Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 47

Morgunblaðið - 08.05.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992 47 KNATTSPYRNA ! I I I I ) I I ) I I > t : Sigurður Grétarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, meiddist í leik með Grasshoppers á þriðjudaginn og óvíst er hvort hann getur leikið gegn Grikkjum í næstu viku. JUDO / EVROPUMEISTARAMOTIÐ Bjami kominn íátta manna úrslh Hefur möguleika á að keppa um bronsið BJARNI Friðriksson er kominn í átta manna úrslit í mínus 95 kg þyngdarflokki á Evrópu- meistaramótinu íjúdó, sem hófst í gær í París. Aðrir íslend- ingar, Freyr Gauti Sigmunds- son, Halldór Hafsteinsson og Sigurður Bergmann, eru hins vegar úr leik. Bjarni heldur áfram keppni á morgun. g^jami sat hjá í fyrstu umferð, en mætti svo Leeb frá Austur- ríki. Leeb náði forystu fljótlega, er hann skoraði Koka, en undir lokin náði Bjarni honum í fastatak og sigraði á ippon. í þriðju umferð mætti Bjarni Voinov frá Eistandi, sem áður keppti fyrir Sovétríkin. Bjarni náði að skora Yuko (5 stig) og var yfir þar til í lok glímunnar, er Voinov hljóp undir hann og náði að sigra með Morotegari. í fyrstu uppreisnarglímu átti Bjarni í höggi við Ivan frá Rúmen- íu. Ivan var yfir, skoraði Wasari, en Bjarni náði að skora Yuko og náði Rúmenanum síðan í armlás og vann á ippon. Bjarni var þar með kominn í átta manna úrslit og mætir Hoedt frá Hollandi á morgun. Þar verður eflaust við ramman reip að draga, því Hoedt sigi-aði í gær Mark Meil- ing frá Þýskalandi, silfurverðlauna- hafa frá síðasta Evrópumeistara- móti, á ippon. Þess má þó geta að Bjarni sigraði Hoedt þennan á opna skandinavíska mótinu fyrir tveimur árum. Tapi Bjarni fyrir Hollend- ingnum lendir hann í sjöunda sæti, en vinni hann viðureignina keppir Bjarni um bronsverðlaun. Freyr Gauti Sigmundsson keppti í mínus 78 kg flokki. Hann tapaði í fyrstu umferð fyrir Júgóslavanum Dragit, þrátt fyrir að hafa glímt mjög vel að mati Vachuns landsliðs- þjálfara. Dragit tapaði í næstu umferð, þannig að Freyr Gauti fékk ekki uppreisnarglímu og var úr leik. Halldór Hafsteinsson keppti í mínus 86 kg flokki og tapaði á ipp- on gegn Rúmenanum Cottario í fyrstu umferð. Rúmeninn vann í næstu umferð þannig að Halldór fékk uppreisnarglímu og mætti Finnanum Timo Peltola. Halldór skoraði Yuko snemma glímunnar, en undir lokin lentu þeir í gólfið, Peltola náði Halldóri í armlás og vann á ippon. Sigurður Bergmann mætti mjög sterkum Þjóveija, Máller, í fyrstu umferð +95 kg flokksins. Eftir jafna viðureign tapaði Sigurður með minnsta mun, þremur stigum, eftir að Máller skoraði koka. í uppreisnarglímu mætti Sigurð- ur Igor Miller frá Lúxemborg. Sig- urður stjórnaði glímunni, sótti af- gerandi meira og er þeir lentu í gólfínu ætlaði hann að festa and- stæðing sinn í taki sem Sigurður beitir oft; að rúlla honum yfir sig og halda þar. En Igor sá við Sig- urði, snéri vörn í sókn, náði armlás og vann. Sigurður keppir í opnum flokki á morgun. Þar mætir hann Mat Honnett frá Frakklandi í fyrstu umferð. Honnett þessi sigraði.í opn- um flokki á opna franska meistara- mótinu fyrr í vetur, þannig að róður Sigurðar verður erfiður. 184 keppendur frá 36 þjóðum taka þátt í Evrópumeistaramótinu að þessu sinni. Sigurður meiddur Óvíst hvort landsliðsfyrirliðinn verður með gegn Grikkjum SIGURÐUR Grétarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu, meiddist ívikunni íleik með félagi sínu, Grasshoppers í Sviss, og óvíst er hvort hann getur verið með landsliðinu í fyrsta leiknum í heimsmeistarakeppninni í næstu viku — gegn Grikkjum íAþenu. Það var í bikarleik með Grass- hoppers á þriðjudaginn að Sig- urður meiddist. Liðpoki í vinstri ökkla rifnaði og það blæddi inn á liðinn. Sigurður gat ekki stigið í fótinn á miðvikudag, en leið betur í gær en gat þó aðeins tyllt fætinum niður. Sigurði var skipað að hvíla fótinn algjörlega í þrjá daga til að byija með. Því eru engar líkur á að hann verði með félagi sínu um helgina og óljóst hvort hann verður orðinn góður fyrir landsleikinn í Aþenu. Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, hafði í gær ekki ákveðið hvaða leik- mann hann kallaði inn í hóp sinn fyrir Grikkklandsferðina, ef Sigurð- ur á ekki heimangengt. Þó er lík- legt að það yrði Haraldur Ingólfsson af Akranesi sem bættist við. Hópur- inn heldur utan á morgun. Sjónvarpið fær sýningar- rétt á Samskipadeildinni IÞRÓTTADEILD Ríkisútvarps- ins undirritaði f gær samning við Samtök 1. deildarfélaga í knattspyrnu um upptöku- og útsendingarrétt Ríkisútvarps- ins frá keppni í 1. deiid ís- landsmótsins i knattspyrnu, Samskipadeildinni, sumarið 1992. Því verður sýnt frá leikj- um deildarinnar á báðum sjónvarpsstöðvum, því áður hafði verið samið við Stöð 2. Sjónvarpið mun gera keppninni skil í beinum útsendingum og sérstökum þáttum, sem verða á dagskrá á laugardögum og enn- fremur tíunda úrslit og sýna myndir frá helstu leikjum í 11- fréttum. Á Rás 2 verður fylgst með öllum helstu leikjum sumars- ins og fréttir fluttar frá mótinu eins og tilefni gefst til. Aðilar hafa náð samkomulagi við helsta stuðningsaðila mótsins, Samskip, og heitir deildin Sam- skipadeild í ár eins og í fyrra. Ennfremur kosta Samskip út- sendingar íþróttadeildar í sjón- varpi. Keppni í Samskipadeildinni hefst laugardaginn 23. maí næst- komandi með leikjum ÍBV og Vals, Þórs og Fram og KR og ÍA. URSLIT Bjarni Friðriksson stóð sig vel í Frakklandi í gær, tapaði að vísu einni glímu en er kominn i átta manna úrslit. Körfuknattleikur NBA-deildin Vesturdeild, 2. umferð: Utah J azz - Seattle...108:100 ■Utah er yfir 1-0, en það lið sem fyrr sigr- ar í fjórum leikjum kemst áfram Íshokkí NHL-deildin Úrslitakeppnin: NORRIS-DEILD Chieago - Detroit..'......5:4 ■Chicago hefur unnið þrívegis, en Detroit aldrei. Chicago dugir því einn sigur til við- bótar til að komast áfram. SMYTHE-DEILD Edmonton - Vancouver......5:2 lEdmonton er yfir, 2:1. Fjóra sigra þarf til að komast áfram. Heimsmeistaramótið Prag, Tékkóslóvakíu: Átta liða úrslit Sviss - Þýskaland.........3:1 Tékkóslóvakia - Bandaríkin.8:1 11 undanúrslitunum á morgun mæta Finnar Tékkum og Svisslendingar leika við Svia. Knattspyrna Vináttulandsleikur Stokkhólmi, Svíþjóð: Svíþjóð - Pólland.........5:0 Kennet Andersson (9., 25.), Klas Ingesson (43.), Martin Dahiin (62.), Stefan Petters- son (67.) Áhorfendun 9.425 Ítalía Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikur: Tórínó: Juventus - Parma..........1:0 Roberto Baggio (vítasp). Portúgal Bikarkeppnin, undanúrslit: Leixoes - Porto...........0:2 Reykjavíkurmótið: Fram í úrslit Framarar komust í gærkvöldi í úrslit Reykjavikurmótsins í knattspymu, er þeir sigruðu Vals- menn 1:0 á gervigrasvellinum í Laugardal. Það var Ríkharður Daðason sem gerði eina mark leiks- ins í fyrri hálfleik, eftir góða send- ingu Ántons Bjöms Markússonar. Það kemur í ljós í kvöld hveijir mótheijar Framara í úrslitunum verða, en í kvöld mætast KR-ingar og Fylkismenn í síðari undanúrslita- leiknum. Úrslitaviðureignin fer svo fram laugardaginn 16. maí. íÞRÚm FOLK ■ GYLFI Orrason, knattspymu- dómari, dæmir leik Noregs og Sviss 23. maí í Noregi, í Evrópu- keppni kvenna. Pjetur Sigurðsson og Sæmundur Víglundsson verða línuverðir. ■ EKKERT vevðm úr því að Stef- án Arnaldsson og Rögnvald Erl- ingsson dæmi einn af úrslitaleikj- um Evrópukeppni karla í hand- knattleik, eins og þeim var tilkynnt meðan þeir dæmdu í B-keppninni í Austurríki. Dómarapar frá Sviss hefur verið sett á leikinn í staðinn. ■ LITLAR líkur eru á að Ronnie Whelan, fyrirliði Liverpool, verði með í úrslitaleik ensku bikarkeppn-' innar á morgun vegna meiðsla. Li- verpool mætir þá 2. deildarliði Sunderland á Wembley.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.