sverrisson, Ævar Finnsson og Óskar Þór- mundsson, en varamaður er Óli Sig- urðsson. Firmakeppni til styrktar landslið- inu verður haldið á laugardaginn í Festi í Grindavík og hefst keppni kl. 13.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.